Dagur - 17.10.1951, Qupperneq 8
8
D A G U R
Miovikudaginn 17. október 1951
Sfofnun fiskirækfar- og veiðifélags
EyjafjarSarár undirbúin
Bændur á fundi hér í síðastliðinni viku
Slökkviliðið fær til umráða hluta
nýbyggingarimiar við Geislagötu
Fyrirkomulag brunatryggingamála hér úrelt
og óhagkvæmt
Á þriðjudag í sl. viku var hald-
inn fundur hér á Akureyri til
þess að ræða stofnun fiskiræktar-
og veiðifélags Eyjafjarðarár og
sóttu fundinn ín. a. formenn
búnaðarfélaganna í Önguls-
stað-, Saurbæjar- og Hrafnagils-
hreppum og form. Jarðræktarfél.
Akureyrar.
Ennfremur mætti á fundinum
Valdimar Pálsson hreppstjóri á
Möðruvöllum, en hann var hvata
maður fundarhaldsins og hafði
hann í sumar skrifað formönnum
búnaðarfélaganna bréf og hvatt
til þess að þeir beittu sér fyrir
framkvæmdum og félagsstofnun
til að gera Eyjafjarðará að góðri
og arðvænlegri veiðiá á ný
Var góð veiðiá.
Fiskigengd í Eyjafjarðará hef-
ur mjög verið spillt hina síðari
áratugi vegna ránveiði, einkum
við ósana, en einnig með neta-
veiði í ánni sjálfri. Fyrr á árum
var áin talin álitleg silungsveiðiá,
og var þá til mikilla nytja fyrir
margar jarðir. Sú tíð er nú liðin
og eru sáralítil not af fiski í ánni.
Uppeldisskilyrði eru þó talin
álitleg, bæði fyrir lax og silung
og var áin rannsökuð af Pálma
Hannessyni fyrir allmörgum ár-
um og leizt honum hún líkleg til
fiskiræktar. Þá var að forgöngu
Vilhjálms Þór forstj.' sett laxa-
klak í ána árin 1937 og 1938 og
varð af því álitlegur árangur með
því að síðan hefur orðið vart við
lax í ánni, sem ekki þekktist áð-
ur, enda þótt þetta klak væri í
smáum stíl og næði yfir skammt
árabil.
Áhugi fyrir félagsstofnun.
Á fundinum hér í sl. viku kom
fram eindreginn áhugi fyrir fé-
lagsstofnun meðal landeigenda til
þess að friða ána fyrir ránveiði
og stofna til fiskiræktar.
Var ákveðið að hefjast handa
um undirbúning þessa hags-
munamáls héraðsins og ákveðið
að boða til stofnfundar fyrir
væntanlegt fiskiræktar- og veiði-
félag hið allra fyrsta. Auk Valdi-
mars Pálssonar sóttu fundinn
Garðar Halldórsson oddviti á
Rifkelsstöðum, Finnur Kristjáns-
són bóndi í Ártúni, Ketill Guð-
jónsson bóndi á Finnastöðum og
Ármann Dalmannsson, Akureyri.
Mun þessi nefnd undirbúa stofn-
fund félagsins.
Óskað aðstoðar kunnáttumanns.
Fundarmenn töldu þess brýna
þörf að kunnáttumaður í fiski-
ræktarmálum yrði fenginn til
leiðbeiningar og hafa formenn
búnaðarfélaganna sent landbún-
aðarráðuneytinu ósk um að Ólaf-
ur Sigurðsson á Hellulandi komi
hingað til að aðstoða félagið við
allan undirbúning.
Mun mega vænta þess að til
stofnfundarins verði boðað bráð-
lega og er vel að hafizt verði
handa um þetta nauðsynjamál og
Eyjafjarðará verði með tíð og
tíma umbreytt úr því ófremdar-
ástandi, sem ránveiði og hirðu-
leysi um fiskiræktina hafa hrund
ið henni í síðustu áratugina. Fyr-
ir Akureyri hefur það verulega
þýðingu að góð veiðiá sé hér rétt
við bæjarvegginn, t. d. með tilliti
*
til ferðamanna, og gott veiðivatn
er verul'eg búbót fyrir þær jarðir
er land eiga að því. Er ástæða til
að hvetja landeigendur til að
sameinast nú uJjnnálið.
- Endurbygging
„Sjafnar“ nú lokið
(Framhaíd af 1. síðu).
um, sem hljóta lof allra, er reynt
hafa. Kertasteypa verksmiðjunn-
ar fer nú fram í nýjum vélum og
verða margar kertategundir á
boðstólum er taka fram hinni
eldri framleiðslu. Ymsar fleiri
vörutegundir mun verksmiðjan
senda frá sér innan tíðar.
Þýðingarmikil nýjung.
