Dagur - 28.10.1953, Síða 9
Miðvikudaginn 28. október 1953
D AGUR
9
- Frá bókamarkaðinuni
(Framhald af 7. síðu).
tekið frdliendudæmin upp í ferskcytta
hætti. Þetta .þykir mér hvorttveggja
óþarft. Hrynjandi er gott háttarhciti;
og þó að Draghenda sé fullgott nafn,
þá sýnist mcr það ekki tákna bctur
þetta bragform.
Dænti höfundar í Háttatali hans er
svo um þcnnan hátt óbreyttan:
245.Ljósa dísiri ljóðamáls,
lokkar stukku þér um háls;
bjarma hvörmum fríðum frá
fagurlogar sendu þá.
275.Dagsins heiða himni frá
hlýir breiðast geislar á
skógarleið og hrika-há
hömrótt eyðifjöllin blá.
Ef að') tírni vildi vinnast,
verður nóg til brága.
Skal þá fyrst í máli minnast
margra góðra daga.
Óbreytt Fráhenda er svo í Brag-
fræði sr. Helga Sigurðssonar:
Hákon hét, sá Lóðins lét
ljómann hlífar sníða;
á Ketils fund með káta lund
kappinn sá nam ríða.
Hér vantar höfuðeinkenni fer-
skeytts háttar: endarím á víxl í 1. og
3. og 2. og 4. vísuorði. Eru hér tvenn
rímsambönd scrstæð í 1. og 3. vísu-
orði. Því virðist mér, að þessi hcnd-
ingaskipan eigi ekki heima í sömu ætt
og ferskeytt erindi.
Háttatal.
Háttatal er síðasti kafli bókarinnar.
Það er 450 erindi með rímnaháttum
og skiptist í 20 rímur, eina rímu fyrir
hverja bragætt (eða bragflokk).
Erindin eru að sjálfsögðu sitt með
hverjum dýrleika og eru öll tölusett.
Er svo vitnað til tölusetningar hvers
þeirra í bragorðaskránni fremst í
bókinni, og er það éinkar handhægt
fyrir þá, scm vilja hugleiða og kynna
sér hin ýmislegu háttabrigði.
Háttatal þetta er snilldarlega kveð-
ið og saman sett, og sneitt hjá öllum
venjulegustu braglýtum, að því, er
mér virðist.
Fyrst og fremst er hin fræðilega
hlið þcss með ágætum, og sem rímna-
skáldverk er það svo vel ort, að leitun
mun á öðru jafn-snjöllu á öllu sviði
rímnakveðskaparins, frá upphafi til
okkar daga, bæði um létta kveðandi
og lcikandi-fagurt mál. Er það enn
undraverðara, ef þess er gætt, að rím-
urnar i lieild eru allar um samstætt og
áframhaldandi efni, sem ckki er rúm
til að rekja hér. Hlýtur efnisþráður-
inn að hafa orðið höfundi allmikill
tálmi gegnum torleiði æ dýrari og
örðugri braga og háttabrigða í hverri
rímu.
Ég tel mér skylt að lokum gagn-
vart höfundi að draga fram örfá
dæmi (raunar af handahófi) um fæmi
skáldsins og fagra kveðandi:
185. Kom til fundar hvíta hrundin,
heillastundin fegurst var,
sæl við undum örmum bundin
ein í lundi. — Manstu hvar?
203. Varð að engu vanda grand,
veittust giftuföng í hendi;
birtu yfir andans land
orðagleðin löngum sendi.
204. Oft hjá sveini undi sprund,
engin mein í geði réðu,
stefjagrcinir stundum hrund
sterka, hreina glcði léðu.
221.1slands þjóð, sem átt að geyma
erfðagripi fagra málsins,
viltu þeirra gildi gleyma,
glata þeim á vcgum prjálsins?
222. Sérðu ekki, að sjóðir dýrir
sóast fyrir ónýtt glingur;
þannig blekkjast þroskarýrir,
þcgar fagurgalinn syngur.
430. Átti hrundin fagnafund í fögrum
lundi.
Þeirri stund hún allvel undi.
Þetta verður að nægja. En af nógu
er að taka.
Sveinbjöm hefur hér fengið þjóð
sinni í hcndur fagurt og varanlegt
skáldverk. Ekki á hann sök á því, ef
það verður ekki lesið og lært. Fyrir
það ætti hann skilin fyllsra skáldlaun
og Fálkakross að auki.
Bókin er hin eigulegasta, og ágærar
frágangur hennar frá prentsmiðjunn-
ar hálfu.
1. vetrardag 1953.
Konráð Vilhjálmsson.
- Bréf frá
Arskógsströnd
(Framhald af 5. síðu).
