Dagur - 11.04.1953, Page 12
12
Laugardaginn 11. apríl 1953
Bagur
menn fórust í snjóflóðinu
Auðnum í Svarfaðardal
| Fjársöfnun til styrkt-
\ ar bóndanum á
Auðnum
Ríkissf jórnin útvegar bæjarútgerð
Siglufjarðar 4,5 millj. kr. lán
Tveir heimilismanna björguðust nauðuglega -
nær allur bústofn fórst - öll hús jarðarinnar
í rústum - vasklegt björgunarstarf Svarfdælinga
í stórviðrinu á iöstudaginn
langa féll mikið snjóflóð á bæinn
að Auðnum í Svarfaðardal og
færði bæjarhús öll á kaf og möl-
braut þau og fórust tveir menn í
flóðinu en tveimur heimilismönn-
um björguðu Svarfdælingar úr
rústunum og flóðinu, en þeir
brugðu skjótt og vasklega við til
hjúlpar í óveðrinu.
4 HEIMILISMENN.
Á bænum voru 4 heimilismenn,
Jón Ágústsson bóndi og kona
hans, Rannveig Valdimarsdóttir
frá Teigi í Vopnafirði, og foreldr-
ar bóndans, Ágúst Jónsson, aldr-
aður og hættuf búskap, og kona
hans, Snjólaug Flóventsdóttir. —
Björguðu sveitungar þeirra þeim
Jóni og móður hans lifandi úr
flóðinu, en Ágúst fannst örendur
um nóttina og undir morguninn
unga konan, og er talið að þau
hafi látizt skjótlega eftir að flóðið
féll á bæinn.
SÁ ÞAKIÐ Á ANNARLEGUM
STAÐ.
Næsti bær við Auðnir er Hóll
og er skammt í milli bæjanna. í
hríðarupprofi undir kvöldið á
föstudaginn langa sá bóndinn á
Hóli, Zóphonías Jónsson, sem
snöggvast heim að Auðnum og
virtist honum þak íbúðarhússins
undarlega framarlega á hlaðvarp-
anum. Fór Friðbjörn sonur hans
þá sem skjótast að athuga, hverju
þetta sætti, og varð þá ljóst
hvernig komið var. Hafði flóðið
fallið á bæinn um kl. 5 e. h. —
Selveiðar Norðmanna
Frá því hefur áður verið skýrt
hér í blaðinu, að er vetfarsíld-
veiðunum lauk, hafi allmörg
skipanna frá Álasundi og Sunn-
mæri þegar búizt á selveiðar í
Vesturísinn, hér norður af fs-
landi.
En nokkru áður voru þrjú
hinna stærri selveiðiskipa í Ála-
sundi farin áleiðis vestur til Ný-
fundnalands. Hefur veiði þeirra
skipa gengið allvel, og fréttist
eftir miðjan marz, að veiði þeirra
væri allt að 10.000 selir á skip, —
og nú nýskeð segir útvarpsfrétt:
10 12.000 selir. Aftur á móti
kvað selveiði í Vesturísnum hafa
verið fremur treg, og að sum
skipanna muni hafa lagt af stað
vestur til Nýfundnalands. — Er
það all-langsótt veiði og harð-
sótt, en ekki er slegið slöku við,
og sækja norsk selveiðiskip nær
á hverju ári þangað vestur.
Heimilismenn á Hóli brugðu
skjótt við að koma fregninni um
dalinn og jafnframt að ná sam-
bandi við Dalvík og tókst það
með aðstoð stöðvarstjórans á
Urðum og útvarpsins. Drifu
menn skjótt að slysstaðnum, þótt
veður væri hið versta og var
björgunarstarf þegar hafið. —
Slysavarnasveitin í Dalvík bjóst
þegar til ferðar og hafði snjóýtu
meðferðis, en hjálparmenn gengu
á skíðum. Var stórfenni og mjög
erfitt að brjótast fram dalinn.
TVEIMUR BJARGAÐ.
