Dagur - 28.10.1953, Qupperneq 5
Miðvikudaginn 28. október 1953
D A G U R
5
Fréttabréf frá Árskógsströnd:
Kristján Eldjárn Kristjánsson á
Hellu skrifar blaðinu á þessa leið
síðastl. laugardag:
„1 dag er 1. vetrardagur og hið
hagstæða sumar að kveðja. I til-
efni af því dettur mér í hug, að
senda þér, Dagur sæll, nokkrar
línur. Það er heidur ekki oft, sem
þú færð bréf héðan úr sveit. Þú
átt það þó meira en skilið fyrir
allar fréttirnar og fróðleikinn,
sem þú flytur okkur út um sveit-
irnar.
Það er nú ekki svo að skilja, að
héðan séu neinar stórfréttir. Hér
er heldur ekki um stórt sveitarfélag
að ræða eða neina kosta sveit.
Fyrir rúmum 40 árum var sveit-
arfélagið stærra, þegar Arnarness-,
Hriseyjar- og Arskógshreppar
voru eitt sveitarfélag. Árskógs-
hreppi ásamt Hrísey var skipt úr
Arnarnesshreppi 1911 og Hrisey
aftur úr Árskógshreppi 1930.
mánuði, bæði hér í firðinum og á
djúpmiðum. Það sem nokkuð bæt-
ir úr er fiskhlaup, sem kom hér í
fjörðinn um mánaðamótin apríl—
maí og að menn hafa getað unnið
að því að verka fiskinn og fengið
því fyrir hann hæsta verð. Það er
þó hugur í mönnum með að auka
útgerðina og eins og getið hefur
verið um í Degi, er verið að
byggja 11 tonna bát á Hauganesi.
Þar er einnig mikill áhugi fyrir
auknum hafnarbótum, því að skil
yrði til þess eru mjög góð.
—o—-
VEGASAMBAND fer hér batn-
andi. Undanfarin ár hefur verið
unnið að endurbótum á þjóðvegin-
um á Hámundarstaðahálsi og inn
fyrir Krossa, mun sá kafli verjast
vel snjóalögum og spara snjó-
mokstur, en betur má ef duga skal,
því að hér í innhreppnum er veg-
urinn mjög lágur, og sömuleiðis í
Þó að 'óköstir -fylg. því að Arnarnesshreppi, ’ og er það lítil
hreppsfélög .séu lítil, hefur reynsl-
an af þessari ,sundurskiptingu orð-
ig allgóð. Menn standa fastar sam-
an og skilja betur sameiginlégar
þa'rfir.' ‘
Arið 1935 fengum við síma á ar hitfdrunarlítið farið að hverju
flesta bæi og hafði hann ahrif til
að létta samstarfið og jafnvel lífs-
afkomuna, sérstaklega við sjávar-
síðuna. Fyrir tug ára reistum við
héimávistárskoló ög' félagsheimili,
sem var mikið átak fýrir lítið sveit-
arfélag. Nú stundum við þó jafn-
réttir f járhagslega. Má það fyrst og
fremst þakka góðum stuðningi frá
ríkinu, þó 'því bafi gengið illa að
standa við skuldbindingar sínar og
eigi enn eftir að fullnægja veru-
legri upphæð, og í öðru lagi fram-
lagi frá Menningarsjóði KEA til
skólabyggingarinnar, sem var mjög
mikilsvérður styrkur á þeim tíma
og sýnir það hvað ávöxtur samtak-
anna getur til leiðar komið í
menningarmálum sem öðrum mál-
um.
hagfræði, að verja tugum þúsunda
í snjómokstur árlega, þegar hægt
er að mestu að fyrirbyggja það.
Einnig hafa einstaklingar bætt
heimavegi sína, svo að nú geta bíl-
frekt að krefjast þess, að rafmagn
sé selt sama verði hvar sem er á
landinu, þá verður samt að vinna
ötullega að því að svo verði.
Orkulindirnar eru í eðli sínu sam-
eign og dreifbýlið héfur þegar fært
bæjunum svo miklar mannfórnir,
og heldur liklega áfram að gera
það, að eitthvað mætti skattleggja
það, að minnsta kosti hefur það
verið mikil blóðtaka fyrir sveit-
irnár og þess vegna legið víða við
auðn.
Nú er komið jafnaðarverð á
benzin og olíur og næst verður raf-
magnið að koma.
SÍÐASTLIÐIÐ VOR lét hér af
stjórn barnaskólans Jóhannes ÓIi
Sæmundsson, eftir að hafa kennt
hér í 24 ár. Hann fær hvíld frá
kennslustörfum um eins árs skeið.
