Dagur - 11.04.1953, Síða 11
Laugardaginn 11. apríl 1953
D A G U R
11
- Læknamálið o. fl. tíðindi frá Moskvu
(Framhald af 1. síðu).
á síðasta flokksþinginu á sl.
ári — og varið heilli ævi til að
skapa, var lagt á hilluna. Nýtt
þrístirni kom fram á sjónarsviðið,
þar sem eru þeir Malenkov for-
sætisráðherra, Bería innanríkis-
ráðherra og Bulganin hermála-
ráðherra. Molotoff virðist ekki
hafa vald til annars en stjórna
utanríkismálum. Ætlað var að
Malenkov hefði ekki meira vald
en hinir tveir, enda lét hann af
ritarastarfi flokksins. Þá voru
þúsundir fanga látnir lausir og
verð á neyzluvörum almennings
var lækkað (og um leið gefið til
kynna að hernaðarundirbúningur
inn væri ekki rekinn af sama
kappi cg fyrr).. Loks kom svo
læknamálið.
Gagnrýni á stefnu Staiíns.
Allt fram til þess sem lækna-
málið var opinberað mátti segja
að ekki væri gengið beinlínis á
móti stefnu Stalíns. En í tilkynn-
ingunni um læknana lá í augum
uppi að hún fól í sér harða gagn-
rýni á starfi fyrrverandi stjórnar.
Þetta leiddi m. a. til þess, að ýms-
ir fóru að velta því fyrir sér,
hvort arftakar Stalíns hafi ekki
beinlínis'losáð sig við hann og hin
hættulegu yfirráð hans. Það er
vert að minna á, að einn helzti
'■ Rússlandssérfræðingur samtím-
, r.ns, G.’crge Kennan, fyrrv. sendi
'i herra í Moskvu, hefur lýpt, Stalín
j þannig, að hann væri „óttasleg-
inn, erfiður og geðvondur gamall
maður“ nú hin síðustu ár. Skoð-
anir Kennans hafi ekki notið þess
fylgis, sem vert væri, því að hann
veit hvað hann ér að tala um. —
Áður en Stalín hrakti Kennan frá
' Moskvu, sagði Kennan við er-
lenda blaðamenn þar, að í Kreml
væri hópur manna, sem gjaman
vildi breyta um stefnu. Er því svo
að sjá, að hann hafi betur en allir
aðrir á Vesturlöndum rennt grun
í, hvað í vændum var.
Úttuðust um aðstöðu Rússa.
Skoðun Kennans var, að valda-
menn við hirð Stalíns óttuðust að
of djarft væri spilað og aðstaðan
væri ekki trygg. Hann nefndi
Bulganin sem einn hinna
óánægðu, sem teldu að Rússar
væru búnir að leika af sér í Asíu
og væru að tapa í kalda stríðinu
í Evrópu. Þeir vildu því ekki
halda lengra á þeirri braut, held-
ur slá undan og búa betur um sig.
Stalíndýrkun á undanlialdi.
Fleira er hér athyglisvert, til
dæmis það, að dýrkun Stalíns
sem yfirmannlegrar veru er nú
látin niður falla í rússneskum
biöðum og hefur svo verið síðan
jarðarförin var gerð. Kennan
hefur sagt, að hann mundi ekki
verða neitt undrandi þótt það ætti
eftir að koma á daginn, að Stalín
yrði að lokum nefndur erkisvik-
ari við hugsjónir kommúnismans,
byltingarinnar. Og Malenkov-
dýrkun, sem hófst fyrst eftir
valdatöku hans, hætti snögglega
eftir að Krúsjeff tók við aðalrit-
arastarfi kommúnistaflokksins. —
Nú eru tilskipanir gefnar út í
nafni miðstjórnar flokksins en
ekki í nafni Malenkovs persónu-
lega. Fleira er athugavert. Til
dæmis það, að læknarnir voru
sakaðir um að hafa myrt Sjadan-
off, sem var fjandmaður Malen-
kovs. Ef sú ásökun hefði verfð
réttmæt, hvað þá?
