Dagur - 30.04.1952, Side 1
12 SIÐUR
Framsóknarnienn! Munið árs-
hátíð JFramsóknarfélags Akur-
eyrar að Hótel KEA laugard.
10. maí næstkomandi.
Framsóknarmenn! Munið út-
breiðslufund Framsóknarfél.
í bæ og sýslu að Hótel KEA
sunnud. 11. maí næstk. — Sjá
nánar í greinargerð í blaðinu.
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 30. apríl 1952
18. tbl.
Þetta er Loch Ness-skrímslið!
Skotar ræða nú mjög um Loch Ness skrímslið og þykjast hafa aukn-
ar sannanir fyrir hérvist þess. Skoti nokkur tók þessa mynd í júlí í
fyrra, ki. 6 að morgni. Sá þá ferlíkið á ferð um vatnið, greip mynda-
vélina sína og hljóp niður á vatnsbakkann og smellti af. Myndin
þykir merkilegt sönnunargagn í Skotlandi, þótt aðrir láti sér fátt
um finnast og gruna Skota um auglýsingabrellu til að laða að ferðam.
Norðurför Eysteins Jónssonar er
frestað um eina viku S
r
Urbreiðslufundur Framsóknarfélaganna verður
sunnudaginn 11. maí - ársliátíðin laugar-
daginn 10. maí
Tilboð Brunabótafélags Islands hefur enn ekki
hlotið afgreiðslu í bæjarstórn
Engin hrifning yfir kjörum félagsins - eðlilegast
að bæjarfélagið krefjist þess að trygging-
arnar verði gefnar frjálsar
Útbreiðslufundi þeim, sem
Framsóknarfélögin í bæ og sýslu
ætluðu að halda um næstu helgi,
hefur verið frestað um eina
viku, til sunnudagsins 11. maí n.k.
Verður fundurinn haldinn að
Hótel KEA þann dag kl. 4 síðd.
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
herra mætir á fundinum.
Er þessi frestun gerð vegna
þess að ráðherrann getur — af
óviðráðanlegum ástæðum — ekki
komið norður fyrr. Árshátíð
Framsóknarfélags Akureyrar,
sem verða átti næstk. laugardags-
kvöld, verður haldin laugardag-
inn 10. maí, að Hótel KEA, og
verður Eysteinn Jónsson gestur
r
Aætlimarbílarnir
ætluðu yfir Öxnadals-
heiði í gærkvöld
Norðurleið h f. hefur tekið upp
áætlunarferðir hingað á bílum
sínum og var ætlunin að bílar
kæmu yfir Öxnadalsheiði í gær-
kvöld. Munu verða ferðir tvisvar
í viku til að byrja með. Félagið
mun ætla að gera tilraun með
svefnvagnaferðir á þessari leið í
sumar.
Framsóknarfélaganna á hátíðinni.
Framsóknarmenn í bæ og sýslu
eru hvattir til þes sað fjölmenna
á árshátíðina og fundinn. Nánari
tilhögun verður auglýst í næsta
blaði.
Togararnir, sem hafa verið að
veiðum á Selvogsbanka að und-
anförnu, hafa orðið varir við
geysilega mikla síld alldjúpt í 'sjó
ög hafa reynt að ná síldinni í nýju
flotvörpuna, en síldin hefur
reynzt of kvik fyrir þetta veiðar-
færi enn sem komið er og hefur
lítið sem ekkert fengist.
M. a. mun togarinn „Jörundur"
hafa gert nokkrar tilraunir til
þess að veiða síldina í vörpuna en
árangur hefur orðið lítill. Skip-
stjórinn á „Jörundi“ telur þetta
eitt hið mesta síldarmagn, sem
hann hafi orðið var við.
