Dagur - 05.12.1951, Qupperneq 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 5. desember 1951
LAUST OG FAST
1 bréfi, sem dr. Richard Beck prófessor í Grand Forks hefur skrif-
að blaðinu, er greint frá ferðalagi Þórarins Björnssonar skólameist-
ara um Bandaríkin og heimsóknum hans til háskóla og annarra
menntastofnana. Hefur skólameistari víða flutt ræður á ferðum sín-
um og sagt frájfslandi og íslendingum og mælt ýmist á enska eða
franska tungu. í lok bréfs síns segir próf. Beck: .. Með fram-
komu sinni allri hafði hann aukið góðhug þeirra, sem honum kynnt-
ust, til íslands og íslenzku þjóðarinnar, og virðingu þeirra fyrir
landi og þjóð. En eigi getur betra kynningarstarf henni til handa á
erlendum vettvangi."
Nokkrar glefsur úr framsöguræðu formanns fjárveitingarnefndar
Alþingis, er hann gerði grein fyrir áliti meirihluta nefndarinnar:
„. . . . samnefnari fyrir svörum umboðsmannanna (ríksvaldsins) má
segj? að sé þessi (við óskum um sparnað): Við þurfum fleira fólk,
meira fé og meira húsnæði til þess að geta rækt þau verkefni, sem
okkur eru falin.“ „Laun embættis- og starfsmanna ríkisins nema nú
90—100 millj. króna.“ Enn segir form.: „. . .. ýmsar upplýsingar, sem
fyrir liggja hjá fjárveitinganefnd sýna, að margir starfsmenn ríkis-
ins eru þar á 60—90 þús. kr. launatekjum, þótt launalög ákveði þeim
eigi meira en 30—50 þús. kr. árslaun. Er þessum uppbótum náð
eftir ýmsum leiðum. ... “
Á fundi Sameinaðs Álþingis í sl. viku, upplýsti félagsmálaráðherra
m. a. eftirfarandi um rekstur Tryggingastofnunar ríkisins: Árið 1950
greiddi stofnunin í laun til starfsliðs í Rvík 982 þús .kr. Annar skrif-
stofukostnaður 493 þús. Allur kostn. við rekstur stofnunarinnar
varð 2,6 millj. kr. Bæjarfóg. og sýslumenn fengu 258 þús. kr. í inn-
heimtulaun og umboðsþóknun og sjúkrasamlög 435 þús. kr. Um sl.
áramót voru óinnheimt iðgjöld frá 1950 4,1 millj. kr., mest í Rvík 2,2
millj. Sveitir greiða skilvíslegar iðgjöld en kaupstaðir.
Þjóðviljinn leggur mikla áherzlu á það í sl. viku, að tveir meðlim-
ir sendinéfndar kommúnistaflokksins til Rússlands, séu „ekki í
Sósíalistaflokknum og hafi aldrei nærri starfsemi hans komið“, enda
séu þeir „þjóðkunnir að sannsögli og heiðarleik“! Þessa lýsingu gef-
ur blaðið á þeim Bolla Thoroddsen og Jóni Magnússyni fréttastjóra
• íkisútvarpsins. Mun mörgum koma hún spánskt fyrir sjónir, a. m.
k. þeim, sem hafa fylgst með leynihernaði kommúnista í fréttum
útvarpsins á undanförnum árum. Það er athyglisvert, að á meðan
fréttastjórinn var í Rússlandsferðinni, birti blað flokksins harðorð-
ar greinar um „misnotkun“ útvarpsins af hálfu andstæðinga fimmtu-
herdeildarinnar. Þetta mun méga telja næsta gamalkunnar hern-
aðaraðferðir, að leiða athyglina frá eigin vígbúnaði með því að æpa
um stríðsæsingar annarra. Sannleikurinn er, að útvrpið virðizt orð-
ið furðulegt kommúnistahreiður, ekki aðeins í fx-éttastofunni, heldur
vaða kommúnistar uppi í dagski-ánni og i-eka laumuáróður í ýmsum
dagskrárliðum. Útvarpsráð hefur vel vandað mannvalið til að ann-
ast ýmsa fasta liði og er engu líkai-a en hinn ópólitíski, óflokks-
bundni, strangheiðarlegi og sannsögli fréttastjóri hafi þar einn um
öll mál fjallað.
Hér í blaðinu var eitt sinn í sumar rætt um þörf á aukinni vinnu-
gleði meðal starfsmanna bæjarins .Kominform-blaðið gi'eip þessa
athugasemd á lofti og sagði að þarna hefði Dagur lýst fasistísku inn-
ræti sínu! í sumar skrifaði forstj. Gefjunar starfsfólkinu bréf og
hvatíi til aukinnar vandvirkni og bætti-a vinnubragða vegna harðn-
andi samkeppni við erlendar vei’ksmiðjur. Þetta hét líka „fasismi“ í
Kominfoi-mblaðinu. Kommúnistarnir, sem fóru til Rússlands á dög-
unum, segja frá því í dýrðaróði þeim, er þeir hafa sameiginlega gefið
xxt, að ekkert hafi „hi’ifið þá jafnmikið og eldlegur áhugi verkamanna
fyiir stax-fi sínu.“ Skyldi þetta heita rauður fasismi?
fyrir drykkfellda menn og aðstandendur þeirra
verður framvegis opin í Skjaldborg á föstudög-
um kl. 5—7 síðdegis. Mál þau, sem upplýsinga-
stöðin fær til meðferðar, verða skoðuð sem
trúnaðarmál.
