Dagur - 11.04.1953, Page 9
Laugardaginn 11. apríl 1953
D AGUR
9
Bændur og verkfallið
Eftir ÁRNA JAK0B5S0N í Skógarseli
Allmikið hefur verið talað urn
verkfallið, það hið mikla, sem
gert var 1. des. í vetur, ekki sízt
um það, hver hlutur bændanna
ætti að vera á eftir.
í tilefni af því tók fyrstur til
máls Gunnar Sigurðsson bóndi í
Seljatungu í Flóa. Gerði hann það
í Morgunbl. 4. jan. sl., með harðri
ádeilu. Svo rak hvað annað. Ekki
væri nú fráleitt að athuga hvað
talað hefur verið og gert síðan
verkfallinu lauk, ef vera mætti að
einhver áttavísun um árangur-
inn, og að hverju muni fara fram-
vegis að öllu óbreyttu, og því
fremur sem nokkuð er um liðið,
og binda sig þá ekki við að ræða
þær ráðstafanir einar, er að
bændunum sneru.
F axaflóaborgirnar.
Er þá fyrst að spyrja:
Hverjir gerðu verkfall?
Hverjir ætluðu að græða mest
á því?
Fyrri spurningunni er fljót-
svarað: Það voru Reykvíkingar
og borgirnar þar í grennd. Flest
félög utan af landi, víðast hvar,
hafa dansað allnauðug. Þótt for-
ingjarnir á Akureyri létu mikinn,
fékkst vart nokkurt atkvæði í
„Iðju“ til þess að gera verkfall
við fyrstu lotu.
Gunnar í SeÍjatungu telur það
vera fávíslegt að velj'a þennan
tíma. Það orkár tvfmælis, fyrst
verkfallið vár‘' tángarsókn á
stjórnina, og súmir verkfallsmenn
með takmarkaða atvinnu. Hátíð-
irnar voru í nánd, og það sem
meira var: bezti atvinnutími á
Suðvesturhorni landsins var
framundan. Það hlaut að koma
mikill fjöldi fólks fólks í at-
vinnuieit á þessar slóðir eftir ný-
ár og nú var um að gera að borg-
irnar syðra gætu gráett á þessu
fólki. Hugmyndin um, að þetta
var á bak við, sannaðist á því, að
hvorki í útvarpsumræðum í des.
né viðræðuþófi um lausn deil-
unnar, var minnst á husaleiguna
einu orði, svo að vitað væri. Eins
og húsaleigan í borgunum suð-
vestanlands kæmi dýrtíðinni
nokkuð við? — Nei, sussu nei. —
Þessar borgir gátu hæglega dreg-
ið til sín mikið fé fyrir rándýra
húsaleigu — og með fleiri ráð-
um — eins og sést á því að nú
er húsnæði leigt fyrir margfallt
verð við það, sem fyrir var. Það,
sem kynni að vinnast fyrir þetta
fólk, með lausn verkfallsins, þá
var það að taka frá því aftur og
meira til. Verkfallsblað segir þó
frá þessu okri, en hvorki með
reiði né grátklökkva, þótt skjól-
stæðingar ættu í hlut.
Hér var meiri veiði. Útsvör
áttu að lækka á miðlungs- og
hátekjumönnum, en hækka á
stórlöxum. Þeir eru flestir í
Reykjavík og með viðskiptum
gátu þeir hæglega varpað þeirri
byrði yfir á alla landsmenn, en
það gátu bæir og sveitir út um
land með engu móti. Þetta kvað
nú upp úr með, fyrstur manna,
verkalýðsforingi á Akureyri og
þótti nú súrt að bíta í það epli,
sem hann þó hafði átt hlut að, í
sköpun arverkinu.
En það átti að láta bændur
setja niður svo um munaði, og
það tókst.
Gunnar í Seljatungu segir að
við bændur biðjum ekki um nein-
ar náðargjafir. Það er rétt. En
hann biður um réttlæti. — Nei,
það eigum við ekki að gera: Við
eigum að heimta réttlæti. Að
biðja íbúa borganna á suðvestur-
horni landsins, er fásinna, því að
þá gengjum við bónleiðir til búða.
Viðhorf bænda.
Bændurnir á Suðvesturlandi
áttu að heimta skaðabætur fyrir
það tjón sem verkafólkið olli
þeim. Það er skrílríki, þar sem
það er látið viðgangast að eyði-
lögð séu matvæli og sjúklingum
og börnum varnað lífsnauðsyn-
legrar heilsulindar. Það gerist
með þeim hætti, að úr spenum
kúnna streymir lind, sem ekki er
hægt að stöðva, og nú er það
verðmæti eyðilagt að meira eða
minna leyti, ef ekki kemst á rétta
staði eða til næringar börnum og
sjúklingum, að minnsta kosti.