ólst þar upp fram yfir tvítugt, en
giftist þá Sigurði Sigurðssyni frá
Brattavöllum og bjuggu þau allan
sinn búskap þar. Hann var dáinn
fyrir allmörgum árum. Anna var
atorkukona mikil og lagði alla
sína krafta fram í þarfir heimilis-
ins.
Húsmóðirin, Freygerður Guð-
brandsdóttir, dó 3. ágúst 51 árs
að aldri. Gift Gunnlaugi Sigurðs-
syni bónda að Brattavöllum. Áttu
þau 6 börn, 3 innan fermingarald-
urs. Freygerður var mesta mynd-
arkona og prýðilega gefin, enda
átti hún til þeirra að telja í báðar
aettir. Freygerður var lærð ljós-
móðir og gegndi þeim starfa hér í
sveit um skeið. Hún var formaður
kvenfélagsins Hvöt í nokkur ár.
Aðalstarfið var þó að sjálfsögðu
að annast heimilið, sem hún gerði
af mestu prýði. Það er því óbætan-
legur missir sem heimilið hefur
orðið fyrir við fráfall hennar. Fá-
um vikum áður en Freygerður dó,
missti dóttir hennar, Sigurlaug
Gunnlaugsdóttir og Snorri Krist-
jánsson, Krossum, einkabarn sitt,
5 mánaða gamalt, mjög sviplega.
29. júní dó á Litla-Árskógssandi
Sigurvin Edilonsson, 75 ára gamall.
Hann var lengi búsettur á Litla-
Árskógssandi cg var mörgum að
góðu kunnur fyrir frábæra gest-
risni og störf sín í margskonar
félagsskap. Hann lét sig miklu
skipta útgerðarmál sveitarinnar og
hafði á hendi mörg trúnaðarstörf
um áratugi. Hann var mjög vinsæll
maður.
Hans hefur annars staðar verið
getið ítarlega.
Læt eg svo þessum fréttapistli
lokið.
JEEP!
224. Viltu þínum ljóðalöguni
lcngur sýna enga hlynning,
cða týna öldnum brögum,
öll svo dvíni þeirra minning?
varahlutir — viðgerðir,
Umbjóðendur á Akureyri
1) Höf. snciðir ekki hjá sem aO og
ef að í háttatali'nu, og er það óþörf
ávirðing hjá slíkum bragsnillingi.
ÞÓRSHAMAR h.f.
Sími 1353
ÓDÝR
OG
GÓÐ
RAK-
BLÖÐ
Tapað
Grá hetta af kvenmannskápu
tapaðist 22. þ. m. á leiðinni frá
Strandgötu 23 að búð Bern-
harðs Laxdal. — Vinsamlegast
skilist á afgreiðslu Dags.
Benzínmótor
Lítill bensínmótor, með dvna-
mó, til sölu. Hentugur að nota
í samkomuhús, t. d. vegna
kvikmyndasýninga.
Afgr. vísar á.
Búðar- eða
verksmiðjupláss
til leigu við Eiðsvöllinn.
Upplýsingar í síma 1150.
Til sölu ódýrt:
Jakkaföt á dreng, 6—7 ára. —
Ennfremur jakkaföt á ung-
linga og fullorðna.
GUFUPRESSAN,
Skipagötu 12.
Bifreið,
Dodge Weapon 10 manna
fólksbifreið — smíðaár 1942
— með drifi á öllum hjólum,
til sölu.
Afgr. vísar á.
Herbergi
til leigu í Miðbænum.
Upplýsingar í síma 1970, eftir
kl. 6 á daginn.
íbúð til sölu,
í nýju húsi í Miðbænum. —
Semja ber við
Tryggva Haraldsson,
Miðstöðvardeild KEA.
Barnavagn
til sölu með tækifærisverði.
Afgr. vísar á.
Véla- og varahlutadeild.
Móður-flugvél
VARAHLUTIR
í rafkerfi Chevrolet-bifreiða
(Delco-Remy) j:
LJÓSASKIFTAR ||
LJÓSAROFAR jj
PLATÍNUR ||
ÞÉTTAR i|
STRAUMHAMRAR |j
KVEIKJUR |j
KVEIKJULOK ||
STRAUMLOKUR
DÝNAMÓ ANKER^ |l
BENDIX DRIF.
Kaupfélag Eyfirðinga
Véla- og varahlutadeild. jl
Nú er farið að tala um móðurflugvélar eins og móðurskip. Heljar-
stórar sprengjuflugvélar taka vörnina — orrustuflugvélamar — með
sér. Myndin sýnir ameríska sprengjuflugvél, B—36, og orrustuflug-
vél, F—84, lenda á móðurskipinu meðan það er á flugi. Sprengjuflug-
vélin getur flogið 10.000 mílna vegalengd, en orrustuflugan ekki
nema 500 mílur. — Er þessi útbúnaður því mikil trygging fyrir
sprengjuflugvélina, gerir hana starfhæfari langt frá heimastöðvuin.