Dagur - 27.01.1954, Blaðsíða 7

Dagur - 27.01.1954, Blaðsíða 7
Sliðvikudaginn 27. janúar 1954 DAGUR 7 Hörgdælir sigruðu í skákkeppni við Akureyringa Síðastliðinn sunnudag fór fram skákkeppni í milli Skákfélags Akureyrar og nokkurra bænda úr Hörgárdal. Teflt var á 10 borð- Akureyri: 1. Kristinn Jónsson Vi 2. Steinþór Helgason 0 3. Haraldur Bogason 0 4. Ingimar Jónsson 1 5. Anton Magnússon % 6. Sigurður Jónsson 0 7. Adolf Ingimarsson 1 8. Rögnvaldur Rögnvaldsson 14 9. Friðgeir Sigurbjörnsson 14 10. Gunnlaugur Guðmundsson 0 Alls 4 Úrslit þessi sýna að Hörgdæl- ingar standa á gömlum merg í skákíþróttinni. Fyrir 25 árum var mikið teflt í Hörgárdal og mun þar hafa verið annað eða þriðja sterkasta skák- um. Hörgdælir sigruðu með 6 vinningum gegn 4 v. — Úrslit einstakra skáka fara hér á eftir Hörgdælir: Baldur Guðmundsson 14 Halldór Guðmundsson 1 Guðmundur Eiðsson 1 Helgi Friðfinnsson 0 Friðfinnur Friðfinnsson 14 Búi Guðmundsson 1 Steinberg Friðfinnsson 0 Árni Haraldsson 14 Þórólfur Magnússon 14 Ólafur Stefánsson 1 Alls 6 félag landsins á þeim tíma. Skákfélag Akureyrar þakkar Hörgdælum fyrir skemmtilegan leik og höfðinglegar móttökur. Rögnv. Rögnvaldsson (form.). - Kaupin á togaranum „Sléttbak" (Framhald af 1. síðu). lagi og hefði verið vel við haldið. Voru samningar síðan undir- ritaðir og togarinn afhentur Út gerðarfélaginu. Undirtektir í bæjarstjórn. Þegar hingað norður kom og málið kom fyrir bæjarstjórn, sannaðist, að áhugaleysi Sjálfst,- manna fyrir þessum togarakaup- um hafði verið meira en orðin ein. Á bæjarstjórnarfundi þeim, sem um þetta fjallaði, kom í ljós að aðeins 1 af 4 bæjarfulltrúum Sjálfstæðismanna hafði áhuga fyrir málinu, þótt við endanlega atkvæðagreiðslu færi svo, að helmingur liðsins greiddi atkvæði með kaupunum, sem búið var að gera og ganga frá. Af hinum tveimur er það að segja, að annar greiddi atkvæði gegn málinu, en hinn sat hjá. Þannig var ,,forusta“ Sjálfstæðisfl. í merkustu aukningu atvinnu- tækja, sem hér var gerð á s. ári. Ef bæjarfélagið hefði ekki átt aðra að en foringja Sjálfstæðis- manna hér í bænum, hefðu þessi togari aldrei hingað komið. Skipið reyndist vel. Það var nokkur vísbending um afstöðu sumra Sjálfstæðismanna til þessa máls, að þeir bera það út um bæinn að togarinn Slétt- bakur hafi reynzt heldur illa og verið dýr í viðhaldi. En sannleik- urinn er að skipið hefur reynzt mjög vel og ódýrara í viðhaldi en Kaldbakur, sem er jafngamalt skip. Kaupin á Sléttbak eru glöggt dæmi um það, hverja þýðingu hefur fyrir bæjarfélagið að hafa í bæjarstjórn framkvæmda- mann og hæfileikamann sem Jak- ob Frímannsson. Að öðrum fram- bjóðendum ólöstuðum, ætti^það að vera hverjum bæjarmanni augljóst, að hann er líklegastur þeirra allra nú sem áður til að vinna að eflingu atvinnulífsins og aðstaða bæjarins út á við er styrkari en ella vegna þess trausts sem hann nýtur hjá peningastofn- unum og ríkisvaldi og hjá öllum almenningi. Kaupin á Sléttbak- sýna, hvernig slíkir fulltrúar vinna fyrir bæinn. Dylgjur ísl. í sambandi við það mál, eru einhver lágkúrulegustu skrif, sem sést hafa hér fyrir kosningar, og er langt jafnað. En á þeim sést, að samvizka .,Sjálf- stæðishetjanna góðu“ er heldur bágborin, í þessu máli a. m. k. Athugið! INNIHURÐIR tvöfaldar, kr. 160.00 pr. stk. * Önnumst INNRÉTTINGAR °g HÚSASMÍÐI * LÍKKISTUR ávallt fyrirliggjandi. * T résmíðaverkstæðið Reynir s.f. (við Sjávargötu). lngólfur Jónsson (sínii 1401) %f Guðmundur Valdemarsson. MÓÐIR, KONA, MEYJA. ATHAFNIR ERU BETRI EN INNANTÓMUR ORÐA- FLAUMUR. (Framhald af 4. síðu). með