Dagur - 13.02.1952, Page 12

Dagur - 13.02.1952, Page 12
12 Bagum Miðvikudaginn 13. febrúar 1952 Söngför „Geysis" fil Noregs o. fl. landa verður 16. maí fil 5. júní Ný skáldsaga eftir Laxness í liaust - efniviður frá mið- Landssíminn tekur um milljón krónur árlega af bæjarbúum 90 Norðlendingar og Austfirðingar komast með „Heklu“ auk kórfélaga Karlakórinn Geysir fer söng- för til Noregs, Svíþjóöar og Dan- merkur nú í vor, í tilefni af 30 ára afmæli kórsins, og jafnlangri söngstjórn Inginmndar Árnason- ar. ,,Geysir“ hefur lengi haft hug á utanför, en það er fyrst nú, sem sá draumur verður að veruleika. Förin var nýlega afráðin og er skip ráðið til fararinnar, „Hekla“ Skipaútgerðar ríkisins. Auk kór- félaganna og gesta þeirra, komast 90 Norðlendingar og Austfirðing- ar með í förina. „Geysir“ og Ferðaskrifstofa ríkisins leigja skipið sameiginlega og hefst ferð- in hér á Akureyri 16. maí næstk. Skemmtiför sniðin fyrir hentug- leika strjálbýlisins. Stjórn „Geysis' ‘skýrði frétta- mönnum hér frá þessum málum sl. mánudag og hafði Hermann Stefánsson orð fyrir „G'eysis“- mönnum. Hann vakti athygli á því, að karlakórinn Geysir er arftaki Heklu gömlu, er fyrst ís- lenzkra kóra fór í söngför til út- landa, Noregsförina frægu 1905. Enn starfar í „Geysi“ einn af gömlu Heklungunum, Oddur Kristjánsson frá Glæsibæ, og fer hann í söngförina með „Geysi“ og e. t. v. verða fleiri Heklungar í ferðinni, sem skemmtiferða- menn. F erðaskrif stofa ríkisins og „Geysir“ hafa í sameiningu leigt strandferðaskipið Heklu til farar- innar. Er þar rúm fyrir 160 far- þega, og þegar „Geysis“menn og gestir þeirra eru frá taldir, verð- ur hægt að selja 90 farmiða. Er svo ákveðið, að Norðlendingar og Austfirðingar sitji fyrir þessum farmiðum og að þessi skemmti- ferð verði miðuð við þeirra hent- ugleika en ekki Sunnlendinga, svo sem er í þeim skemmtiferð- um, sem farnar eru á íslenzkum skipum frá Reykjavík. Hekla tekur Austfirðingana á leið sinni hingað austur fyrir land um miðjan maí, en siglir héðan beint til Þrándheims, 16. maí. Norðlendingar og Austfirð- ingar hafa frest til mánaðamóta að panta þessa farmiða, eftir það verður afgangurinn, ef ein- hver verður, seldur í Reykja- vík. En víst má telja, að færri komizt mcð héðan að norðan og austan en vilja og mun þegar langt komið að selja þcssa far- miða. Verð farmiðanna fyrir alla ferðina, fargjald, matur og gist- ing og einhver smærri ferðalög í landi, er frá kr. 3600.00 til 4450.00, eftir því hvar í skipinu menn velja sér klefa, en allt. skipið verður eitt farrými í ferðinni. Tithögun ferðarinnar. Siglt verður frá Akureyri að kvöldi 16. maí og komið til Þránd heims 19. maí, og verður það fyrsti konsert „Geysis". Norska kórasambandið, Norges Lands- ' sangerforbund, tekur á móti „Geysi“ og undirbýr hljómleik- ana og verðui' ritari sambandsins, Valter Aamodt, með í ferðinni eftir að komið er til Noregs. Síð- an verður haldið suður með Nor- egsströndum og siglt innan skerjagarðs. Hinn 20. verður komið til Molde og hinn 21. til Álasunds — vinabæjar Akureyr- ar . „Geysis“menn hafa boðið bæjaryfirvöldunum hér að taka Flateyjarbók þá hina miklu, er bærinn gefur Álasundi, til flutnings þangað, og afhenda hana, en ekki hafði þetta verið ákveðið á mánudaginn, að því er stjórnin sagði. Hinn 22. maí verður komið til Bergan, 23. maí til Haugasunds. Sá bær gaf Heklu fánann 1905, og væri vel tilfallið að hannyrðimeð í förinni. Til Stafangurs verður komið 24. maí og síðan siglt inn Óslófjörð' líkl. með viðkomu, en til Ósló verður komið 25. maí. Á öllum þessum stöðum heldur „Geysir" hljómleika, og i Ósló syngur kórinn auk þess í útavrp: Alls staðar í. Noregi, þar sem því verður við komið, verður