Var það tilfinnanlegur missir fyrir
sveitarfélagið, því að Jóhannes var
ekki aðeins duglegur og góður
kennari, heldur einnig mjög
áhugasamur um framfáramál
sveitarinnar.
Hann átti sinn mikla þátt í því
að skólabyggingin komst svo fljótt
og vel i framkvæmd. Lagði hann
mikið á sig við að fegra staðinn og
lét sér mjög annt um skólann og
skapaði honum gott álit. Jóhannes
var einnig formaður sóknarnefnd-
ar og lét sér annt um fegrun kirkj-
unnar og grafreita.
Við skólastjórn tók Árni Rögn-
valdsson, er hann viðurkenndur
góður kennari. Skólaskyld börn eru
58 og tveir fastir kennarar. Skil-
yrði til handavinnukennslu eru
góð og mikil áherzla lögð á hana.
Einnig eru góð skilyrði til leik-
fimikennslu.
ignumst sjúkraflugvé! fyrir
ÞETTA ER nú sögulegs eðlis,
en eg ætlaði að tala um sumarið og
segja eitthvað af því sem gerzt
hefur hér í sveit á síðastliðnu
sumri. Hvaðanæfa af landinu ber-
ast fréttir um ágæti sumársins.
Alls staðar óvanaleg grasspretta og
garðauppskera, þó mun heyþurrk-
un ekki hafa gengið sem bezt
NÚ ER VERIÐ að ljúka við að
leggja rafmagnsháSpennulínu hér
um hreppinn og líður ekki á löngu
áður en hún kemst alla leið til
Dalvíkur. Ekki er þar með sagt að
þessi sveit njóti mikils í við það
1 fyrst um sinn, en það er þó fyrir-
sumum sveitum Eyjafjarðar og
Norðurlands. Hér í sveit fylgdist
að óvanalega góð grasspretta og
góð riýting á heyinu, t. d. var
sprettutíð svo hagstæð, að til var
að sáðsléttur frá vorinu voru tví-
slegnar með ábreiðslugrasi í bæði
skipti og veit eg ekki dæmi til þess
að minnsta lcosti hér í sveit. Mikill
er því munurinn á þessu sumri eða
hinum lökustu, t. d. sumrinu 1882,
þegar hafísinn lá hér við land
fram á síðari hluta sumars og
spretta var svo rýr, að varla var
hægt að festa heyið í reipum og á
sumum jörðum hér í sveit var út-
heyskapur innan við 50 hestburði
og töðufengur að sama skapi lítill.
I VERSTÖDVUM hér við sjó-
inn hefur sumarið ekki fasrt mik-
inn feng í bú. Það má líeita að
aflalaust hafi verið hér í 4—5
ÞÆGINDIN hafa aukizt hröð-
um skrefum. Nú er svo komið að
brauðbílar frá þremur fyrirtækjum
á Akureyri bruna eftir vegunum og
það jafnvel heim á einstaka bæi
og inn í dalbotna. Erú það óneit-
anlega aukin þægindi, en hræddur
er eg um að nýr útgjaldaliður skap-
izt fyrir heimilin, því að við ís-
lendingar kunnum ökkur ekki allt-
af hóf, rjómaterturnar og rjóma-
ísinn er girnilegt, eg tala nú ekki
um ef ávextir og annað sælgæti er
í boði og eru börn og unglingar
ginkeypt fyrir sliku. Þetta hefur
einnig lakari hliðar. í sumum til-
fellum má telja þetta verzlanir á
hjólum, og er það nýtt fyrirbæri
hér.
heit um ljós og yl siðar. Annars
hafa margir hinir efnaminni
áhyggjur af því, með hverjum
hætti þeir geti tekið á móti raf-
magninu, þegar það loks verður
falt. Engir sjóðir eru starfandi
því augnamiði að lána einstakling-
um til slíkra framkvæmda, veitti
þó ekki af að svo væri. Á það er
einnig að líta, að sveitaheimilunum
verður rafmagnið mun dýrara en
bæjarbúum, og má það e. t. v. eðli-
legt telja, þar sem stórum dýrara
er að dreifa því út um strjálbýlíð,
en til fjölda notenda á takmörkuðu
svæði.