Svarfdælingar heyrðu brátt til
Jóns bónda á Auðnum, þar sem
hann var grafiim í fönninni og
náðu honum, og nokkru síðar
móður hans. Var Jón bóndi
furðulega hress, en móðir hans
meidd og þjökuð. Næst fannst
Ágúst Jónsson örendur og undir
morgun fannst lik ungu konunn^
ar. Hafði hún lent mjög djúpUÍ
fönninni.
SKEPNUR FÓRUST —
HÚS GJÖREYÐILÖGÐ.
Nær allui- bústofn bóndans
fórst í flóðinu, aðeins 2 ær voru
lifandi af 35, allir nautgripir fór-
ust, en 2 hestar voru lifandi. Öll
hús éyðilögðust gjörsamlega.
Fjallsmegin við bæinn voru hest-
hús, efst, þá hlaða, fjárhús og fjós,
sambyggt, þar næst bæjarhúsin
og var skammt í milli. Nýtt, ein-
lyft steinhús var þar og framan
við það og áfast timburstofa. Var
fólkið í framhúsinu, er flóðið féll
á bæinn og gafst ekkert ráðrúm
til undankomu. Öll húsin gjpr-
eyðilögðust, kurluðust bókstaf-
lega í smátt, svq og allt innbú að
kalla má, og má segja að allt þetta
heimili hafi gjörsamlega verið
lagt í rústir í þessu ægilega snjó-
flóði.
MIKIÐ EIGNATJÓN.
Jón Ágústsson á Auðnum var
nýlega tekinn við jörðinni og
hafði keypt hana, hafði ennfrem-
ur ráðizt í að byggja íbúðarhús.
Á svipstundu missti hann ástvini
sína tvo, eiginkonu og föður, og
allar veraldlegar eigur. Er missir
hans allur mikill og óbætanlegur.
En sveitungar hans -hafa hafizt
handa um fjársöfnun honum til
styrktar og munu margir aðrir
einnig vilja leggja þar hönd á
plóginn. Stendur þessi fjársöfnun
yfir nú. Hér á Akureyri veita
blöðin gjöfum móttöku, eins í
Reykjavík.
Ekki er vitað til að, snjóflóð
hafi áður fallið á bæjarhús á
Auðnum.
Utvegsbankinn hér lánar rúmlega eina millj. kr
j Hafin er f jársöfnun til styrkt- j
É ar bóndanum á Auðnum í [
j Svarfaðardal, er varð fyrir j
j hinum hörmulega ástvinamissi j
| í snjóflóðinu á föstudaginn!
j langa, og um leið öreigi, því að j
! flóðið tók húsin, bústofninn og \
j innbúið allt að kalla má. Er j
! þetta meira fjárhagstjón en !
= réttmætt og mögulegt er að j
j einn maður beri, enda mun al- [
j mennur vilji fólks víða um j
j land að hlnupa undir bagga [
[ með honum. Blöðin liér á Ak- !
j ureyri taka á móti framlögum. j
[ Afgreiðsla Dags í Hafnarstræti!
j 88 er opin alla virka daga.
•mmmimmimmimimmmimmimmimmmmimmmmmimmmmmi*
Dr. Sveinn Þórðarson
skipaður skólameistari
á Laugarvatni
Dr. Sveinn Þórðarson mennta-
skólakennari hér á Akureyri var
hinn 1. apríl skipaður skólameist-
ari við hinn nýja menntaskóla á
Laugarvatni. Skipaði forseti Is-
lands hann í embætti skv. tillögu
menntamálaráðherra. Á meðal um-
sækjenda um embsfettið voru m. a.
Steindór Steindórsson mennta-
skólakennari, dr. Broddi Jóhann-
esson uppeldisfræðingur og Ólaf-
ur Briem kennari á Laugarvatni.
Dr. Sveinn er maður á bezta aldri
og hefur notið álits og vinsælda í
starfi sínu hér nyrðra.
