Dagur - 30.04.1952, Page 8
8
D A GUR
Miðvikudaginn 30. apríl 1932
Kvensokkar
NYLON, fjölmargar tegundir
SILKISOKKAR,
BAÐMULLARSOKKAR
Kaupfélag Eyfirðinga.
V efnaðarvörude ild.
Hraðsuðukönnur
(þýzkar)
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ!
Ritvélar
SMITH CORONA — tvcer tegundir
Vinnuljós
FYRIR BIFREIÐARSTJÓRA
Mjög handhæg — Þrjár tegundir
Kaupfélag Eyfirðinga.
Véla- og varahlutadeild.
Sængurveraefni
DAMASK OG LÉREFT
LAKALÉREFT OG STOUT
HVÍTT LÉREFT
Kaupfélag Eyfirðinga.
Véfnaðarvörudeild.
Sumarkjólaefni
Athugið hið mikla úrval hjá okkur!
Verð frá kr. 28.00 metrinn.
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild
Utlendi áburðurinn
Kaupfélag Eyfirðinga
er kominn. Þeir, sem hafa pantað áburð hjá oss,
eru vinsamlega beðnir að taka hann hið allra
fyrsta. Kalí- og fosfórsýruáburð verða menn að
hafa tekið eigi seinna en 14. maí n. k. og köfnun-
arefnisáburð ekki síðar en 20. maí. Eftir þann
tíma verður áburðurinn seldur hverjum, sem
hafa vill.
ÁVARP
frá 1. maí-nefnd
verkalýðsfélaganna
á Akureyri
Undanfarna mánuði hefur at-
vinnuleysið legið eins og mara yf-
ir stærri hluta verkalýðs þessa
bæjar en nokkru sinni síðan á
hörðustu kreppuárunum milli
heimsstyrjaldanna. Jafnhliða því
hefur dýrtíðin auktzt svo á und-
anförnum árum, að þrátt fyrir
sigur verkalýðsfélaganna sl. vor,
þegar vísitöluuppbót náðist aftur
á grunnkaup með samningum
félaganna við atvinnurekendur,
er kaupmáttur launa hins vinn-
andi manns nú orðinn svo rýr, að
laun fjölskyldumanns gera ekki
betur en hrökkva fyrir brýnustu
nauðsynjum heimilisins, þótt
vinnan sé stöðug. Þegar svo at-
vinnan bregst, tekur skorturinn
við, sár og auðmýkjandi, og hefur
hann þegar gert vart við sig á
fjölda alþýðuheimila á liðnum
vetri.
Alþýða þessa lands hefur því
aldrei verið meiri nauðsyn þess
en nú, að skipa sér saman í órofa
fylkingu til varnar atvinnuöryggi
sínu og lífsafkomu.
Við viljum því skora á allt al-
þýðufólk og launþega Akureyrar
að sameinast í baráttunni fyrir
atvinnu handa öllum og mann-
sæmandi kjörum hins vinnandi
fólks. Við teljum að rétturinn til
atvinnu sé sjálfsagðasti réttur
hvers einasta manns, réttur, sem
framar öllu beri að tryggja.
Alþýðufólk á Akureyri!
Því fjölmennari og stærri sem
fylkingar okkar verða á hátíðis-
og baráttudegi okkar, 1. maí, því
meiri verður styrkur okkar í bar-
áttunni fyrir atvinnu og afkomu-
öryggi okkar.
Sýnum einingu og mátt sam-
taka okkar með meiri þátttöku í
hátíðahöldunum 1. maí nú en
nokkru sinni fyrr!
I 1. maí-nefnd verkalýðsfélag-
anna á Akureyri.
Jón Ingimarsson, Þ. Daníelsson,
Jóhannes Jósepsson, Sigtryggur
Ólafsson, Kristján Larsen Björn
Brynjólfsson, Haddur Júlíusson,
Jóhann Indriðason, Stefán Snæ-
björnsson, Ingólfur Árnason,
Steingr. Eggertsson, Lórenz Hall-
dórsson, Ingibjörg Sigurðardóttir,
Margrét Magnúsdóttir, Ingvi
Árnason, Svavar Jóhannesson,
Freysteinn Sigurðsson, JónÁrna-
son, Bernharð Helgason, Óskar
Stefánsson, Kristín ísfeld.
Barátta við sjúkdóma í Kóreu
Smjörlíkisverð lækkar
í Danmörk
í sl. viku féll smjörlíkisverð í
Danmörk um 12 aura pr. kg.
vegna lækkandi hráefnaverðs og
kostar nú í búðum d. kr. 3,52 pr.
kg. í fyrra um sama leyti var
verðið d. kr. 4,20 pr. kg.
Fyrir dyrum mun standa verð
lækkun smjörlikis hér, að því er
blaðið frétti í gær.
Sameinuðu þjóðimar reyna af fremsta megni að hjálpa fólkinu á
hernaðarsvæðunum í Kórcu. Til dæmis eru starfræktar margar
lækningastöðvar eins og sú, er myndin sýnir. Er það sérstaklega
innréttaður bíll og fylgja honum læknar og hjúkrunarlið. Myndin
sýnir drengi í Taejon skoðá fána SÞ á cinum Iæknabílnum.
TILKYNNING
frá Síldarútvegsnefnd til síldarsaltenda
Þeir, sem ætla að salta síld norðanlands á þessu
sumri, þurfa að sækja um leyfi til Síldarútvegsnefndar.
Umsækjendur þurfa að upplýsa eftirfarandi:
1. Hvaða söltunarstöð þeir hafa til umráða.
2. Hvaða eftirlitsmaður verður 4 stöðinni.
3. Tunnu- og saltbirgðir.
Umsóknir sendist skrifstofu vorri á Siglufirði fyrir
15. maí næstkomandi.
Nauðsynlegt er, að umsóknunum fylgi tunnu- og
saltpantanir saltenda, og mun skipting söltunarmagns
á stöðvar m. a. miðuð við tunnupantanir.
Tunnur og salt frá nefndinni verður að greiða við
móttöku eða setja bankátryggingu fyrir greiðslunni
áður en aíhending fer fram.
SÍLDARÚTVEGSNEFND.
Ráðningarskrifstofa
landbúnaðarins
undir forstöðu Metúsalems Stefánssonar, er tekin til
starfa í Alþýðuhúsinu í Reykjavík, II. hæð.
Allir þeir, sem erindi eiga við skrifstofuna, varðandi
ráðningar til sveitastarfa, ættu að gefa sig fram sem'
allra fyrst.
Menn eru áminntir um að gefa sem fyllstar upplýs- ■
ingar um allt, er varðar óskir þeirra, ástœður og skil-
mála.
Nauðsynlegt er hændum úr fjarlœgð að hafa um-
boðsmann í Reykjavík, er að fullu gœti komið fram
fyrir þeirra hönd í sambandi við ráðningar.
Skrifstofan verður opin alla virka daga kl. 9—12 og
kl. 1—5, þó aðeins fyrir hádegi á laugardögum.
BÚNAÐARFELAG ISLANDS.
l .
Leiðir allra liggfa til okkar!
Hagkvæm innkaup og hófleg álagning er trygging fyrir að þér fáið sem mest fyrir yðar peninga.
Vefnaðarvörur OG Fatnaðarvörur
fyrir aHa*