Vilji þjóðin aftur á móti, að
sveitirnar haldist byggðar, verður
hún að offra einhverju til að
skapa íbúum sveitanna lík skilyrði
til þæginda, annars leitar fólkið
áfram til hinna stærri kaupstaða,
því að nútíma fólk leitar uppi lífs-
þægindin. Þó að það þyki ýmsum
S AFN AÐ ARMÁL. Hér var
myndarleg kirkja byggð fyrir 26
árum. Var hún öll máluð innan í
heimili, þegar aðalvegurinn er fær. 7°r m'killi prýði. Gerðu það
innansveitarmenn, þeir Hannes og
Kristján Vigfússynir frá Litla-Ár-
skógi. Geta má þess, að bræður
þessir áttu tvo muni í iðnsýning-
unni síðustu, sem vöktu mikla at-
hygli. Var það útskorin hilla með
áletrunum og útskorin spegilum-
gjörð.
I sumar var keypt nýtt orgel í
kirkjuna og kostaði það upp undir
20 þúsund krónur. Var það vigt af
sóknarprestinum, séra Fjalar Sig-
urjónssyni. Hér sem annars staðar
prófastsdæminu vísiteraði bisk-
upinn, herra Sigurgeir Sigurðsson,
og þótt það væri á virkum degi
mátti kirkjan heita fullskipuð. —
Biskupinn prédikaði (en tveir
sóknarprestar aðstoðuðu). Söfnuð
urinn hreifzt mjög af athöfninni.
Eftir messu var setzt að kaffi-
drykkju í skólahúsi. Voru ræður
þar fluttar. Söfnuðurinn muft lengi
minnast komu biskupsins hingað
og blessa minningu hans.
Skömmu eftir að nýja orgelið
kom hér í kirkjuna fluttu hér
messu fyrrverandi sóknarprestur,
séra Stefán Snævarr og aðstoðar-
prestur hans, Þórir Stefánsson
stud. theol., sá síðarnefndi prédik-
aði. Eg get um þetta hér vegna
þess, að mér finnst að prestar
þjóðkirkjunnar vera nokkuð stað-
bundnir og mættu gera meira að
því en er, að skiptast á um messu-
flutning. Samgöngur eru nú það
góðar, að það ætti ekki að vera til
hindrunar. Þetta muridi hafa örf-
andi áhrif á safnaðarlífið.
í byrjun minntist eg hins hág-
stæða og góða sumars, en þrátt
fyrir allt gengur lífið sinn gang.
Menn koma og fara.
EITT HEIMILI hér hefur sér-
staklega orðið fyrir áfalli. Þrennt
úr fjölskyldunni dó á sumrinu.
Þetta heimili er Brattavellir. —
Fyrrverandi húsmóðir þar, Anna
Sigurgeirsdóttir, dó 19. maí 73 ára
gömul. Hún var fædd að Hellu og
(Framhald á 9. síðu).
Síoast liðinn sunnudag birtist
sú frétt í einu sunnanblaðanna, að
meðal kvenna í höfuðborginni,
sem að slysavarnarmálum ynnu,
væri vaknaður almennur áhugi
fyrir kaupum á stærri og hentugri
sjúkraflugvél en þeirri, er að und-
anförnu hefir verið í ferðum víða
um land. Mun þessi sami áhuga-
mannahópur hafa kynnt sér nýja
gerð flugvélar, sem fyrir skömmu
er farið að framleiða vestan hafs.
Hér er um að ræða merkilegt
öryggis- og mannúðarmál, er alla
þjóðina varðar. En við þurfum
ekki einungis að fá góða og vand-
aða sjúkraflugvél staðsetta í höf-
uðborginni, heldur einnig og engu
síður úti á landsbyggðinni, helzt
á 3—4 stöðum. Þótt Björn Pálsson
hafi lent mjög víða á litlu sjúkra-
flugvélinni sinni m. a. hér norðan-
lands, og sýnt lofsverðan dugnað
við að koma sjúkum og slösuðum
undir læknishendur, er það hreinn
barnaskapur, svo ekki sé meira
sagt, að treysta á eina sjúkraflug-
vél fyrir allt landið, hversu vel
sem þetta starf hefir annars verið
leyst af héndi.
Að sjálfsögðu getur veðrátta
oft og tíðum hindrað að flugvélar
geti lagt af stað frá Reykjavík
þótt gott veður sé og vel lendandi
á þeim stað, sem óskað hefir
sjúkraflugvélar. Og ekki er ósénni-
legt, að fleiri en einn geti óskað
sjúkraflugs á sama tíma, eins og
þegar hefir komið fyrir. Það er
því lífsnauðsyn að fá hingað til
lands fleiri sjúkraflugvélar og þær
mun stærri og vandaðri og víðar
staðsettar en þá, sem nú er aðal-
lega notuð.