Nýtt útsýni.
En hvernig Stalín dó og hvernig
valdabaráttunni reiðir af, er þó í
rauninni minna um vert en það,
að þessir atburðir hafa opnað nýtt
útsýni og e. t. v. er það skárra út-
sýni en áður var, ef menn gleyma
því ekki að undansláttur hér get-
ur vel þýtt framrás þar. Þannig
segist þessum blaðamönnum m. a.
frá.
- Bagskrármál
lanclbúnaðarins
(Framhald af 2. síðu).
framt veitt því fólki, er við hann
vinnur viðunandi lífskjör, og til
Dess að ná því marki er mikil, en
skynsamleg, vélanotkun eitt mik-
ilsverðasta hjálpartækið. Eg segi
skynsamleg, því að vélar geta líka
orðið að ómögum. Því að það er
ekki hægt að segja um þær allar,
eins og karlinn sagði um árabátinn
sinn: „Mér þykir vænt um bátinn
minn, hann étur nú engan mat frá
mér.“
2. Spurning: Að sjá þeim fyrir
verkefni sem hæfir þeim, oé. nægi-
:ega miklu, til þess að þær geti
svarað vöxtum af því fé, sem í þær
er lagt. Það mun þegar nokkuð á
dví bera, að búin séu of lítil til að
bera þann véiakost, sem þegar hef-
ur verið keyptur. Og misnotkun á
sér víða stað. Eg tel það ekki vio
næfi Farmall A eða Ferguson-
traktors að draga áburðardreifara,
sem ætlaður er fyrir hest, enda
legur dreifarans og styrkleiki ekki
neinu samræmi við afl og hraða
traktorsins. Eg nefni þetta dæmi
vegna þess að mér er kunnugt um
að þetta á sér allvíða stað.
Nei, bezt not höfum við af vél-
um og verkfærum með því að
réyna ekki þol þeirra til hins ítr-
asta, verja þau ryði og fúa og sjá
þeim reglulega fyrir smurningu.
Sum verkfæri vinna mjög illa
nái þau að ryðga og má .þar til
nefna plóga, skera á upptökuvél
um, raðhreinsara og fleira, og vil
eg benda bændum á hið ógæta
ryðlosunar- og ryðvarnarefni
FERROBETT.
Aðalatriðið við viðhald véla er
að þekkja vélina og finna strax og
lagfæra ef ciithv.-tð- bilárý arinars
getur það valdið, meiri. og minni
skemmdum.
Bezt er tvímælalaust að vélar
og verkfæri séu geymd í húsi, þó
er ef til vill enn meira um vert, að
við þær sé skilið smurðar og að
þær séu varðar með lakki eða
málningu.
Varast skyldi að geyma nokkuð
sem er salt nálægt vélum og verk
færum úr járni
3. spurning: Verkfærin þarf að
verja fyrir sól, snjó, regni og raka
og til þess eru að mínum dómi
mjög ókjósanlegir braggar eða
önnur járnhús.
Steinsteypt, vönduð hús eru
óþarflega dýr og halda frekar í sér
raka.
Lang hagkvæmast mundi vera
ef hægt væri, að fá ný, verksmiðju
'tníðuð járnhús af ýmsum stærð
um. Þau hafa alla þá kosti til að
bera, sem verkfærageymsla þarf
að hafa og það að auki: að fljótlegt
er að reisa þau og þarf ekki dýra
fagmenn til. Þægilegt að stækka
þau og flytja ef með þarf.
Frá Krabbameinsfélagi Akur
eyrar. Fyrsti sunnudagur í apríl
hefur verið valinn sem alþjóðleg
ur baráttudagur gegn krabba
meini, og í tilefni af því hefur
Krabbameinsfélag íslands fengið
leyfi til að selja merki til styrktar
starfsemi sinni næstk. sunnudag.
12. apríl, í helztu kaupstöðum
landsins. Krabbameinsfélag Ak
ureyrar væntir þess, að fólk hér
á Akureyri bregðist vel við og
kaupi merkin, er komið verður
með þau heim til þess.