einhverju. — Á vegi Fram- sóknarflokksins hafa fyrr en nú orðið slíkar pólitískar vindbólur, en örlög þeirra eru ávallt hin sömu, þær springa og samlaga sig síðan umhverfinu, þar sem um- breytingin er hagfelldust í þann og þann svipinn. Kjósandi góður! Ef þú vilt áframhaldandi þróun í þessu bæj- arfélagi, þá áttu að nota atkvæði þitt þann veg að styðja frambjóð- endur Framsóknarflokksins, því að þeir eru fulltrúar athafna og áframhaldandi vaxtar í þessu bæjarfélagi. Fyrir því liggja stað- reyndir undangenginna ára. Þær staðreyndir eru engin innantóm orð, heldur raunveruleiki, sem þú með eigin augum getur séð hvar sem þú ferð um bæinn. Samvinnumaður. I. O. O. F. — Rbst. 2 — 102127814 I. O. O. F. = 13512981/!* - Kirkjan. Messað í Akureyrar- kirkju kl. 2 e. h. n.k. sunnudag. (Gamli sjómannadagurinn). — F. J. R. Möðruvallakl.prestakall. Mess- að að Bægisá á sunnudaginn 31. janúar og á Bakka sunnud. 7. febrúar kl. 2 e. h. — Fermingar- börn vorsins komi til spurninga. Sóknarprestur. Litmyndir frá Bermuda-eyjum og Portúgal verða sýndar að Sjónarhæð á sunnudaginn kl. 5— 5.30. Almenn samkoma á eftir. — Allir velkomnir. Sunnudagaskóli kl. 1. — Aðrar samkomur sem venjulega. Hjónaefni. Nýlega opinberuðu trúlofuh sína í Reykjavík ungfrú Ester Sighvatsdóttir Andreasson- ar bónda, Ragnheiðarstöðum í Gaulverjarhreppi, og Kristján Jónsson Kristjánsson, Spítalaveg 17, Akureyri. - FOKDREIFAR (Framhald af 4. síðu). meðal andstæðinga kommúnista hér í bænum vegna þess að ,,sig- urhorfui'“ C-listans séu nú slíkar! Menn eru lítt sammála um kosn- ingahorfurnar í bænum, nema að öllum kemur saman um, að hvernig svo sem allt veltist • að lokum sé eitt víst: kommúnistaí’ munu enn gjalda afhroð, enda er nú kunnugt um ýmsa brodda flokksins, sem eru orðnir saddir lífdaga og hafa kvatt kóng og prest og skellt hurðinni á eftir sér. Er líklegast að þau örlög bíði kommúnistanna nú, að tapa öðrum fulltrúa sínum í bæjar- stjórn og eru þetta gleðileg aft- urbatamerki í bæjarlífinu. Vínber Óbrennt kaffi á gamla verðinu Kaupfél. Verkamanna. - Radartækin (Framhald af 8. síðu). Jakob benti á, að bæjarstjórnin hefði á sl. kjörtímabili reynt að styðja málið, m. a. með því að leggja til ókeypis land fyrir völl- inn, sand og möl til flugvallar- gerðarinnar og með því að færa rafmagnslínur, en það mun kosta talsvert fé. Allt flugvallarmálið hefur not- ið þess, að þeir sem með flugmál fara, vilja styðja Akureyri ogEyja fjörð til þess að komast í sem ör- uggast flugsamband við umheim- inn. í þessu efni hafa margir unnið gott starf, en sérstaklega má taka fram, að allt málið hefur notið stúðnings Framsóknar- flokksins, utan bæjar og innan. Kvenfélag Akureyrarkirkju heldur framhalds-aðalfund í kirkjukapellunni 28. janúar kl. 5 e. h. Rætt um fermingarkyrtlana. Nauðsynlegt að konur fjölmenni stundvíslega. Stjórnin. Höfðingleg gjöf. Hjónin Guð- björg Pálsdóttir og Sigfús Jóns- son, Víðivöllum 14, Akureyri, hafa gefið tíu þúsund krónur til Nýja sjúkrahússins. Flyt eg gef- epdunum alúðar þakkir stjórnar sjúki-ahússins fyrir örlæti og vel- vilja í garð þess. — Brynjólfur Sveinsson. Árshátíð Karlakórs Akureyrar verður haldin á Hótel KEA laug- ardaginn 6. febr. Styrktarfélagar vitji aðgöngumiða á sama stað miðvikudagskvöldið 3. og fimmtu dagskvöldið 4. febrúar. Frá íþróttafélaginu Þór. Leik- stofur félagsheimilis templara að Varðborg, verða opnar fyrir fé- laga miðvikudaginn 27. þ. m. og og annan hvern miðvikudag fyrst um sinn. Aðgangur er ókeypis. — Nýjir félagar geta látið innrita sig á staðnum. Börn 8—13 ára