Meðan flugvöllur Akureyrar var
í 22 km. fjarlægð frá bænum og
mjög fáir flugvellir eða lendingar
hæfir staðir á Norðurlandi, mátti
segja, að ekki væri eins rik ástæða
fyrir okkur að hefjast handa með
útvegun sjúkraflugvélar, þar sem
rekstur hennar var að sjálfsögðu
undir því kominn, að sem víðast
væri lendandi og ekki langt að
fara frá flugvelli að sjúkrahúsi Ak
ureyrar Nú í vetur er jafnvel búizt
við, að nota megi þann hluta flug-
brautarinnar á Hólmunum, sem
þegar er búið að slétta, a. m. k.
fyrir litlar flugvélár. Byggð hefir
verið flugbraut í Mývatnssveit, og
sem alkunnugt er hafa bæði Húna-
vatns- og Skagafjarðarsýsla feng-
ið ágæta flugvelli. Næsta vor verð-
ur hægt að lenda í Grímsey og
sennilega einnig í Flatey á Skjálf-
anda og í Vopnafirði. Þá vilja Hús-
víkingar hefjast handa með vorinu,
og vafalaust munu fleiri á eftir
koma. Nákvæm athugun verður
og gerð á lendingarhæfum stöð-
um fyrir litlar sjúkraflugvélar í
hverri sveit næsta vor og sumar.
Allt þetta skapar þá möguleika að
hægt sé að hafa fullkomin not
sjúkraflugvélar hér fyrir norðan
innan skamms tíma.
Ný og vönduð 3—5 manna
sjúkraflugvél kostar auðvitað mik-
ið fé, og er þá næst að spyrja,
hvar skuli aflað og hverjir skuli
sjá um rekstur og framkvæmdir.
Eðlilegast finnst mér, að deildir
Slysavarnafélagsins og Rauði
Krossinn á Akureyri taki að sér
forgöngu í máli þessu og byrjuðu
með því að skrifa öllum sveita-
stjórnum í nálægum sýslum og
leita stuðnings þeirra, því með
jessu er fyrst og fremst verið að
vinna að öryggismálum þeirra,
fremur en Akureyrar. Þá verði
leitað fjárstuðnings allra félaga
hér norðan lands, sem líknarmál
hafa á stefnuskrá sinni og ein-
staklingum í bænum og nágrenni.
Einnig að sjálfsögðu leita fjárhags-
legs stuonings bæjar og rikis. Vil
ég því hér með heita á alla þá,
er eitthvað láta sig öryggis- og
mannúðarmál varða, að hrinda
þessu máli áleiðis sem allra fyrst.
Fyrsta vetrardag 1953.
Árni Bjarnarson.
Orðseiiding til foreldra
Lögreglan hefur beðið blaðið að
minna á eftirfarandi atriði:
1. Að foreldrar og umráðamenn
barna áminni þau alvarlega um að
vera sem minnst niður við höfnina
og forðast algerlega að fara út á
ís á Pollinrim, nema með leyfi lög-
reglúnnar.
2. Að börnum sé ekki leyft að
fara með sparksleða á þær götur
bæjarins, sem mikil umferð er
eftir, og að þeim sé algerlega
bannað að renna sér á sleðunum á
gatnamótum og í brekkum, þar
sem þau hafa ekki fengið leyfi til.
Slysahætta af sleðaferðum barn-
anna er stórkostlega mikið meiri
en almenningur virðist gera sér
grein fyrir.
3. Að áminna börnin um að vera
ekki með snjókast á götum bæjar-
ins og forðast að traðka á blóma-
beðum og runnum, þótt undir snjó
sé, svo sem meðfram kirkjutröpp-
unum og á Eiðsvelli.
4. Að veita því eftirtekt, hvort
börn eða unglingar séu með
ókunna hluti, því að það er allt of
algengt, að tapaðir munir koma
ekki til skila, þótt vitað sé að þeir
hafi hlotið að finnast. Rétt er að*
tilkynna lögreglunni um hið'
fundna, því að á varðstofu hennav
er spurt eftir hlutunum. Smáhlutir,
svo sem lyklar, geta verið eigand-
anum mikils virði og svo er um
fleira.
5. Að áminna unglinga um aff
gæta vel reiðhjóla sinna, því aff
það virðist fara í vöxt að ölvaðii
menn og óknyttastrákar taki reið-
hjól og ýmist kasti þeim einhvers
staðar frá sér eða þá rífi þau sund-
ur og breyti þeim. Er slíkur verkn-
aður glæpsamlegur, því að hér er
um að ræða dýra hluti, sem oft ei
erfitt að fá.
Til sölu:
Átta
meff
boddý,
J 1
gormasætum.
Afgr. vísar á.