Hjónaefni. Á páskadag opinber
uðu trúlofun sína ungfrú Sólveig
Kristjánsdóttir verzlunarmær og
Einar Gunnlaugsson, Fögruvöll
um, Glerárþorpi.
Samlágningarvél
— R. C. Allen — til söln.
Bragi Eiriksson.
Simi 1612.
lí1 bœ
I. O. O. F. = 13441081/2
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prestakalli. Hólum, sunnudaginn
19. apríl kl. 1 e. h. Saurbæ, sama
dag, kl. 4 e. h. — Grund, sunnu-
daginn 26. apríl kl. 1.30 e. h. —
Kaupangi, sunnudaginn 3. maí kl.
e. h. — Munkaþverá, sunnu-
daginn 10. maí kl. 1.30 e h.
Kirkjubrúðkaup. Þann 4. apríl
sl. gaf séra Pétur Sigurgeirsson
saman í hjónaband í Akureyrar-
kirkju ungfrú Ólafíu Margrétu
Guðjónsdóttur og Kára Braga
Jónsson prentnema í Prentverki
Odds Björnssonar. Heimili ungu
hjónanna er í Þórunnarstræti 93.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína í Reykjavík
ungfrú Guðbjörg Tómasdóttir,
Bjarmastíg 6, Akureyri, og
Svavar Jóhannesson, Akureyri,
nemandi í Kennaraskólanum.
Bændaklúbbsfundur verður n.k.
Driðjudagskvöld að Hótel KEA kl.
8.30. — Umræðuefni er heyverk-
Samvinnan, aprílheftið, flytur
Detta efni: Gernýting í iðnaði og
verzlun, ritstjórnnrgrein, Framtíð
íslands byggist á frjómætti jarðar
og afli fallvatna eftir Jón Sig-
urðsson í Yztafelli, Kvikmyndir
framtíðarinnar, þýdd grein,
Hlöðukálfur, smásaga eftir Sig-
urjón Jónsson frá Þorgeirsstöð-
mn, Viðtal við ungan kaupfélags-
stjóra, grein um „jeppa háioft-
anna“, Ágrip af sögu verzlunar-
samtaka við ísafjarðardjúp eftir
Kristján Jónsson frá Garðsstöð-
um, þátturinn svipi rsamtíðar-
manna, um myndir Emils Thor-
oddsen, framhaldssaga o. fl.
Strandarkirkja. Áheit kr. 50.00
frá J. G. Mótt. á afgr. blaðsins.
Samkomugestunum í Nýja-Bíó
a páskadaginn er vinsamlega
boðið á samkomu í Sjónarhæð á
sunnud. kl. 5. Ræðuefni: Sáð-
maðurinn og jarðvegurinn.
Fokdreifar
(Framhald af 6. síðu).
leg réttarmorð, var það eitt, að
einvaldinn rússpeski, sem yfir
þessari réttvísi drottnaði, fékk
heilablóðfall og dó. Engin tíðindi,
sem borizt hafa frá Rússlandi um
langa hríð, hafa vakið meiri at-
hygli um gjörvallan heim en til-
kynning Bería innanríkisráð-
herra í Moskvu um læknamálið.
En þá ber svo við, að kommún-
istablaðið hér telur ekki ástæðu
til að vitna í Bería. Einu sinni
þóttu allt fréttir, sem gekk út af
munni kommúnistaleiðtoganna,
en nú er öldin önnur. Kannske
samvizkan sé ekki góð hjá því
fólki hér úti á íslandi, sem lengi
hefur verið ginnt til þess að trúa
því blókalt, að réttvísin væri
hvergi meiri en hjá Stalín og
stjórnarfarið hvergi heilbrigðara?
Eða eru þeir að búa sig
undir að taka við fregnum að
austan um að sjálfur hinn gengni
einvaldi hafi í rauninni verið
erkibófi og fjandmaður þjóðar-
innar? Kommúnistar eru orðnir
ýmsu vanir og fyrir þá er hentast
að láta sér ekki verða bylt við
óvænt tíðindi og hafa sannfær-
inguna vel smurða svo að hún
geti snúizt lipurlega þegar kallið
kemur.