fá að- gang kl. 6—8 e. h., eldri félagar kl. 9—11 e. h. Að þessu sinni verður til skemmtunar billiard, borðtennis, bob, spil, töfl, bækur og kvikmynd. Fjölmennið og tak- ið með ykkur nýja félaga. — Stjórnin. I. O. G. T. Stúkan ísafold- Fjallkonan nr. 1 heldur fund n.k. mánudag kl. 8.30 e. h. í Skjald- borg. Innsetning embættismanna o. fl. Skemmtiatriði. Sérstaklega óskað eftir að unga fólkið komi á fundinn. Nýir félagar velkomnir. Rauði Krossinn. Gjafir til hjón- anna á Heiði: Ó. A., Akureyri, kr. 500. — Skarphéðinn Ásgeirsson, Ak., kr. 500. — Steingrímur Is- feld, Ak., kr. 100. — Magnús, Ak,, kr. 10. — Soffía Þorkelsdóttir, Ak., kr. 100. — Bjarni Sigurðsson, Ak., kr. 100. — Vigfús Einarsson, Ak., kr. 100. — Pálína Tryggvad., Ak., 50. — Svava Árnadóttir, Ak., kr. 100. — A. G. J.. Ak., kr. 150. — Pálína Jónasdóttir, Árgerði, kr. 50. — S. og S., Ak., kr. 500. — Kristrún Benediktsdóttir, Ak., kr. 50. — Margrét Antonsdóttir, Ak., kr. 500. — N. N., Ak., kr. 50. — G. P., Ak, kr. 100. — B. B„ Ak„ kr. 20. — Guðiún Sölvadóttir, Ak„ kr. 10. Auk þess fatnaður. — ATH. Söfnunin hætitr um næstk. mánaðamót. Hestamannafélagið Léttir ætlar að starfrækja tamningastöð í vetur frá febrúarbyrjun til maí- loka. Tekui' stöðin ótemjur til tamningar og tamda hesta til þjálfunar. Ef vel tekst til sem miklar líkur benda til er tamn- ingastöðin mikils virði fyrir hina mörgu hrossaeigendur í bænum. Foreldrar! Minnið börn ykkar á að hanga ekki aftan í bílum á götunum, en þeim hættir við því, sérstaklega þegar þau eru að koma í skólann og fara úr honum. Þetta er lífshættulegur leikur, og ber því að reyna að venja börnin af honum. Sameiginlegur fund- ur á sunnudaginn (kosningadaginn) kl. 5 e. h. í kapellunni. Kaþólska kapcllan (Eyrar- landsv. 26). Lágmessa á sunnu- daginn kl. 10.30 árdegis. — Á undan messu er kertavígsla í stað vígslu á þriðjudag, en þá er kynd ilmessa. Fólk getur komið með sín kerti til vígslu Öllum heimill aðgangur við messur. - Fundurinn síðastlið- inn sunnudag (Framhald af 5. síðu). bæjarins og útlit bæjarins. Hann taldi skipulagsrriálin hér ekki hafa fai’ið vel' úr’ hendi. Hér hefði ver- ið hafizt handa. af myndarskap um aldamót um skipulagningu, en svo hefði sigið á ógæfuhlið eins og skipulag Oddeyrar sýndi bezt. Hann ræddi galla þess, að skipulagsnefnd í Reykjavík skuli ráða mestu um útlit bæjarins og benti á nauðsyn þcss, að í bænum starfaði arkítekt. Nú í dag væri aðkallandi að ganga frá skipulagi ýmissa svæða, en seinagangur á því torveldaði bcinlínis fram- kvæmdir í bænum. Þá rakti hann og það, sem gert hefur verið til að bæta útlit bæj- arins og einnig sumt af því, sem láðst hefur að gera. Ræddi m. a. um Ráðhústorg, hvernig að því hefði verið búið. Stæðu þar enn hálfgerð hús, sem samkvæmt samþykktum bæjarins hefði átt að ljúka fyrir 20 árum. Taldi hann þessum bletti í hjarta bæj- arins og ýmsum fleirum, ekki sóma sýndan, og væri þörf á úr- bótum hið bráðasta. Ennfremur að taka til höndunum, þar sem verið væri að opna nýja leið inn í bæinn að norð'an, fjölfarna aðal- leið, en það umhverfi í bænum sjálfum væri til minnkunar. Margt fleira drap ræðumaður á og var gerður ágætur rómur að rnáli hans, sem og annarra ræðu- manna. Lauk fundinum með því, að fundarstjórinn, Ingimundur Árnason fulltrúi, mælti nokkur hvatningarorð til fundarmanna um leið og hann þakkaði ræðu- mönnum þeirra skerf og sleit fundinum. 2 duglegar stúlkur geta fengið vinnu í Kexverk- smiðjunni Lorelei frá næstu mánaðamótum. x B-listinn

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.