Þetta er hliðstæða við það ef
læknir gerði verkfall og leikmenn
yrðu að gera að meinum hinna
sjúku. Líka hliðstæða við það, ef
hásetar tækju skipstjórnarmenn
fasta og færu sjálfir að stjórna
til ófarnaðar. Hvort tveggja þetta
varðar refsingu. Það þjóðfélag,
sem er svo vanmáttugt, að það
verndar ekki þegna sína fyrir
skaðræðisverkum, sem matvæla-
skemmdir eru og stefnt er að
heilsueyðingu manna, verður að
bæta fyrir þann vanmátt sinn.
Þess konar verk létu þeir Staun-
ing og Attlee ekki viðgangast,
þar sem þeir réðu ríkjum og voru
þó verkamannaforingjar.
Það skorti samtakamátt bænda
til þess að geta heimtað þetta, því
að ríkið gat alveg eins greitt þess
konar bætur eins og það gat tekið
12 milljónir upp úr götunni í
fjölskyldubætur til ríkra og fá-
tækra.
Bændur voru látnir lækka verð
sinnar vöru. — Sverrir Gíslason
réttlæti það méð því, að' salán
aukizt, og þá sennilega að þetta
vinni sig upp. Þetta er hliðstæða
við það, að stéttafélög launþega
lækkuðu kaup sitt í von um meiri
atvinnu. Þetta getur verið hyggi-
legt. En þó því aðeins að aðrir
vinnandi menn geri hið sama. En
af því að það gildir ekki á þeim
bæjunum, þá kemur það að lok-
um niður á bændum, enda virðist
Sv. G. standa þarna á allhálu
svelli, og ber margt til, sem ekki
er unnt að tala um hér.
Nýju tækin og framleiðslu-
kostnaðurinn.
Því hefur verið haldið fram, að
vörur bænda gætu lækkað vegna
aukinnar vélanotkunar, sem knú-
ið væri af olíum eða með rafi.
Hugsanarétt er þetta. En líta ber
á að þessi umskipti í notkun
tækja er svo nátilkomin. Til þess
þurfti fjármagn, og því fjármagni
þarf að skila aftur, hvort sem er
langsparað fé heima fyrir eða
lánsfé. Fjárfestingar í vélakaup-
um og ræktun krefjast þéss að fá
tilbærilegt verðlag afurða alllengi
á eftir framkvæmdum.
Ekki þarf að ásaka togaraflot-
ann nýja né vélbátaflotann fyrir
skort á nýjum tækjum, en þó
virðist þar ekki ganga allt að ósk-
um, þeir þurfa hátt verð fyrir af-
urðir til að halda velli, þótt eins
sé þar eins og með tækni í bún-
aði, að hvort tveggja er þjóðar-
nauðsyn.
Nú um 20 ára skeið hefur því
verið haldið fast fram af sósíalist-
um o. fl., að hátt kaupgjald í bæj-
um og mikil atvinna færði bænd-
um hátt afurðaverð. Þessi kenn-
ing er bæði tvíeggjuð og viðsjál.
Reynslan er búin að sýna, nú um
30 ára bil, að á hverjum öldufaldi
mikils atvinnulífs í borgum verð-
ur mestur fólksstraumur frá
sveitunum til bæjanna. Sjálfsagt
er gott fyrir margar sveitir að
fá hátt verð innanlands fyrir af-
urðir, en það hefur fyrir aðrar
verið keypt með fráhvarfi margra
þeirra beztu sona og dætra. Nú
hefur sýnt sig að þessi kenning
er að setja iljarnar upp en höfuð-
ið niður. Borgir suðvestanlands
fengu mjög hækkað kaup til
sinna manna og sæmilega at-
vinnumöguleika, auk tilraima-
starfsemi til dýrtíðarstöðvunar.
Þó er bændum ætluð lækkun
kaups, auk þess sem gerð yar
stór niðurgreiðsla á mjólkurvör-
ur, sem smýgur inn í vitund
borgabúa, að lengra skuli nú
haldið þai-na áfram, því að hér sé
veikleiki fyrir.
Athyglisverður áramótaboð-
skapur.
Þótt landbúnaðarráðherrann
virðist hafa sett hér niður, er
óvíst að rétt sé að sakfella hann,
því að sýnt er að hann hefur
fengið hér dýrkeypta reynslu.
