Dagur - 18.04.1951, Síða 9

Dagur - 18.04.1951, Síða 9
Miðvikudaginn 18. apríl 1951 D AGUR íl Menntaskólaleikuriim 1951: Sund- garpurinn, eftir Franz Arnold og Ernest Baeli. Leiltstj.: Jón Norðfjörð Nú um alllangt skeið hefur það tíðkast, að nemendur Mennta- skólans á Akureyri hafa á ári hverju æft gamanleik og sýnt bæjarbúum og hafa þessar skemmtanir skólapiltanna mælzt vel fyrir og átt vinsældum að fagna í bænum. í sl. viku hófust sýningar á Mentnaskólaleiknum 1951, og var það gamanleikurinn „Sundgarpurinn" eftir Arnold og Bach, en leikstjóri er Jón Norð- fjörð og er þetta sjöundi leikur- inn, sem hann stjórnar fyrir skól- ann. Um tilgang skólans með því að éfna til slíkra sýninga, segir Þór- arinn Björnsson skólameistari m. a. svo í leikskrá: ,..... En slík leikstarfsemi hefur fleira sér til ágætis en gamanið eitt. Það hefur ávallt verið talið mikils virði, að tóm- stundum væri vel varið, svo mik- ils virði, að einhvér hefur sagt: „Segðu mér, hvernig þú verð tómstundum þínum, og eg skal segja þér, hver þú ert.“ Má slíkt til sanns vegar færa, því að í frjálsum leik tómstundanna segir eðlið skýrar til sín en í viðjum skyldustarfsins. Og í nútímaþjóð- félagi, þar sem vélar létta æ meira erfiði mannsins barna, og tóm- stundir lengjast að sama skapi, fer stórum vaxandi þörfin á því, að oss lærist að fara rétt með tómstundir vorar. Má vel svo fara, ef ekki tekst giftusamlega til í þessu efni, að auknar tóm- stundir verði mannkyninu fremur til tjóns og ógæfu en þroska og hamingju í framtíðinni. Það er alkunna, að menn leiðast helzt á glapstigu í sambandi við skemmt- anir og tómstundagaihan. Því er fátt nauðsynlegra ungum mönn- um en að temja sér þroskandi tómstundastörf. Meðal annars af þessari ástæðu eru skólaleikir skólabót eða eiga að vera, ef rétt er að farið. En annað má og nefna hér. Við skólaleiki leggja nemendur fram óeigingjarnt starf, þar sem þeir horfa ekki til neinna fjármuha- Ihgra launa, og er þess sízt van- þörf í þjóðfélagi, sem elur um of eigingirni þegnanna og kennir þeim fremur að heimta en fórna. Hef eg oftar en einu sinni dáðst að því, hve möglunarlaust nem- endur leggja á sig erfiði leiksins með stöðugum aefingum viku eft- ir viku, jafnframt því sem þeir hafa í engu vanrækt nám sitt né ætlazt til nokkurra fríðinda um- fram aðra nemendur. Hef eg vit- að til þess fyrr og síðar, að sumir hafa haft pámsbækurnar með sér á æfingar og skötizt til að glugga í þær, þegar hlé hefur gefizt. Og þetta hafa ýmsir áreiðanlega gert með gleði, en með gleði skyldi hvert starf unnið, ef því á að fylgja andleg hollusta.“ Leikurinn Sundgarpurinn er léttviðrislegur gamanleikur og hefur engan boðskap að flytja. Tilgangur hans er sá einn, að vekja hlátur ,og tekst það allvel. Leikurinn heimtar ekki mikla leikkrafta og hentar því vel ungu fólki, sem ekki hefur áður stigið á fjalirnar, og mun það eiga við um mai’ga leikendanna að þessu sinni. Eigi að síður tekst unga fólkinu vel að halda uppi hinum létta og gamansama blæ leiksins og skilar hlutverkum sínum yfir- leitt vel og hressilega. Einkum vekur leikur þeirra Gylfa Páls- sonar, í hlutverki dr. phil. Valde- mar Más, og Flosa Ólafssonar, í hlutverki Ottós Magalín, kátínu, enda skila þeir hlutverkum sínum vel, einkum Gylfi, sem kalla má að sé mjög spaugilegur á senunni Af kvenhlutverkunum kveður mest að frú Gabríelu (Aldís Frið- riksson), og Kötu, dóttur Maga líns (Hólmfríður Sigurðardóttir) og eru þessi hlutverk mjög sæmilega leikin. Aðrir leikend- ur eru: Ei’na Hermannsdóftir, Ágúst Þorleifsson, Indriði Einars- son, Guttormur Sigurbjörnsson, Hermann Pálsson, Jón Hallsson, Haraldur Bessason, Jóhanna