Bygging þessarar fullkomnu
hreinlætisvöruversmiðju er mik-
ilvæg nýjung í iðnaðarmálum
landsins og enn eitt lóð, er SÍS og
KEA leggja á þá vogarskál, er
stuðlar að auknu efnahagslegu
sjálfstæði þjóðarinnar. Fyrir Ak-
ureyrarbæ hefur -þessi fram-
kvæmd mjög .mikla þýðingu og
er markverður þáttul’ hinna
miklu iðnaðaþframkváemda KEA
og SÍS hér, en þær eru beinlínis
hyrningarsteinn atvinnulífs bæj-
arins.
NÚ UM mánaðamótin hóf
þingmannanefnd Sameinuðu
þjóðanan að starfa við rann-
sókn á þvingunarvinnu og
þrælabúðum um heim allan. í
nefndinni er m. a. norski
hæstaréttarlögmaðurinn Paul
Berg. Nefndin mun kynna sér
m. a. tik-kipanir ríkisstjórn-
anna í Sovét-Rússlandi, Pól-
landi og Tékkóslóvakíu um
þvingunarvinnu og þrælabúð-
ir, vitnisburð flóttamanna o.
fl. gögn.
Kveðjuathöfn
í Skútustaðakirkju
Síðastliðinn sunnudag fór fram
í Skútustaðakirkju kveðjuathöfn
séra Hermanns heitins Gunnars-
sonar, en eins og kunnugt er lézt
hann sviplega af slysföi-um 10. þ.
m. — Hann verður jarðaður í
Reykjavík.
Kistan var borin frá heimili
séra Hermanns og fylgdi henni
stór hópur vina og ættingja. —
Kirkjan hafði verið fagurlega
skreytt, og strax var fyrirsjáan-
leg't, að hún myndi trauðla rúma
allt það fólk ,er saman var komið
til að þess að kveðja hinn ástsæla,
unga ksnnimann.
Athöfnin hófst með sálmasöng.
Síðan fluttu ræður, kvæði,
ávörp og bænir: Pétur Jónsson,
Reynihlíð, frú Arnfríður Sigur-
geirsdóttir, Skútustöðum, frk.
Ásgerður Jónsdóttir og Pétur
Pétursson, Gautlöndum, séra
Sigurður Guðmundsson, Grenj-
aðarstað og séra Friðrik A. Frið-
riksson, prófastur, Húsavík. Þess
á milli söng kirkjukórinn undir
stjórn Jónasar Helgasonar frá
G'rænavatni.
Þessi stund í Skútustaðakirkju
mun aldrei líða úr minni þeirra,
er þar voru staddir. Hún var svo
þrungin af samúðartilfinningu,
fögrum ræðum, trú og heitum
bænum, að þess munu fá dæmi.
Og þar kom það greinilega í ljós,
hvílíkur ágætismaður séra Her-
mann var, hversu kærkomið
Mývetningum var starf hans og
heimili. — Á hinum stutta starfs-
tíma hafði hinn bjarti, fórnfúsi
og kærleiksríki hæfileikamaður
og þjónn kirkjunnar áunnið sér
miklar vinsældir og traust, er
lýsti af í hinu fegursta ljóði og
mörgu saknaðartári. — Einnig
var konu séra Hermanns, frú
Sigurlaugu Johnson, mikið þakk-
að starf hennar á prestssetrinu og
meðal fólksins í byggðinni. —
Voru prestshjónin sérstaklega
samhent í köllunarstarfinu utan
heimilis sem innan.
Kveðjuathöfnin var frá byrjun
til enda, sem ein prédikun, er
aldrei gleymist. — Því mun hún
um ókomin ár lifa í minningunni
og lýsa upp veg sóknarbarnanna
í Mývatnssveit. Þannig kvaddi
séra Hermann. — Sú kveðja var
átakanlega sár, en óumræðilega
fögur.
Blessuð sé hin glæsta minning
hans.
Slökkviiið Akureyrar hcfur
fengið til umráða nokkurn hluta
nýju slökkviliðsbyggingarinnar
við Geislagötu og er flutt þang-
að með áhöld sín öll.
Er slökkviliðið til húsa á 1.
hæð, en þar er líka geymslupláss,
sem Rafveitan hefur, og stofa sem
hýsir fuglasafn það, er Jakob
Karlsson gaf bænum. Eftir er að
byggja tvær hæðir hússins. Fyr-
irkomulag brunavarnamála bæj-
arins er nú í deiglunni og standa
yfir samningaumleitanir við
Brunabótafélagið um iðgjalda-
lækkun, enda verði bætt við
nýjum brunabíl, nýjum bruna-
síma og komið upp fastri bruna-
vörzlu. Stendur og til að skipta
bænum í hverfi eftir brunaá-
hættu, með mismunandi iðgjaldi.