Það kemur fram í áramótagrein
hans, sem vakið hefur athygli um
allt land. Að efni til er grein þessi
að flestu leyti með ágætum. Er þó
síður en svo, að þessi orð séu töl-
uð af móralskri samábyrgð milli
mín og ráðherrans hingað til.
Hver vitiborinn maður veit, að
hvert það þjóðfélag, sem lætur
hermdarverk gerast, og áformað
var að gera, í verkföllum, um
þriggja vikna tíma á hverju ári,
það liðast sundur og verður ekki
lengi í tölu sjálfstæðra þjóða.
Gildi þess, sem ræðan hafði að
flytja sannast vel í því, að þeir
einir hafa risið upp til andmæla,
sem verið hafa, vitandi eða óaf-
vitandi, beinir og óbeinir stuðn-
ingsmenn rússnesku ófreskj-
unnar.1)
Strax hefja fylgismenn hennar
áróður. M. a. birtir eitt kommún-
istablaðið þá fregn, að nemendur
Laugarvatnsskóla hefðu samþ.
mótmæli gegn stofnun hers eða
lögreglu, með þeim rökum, að
nær væri þjóð vorri að befa sátt'A
arorð þjóða á. milli en stofna til
víga.
Eg man ekki til að eg hafi séð
barnaskap jafn nakinn fýrir opn-
um tjöldum eins og þarna, ef rétt
er frá sagt. Trúa þessir unglingar
því, að þjóð sem temur sér sumt
af því, sem gerðist fyrir jólin í
vetur, geti verið trúað til að geta
borið sáttarorð þjóða á milli, eða
vera virt svo mikils að til hennar
verði tillit tekið? Nei, ó-nei — og
því síður sem nærri lá að þá væri
til víga stefnt. — Með verstu að-
ferðum deilunnar, vinnum vér
hvorki handrita- eða landhelgis-
málið.
Talað til mæðranna.
Næst var áróðursvélinni beint
að mæðrum landsins. Samþykktir
eru gerðar. Blað á Akureyri birti
nýlega grein með stórri fyrirsögn:
„MEÐAN ÍSLENZAR MÆÐUR
HAFA KOSNINGARÉTT
VERÐUR ENGINN HER
STOFNAÐURÁ
ÍSLANDI.“
Já — ó-já.
Það skal nú ekki minnst á
nema eitt atriði í grein frúarinn-
ar, sem greinina skrifaði, af því
að það er sífellt klifað á svipuðum
áróðri: að við eigum að halda fast
við okkar þjóðlegu verðmæti,
tungu og menningu.
Þetta er fávísið, vanmegna
þjóðarstolt, klætt í hjúp skyn-
helginnar. Frúin veit og allir
aðrir, sem þannig tala, að einræð-
isharðstjórar vorra tíma hafa alls
staðar lamið allt þess konar undir
hæl sinn, hvar sem þeir hafa til
náð? Þeir gerðu það alveg eins
hér, ef til næðu.
Af því að svo vill til, að eg ber
nokkra tiltrú til ritstjórans, sem
1) Kommúnistar kölluðu naz-
ismann þýzku ófreskjuna. Það
sem nazisminn var þá, það er
rússneski kommúnisminn í dag.
Höf.
birti grein þessa, vil eg gefa hon-
um bendingu:
Flokksbróðir hans, ritari
franska jafnaðarmannaflokksins,
sagði snemma árs 1939: „að það
þyrfti að gera allt sem unnt væri
til að vinna á móti Hitler, en um-
fram allt: ekki stríð.“ — Það þarf
nú ekki að segja frá, hvernig fór
fyrir Frakklandi árið eftir, það
hafði ekki haft nægan viðbúnað.
Hvernig frelsaðist Frakkland
1944. Það gerðist með þeim hætti
að mæðumar í hinum vestlæga
og suðræna heimi leyfðu að synir
þeirra færu í herklæði til þess að
mölva hlekki harðstjóranna af
flokksbræðrum ritstjórans og
allri frönsku þjóðinni.
Með birtingu greinarinnar er
ritstjórinn að gefa til kynna, að
íslenzkar mæður séu svo lágra
sanda og lítilla sæva, að þær vilji
ekki taka þátt vörnum sinnar eig-
in þjóðar, eða til varðveizlu lýð-
ræðislegs þjóðskipulags, og þjóð-
arverðmæta, hvað þá að senda
syni sína úr landi til þess
að mölva hlekki harð-
stjóranna, ef svo kynni við að
bera, að annarra þjóða mæður
þyrftu slíkt að gera.
Mundi mig sízt vara það af
þeim ritstjóra, sem skrifað hefur
hreinskilnasta eftirmæli við frá-
fall víðfeðmasta harðstjóra síðari
tíma.