ferðast éitthvað' um í landi, bæir og merkir staðir skoðaðir' o. s. frv. og hefur Ferðaskrifstofan stjóm þeirl'a mála með. höndum. Til Svíþjóðar og Danmerkur. Frá Ósló veí'ðtil' siglt til Gauta- boi'gar og komið þar 28. máí. —; Verðlír sungið, þar á Liseberg. Göteborgs og Bohuslans Sanger- forbund tekur á rhóti kórnum og annast fyrirgreiðslu. Frá Gauta- borg verðui’ haldið ,.til Danmerk- ur, e. t. v. til Álaborgar og sungið þar, þótt ekki sé endanlega ráð- ið, en til Kaupmannahafnar verð- ur kotnið ekki síðár en 30. maíj en ekki er l’íklégt' áð þar verði konsert. f Höfn verður dvalið fram til kvölds 31. maí, ep þá stigið á Heklu á pý og hgldið heim á leið, nreð viðkomu í pórs- höfn í Feereyjum 3. júní og verð- ur sungið þar, en síðan halc|ið upp tij Austurlands, og syo þl Akureyyar, er> mtluniti er að koma heirn aftui' 5. jýpí. Verðskulduð viðurkenning. „Geysis“menn eru bjartsýnir að þessi ferð 1 verði skemmtileg, enda sýnist ferðaáætlunin og fyr- irkomulag allt benda til þess. Kór inn nýtur nokkurs styrks frá bæ og ríki til'söngferðarinnar, og er það verðskulduð viðurkenning til kórsins fyrir 30 ára merkilegt starf. Þó leggur kórinn mest til málanna sjálfur. Fyrir „Geysis'"- félögum vakir ekki sízt að heiðra söngstjóra sinn, Ingimund Árna- son, fyrir fi'ábæra söngstjórn og mikið og óeigingjai nt starf í þágu kórsins allt frá stofnun hans. Um þessai" mundir æfir kórinn af kappi undir söngförina. Á söng- skránni' verða aþallega íslenzk lög. Allir farriiiðarnir seldir! í gær voru, allir farmjðarnir með -Heklu pantaðir, af Akur,- eyringum og Austfirðingum aðallega. Komust miklu færri að en vildu. Hefur þessi tilraun að stofna til siglinga til út- landa frá annarri höfn en Rvík því gefið góðp raup ,og sýnt, að víðai'-ér'guð' en í >GÖrðum; 90—95 verkahte'nn sfarfa ; ' lijá bænutn. Á síðasta bæjarráðsfundi var samþykkt að fjölga ,um; 20 me.pn í bæjarvinnunni' vóg'na átvinitu- leysisástandsins. Eru þá 90—95 verkamenp að útivinnu á vegum bæjarins. fyrir lalsímaleiguna eina 1000 númera stöðin hér tekur sama afnotagjald og 10.000 númera stöSin í Reykjavík f viðtali við danska kommún- istablaðið „Land og Folk“ 27. f. m., skýrir Halldór Kiljan Lax- ness frá því, að ný skáldsaga frá sinni hendi komi út í haust. „Eg hef unnið að þessu verki í þrjú ár,“ segir Laxness, „og nú varð eg að ljúka við það. Og eg hef alltaf fundið beztan vinnu- frið erlendis; þar tekst betur að fela sig. .. . “ Um efni sögunnar er Laxness fáorður, en segir þó, að sagan fjalli um mikilvægustu viðfangsefni samtímans, stríð og frið, efniviður sé sóttur til mið- alda. Nokkuð af sögunni gerizt á írlandi, og þangað fór skáldið um sl. mánaðamót til þess að halda áfram að vinna að skáldsögunni og sækja þangað „lokal-kolorit“, eins og hann orðar það sjálfur í þessu viðtali, sem annars fjallar mest um gamalkunn efni, þ. e, friðarást kommúnista og stríðs- æsingar Bandaríkjamanna og ís- lenzkra stjórnmálamanna. JÓNAS RAFNAR yfirlæknir, 65 ára Hinn kunni og ágæti læknir og fræðimaður, Jónas Rafnar yfir- yfirlæknir, varð 65 ára 9. þ. m. Hann hefur starfað í bæ og hér- aði alla ævina, stjórnað Kristnes- hæli frá upphafi og notið trausts og vinsælda sem læknir og borg- ari. Hann er og þjóðkunnur fyrir ritstörf sín, sögur og ritgerðir um þjóðleg efni. Margir minntust hins virðulega yfirlæknis á þess- um tímamótum í ævi hans. Eftir hækkun þá á öllum síma- gjöldum, sem gekk í gildi um sl. áramót, lætur nærri að lands- síminn taki af bæjarbúum hér um eina milljón króna í ár í leigu af sjálfvirku stöðinni og símatækjunmn. Þar að auki eru svo stofngjöld, flutningsgjöld, viðtökugjöld, tengigjöld, en þessi fjölskrúðugu gjaldaheiti eru öll á