Dagur - 13.02.1952, Side 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 13. febrúar 1952
Hinn 39. dtescmber 1950 sveif
William S. Ivans, starfsma'ður bjá
Consoiidatcd Vultee flugvéla-.
verksmiðjunum á Schweiser 1—
23 svifflugu, í 42.100'fcta hæð yf-
ir sjávarmál, þar af hæðaraukn-
ing í fríu flugi 30.100 fet. — Flaug
hann nálægt Bishop í Californíu,
í hinu sterka bylgjuuppstreymi
sem myndast til hlés við Sierra
Nevada fjallgarðiml. Flugið var
viourkennt af alþjóðasambandi
svifflugmanna, F. A. I., sem
heimsmet, • bæði í mestri raun-
verulegri hæð yfir sjálvannáli og
einnig í hæðaraukningu. — Báð-
um þessum metum hefur nú fyrir
nokkrum dögum vcrið hnekkt af
sænska svifflugkappanum Karli
Ovgard, á sama stað. Hann náði
55.000 feta hæð, en varð að gjalda
:með lífi sínu. — Hér fer á eftir
trásögn af flugi Williams, er einn
af fél. Svifflugfélags Akurcyrar
hefur látið blaðinu í té.
„Eg vaknaði í dagrenningu, og
leit út um gluggann. Þar sá eg
hvítt bylgjuský í mikilli hæð og
altocumulushverfilský neðar,
hið langþráða merki hins sterka
byJgjuuppstreymis. Félagi minn,
Irving Gere og eg, klæddum okk-
ur í mesta flýti. í sama bili var
barið að dyrum. Þetta var Bob
Svmonds, sem beið óþoiinmóður
eftir okkur .Fimm mínútum síðar
var aftur barið, og var þar Allan
Langenheim með skilaboð um
að skilyrði til háflugs virtust
ákjósanleg.
Lagt af stað.
Við borðuðum engan morgun-
verð, en skunduðum til flugvall-
arins. Nánari veðurathugun
sýndi, að vindátt og vindstyrkur
var mjög misjafn í mismunandi
hæð. í 7000 feta hæð var t. d. 20
mílna vindhraða á suð-vestan,
en í 16.000 feta hæð var vind-
hraðinn 40 mílur á norð-norð-
vestan. Dave Boone frá San
Diego varð fyrstur til flugtaks.
Meðan Bob Symonds kom til
baka á dráttarflugunni BT—13,
spennti eg mig í Schweiser-svif-
fluguna mína, setti sjálfritandi
hæðarmælirinn í gang og var til-
búinn til flugs. Bob lenti, ók að
enda dráttartaugarinnar, stökk
þar út og kom hlaupandi til mín.
„Dave sleppti í meira en 8
metra uppstreymi á sekúndu,
ókyrrðin var ekki mjög mikil,“.
sagði hann.
Eg' kallaði til baka gegnum
glerhjálminn á svifflugunni, að eg
myndi hringja hann up frá Salt
Lake City. Bob hló og óskaði
mér góðrar ferðar, og stökk síð-
an upp í dráttarfluguna.
Flugtak var kl. 09:45. Hann
dró mig suður frá Bishop eftir
austanverðum Owens-dalnum.
Eftir því sem við hækkuðum
jókst ókyrrðin, þó ekki hættu-
lega. Um 12 mílum suðaustur frá
Bishop beygði Bob upp í vindinn
og stefndi undir stærsta altocum-
ulusskýið, sem var stöðugt að
stáskka, og lá endilangt eftir miðj
•um dalnum.
Ókyrrt loft.
Okyrrðin jókst enn, þar sem
oft skipti snögglega um upp- og
niðurstreymi. Það var því líkast
að eg æki bifreið með ofsahraða
yfir holt og hæðir. Stærstu rykk-
irnir komu svo snögglega og af
svo miklum krafti, að eg gat með
naumindum haldið stefnunni. Eg
var orðinn dauðhræddur um að
6 mm. nylontaugin, sem tengdi
mig við dráttarfluguna, brysti þá
og þegar.
Hæðaraukning undir sjálfu
hverfilskýinu var lítil, en eftir að
við komumst vindmegin við ský-
ið, komum við í sterkt en jafnt
bylgjuuppstreymið. Eg togaði í
hnappinn sem losaði taugina, og í
sama bilí kafaði Bob dráttarflug-
unni í áit til jarðar.
Klukkan var þá 10:05 og hæðin
12.000 fet yfir sjávarmál. Upp-
streymið var sterkt en mjög
mjúkt, og fyrstu mínúturnar
sýndi stig- og falimælirinn 12
metra hækkun á sekúndu.
