Dagur - 17.10.1951, Blaðsíða 1
12 SÍÐUR
Forustugreinin:
„.. . . lágum hlífir hulinn
verndarkraftur“. Gott að við
erum ekki eins og farísear
erlendra þjóða!
Dagu
Sjöunda síðan:
Að norðan — rætt um land-
helgismálin og aðstöðu
. Norðlendinga.
XXXIV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 17. október 1951
41. tbl.
Andimi er reiðubúinn
Múhammeð Mossadegh forsætisráðherra hefur innleitt ýmsar nýj-
ungar á stjórnmálasviðinu, t. d. hinn pólitíska grát, sem áhrifaríkur
hefur reynzt á fjöldafundum. Fyrirmenn þjóðanna panta sér venju-
lega vist á lúxushótelum er þeir eru á ferðalögum, en Mossadegh
býr um þessar mundir á spítala í Nevv York að eigin ósk. Er þó svo
hress, að haim flutti mál lands síns á fimdi Öryggisráðsins. Myndin
sýnir Mossadegh studdan iir flugvélinni er hann kom til New York.
Landhelgisdeilan í Haag:
útvíkkun landhel
flóum er e
m semja
innar, ef fjörð
r
„Island sérlega tengt málarekstrinum “
segir brezki málflytjandinn
í brezkum blöðum, sem hingað
liafa borizt er ýtarlega greint frá
málflutningi Breta í Ilaag, þar
sem deila þeirra og Norðmanna
um iandhelgismál er til úrskurð-
ar fyrir alþjóðadómstólnum.
í frásögnum þessum er aðstaða
málsaðila útskýrð betur en til
þessa hefur verið gert hér heima.
Kemur fram að
höfuðdeiluefnið er ekki sú
ákvörðun Norðmanna, að út-
víkka landhelgi sína úr 3 míl-
um í 4 mílur, heldur það fyr-
irkomulag breytingarinnar, að
línan skuli dregin beint miðað
•við 47 tiltekin annes á norsku
ströndinni, e:i ekld fylgja
strör>dmni eídr.
gingu „Sjafnar
ný
í þessum brezku blöðum er
tekið fram og skírskotað til mál-
flutnings Breta í Haag, að Bret-
ar séu
„tilbúnir að veita Norðmönn-
um útvíkkun landhelgi simiar
úr 3 í 4 mílur, en krefjast þess
jafnframt, að þessi lína fylgi
eftir fjöruborði norsku strand-
arinnar,“
eins og segir í „Fishing News“.
En Norðmenn aftur á móti, segir
sama blað, halda því fram,
að eina praktíska leiðin til
þess að ákvarða slíka línu
undan mjög vogskorinni og
skerjóttri strönd, sé að draga
hana beint 4 milur undan 47
(^ramhald á 5. síðu).
r
Allir togarar Utgerðar-
félagsins á ísfiskveiðum
Allir togarar Útgerðai-félags
Akureyringa eru nú á ísfiskveið-
um fyrir Bretlandsmarkað. —
„Svalbakur“ inun halda héðan
álciðis til Bretlands í dag.
Hefur skipið verið að veiðum
fyrir Norðui'landi. „Kaldbakur"
fór út í fyrradag (seldi síðast í
Þýzkalandi), en ,,iiarðbakur“
hefur verið nokkra daga á veið-
um og er það fyrsti túr skipsins
eftir heimkomuna frá Bretlandi,
þar sem meiriháttar viðgerð fór
fram á fiskimjölsverksmiðju
skipsins, sem fyrr er frá skýrt. í
fiskverkunarstöð Útgerðarfélags-
ins á Cleráreyrum er nú senn
lokið við að þurrka saltfiskafla
togaranna frá sl. vetri og mun
fiskmat hefjast þar innan
skams.
„Jöriuidur“ á leið
til Bretlands
Togarinn „Jörundur" er nú á
léið á erlendan markað með fisk-
farm, hinn fyrsta síðan skipið
lauk síldveiðum og eftir hreinsun
þá ,er fór fram á því hér. „Jör-
undur“ hefur á fjórða þúsund
kits og mun selja í Bretlandi á
föstudag eða laugardag.
erlendri u
III!
landsins
Framsóknarf élags-
skrifstofan opin á ný
Skrifstofa Framsóknarfélags
Akureyrar í Hafnarstræti 93
(Jerúsalem) 4. hæð, sem lítið hef-
ur verið starfrækt síðan Tómas
Árnason lögfræðingur hvarf héð-
an til framhaldsnáms erlendis,
hefur nú verið opnuð aftur og er
skrifstofutíminn fyrst um sinn á-
kveðinn á mánudögum kl. 6—7
e. h. og á þriðjudögum og fimmtu
dögum kl. 8.30—10.30 e. h. Mar-
teinn Sigurðsson verður til við-
tals á skrifstofunni á þessum tím-
um. Þess er vænzt, að flokks-
menn líti inn á skrifstofuna.