Náttúrugripasafn bæjarins er
opið á hverjum sunnudegi kl. 2—
4. Safnið er í slökkvistöðinni
nýju, aðgangur er ókeypis.
„Dómar“. Vegna veikinda eins
leikandans falla niður sýningar á
„Dómum“ um þessa helgi.
Áheit á Sólheimadrenginn. Kr.
50 frá J. J. Mótt. á afgr. blaðsins.
Látin er hér í bænum nú fyrir
nokkrum dögum frú Dagmar
Sigurjónsdótir, kona Haraldar
Guðnasonar verkam., á bezta
aldri. Frú Dagmar var framarlega
í ýmsum félagsskap kvenna hér í
bæ, var form. félags Sjálfstæðis-
kvenna, í stjórn Fegrunarfélags
Akureyrar og lét til sín taka í
fleiri félögum.
Blaðið vill vekja athygli for-
eldra í bænum á kvikmyndasýn-
ingu sem Barnaverndarfélagið
hér gengst fyrir á morgun kl. 5 í
Alþýðuhúsinu. Þar verða sýndar
kvikmyndir um uppeldismál, sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa látið
gera. Aðgangur er ókeypis.
Sextugur varð 7. þ. m. Guð-
mundur Stefánsson í Árgerði í
Glerárþorpi, einn hinn mesti
myndar- og dugnaðarmaður í
verkamannastétt hér um slóðir og
vel metinn af öllum, sem til hans
þekkja.
Heimilisblaðið Haukur, apríl-
heftið, flytur m. a. þetta efni:
Vitrun Hallgríms Péturssonar
eftir Þorst. Þ. Þorsteinsson,
Flugmenn vílja ekki fljúga
þrýstiloftsflugvélum, þýdd grein,
Nýjasta nýtt, í tækni og hefst þar
með nýr þáttur í blaðinu undir
því nafni, Listamannaþáttur, er
fjallar að þessu sinni um Gunnar
Eyjólfsson leikara, þá eru margir
þýddir þættir og sögur, kvæði og
lausavísur og sitt hvað fleira.
Þetta blað er mjög snoturt að
öllum frágangi.
Stúkan Brynja nr. 99 heldur
fund í Skjaldborg mánud. 13. þ.
m. kl. 8.30 e. h. — Fundarefni:
Kosning embættismanna o. fl.
Bíóin. — Stórmyndin „Glötuð
helgi“, sem sýnd var hér fyrir
nokkrum árum og vakti þá mikla
eftirtekt, verður sýnd í Skjald-
borgarbíói fljótlega. Þá sýnir bíó-
ið nú á næstunni ameríska mús-
íkmynd, sem _,Humoresque“ heit-
ir. Var hún sýnd hér fyrir nokkr-
um árum og vakti athygli, enda
er hvort tveggja að hún er
skemmtileg og vel leikin og flyt-
ur afbragðs tónlist, bæði fiðluleik
og píanóleik (Oscar Levant). —
Nýja-Bíó er einnig með ágætar
myndir á næstunni: „Gulleyj-
una“, sem gerð er eftir heims-
frægri skáldsögu Robert Louis
Stevenson, og japönsku verð-
launamyndina Rasho Mon, sem
hvarvetna hefui- vakið mikla at-
hygli.
Bréfaskiptaklúbburinn The Hi-
bernian Link í London óskar að
komast í samband við íslendinga,
sem gjarnan vilja standa í bréfa-
skiptum við menn í öðrum lönd-
um. Menn geta snúið sér til for-
seta klúbbsins, Mr. Vemon R.
Crowley, 15 Hay Hill, London
W. 1. og senda jafnframt utaná-
skrifað umslag (eigin adr.) og al-
þjóðleg svarmerki fyrir burðar-
gjaldi.
Fíladelfía, Lundargötu 12. —
Samkoma á sunnudag kl. 8.30 e.
h. Sigurmundur Einarsson frá
Reykjavík talar. — Söngur með
guitar- og orgelleik.