Eg hélt mig framan við hverf-
ilskýið, prófaði súrefnisleiðsl-
urnar og súrefnismælana og setti
grímuna á mig.
Áfrain upp á við.
Eftir nokkra stund féll stig- og
fallmælirinn mjög hægt, og sýndi
0 í 30.000 feta hæð. Frosthéla
hafði byrjað að myndast innan á
glerið, skömmu eftir að eg sleppti
tauginni. Þykknaði hélan stöðugt
og byrgði allt útsýn, nema á smá-
blettum, þar sem glerið var tvö-
falt.
Með því að fljúga suður yfir
skýinu, sem var 5.000 fet á þykkt,
og upp í vindinn, kom eg inn í
dauft. uppstreymissvæði og tókst
að ná 33.500 feta hæð. Eg veitti
athygli þunnu lagi stratusskýja,
sem bárust yfir dalinn í áttina til
mín, og að síðustu huldu mig al-
veg. Eg setti rafmagns beygju- og
hallamælirinn í gang, og ílaug
blindflug nokkurn tíma og að-
gætti stöðugt hvort ísing settist á
vængina.
Þegar eg kom út í hi'eint loft
aftur' sá eg að mig hafði hrakið
undan • og var nú hlémegin við
miðju skýsins, þó það væri langt
fyrir neðan mig. Eg varð að kafa
af miklum hraða upþ í vind til að
ná aftur uppstreyminu, og lækk-
aði eg 8000 fet í þeirri tilraun.
Eg sá að það myndi ganga hægt
að vinna aftur upp hina töpúðu
hæð. Eg fann hvergi eins sterkt
uppsthreymi og eg hafði haft
upphaflega. í 1 klukkustund og
20 mínútur flaug eg fram og aftur
uip vesturhluta Owens-dalsins á
70 mílna löngu svæði ,suður af
Bishop og allt suður fyrir Mt.
Whitney. Sterkasta uppsteymið
fann eg vindmegin við hverfil-
skýið, þar sem brúnin virtist
mjög brött. Hæðarmælirinn hafði
stigið smátt og smátt upp í 30.000
fet, svo að eg varð stöðugt von-
betri um meiri hækkun og
skyggndist um eftir merkjum um
sterkara uppstreymi, sem gæti
flutt ennþá hærra .
Innihitamælirinn sýndi 15 stiga
hita í brjósthæð, en þrátt fyrir
þykka ísingu á glerrúðunni og
meðfram mælaborðinu, en niður
við ökla var 10 stiga frost.
í suðrinu voru stratusskýin að
þynnast. Á nokkrum stöðum
virtust þau beygja upp á við um
leið og þau komu að dalnum, en
leysast síðan upp og hverfa. Þetta
Þýddi aðeins eitt — uppstreymi,
svo að eg flaug í áttina til þess-
ara staða, og var launað með
snúningi hæðarmælisnálarinnar
upp á við.
Einu sinni gat eg staðið kyrr á
sama stað í loftinu með því að
fljúga upp í vind með 50 mílna
flughraða, sem þýddi 50 mílná
vindhraða á móti. Eftir að hafa
náð 35.000 fetum, lenti eg í vand-
ræðum í siglingafræðinni. Það
varð stöðugt terfiðara að gera ná-
kvæma staðarákvörðun í bylgj-
unni síðan eg var kominn langt
upp fyrir röndina á hverfilský-
inu. Sierra Nevada fjöllin voru
gjörsamlega hulin léttum snjó-
eða þokuskýjum ,og stratusskýin
voru nú stöðugt að aukast og
þykkna. Þau ógnuðu mér með að
hylja alveg dalinn fyrir neðan
mig, sérstaklega í norðrinu.
Meira uppstreymi.
Tvöföldu rúðurnar voru orðn-
ar svo hélaðar, að ógjörningur
var að sjá út um þær, en mér
tókst þó með herkjubrögðum að
skafa af þeim með landakortinu
mínu. Reynsla sú, sem eg hafði
áður fengið í leit að uppstreymi
kom sér vel er eg í 38.000 feta
hæð kom skyndilega í undarlega
ókyrrð, því að eg þekkti strax, að
nú myndi uppstreymisvon og
sneri upp í vindinn. Áður hafði
loftstraumurinn verið sérstaklega
stöðugur, sem er einkenni hins
hreina bylgjuuppstreymis í mik-
illi hæð. Eg kom aftur inn í hina
einkennilegu ókyrrð meðan eg
hækkaði, þó eingöngu þegar eg
stefndi upp í vindinn, og fáar
sekúndur í einu. Þetta var jafn
öldugangur, sem virtist ekki hafa
áhrif á hraðann. Var því líkast
sem eg væri í smábát, sem lyftist
og hneig á undiröldu í kyrru
veðri.