Atkvæðaveiðar Alþýðuflokksins.
Sterkasta stuðningsblað komm-
únista, að því er varnir landsins
snertir, er „Frjáls þjóð“. Snemma
í vetur sagði Arnór þar, að rétt-
ara væri þó að hugsa sér innlend-
an her, en þann erlenda, en þeg-
ar ráðherrann talfærir að þessu
þurfum vér að hugsa til, tryllist
þessi sami maður af vandlætingu.
Að vísu var nú tæpast að vænta
annarra hreystiverka úr þeirri
áttinni. En hitt var furðulegra
hversu hinn „glæsilegi" foringi
Alþýðufl., Gylfi Þ. Gíslason,
bregzt hér við. í þingræðu, sem
hann flutti 22. okt. og birt var í
Alþýðublaðinu 8. febrúar segir
hann:
„Eg er sannfærður um, að
verði ekki breytt til um stefn-
una, sem fylgt hefur verið við
framkvæmd samningsins, þá
mun meiri hluti þjóðarinnar
snúast gegn því, að annarri
þjóð séu faldar vamir landsins,
og vilji að við tökum þær í
eigin hendur og takmörkum
þær þá að sjálfsögðu við tak-
markaða getu.“
Þetta skýrir Hannibal þannig,
að hér sé meint að vera ætti allt
eins og áður: ekkert þjóðvarnar-
lið, engin lögregla, enginn her.
Það þýðir: allt sé varnarlaust,
því að með einhverju þessu verða
„varnir“ að vera. Jú, þetta þýðir
það að fylgja óskum kommúnista
í öllu. Þeir styðja við bakið á
þeim flokki, sem þeim er nú erf-
iðastur, og allar þessar sam-
þykktir styðja að því sama.
Líklegt má telja að Alþýðu-
flokksmenn geri þetta til at-
kvæðaveiða frá þeim sem fátt
þekkja, lítið skilja og ekkert vilja
vita í þessum málum.
Svartasta íhald veraldarsög-
unnar.
Nú verður hrópað: íhaldsmað-
ur! Fasisti! Þeir, sem það gera,
mega kalla mig hvaða nafni sem
jeir vilja, en því, sem hér er
haldið fram, er með þeirri vitund
gert, að andstæðingarnir eru að
styðja svartasta íhald sem ver-
aldarsagan getur um á síðari öld-
um, og sem hefur kippt fram-
vindu mannréttindalegrar sið-
menningar hins hvíta kynflokks
aftur á bak um 2 þúsund ára bil,
eða til hliðstæðu við galeiðu-
þrælkun Rómverja frá þeim tíma.
Og það eru einmitt Gylfi,
Hannibal og Bragi, sem staðið
hafa að útgáfu bókai'1) sem
sannar að þetta hefur gerzt á
þrjátíu ára tímabili, og bæði af
því og fleiru, vildi eg nokkurs af
þeim vænta og margt við þá eiga.
Sjálfsagt getum við Gunnar í
Seljatungu og aðrir bændur tak-
mörkuð áhrif haft á það, hvað
gerizt næstu árin, en þó nokkur.
Þegar við göngum til kosninga
í vor, ætlum við að snúa bökum
saman og heimta það af þing-
mannsefnum þeim, sem vilja fá
okkar atkvæði, og láta eiðstaf
fylgja, að þau hlutist til um að
löggjöf verði sett, sem fyrirskipar,
að verstu verkin sem gerðust í
desember gerist ekki aftur hér á
landi — annars kjósum við þá
ekki á þing.
Skógarseli 20. marz 1953.
Ámi Jakobsson.
J) Þrælabúðir Stalíns.
Takið eftir!
Nýkomin herra og dömu-
reiðhjól í sex mismunandi
litum, verð frá kr. 1130.00.
Lakk fyrir tré og jám alls-
konar litir. — Standarar á
reiðhjól mjög vandaðir.
Reiðhjólaverkstœði
Hannesar Halldórssonar
Hólabraut 19.
Tilboð óskast
í íbúð mína Gránufélags-
götu 43, neðstu hæð 2 her-
bergi og eldhús. Tilboðum
sé skilað fyrir 20. þ. m. til
Valgerðar Stefánsdóttur
Gránufélagsgötu 43,
sem gefur allar nánari uppl.
Ú t h e y
Eg hef nokkra hesta af
góðu útheyi, til sölu.
Tryggvi Ólafsson,
Gilsá 1.
Höfum fyrirliggjandi
nýja tegund af einþættu bleikjuðu :i
nærfatabandi.
ULLARVERKSMÍÐJAN GEFJUN