Þótt þessar tilraunir hafi ekki
enn borið árangur, er ekki þar
Reynt verður að ná
olíunni úr E1 Grille
Eftir nokkra daga verður
hafizt handa um að reyna að
bjarga olíunni úr olíuskipinu
E1 Grillo, sem liggur sokkið í
Seyðisfirði. Þýzkar flugvélar
sökktu skipinu á stríðsárunum,
en Olíufélagið h.f. hefur keypt
það, þar sem það liggur og hef-
ur látið athuga björgunar-
möguleika. Björgunarleiðangur
sá, er brátt mun leggja upp frá
Reykjavík, er á vegum Hamars
h.f. og stjórnar Benedikt Grön-
dal verkfræðingur honum. —
munu um 12 menn verða í leið-
angrinuni. Ætlunin er að ná
olíu úr tönkum skipsins, en síð-
ar verður ákveðið, hvort reynt
verður að bjarga skipinu sjálfu.
Hollenzki skákmeistar-
inn Prins kemur til
bæjarins í dag
iwg'tsi'ðf «8 * *■» g * í @ 9<s IQ
HoIIenzki skákmeistarinn L.
Prins er væntanlegur hingað til
bæjarins í dag á vegum Skák-
félags Akureyrar og mun hann
dvelja hér í nokkra daga og tefla
fjölskákir, hraðskákir og klukku-
skákir við skákm. hér. Prins er í
hópi kunnustu taflmeistara í Ev-
rópu og hefur hvað eftir annað
getið sér orð ó alþjóðlegum skák-
mótum. Fyrsta fjölskák hans
verður í kvöld, að Hótel KEA, og
teflir hann þá við 40 beztu skák-
menn bæjarins. Öllum skák-
mönnum er heimilt að taka þátt í
þessu fjöltefli og næstu fjöltefl-
um, eftir því sem rúm leyfir.
með sagt að flotvarpan dugi ekki
til síldveiða og munu margir hafa
í hyggju að reyna flotvörpuna
fyrir Norðurlandi í sumar, m. a.
Guðmundur Jörundsson á „Jör-
undi“. Verður hún vafalaust
reynd ýtarlega í sumar, í núver-
andi mynd eða eitthvað breyttri
eftir því sem reynslan kennir.
Margir velta því fyrir sér, hvort
þessi síld muni í sumar leita vest-
ur nieð landi og norður fyrir
Látraröst og telja að þannig hafi
göngur hagað sér hér á árum áð-
ur, er mikil síldveiði var undan
Vestfjörðum snemma sumars. Þá
fengu verksmiðjur á Vestfjörð-
um jafnan nóg hráefni.
Hinn 26. janúar sl. gerði Bruna-
bótafélag íslands Akureyrar-
kaupstað tilboð um nýtt iðgjalda-
kerfi brunatrygginga og nýja
skipan brunavarnamála í bænum.
Bauð félagið fram nokkra ið-
gjaldalækkun, er nema mundi 120
þús. kr. á ári samkvæmt áætlun
þess, en gerði jafnframt stór-
auknar kröfur um brunavarnir,
m. a. að komið yrði upp nýjum
brunasima, komið upp fastri
brunavörzlu, nýr slökkvibíll
fenginn o. fl. tæki.
Mundi allt þetta kosta ærið fé
úr bæjarsjóði, en félagið bauð
fram 500 þús. kr. lán til 20 ára,
með 5% ársvöxtum.
Tilboð þetta kom til fyrri um-
ræðu í bæjarstjórn í febrúar og
var þá vísað til bæjarráðs, en þar
hefur það enn ekki fengið af-
greiðslu og munu skiptar skoðan-
ir um það, hversu hagkvæmt til-
boð þetta sé fyrir bæinn. En ekki
vei-ður séð að neitt sé unnið við
það að fresta ákvörðun í málinu
öllu lengur, nema síður sé, og er
þess því að vænta að bæjarstjórn-
in taki það til meðferðar hið
fyrsta.
Bæjarstjórnin hefur ekki sýnt
mikla rögg af sér í því efni að fá
bæjarmönnum hagstæðari bruna-
tryggingakjör. í allt sl. haust og
fram í febrúar var beðið eftir
þessu tilboði Brunabótafélagsins
og ekkert aðhafst á meðan.