Mjög er þó auðvelt að athuga
fyrirbrigði sem þetta í bylgju-
flugi, þar sem loftstraumurinn er
mjög jafn, þrátt fyrir vindhrað-
ann og hægt er að fljúga í 10
mínútur eða meira í einu, án þess
að snerta stjórnvölinn.
Á þessu tímabili hreyfðist
hvorki hraða- né stig- og fall-
mælirinn svo mikið sem nálar-
breidd, og það eina, sem rauf
þessa dauðakyrrð voru súrefnis-
tækin er stöðugt hvissaði í, skær
ljósmerkin frá súrefnismælinum
og hæðarmælirinn sem sté mjög
hægt.
Nú var eg kominn í 38.000 feta
hæð rúmlega og skrúfaði eg enn-
þá meira frá súrefninu til að auka
þrýstinginn í grímunni. Oðru
hvoru aðgætti eg neglurnar, en
fyrsta merki súrvöntunar er að
þær blána.
Þrátt fyrir hinn mikla kulda úti
fyrir gat eg tekið af mér hanzk-
ana við og við án nokkurrar
áhættu, en mér var orðið mjög
kalt á fótunum.
(Framhald í næsta blaði).
Höfurn flutt
húsgagnavinnustofu
okkar
i Lindargötu 1 A
Sími 1658.
Ármann 8c Gísli.
Hvítkollótt ær
er í óskilum hér á Akureyri.
Marlc mjög ógreinilegt. Var
dregin hingað til Akureyrar
úr Reykárrétt, a. m. k. tvisvar
á síðastliðnu hausti.
Upplýsingar gefur
Halldór Ásgeirsson.
Stúlka
óskar eftir vetrarvist til 14.
maí. — Áskilið að herbergi
fyigí-
Afgr. vísar á.
hrafninn.
Þakka þcr, vinur, veglegar
gjajir, sem ég verðskulda ekki,
en vildi launa, ]>ó i litlu vreri, ej
vissi ég aðe'ins verustað þinn.
Hvar eríu, lirummi minn?
Sv. S.
$>*$*$>*$»$»$»$»$<
ítérhríáarmót Akureyrar
Stórliríðarmóti Akureyrar
lauk sunnudaginn 10. febr. með
keppni í stórsvigi og stökki, öll-
um flokkum karla. Stórsvig er
algjör nýjung hér á Akureyri og
mun þetta vera í fyrsta skipti,
sem keppt er í því hér. Braut-
arstjóri var Magnús Brynjólfsson
og fór keppnin mjög vel fram
undir stjórn hans.
Svigið hófst kl. 1.30 hjá vörð-
unum fyrir ofan Fálkafell og louk
sunnan og neðan við skíðaskála
Barnaskólans. Braut A-B flokks
var um 1300 m. löng og fallhæð
um 400—500 m. og hlið voru 20.
En braut C fl. var um 900 m.
löng og fállhæð 300 m. Efst var
brautin mjög hörð og hraði mik-
ill og hélzt hann ofan að dráttar-
braut, en þar tóku við svell
hengjur og smávegis hindranir.
Neðst í brautinni var brött
brekka með smáhengjum fyrir
neðan og duttu þar nokkrir
keppenda, sérstaklega C-flokks-
mennirnir, en þeir vöruðu sig
ekki á beygju sem var í brekk-
unni, tóku hana of seint og lentu
á svelli, sem var þar fyrir neðan.
Helztu úrslit.
A-flokkur.
1. Sigtryggur Sigtryggss KA 1.39
mín.
2.1—3. Bergur Éiríkss. KA 1.48
mín.
2. —3. Freyr Gestss. KA 1.48 mín.
B-flokkur.
1. Magn. Guðmundss. KA 1.40 m.
2. Þráinn Þórhallss. KA 1.41 mín.
3. Halldór Ólafss. KA 1.44 mín.
Skíðanámskeið
hefst á vegum Skíðaráðs Ak-
ureyrar á morgun kl. 2 við skíða-
lyftuna á Breiðahjalla. Nám-
skeiðið mun standa í 3 vikur. —
Kennsla fyrir drengi fer fram dag
lega kl. 2—4, nema laugardaga og
sunnudaga. ■—• Kennari verður
Magnús Brynjólfsson. — S. R. A.
Skautamót Islands
1952
Akureyringar fengu
2 íslandsmeistara
fyrri daginn
Skautamót íslands 1952
hófst í Reykjavík mánudaginn
11. febr. kl. 4 e. h. Keppt var í
þremur hlaupum þann dag: 500
metra hlaupi karla, 500 m. hlaupi
kenna og 3000 m. hlaupi karla. —
Skautafélag Akureyrar sendi 6
keppendur á mótið og stóðu þeir
sig mjög vel fyrri daginn, fengu
tvo íslandsmeistara, Hjalta Þor-
steinsson í 500 m. hlaupi karla og
Eddu Indriðadóttur í 500 m.
hlaupi kvenna.