Þor- geirsdóttir og Birna Þórarins- dóttií’. ' Á undan leiknum og í milli þátta leikur danshíjómsveit M. A. og er að því góð skemmtun. Að öllu samanlögðu ma segja, að góð skemmtun sé að sjá gam- anleik þennan og auðséð er, að leikstjórinn og þeir nemendur skólans, sem leika eða hafa unnið að sýningunni á annan hátt, hafa lagt sig fram um að gera hana sem bezt úr garði. Væri maklegt að leikurihn hlyti góða aðsókn. Frá Starfsmannafélagi Akureyrarbæjar Starfsmannafélag Akureyrar- bæjar hélt nýverið aðalfund sinn. Félagsatala í árslok 1950 var 52 starfsmenn — 5 konur og 47 karl- ÝMISLEGT FRÁ BÆJARSTJÓRN BÆRINN hefur verið krafinn um skaðabætur fyrir truflanir á veitingasölu í Samkomuhúsinu vegna breytinganna þar. Samkvæmt bókun bæjarráðs 5. þ. m. hefur Sara Benediktsdóttir krafizt greiðslu á kr. 38.931.88. Bæjarráð taldi kröfur þessar fjarri öllu lagi og bauðst til að setja þrætuna í gerð. Stúlka eða ungiingsstýlka óskast í sumar til heimilisstarfa frá miðjum mai. — Þrennt i heimili. Hreiðar Valt'ýsson Fjólug. 18. Sínii 1439. Ak. Útsæði Nokkrar tunnur af Gull- auga-útsæði til sölu. — Hringið í Knarberg. NYKOMIÐ: Ullarnœrfalnaður barna. Kjólefni, margir litir. Vinnufatnaður Verzlmiin London h.f. Éypór H. Tómasson. Kven-annbandsúr fundið. Geymist á afgr. Dags. Stjórn félagsins var að mestu endurkosin, en hana skipa nú: Formaður Bjarni Halldórsson skrifstofustjóri, ritari Jón Norð- fjörð aðalbókari, gjaldkeri Karl L. Benediktsson bókari, með- stjórnendur Þorsteinn Stefánsson bæjargjaldkeri og Þorsteinn Þor- steinsson sjúkrasamlagsgjaldkeri. Varaformaður er Oddur Krist jánsson byggingameistari. í launamálanefnd voru kosnir Oddur Kristjánsson bygginga- meistari, Anton Kristjánsson yf- irverkstjói’i og Ásgeir Markússon bæjarverkfræðíngur. Endurskoð- endur félagsreikninga Magnús Olafsson sundkennari og Sigurð- ur Halldórsson bókari. Þessar tillögur helztai’ voru samþykktar á fundinum: 1. Aðalfundur Starfsmannafé- lags Akureyrarbæjar 1951 gleðst yfir samþykkt stjómar Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja um samræmingu á launum opin- berra starfsmanna og verðlagi lífsnauðsynja og skorar jafnframt á stjórn B. S. R. B. að halda máli þessu eindregið til streitu og far- sælla lykta. 2. Aðalfundur Starfsmannafé- lags Akureyrarbæjar ítrekar fyrri áskorun sína til bæjarstjórnar Akureyrar um að standa við gef- in loforð um að láta endurskoða launasamþykkt Akureyrarkaup- staðar og samræma hana við laun hliðstæðra starfsmanna Reykja- víkurbæjar. — Ennfremur ítrekar fundurinn þá fastlegu von sína, að félaginu sé gefinn kostur á að senda launanefnd frá sér, sem samningsaðila ásamt bæjarráði. Fundurinn félur launamála- nefnd að flytja málið við bæjar- stjórn og mæta sem samningsaðili fyrir Starfsmannafélagið. Fáist ekki endurskoðun og leiðrétting um launagreiðslur, þrátt fyrir þessi tilmæli og þrátt fyrir samþykkt bæjarstjórnar þar um, verði sérstaklega reynt áð fá fullar launauppbætur samkvæmt raunverulegri vísitölu hvers mánaðar. 3. Aðalfundur Starfsmahnafé- lags Akureyrarbæjar, haldinn 29. marz 1951, samþykkir að skora á stjórnina að beita sér fyrir því við bæjarstjórhina, að skrifstof- um bæjarins verði hér eftir lok- að allan laugardag næstan fyrir Páska eins og bönkum og opin- berum stofnunum.1’ Tillögur þessar voru allar sam- þykktar samhljóða. Fundurinn fór hið bezta fram og urðu allmiklar umræður um mál þau er á dagskrá voru. Sýndi fundurinn að eining og samheldni er ríkjandi í félaginu og eru fé lagsmenn ákveðnir í að halda fast á þeim málum er þeim geta orðið til heilla. BÆJARVERKFRÆÐINGUR skýrði bæjarráði frá því 12. apríl að verulegt