Iðnskólinn var settur síðastl.
mánudag — 15. október — að
viðstöddum nemendum skólans,
kennuriun og mörgum gestum. —
Um 80 ncmendur munu stunda
þar nám í vetur, og er það tals-
vert Iægri tala cn mörg undan-
farin ár, og stafar það af því, að
miklu færri nýjir nemendur eru
nú teknir til iðnnáms í bænum
en áður um langt skeið, sökum
samdráttar og erfiðleika flestra
iðngreinanna.
Af þessum sökum m. a. þykir
og ekki ástæða til að halda uppi
kennslu í 1. bekk skólans í vetur,
og starfa þar því aðeins þrjár
ársdeildir, í stað fjögurra að
undanförnu.
Þær breytingar hafa orðið á
kennararliði skólans að þessu
sinni, að í stað Geirs heitins
Þormars, sem andaðist fyrir
skólaslit í vor, kemur Guðmund-
ur Frímann rithöfundur, og
kennir hann alla fríhendisteikn-
ingu í skólanum. — í stað Per
Krogh verkfræðings, sem flutzt
hefur burt úr bænum ásamt fjöl-
skyldu sinni, tekur Árni Árnason
vélfræðingur, forstjóri vélsmiðj-
unnar Odda, við kennslu í iðn-
teikningu allra vélsmíða og járn-
smíða og skyldra iðngreina, en
hann hefur nýlega lokið fram-
haldsnámi í iðngrein sinni við
verkfræðiskóla í Stokkhólmi. Þá
hefur Knut Otterstedt yngri, raf-
magnsverkfræðingur, verið ráð-
inn til kennslu í rafmagnsfræði í
Iðnskólanum, en hann hefur
einnig nýskeð lokið háskólaprófi
í sérgrein sinni erlendis, en Ingvi
Hjörleifsson, rafvirkjameistari,
kennir rafvirkjum iðnteikningu í
vetur. Loks tekur Ragnar Ólason
efnafræðingur við kennslu í
efnafræði og eðlisfræði í efri
bekkjum skólans.
Aðrar breytingar hafa ekki
orðið á kennaraliði Iðnskólans að
Því ekki undanþága?
Vonandi athugar bæjarstjórn-
in möguleikana á því, að losa
bæinn alveg undan einokunar-
valdi Brunabótafélagsins, enda
má fullvíst telja að frjálst' útboð
trygginganna mundi spara bæj-
armönnum stórfé í iðgjöldum.
Hafa menn verið féflettir nógu
lengi hér með ranglátu og
heimskulegu fyrirkomulagi trygg
ingamála. Sýnist engin fram-
bærileg ástæða fyrir Alþingi að
neita Akureyri um undanþágu
frá brunabótaskyldu hjá Bruna-
bótafélaginu, því að Reykjavík
fékk slíka undanþógu greiðlega
fyrir nokkrum árum, er um hana
var sótt, til mikils sparnaðar og
hagræðis fyrir borgarana.
þessu sinni, en alls starfa þar nú
11 stundakennarar, auk skóla-
stjórans, Jóhanns Frímann.
----------------11
Bifreiðastöðin ||
Stefoir si. ii
Símar 1218 og 1547.
Gabardine-efni
í kvenkápur væntanlegt í
næsta raánuði.
Tek á móti pöntunum.
Saumastofa
Björgvins Friðrikssonar,
Brekkugötu 35
(áður Verzl. Baldurshagi).
Bókhaldsnámskeið
held eg sem að undanförnu.
Kennslan hefst upp úr 20.
þ. m., og stendur yfir í 3
mánuði. — Þeir, sem æskja
þátttöku, tali við mig sem
ailra fyrst.
Sigurður M. Helgason,
lögfræðingur.
■ Sími 1543.
Dansleikur
verður haldinn að Hrafna-
gili laugardaginn 20. þ. m.
Ágóðinn rennur til sjúkra-
húss Akureyrar.
Haukur og Kalli spila.
Veitingar.
Dansinn hefst kl. 10 e. h.
P. S.
UPPBOÐ
verður haldið að Bjarmastíg 7 hér í bæ, laugardaginn
20. þ. m., kl. 2 síðdegis. Seldir verða alls konar bús-
rnunir og liúsgögn, tilheyrandi db. Ragnheiðar Bene-
diktsdóttur. — Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 16. okt. 1951.
★ -K*-K^-K:Ar-K'Á-K'*'-K'Á-K^-K'*-K*-KÁ-K*-K*
AUGLÝSIÐ í DEGI
★ -KAr-KrAr-K'Ar-KTA-KAr-KAr-KrAr-K'Ar-KAr’K'Ar-K'Ar-KAr-K
Færri nemendur í Iðnskólanum vegna
samdráttar í iðnaðinum