Umdœmisstúka Norðurlands.
Afengisvarnanefnd Akureyrar.
S j úkrahússmálið:
r
Askonin
til Eyíirðinga
Þar sem fyrirsjáanlegt er, að
bygging nýja sjúkrahússins á
Akureyri á enn langt í land
vegna fjárskorts, en þöi’fin hins
vegar augljós og aðkallandi fyrir
starfrækslu þess, eru hér með
allar hi’eppsnefndir og bæjar-
stjórnir í Eyjafjai’ðarsýslu hvatt-
ar til fjáröflunar eða fjái’fram-
laga úr hrepps- og bæjai-sjóðum
sjúki-ahússbyggingunni til styi’kt
ar. Væri jafnfram athugandi,
hvort einstök félög: Ungmenna-
félög, kvenfélög, slysavarna-
deildir o. fl., sæju sér ekki fært
að leggja eitthvað af mörkum.
Myndarlegast væri, ef hver
hreppur (eða tveir legðu saman)
og hver kaupstaðxn- gætu gefið
eina sjúkrastofu og bæri hún þá
nafn viðkomandi hrepps eða bæj-
ar. Einnig mætti með gjöfinni
heiðra minningu látins manns úr
byggðarlaginu og gæti þá sjúkra-
stofan borið nafn hans. Væri slík
minning ávaxtai-íkari en kaldur
og líflaus legsteinn.
Bygging sjúki-ahússins á Akur-
eyri, sem jafnframt er fyrir
Noi-ðlendingafjóx’ðung, þai-f að
komast upp hið fyrsta og ætti
'það að vera öllum Norðlending-
um metnaðarmál, og þó fyrst og
fx-emst þeim, sem búa í nágranna-
hreppunum, því að eflaust munu
margir íbúar þeirra eiga eftir að
fá mikla hjúkrun og lækningu
þar um ókomna tíð. Með aðstoð
ykkar, liðsemd og fjárframlögum
eruð þið, hver og einn, að vinna
að mannúðarmáli, þar sem þið
stuðlið að því, að linna þjáningar
og bæta heilsu sjúkra með-
bi-æðra ykkar, fæddra og
ófæddra.
í fáu er hægt að sýna meiri
samúð og mannkæx-leika en ein-
mitt í því að styðja málefni hinna
sjúku. Munið, að það er sómi og
dyggð allra sýslubúa og Noi’ð-
lendinga að koma sjúkrahúsinu
upp sem allra fyrst. Athugið
vandlega málstaðinn og hvað
hægt er að gera fyrir hann.
Eyfirðingur.
BRIDGEKEPPNIN í BRIDGE-
FÉLAGI AKUREYRAR.
1. flokks keppni Bridgefélags
Akureyrar hófst fyrir nokkru
síðan og hafa vei’ið spilaðar 3
umferðir. Eftirtaldar 6 sveitir
taka þátt í keppninni.
Sveit Hinriks Hini’ikssonar,
Herberts Tryggvasonar, Agnars
Jöi’genssonar, Indxáða Pálmason-
ar, Karls Firðrikssonar og Þórð-
ar Bjöi’nssonax’.
í fyi’stu umferð vann Hei’bert
Karl, Agnar Indi’iða og Þórður
vann Hinrik.
2. umferð. Hinrik vann Her-
bert, en jafntefli urðu hjá Karli
og Agnaiá og Þórði og Indriða.
3. umferð. Agnar vann Hinrik,
Þórður vann Herbert og Karl
vann Indriða.
Spilað er í Lóni á þriðjudags-
kvöldum kl. 8 e. h.
Léreft
rósótt, köflótt og með barnamyndum
Vinnuskyrtur
Verð kr. 59.00 pr. stk.
Seljum nœstu daga skótau frá
Skógerð J. S. Kvaran
Karlmannaskór .............. verð frá kr. 110.00 £
Kvenskór .............:..... — — — 75.00
Rússastígvél................ — — — 110.00 !(
Ennfremur inniskór karla og kvenna og telpuskór. •
— Birgðir takmarkaðar. —
Verzlunin Hamborg
r aut
Nýkomið gott úrval af:
Kúluni, bjöilum, fuglum, skipum, körlum,
uglum, englahári, toppum o. m. l'l.
Ennlremur margskonar pappírsloftskraut.
Brynjólfur Sveinsson ll.f.
NYSILFUR
Teskeiðar, Gafflar, Tertuspaðar, Tertu-
hnifar, Matskeiðar, Mathnifar.
VARANLEG JÓLAGJÖF!
BRYNJÓLFUR SVEINSSON H.F.
LÍFSTYKKI
Höfum nú fengið óvenjugóða sendingu af:
LÍFSTYKKJUM (stór númer)
KORSELETTUM (stór númer)
MJAÐMABELTUM, verð frá kr. 17.75
TEYGJUBELTUM, verð frá kr. 37.75
Braiuis verzlun
Páll Sigurgeirsson.
AKUREYRINGR!
Munið, að greiða að fullu iðgjöld þessa árs til
sjúkrasamlagsins fyrir mánaðamót. Eins mánaðar
iðgjaldaskuld veldur réttindamissi, þar til hún
er greidd, sex mánaða skuld getur leitt af sér
nýjan biðtíma til réttinda og algera útstrikun af
lista Iijá áður völdurn heimilislækni. Auk þess
má búast við, að stærri iðgjaldaskuldir verði af-
heiítar til lögtaks, mjög fljótlega.
Sjúkrasamlag Akureyrar