200 hestar af töðu
brenna á Myrká
Hinn 13. þ. m. kom upp eldur í
heyhlöðu að Myrká í Hörgárdal,
en í henni voru 500—600 hestar
af töðu. Menn af nærliggjandi
bæjum og úr Slökkviliði Akúr-
eyrar komu til hjálpar heimilis-
fólkinu við að slökkva eldinn og
tókst það, en áætlað er að 200
hestar hafi eyðilagzt. Á Myrká
býr Ármann Hansson.
Sápuverksmiðjan Sjöfn eyði-
lagðist af eldi hinn 22. apríl 1950,
en eigendur hennar — KEA og
SÍS — ákváðu þegar að byggja
nýja verksmiðju á rústum hinn-
ar gömlu og má nú kalla að því
verki sé lokið. — Verksmiðjan
sendir nú á markaðinn ýmsar
nýjar framleiðsluvörur, sem lík-
lega eru til að viima hylli al-
mennings, enda munu þær skáka
þeim'' erlendu hreinlætisvörum,
sem hér eru á boðstólum, bæði
um verð og gæði.
„Dagur“ hefur átt tal við fram-
kvæmdast j ór a verksmið j unnar,
Ragnar Olason efnafræðing, um
endurbyggingu verksmiðjunnar
og hina nýju framleiðslu.
— Endurbyggingunni er sem
næst lokið, sagði Ragnar Olason,
og framleiðslan við hinar nýju
aðstæður hafin af fullum krafti.
Þetta er ný verksmiðja, ekki að-
eins húsið sjálft, heldur einnig
vélarnar. Húsið — þrjár hæðir —
er reist á grunni gamla hússins,
vélarnar eru flestar nýjar, af full
komnustu gerð. Skömmu eftir
brunann fór eg utan í erindum
verksmiðjunnar og keypti vélar
til hinnar nýju verksmiðju í
Þýzkalandi, allar nýjar og full-
komnar. Naut eg ágætra leið-
beininga danska samvinnusam-
bandsins, FDB, sem sjálft rekur
fullkomna hreinlætisvöruverk-
smiðju.
Innlend framleiðsla skákar
erlendri.
Þessar nýju vélar eru nú tekn-
ar til starfa og hinar nýju fram-
leiðsluvörur verksmiðjunnar óð-
um að koma á markaðinn. Til
framleiðslunnar eru einungis
notuð fyrsta flokks hráefni og er
nú lausara fyrir en fyrrum að fá
nauðsynleg hráefni síðan rýmk-
að var um verzlunarhöftin. Fyr-
irkomulag verksmiðjunnar, hrá-
efni, vélarnar og sú tæknilega
þekking, sem hún hefur völ á,
tryggir það, að framleiðsluvör-
urnar eru fyrsta flokks vara og
góðu heilli er unnt að selja þær
fyrir verð, sem í flestum tilfellum
er lægra en verð erlendra hrein-
lætisvara, sem hér er á boðstól-
um.
Það er ástæða til þess að
vekja athygli fólks á þeirri
staðreynd, sagði Ragnar Ola-
son, að við þá tæknilegu að-
stöðu, sem hér er fyrir hendi,
er auðvelt að framleiða hrein-
lætisvörur sem standa jafnfætis
þeim erlendu tegundum, sem
hér eru útbreiddastar og mest
auglýstar.
En hin þjóðhagslega þýðing
þess að vinna vöruna í landinu
sjálfu ætti öllum að vera aug-
ljós.
FuIIkomnasta hreinlætisvöru-
verksmiðja landsins.
„Sjöfn“ er nú tvímælalaust
langsamlega fullkomnasta hrein-
lætisvöruverksmiðja landsins,
enda vörur hennar fjölbreyttast-
ar og fullkomnastar. Verksmiðj-
an sendir nú á markaðinn Perlu-
þvottaduft, sem ekki hefur feng-
ist síðan í stríðsbyrjun og er hér
um sérlega vandaða vöru að
ræða, en heldur jafnframt áfram
framleiðslu hinnar ódýrari teg-
undar, „Geysis“. Komnir eru á
markaðinn sápuspænir, er nefndir
eru „Sólar-sápuspænir“, liliðstæð
vara þeim erlendu sápuspónum,
sem hér hafa fengizt og mjög
samkeppnisfærir um verð. Þá eru
komnar á markaðinn ýmsar teg-
undir af sápu, þ. á. m. handsáp-
(Framhald á 8. síðu).
Unnið að uppsetningu
röntgentækja í nýja
spítalanum
Fyrir nokkru eru komin hingað
nýju röntgentækin, sem sett
verða upp í nýja fjórðungs-
sjúkrahúsinu. Er hér um að ræða
mjög fullkomin og dýr tæki,
smíðuð hjá Philipsverksmiðjun-
um í Hollandi, og eru þau um
allt mun fullkomnari en tæki
þau, sem nú eru í notkun í gamla
spítalanum. Uppsetninguna mun
Ingólfur Bjargmundsson raf-
magnsfræðingur annast, en hann
hefur dvalið hjá Philipsverk-
smiðjunum og þar m .a. kynnt sér
gerð slíkra tækja. Uppsetningin
mun taka langan tíma og er mjög
vandasamt verk. Fleira af búnaði
nýja spítalans er nú komið eða að
koma til landsins. T. d. mun
vinna við að koma lyftunum fyrir
í húsinu nú um það bil að hefjast.