Aðstaða bæjarins til þess að fó
fram hagstæðari kjör hefði þó
verið mun sterkari nú, ef kapp
hefði verið lagt á það af forráða-
mönnum Akureyrar að fá síðasta
Alþingi til þess aö taka einokun-
arkei'fið á bruntryggingamálun-
um til meðferðar. Bæjarstjórnin
hafði forgöngu um að hreyfa
málinu á Alþingi fyrir nokkrum
árum, en þá fékkst ekki árangur.
Líkui' eru fyrir því, að betur
hefði gengið í ár.
Mönnum er orðið það ljóst,
að einokunarkerfi það, sem við
búum við í brunatryggingamál-
um, er úrelt og óréttlátt. For-
sendur þær, sem fyrir hendi
voru, þegar lögin um Bruna-
bótafélag fslands voru sett, eru
úr sögunni. Nú er öll bruna-
trvggingastarfsemi alíslenzk.
Lögbundin viðskipti við ákveð-
ið fyrirtæki eru því ekki aðeins
óeðlileg, heldur skapa óviðun-
andi misrétti í þjóðfélaginu og
mjög óhagstæð kjör fyrir mik-
inn fjölda landsmanna, miðað
við það sem mundi verða við
frjálst skipulag.
Fullt frelsi á að vera
stefna bæjarins.
Þess er því að vænta, að þegar
bæjarstjórnin tekur tilboð Bruna
bótafélagsins til meðferðar, verði
jað út frá þeim forsendum, að í
framtíðinni eigi að ríkja hér fullt
frelsi í tryggingamálunum og ein-
okunarkerfinu verði aflétt. Ætti
bæjarstjórnin að gera ráðstafanir
til þess að fá flutt frumvarp á
næsta Alþingi um að afnema
einkaleyfi Brunabótafélagsins til
húsatrygginga, a. m. k. hér á Ak-
ureyri. En sjálfsagt er að semja
við það félag um tryggingarnar ef
bæjarstjórn sýnist það bjóða eins
góð kjör og önnur félög.
Mjög vafasamt verður að telj-
ast að tilboð félagsins sé einkar
hagstætt fyrir bæinn, eins og allt
er í pottinn búið. Bærinn er þegar
búinn að tapa heilu ári í barátt-
unni fyrir fullu frelsi vegna
samningaumleitana þessai'a við
Brunabótafélagið. Só frestur hef-
ur ekki reynst bænum til neinna
hagsbóta, og svo mun enn verða
um alla samninga, sem byggðir
eru á því að eitt fyrirtæki á land-
inu eigi um alla framtíð að hafa
einkaleyfi til þess að tryggja hús
bæjarmanna. Við slíkan lög-
verndaðan aðila verður aldrei
náð neinum hagstæðum samning-
um, miðað við það, sem hægt
væri ef fullt frelsi ríkti og sam-
keppni í milli tryggingarfélag-
anna. Ætti reynslan þegar að hafa
kennt forsvarsmönnum Akureyr-
ar þessi augljósu sannindi.
Vegir illfærir vegna
aurbleytu
Ymsir vegir hér í héraðinu eru
að verða illfærir bifreiðum vegna
aurbleytu, t. d. vegurinn um
Kaupangssveit og Staðarbyggð,
Svalbarðsstrandarvegur o. fl. —
Viðgerðum miðar seint áfram og
hefur heyrzt að aðalúrræði -vega-
málastjórnarinnar eigi að vera að
banna .umferð um vegina, enda
þótt sumir þessara vega séu lífæð
viðkomandi sveitarfélaga og greið
ar samgöngur hin mesta nauðsyn.
Það mundi þykja í fiásögur
færandi sunnanlands, ef aðalvegir
í nánd við höfuðstaðinn yrðu aílt
í einu bannaðir af einhverjum
verkstjórum vegamálastjórnar,
enda munu engar slíkar ráðstaf-
anir í tízku þar.
ikil síldarganga fyrir Suður-
fandi' en iffa gengur é
íá hana í flolvörpuna