tap hefði verið á grjótmulningi bæjarins undanfarin ár og mundi þó vera enn meira sl. ár og það, sem af er þessu ári. Leggur bæjarráð því til við bæjarstjórn, að hækka verð á mulningi til sam- ræmis við þ*ð, sem vara þessi er seld í Rvík og verði verðlag sem hér segir: Perlu og loftmulningur kr. 8.50 pr. hl., veggjamulningur kr. 6.50 pr. hl., púkkgrjót kr. 30.00 pr. tenm., salli kr. 8.60 pr. hl. Bæjarráð ákvað að tilnefna Ásgeir Markússon bæjarverkfræðing í stjórn fyr- irtækisins „Möl og sandur" fyrir næsta starfsár. BÆJARGJALDKERI gerði fyrirspurn um það til bæjarráðs, hvernig reikna skuli vísitölu á vatnsgjöld, þ. e. samkv. gildandi kauplagsvísitölu, verðlagsvísitölu eða meðalvísitölu sl. árs. Bæjar- stjóri upplýsti af þessu tilefni að tekjur Vatnsveitunnar standi eigi undir gjöldum. Leggúr bæjarráð því til að vatnsskattur af húsum hækki um 50% og vísi'tala verði reiknuð á sama hátt og við kaup- greiðslur. BÆRINN hefur hafnað forkaupsrétti sínum að býlinu Kotá við Akureyri. Kaupandi er Björn Eiríksson, Hlíðarenda. — Bæjarfógeti hefur óskað eftir að lögreglusamþykkt verði endurskoðuð, þar sem hún er orðin 17 ára gömul og úrelt. Bæjarráð hefur veitt 1000 kr. til þessa verks. — Bæjarráð hefur lagt til við bæjarstjórn að forstjóra úthlutunarskrifstofunnar sé sagt upp starfi, með því að skömmtun sé að mestu hætt. — Borgarí í Oddeyrargötu hefur fengið 500 kr. skaðabætur frá bænum vegna óþrifa og skemmda er orsökuðust af bilun á holræsi. ÞÝZKUR SJÓNGLERJASMIÐUR vill setjast að hér á Akúreyri og reka gleraugnaverzlun. Maðurinn er erlendur ríkisbörgari og félags- málaráðuneytið sendi bæjarstjórn erindi hans til umsagnar. í fund- argerð bæjarráðs segir, að „augnlæknir sá, er hér situr, hefur með höndum gleraugnasölu og sér bæjarráð því ekki ástæðu til að bæj- arstjórn mæli með beiðninni.“ HEILDARKOSTNAÐUR við íþróttasvæðið nýja er orðinn kr. 223.271.66, segir í fundargerð íþróttavallanefndar, dags. 9. þ. m., þar af í skuld um 30 þús. kr. — Aðeins ein umsókn barst um rafmagns- verkfræðingsstöðuna, sem Rafveita Akureyrar auglýsti nýlega. Sótti Knut Otterstedt (yngri), Akureyri, og leggur nefndin til að hann verðr ráðinn til starfsins sem fyrst. — Stjórn IBA hefur skrifað bæj- arráði og mælzt til að sundlaug bæjarins verði opin almenningi til afnota eftir hádegi á sunnudögum yfir sumarið. Bæjarráð fól bæjar- stjóra að athuga, hvort sundlaugarverðir vilji taka þetta að sér og fyrir hvaða gjald. Þóra Sigríður Guðmundsdóttir frá Reykjum Þú horfin ert — það húmar stundum skjótt í heimi þeim, sem geymir yl og blóm. Nú heimili þitt drjúpir dauða- hljótt, þess dvínar ljós við þennan skapadóm. Þú varst því gleði’ og styrkur langa stund, þú stefndir fram og settir markið hátt. Þú áttir djarfan hug og haga mund og heita lund og traustan. vilja’ og mátt. Þú vildir að til sigurs væri sótt þú sýndir dáð r— og líka vinning hlauzt. Þú ástvinunum veittir gjafa- gnótt þú garði þínum unnir fölskva- laust. Þú gesti mörgum greiða veittir þrátt og glaðra viðræðna þú efndir til.. Þú kaust að sjá sem víðast vorsins hátt, og virtir félagsandans gleðiyl. Með hetjulund þá hörðu raun þú barst, sem háðir þú við langt og dapurt stríð. Þá studd af hlýrri hönd þess vinar varst, sem veitt þér hafði gæfu langa tíð. Hann man og þakkar allt, sem únnið var og yfir djúpið mikla beinir sýn. Og bjarmi skýr þá fyllir skuggans far, því fögnuð hlýjan vekur minning þín. Þú hallar þreyttu höfði’ í friðar- skaut — í hinzta sinni vinir kveðja þig. Nú liðin er þín langa vetrarþraut og ljóma vorsins slær á nýjan stig. Jórunn Ólafsdóttir Sörlastöðum.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.