Stjórnmálaumræður
í Framsóknarfélaginu
á miðvikudag
Framsóknarfélag Akureyrar
heldur fund n.k. miðvikudags-
kvöld og verður þar rætt um
stjórnmálahorfurnar, síðasta
flokksþing Framsóknarmanna og
kosningarnar í sumar. Þess er
vænzt að félagsmenn fjölmenni á
þennan fund.
Á miðvikudngsmorguninn kom
hingað norska hjálparslíipið Nor-
sel, sem fylgist með norska sel-
veiðiflotanuni í Vesturísnum svo-
nefnda, mcð 3 slasaða mcnn og
voru þeir lagðir hér inn á sjúkra-
húsið og liggja hér enn.
Tveir þeirra voru fótbrotnir,
höfðu slasast við að stökkva frá
skipi niður á ísinn til selveiðanna,
en hinn þriðji hafði fengð skot í
ökla og var það slysaskot. Norsel
fór héðan síðdegs á miðvikudag
Siglufjarðartogaramir tveir,
sem bundnir hafa verið síðan í
janúar, eru nú famir eða um það
bil að fara á veiðar og hefur
gieiðst úr fjárskorti útgerðarinn-
ar með þeim iiætti að ríkisstjórn-
in hefur útvegað stórlán til rekst-
ursins en hefur jafnframt hlutast
til um að ný útgerðarstjórn ann-
ist reksturinn.
Verður forstjóri Síldarverk-
smiðja ríkisins jafnfram forstjóri
togaranna, sem þó verða reknir á
ábyrgð bæjarsjóðs Siglufjarðar.
Stórtap 1952.
Siglufjarðartogararnir voru rekn-
ir með stórfelldum halla á sl. ári,
eða um 2 Vz millj. kr., að því hermt
er í Siglufjarðarblöðum, en tapið á
árinu 1951 nam um 2 millj. Nem-
ur þetta tap sem svarar öllum
álögðum útsvörum í kaupstaðnum
sl. 2 ár. Var bærinn kominn í þrot
með rekstur skipanna og leitaði til
ríkisstjórnarinna um aðstoð, en at-
vinnuástand í Siglufirði er og hef-
ur verið mjög erfitt að undanförnu.
Greiddist svo úr þessum málum
nú skömmu fyrir mánaðamótin, að
ríkisstjórnin hljóp undir bagga
með ýmsum skilyrðum þó.
Milljón frá Útvegsbankanum.
Lánsfé það, sem Siglufjarðarbær
fær, er frá lánsstofnunum og rík-
inu og skiptist þannig: Landsbank-
inn 1 millj., Útvegsbankinn á Ak-
ureyri 1 millj. 75 þús., Útvegs-
bankinn í Reykjavík 1 millj 750
þús., ríkissjóður (atvinnubótafé)
750 þús.
Skilyrði ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórnin setti ýmis skilyrði
fyrir aðstoð þessari og eru þau
þessi, að því kom fram á bæjar-
stjórnarfundi í Siglufirði nú fyrir
skömmu:
1) Núverandi útgerðarstjórn
hætti störfum og stjórn ríkisverk-
smiðjanna taki að sér reksturinn
með Sigurð Jónsson sem fram-
kvæmdastjóra, og fyrir reikning
bæjarsjóðs.
2) Bæjarstjórn Siglufjarðar veit-
ir væntanlegri útgerðarstjórn óaft-
urkallanlegt umboð til að annast
alla útgerðarstjórn og rekstur tog-
araútgerðar bæjarins frá 31. marz
n.k. til jafnlengdar næsta ár á
ábyrgð og fyrir reikning bæjar-
sjóðs Siglufjarðar. Eftir þann tima
og aftur á selveiðislóðirnar í
Vesturísnum. Eftir hinar miklu
slysfarir þar í fyrra, um þetta
leyti árs, er fimm selveiðiskip
týndust, var ákveðið að hafa
hjálparskip með selveiðiflotanum.