Helztu úrslit á mánudaginn.
500 m. hlaujvJkarJa.
1. Hjalti Þorsteinss. • SA 52.0 sek.
2. Björn Baldurss. SA 52.$, sek.
3. Ólafur Jóhanne.ss. SR 53.0 sek.
500 m. hlaup kvenna.
1. Edda Indriðadóttir SA 63.3 sek.
2. Guðný Steingrímsdóttir KR
73.2 sek.
C-flokkur.
1. Árni B. Árnas. ÍMA 1.08 mín.
2. —4. Baldur Ágústss. KA 1.19 m.
2.—4. Guðm. Guðm. KA 1.19 mín.
2.4. Jens Sumarliðas. Þór 1.19 m.
Stökkið hófst kl. 3 í Miðhúsa-
klöppum. Brautin var hörð og
aflíðandi og því frekar erfið við-
fangs.
Helztu úrslit.
A-flokkur.
1. Bergur Eiríkss. KA 225.0 stig.
Aðeins 1 keppandi í A-flokki.
B-flokkur.
1. Þráinn Þórhallss. KA 215.1 stig.
2. Jens Sumarliðas. Þór 213.6 stig.
3. Jón Kr. Vilhjálmss. Þór 194.5
stig.
Flokkur 17—19 ára.
1. Sigtr. Sigtr. KA 223.0 stig.
2. Guðm. Guðm. KA 218.0 stig.
3. Freyr Gestss. KA 206.6 stig.
í 3ja manna sveitarkeppni sigr-
aði A-sveit KA, hlaut 666.1 stig,
önnur varð B-sveit KA, hlaut
625.9 stig, og þriðja sveit Þórs
612.8 stig.
Keppt var um bikar, sem
Morgunblaðið gaf fyrir nokkrum
árum, og var þetta í fimmta sinn,
sem KA vinnur bikarinn og vann
félagið hann til fullrar eignar.
í sveitinni voru þessir menn:
Bergur Eiríksson, Sigtryggur
Sigtryggsson og Guðmundur
Guðmundsson.
Skíðamót drengja
Á sunnudaginn kemur verður
drengjamót, keppt verður í svigi,
og hefst það kl. 2 e. h. hjá drátt-
arbrautinni á Breiðahjalla. N
3000 m. hlaup karla.
1. Kristján Árnas. SR 5 mín. 56.7
sek.
2. Björn Baldurss. SA 6 mín. 0.2.2
sek.
3. Þorst. Steingrímss. Þróttur 6
mín. 0.6.4 sek.
Úrslit s'íðari daginn voru ekki
kunn þegar blaðið fór í prentun.
ÚR BÆ OG BYGGÐ
I. O. O. F. 1332158V2
Sjónarhæð. Sunnudagaskóli kl.
1. Almenn samkoma kl. 5 á
sunnudögum. Allir velkomnir.
Biblíunáinsskeiðið. Efni næsta
laugardagskvöld: Synd mann-
kynsins. Öllum boði ðað heyra,
hvað biblían segir um þetta mikla
efni. Sæmundur G. Jóhannesson.
Fíladelfía. Almennar samkom-
ur eru í Lundárgötu 12 sunnu-
daga og fimmtudaga kl. 8.30 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 7.30 e. h. Öll
börn velkomin. — Saumafundir
fyrir stúlkur á miðvikudögum kl.
5.30 e. h.
Zíon. Samkomur næstu viku.
Sunnud. kl. 10.30 f. h.: Sunnu-
dagaskóli. Kl. 8.30 e. h.: Almenn
samk. — Þriðjud. kl. 5.30 e. h.
Fundur fyrir telpur 7—13 ára. —
Miðvikud. kl. 8.30 e. h.: Biblíu-
lestur. — Fimmtud. kl. 8 e. h.:
Fundur fyrir ungar stúlkui'. —■
K. F. U. M., Akureyri. Fundur
í Zíon næstk. sunnudag. Y. D.
(yngsta deild, drengir í barna-
skóla frá 9—13 ára) kl .1 e. h. U.
D. (unglingadeild, drengir og
piltar yfir barnaskólaaldur) kl.
2 e. h.
St. Brynja nr. 99 heldur fund í
Skjaldborg mánudaginn 18. febr.
næstk. kl. 8.30 e. h. Fundarefni:
Inntaka nýliða o. fl. Til skemmt-
unar:, Upplestur, gamanvísur og
fleira.