Dagur - 03.09.1952, Blaðsíða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 3. september 1952
Árni Jóhannesson hreppstjóri
á Þverá sextugur
Árni Jóhannesson bóndi og
hreppstjóri á Þverá á Staðar-
byggð átti sextugsafmæli í gær.
Hann er fæddur í Þingeyjarsýslu,
að Kussungsstöðum í Þorgeirs-
firði, en hefur dvalið flest sín
fulloi'ðinsár hér inni í Eyjafirði
og hefur lengi verið í hópi
kunnustu bænda hér um slóðir og
forustumanna um málefni sveit-
ar sinnar. Árni er eitt hinna
kunnu Þönglabakkasystkina, Jó-
hannes faðir hans var einn af
sonum Jóns prests Reykjalín á
Þönglabakka. Hann fluttist ung-
ur með foreldrum sínum frá Þor-
geirsfirði, til tengdasonar þeirra,
Sæmundar skipstjóra Sæmunds-
sonar í Stærra-Árskógi og dvaldi
þar og á Grýtubakka fram um
tvítugt. Brauzt þá í því að ganga
á Hólaskóla, þótt efni væru lítil
og aðstaða erfið, en að námi
loknu gerðist hann ráðsmaður á
Þverá, hjá hinni miklu myndar-
húsfreyju Önnu Magnúsdóttur.
Gekk síðan að eiga Þóru dóttur
hennar og hafa þau búið að Þverá
alla tíð síðan við vaxandi rausn
og myndarskap.
Árni á Þverá fékk það orð sem
unglingur hér út með firðinum,
að hann væri óvenjulegur rösk-
leikamaður og þessum orðstír
hefur hann ekki glatað þótt árin
hafi færzt yfir og hann hafi flutt
sig um set í hina mildari veðr-
áttu innfjarðarins. Hann hefur
jafnan verið — og er enn í dag —
hinn mesti kappsmaður við hvert
verk og unir því lítt, að verkefni
dagsins í dag séu geymd til
morguns. Hann hefur því verið
ötull og áhugasamur bóndi, sem
hefur lagt mikið kapp á að færa
út hið ræktaða land og nota nýja
tækni og nýja þekkingu til efl-
ingar búskapnum. Hefur honum
líka orðið mikið ágengt í því efni
og ekki látið staðar numið þótt
óvænt óhöpp hafi borið að hönd-
um. Þannig er Þverárheimilið nú
— sem raunar oftast áður — eitt
hið glæsilegasta sveitaheimili í
héraðinu, þótt á því mæddi fyrir
nokkrum árum húsbruni og
eignatjón, sem sárt var og erfitt
að bæta. En allt hefur þar verið
endurreist fyrir löngu með svo
miklum myndarbrag, að menn
undrast er þeir minnast þess,
hvernig umhorfs var eftir hinn
ægilega bVuna, er ’húsbóndinn
sjálfur lá þungt haldinn á sjúkra-
húsi með brunasár. En nú eru
húsin risin upp á ný og á Árna
bónda merkir enginn lengur
þessa þungu lífsreynslu. Mætti
fremur halda að hún hafi stælt
vilja hans, að láta ekki bugast,
heldur halda stefnunni, hvernig
sem vindar blása.
En það orð hefur ekki eitt far-
ið af Árna á Þverá, að hann sé
röskur maður til starfa, heldur
líka að hann er í senn ágætlega
vel greindur og vel að sér um
marga hluti. Er því ekkert und-
arlegt, að til hans var leitað um
ýmisleg trúnaðarstörf og embætti
fyrir sveitina. Gegndi hann t. d.
oddvitastörfum um árabil og nú
hin síðari ár allmörg hefur hann
verið hreppstjóri Öngulstaða-
hrepps og að auki í ýmsum öðr-
um trúnaðarstöðum. Öll slík störf
hefur hann rækt af miklum trún-
aði og drengskap.
Hjónin á Þverá mega nú, á
þessum tímamótum í ævi hús-
bóndans, líta yfir mikið dagsverk
— stóran og myndarlegan barna-
hóp senn uppkominn, ágætt
heimili og jörð í miklum blóma.
En þótt handtökin séu oi'ðin
mörg og erfiðið mikið, eru þau
hvorugt þannig skapi farin, að
líklegt sé að þau láti hér staðar
numið, enda líklegast að þau
eigi enn langan og farsælan
starfsdag fyrir höndum.
Fjölmenni mun hafa verið að
Þverá í gær, er ættingjar, vinir
og sveitungar sóttu heim Þverár-
heimilið í tilefni af þessum
merkisdegi húsbóndans, og vafa-
laust hefur hann sjálfur þar ver-
ið hrókur alls fagnaðar, tekið þétt
í hönd vina sinna og hrifist af
þeirri hugarhlýju, sem hefui' um-
vafið hann á þessari stundu. Þeir,
sem ekki áttu þess kost, fjar-
lægðar vegna, að vera á Þverá í
gær, senda þangað heim hjartan-
legar árnaðaróskir og kveðjur
með þökk fyrir gömul og góð
kynni.
H.
Skrúfstykki
3, 3>/2» 4, 5 og 6"
send gegn póstkröfu
Járn- og glervörudeild.
Skrifblokkir
nýkomnar
Jám- og glervörudeild.
Gluggajárn
Gluggalokur
Jám- og glervörudeild.
Ferðatöskur
/arn- og glervörudeildin
Rafofnar
Járn- og glervörudeild.
Sporjárn
Jám- og glervörudeild.
Járnsagir
Jórnsagarblöð
Járnheflar
Hjólsveifar
Borar
Axir
Þvingur
Rörtengur
Skiptilyklar
Jám- og glervörudeild.
Hurðarskrár
sænskar og enskar,
með handföngum
Járti- og glervörudeild
Smekklásar
Járn- og gleruörudeildin
' ■ (handlampar)
Járn- og glervörudeild
Raflampar
vatnsþéttir
Járn- og glervÖrudeild.
Dynamolugtir
Járn- og glervörudeild.
Mjólkursíur
6, 6i/2 og 7"
Járn- og glervörudeild.
Skrifbækur
Blýantar
Blek
Pennastengur
Pennar
Jám- og glervörudeild.
Plastleikföng
nýkomin
Járn- og glervörudeild.
Niðursuðuglös
Járn- og glervörudeildin
Herbergi
til leigu í nýju luísi nálægt
niiðbænum.
Afgr. vísar á."