Norsel er allfrægt skip þótt ekki
sé það stórt. Það- flutti sænsk-
norsk-brezka vísindaleiðangur-
inn til Suðurskautslanda fyrir
einum tveimur árum og var hinn
kunni landfræðingur, prófessor
Ahlman í Stokkhólmi, fyrir þeim
leiðangri.
getur bæjarstjórn Siglufjarðar eða
útgerðarstjómin sagt upp samning-
um með sex mánaða fyrirvara.
Uppsögn bæjarstjórnar er þó eigi
gild nema með samþykki ríkis-
stjórnarinnar, meðan ríkssjóður
stendur í ábyrgð fyrir lánum þeim
fyri bæjarútgerðina, sem hér um
ræðir eða eftirstöðvum þeirra.
3) Siglufjarðarbær semji um
gjaldfrest á lausaskuldum bæjar-
útgerðarinnar.
4) Skuld við Síldarverksmiðj-
una Rauðku, kr. 218 þús., greiðist
ekki að svo stöddu.
5) Siglufjarðarkaupstaður láti
útsvör skipverja standa inni hjá
útgerðinni sem áhættufé.
6) Hlutabréf Siglufjarðarkaup-
staðar og Rauðku í Fiskþurrkun
h.f. verði framseld útgerð togar-
anna og fyrirtækið rekið af togara-
útgerðinni.
7) Togararnir verði veðsettir
ríkissjóði fyrir lánunum, ennfrem-
ur síldarverksmiðjan Rauðka á
eftir áhvílandi veðum.
Sigurður Jónsson og verksmiðju-
stjórn hafa samþykkt að verða við
tilmælum ríkisstjórnarinnar um að
taka að sér rekstur togaranna gegn
eftirfarandi skilyrðum:
1) Bæjarútgerðin greiði síldar-
verksmiðjunum 1—\Vz% af brúttó
tekjum útgerðatinhar í þóknun
fyrir framkvæmdastjórn, skrif-
stofustörf, skrifstoíuhúsnæði
ásamt ljósi og hita.
2) Inneign Siglufjarðarkaupstað-
ar á viðskiptamannareikningi, ca.
1 millj. 565 þús. kr., færist sem
framlag kaupstaðarins til bæjarút-
gerðarinnar á vaxtalausum bið-
reikningi.
3) Að Siglufjarðarkaupstað tak-
ist að ná viðunandi samningum um
greiðslu lausaskulþa þæjarútgerð-
arinnar, að álitj stjórnar síldarverk-
smiðjanna, en gengið er út frá, að
sjóveðskröfur og aðrar kröfur, sem
ekki verður komist hjá að greiða,
að áliti fulltúa Siglufjarðarkaup-
staðar og stjórnar síldarverksmiðj-
anna, verði greiddar nú þegar af
lánsfé því, sem ríkisstjórnin hefur
útvegað.
Forsslund skrifar
r
Islandsþætti í Vi
Sænski ritstjórinn Jöran
Forsslund, sem hér var á ferðinni
í sl. mánuði, er nú farinn að birta
íslandsþætti í hinu stóra vikuriti
Vi, sem sænska samvinnusam-
bandið gefur út, og fjallar fyrsti
þáttur hans um ferðina til íslands
með Arnarfelli nú í vetúr og er
fjörlega skrifaður eins og jafnan
áður er þessi ágæti saesnski blaða-
maður og ljósmyndari hefur
skrifað um íslandsférðir sínar. —
Ágætar ljósmyndir prýða greinar
hans. Væntanlega mun Vi birta
fleiri greinar eftir Forsslund á
næstunni.
Sýslufundur stendur
yfir
.Sýslufundur Eyjafjarðarsýslu
hófst hér í bænum sl. miðvikudag
og mun hann væntanlega standa
fram yfir helgi. Mörg mál liggja
fyrir sýslunefndirmi til afgreiðslu.
Norska eftirlitsskipið flntti hingað 3
slasaða menn af selveiðiflotanum
í vesturísnum