símagjald- skránni og hækkuðu öll um ára- mótin. Þar ofan í bætast svo um- framsamtölin á 30 aura hvert og að sjálfsögðu langlínusamtöl. Milljón krónur í afnotagjöld. Afnotagjald af einkasíma er nú eftir hækkunina kr. 800.00 á ári, en af verzlunar- og atvinnusíma kr. 1380.00, að apki koma svo um- j framsímtalagjöld 30 aurar fyrir hvert samtal umfram 700, og er það tvöföld hækkun. Var áður 20 aurar umfram 800 samtöl. Hækk- unin augsýnilega til þess eins gerð, að seilast dýpra í vasa manna. Hér í bæ eru ítæp 1000 númer í notkun og er stöðin full- setin. Lætur nærri að afnota- gjöldin ein séu milljón krónur. Menn geta svo áætlað, hvað sím- inn muni taka af mönnum í eftir- töldum gjöldum. Stofngjald. Fyr- ir 1 jínu og einp símp Jjý. 1200.00, aukasími í sama húsi frg kr. 400— 600, eftir því hvernig bjallan er gerð, aukabjöllur fá menn fyrir 115 kr. stofngjald og tengil fyrir 200 kr. stofngjald. Afnotagjald verða menn síðan að greiða af þessum aukatækjum frá 10—-80 kr. á ársfjórðungi. Þá koma flutningsgjöld, í milli húsa 600 krónur, og er tekið fram, að þetta gjald skuli borgast að fullu, þótt sími sé fyrir í því húsi, sem flutt er í! M. ö. o. það er svo fyrir mælt að ekkert tillit skuli taka til þess, hvað verkið raunverulega kostar og gefur ríkisvaldið þarna fagurt fordæmi eða hitt þó heldur. — Flutningur síma milli herbergja kostar 180 krónur og flutningur síma í sama herbergi 128 krón- ur (!) og flutningur áukabjöllu innan húss 120 krónur. Viðtöku- gjald heitir einn skatturinn, og er sett til höfuðs þeim, sem tekur við síma af öðrum, síma, sem bú- ið er að greiða fullt afnotagjald af. Skal sá greiða 600 kr. fyrir viðtökuna! Samband við 1000 númer jafn- dýrt og við 10.000 númer. í gjaldskrá símans er sú þjón- usta að veita samband við 1000 möguleg númer metin jafndýrt og sambandsmöguleikar við 10.(700 númer. Reykvíkingar og Akureyringar greiða sama gjald af sínum símum. Þætti þetta undarleg verðlagning ef einstakl- ingar eða félög ættu í hlut. Landamerki velsæmis í skatt- heimtu — afskiptaleysi Alþingis. Gjaldskrá símans er orðin með þeim hætti, að telja má að full- komlega jaðri við landarperki vel sæmis í skattheimtu. En lands- menn víðast réjtlapsir gggnvart ágengni þessarar stofnunar. Með einfaldri reglugerð er unnt að hækka í einu vetfangi þjónustu- gjald stofnunarinnar svo að nem- ur hundruðum þúsunda króna. Þeir, sem ættu að vera varðmenn fyrir hagmuni almennings gágn- vart ríkisstofnunum, — háttvirtir alþingsmenn, — sýnast dotta þegar rekast á hagsmunir fólks- ins og ríkissjóðs. Alþingi hefur stundum fengist við ómerkilegri mál en að taka til rækilegrar meðferðar reglugerð þá um gjald skrá fyrir. Landssímann, er út var gefin í nóv. sl. og tók gildi um áramót. ifslætti Framsóknarmemi ræða þingmál á þriðjudags- kvöld Framsóknarfélag Akureyrar hefur almennan félagsfund að þlótel KEA næstk. þriðjudags- kvöld og verður þar rætt um stjórnmálin og störf síðasta Al- þingis. Bcrnharð Stefánsson al- þm. hefur framsögu. Árni Bjarnarson bóksali o. fl. auglýsa bókaviku er liefst næstk. mánudag og verða á boðstólum mörg hundruð bækur með mjög lækkuðu verði, allt að 80% verð- lækkun frá fyrra útsölúverði. Hér er um að ræða þýddar bækur, frumsamdar íslenzkar og nokkur tímarit. í blaðinu í dag er birt bókaupptalning í auglýs- ingu og er hún þó hvergi nærri tæmandi, að því forráðamenn bókavikunnar tjá blaðinu. — Bækurnar munu næstu viku fást í Bókaverzluninni Eddu, Bóka- búð Akureyrar og Bókabúð Björns Árnasonar við Gránu- félagsgötu. Auk þess hefur Pálmi H. Jónsson sérstaka bókaviku í Bókabúð Akureyrar og fæst þar mikið bókaúrval á mjög niður- settu verði.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.