Dagur - 28.04.1954, Blaðsíða 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 28. apríl 1954
Ávarp frá 1. maí nefnd verka
lýðsfélaganna á Akureyri
Oskað lögregiueffirlits með opin-
berum skemmtisðmkomum
Fundur formanna áfengisvarnanefnda í bæ og
sýslu óskar réttarrannsöknar vegna greinar í
Morgunblaðinu
Frá 1. maínefnd verkalýðs-
félaganna hefur blaðinu borizt
eftirfarandi ávarp:
1. maí er hvort Jyeggja í senn,
hátíðisdagur vinnandi manna og
baráttudagur þeirra. Hátíðis-
dagur því meiri, sem fleiri og
stærri sigrar hafa unnist verka-
lýðshreyfingunni fyrir velferð
alþýðustéttarinnar, baráttudagur
því meiri, sem fleira er óunnið og
fleira þarf að verja unninna sigra.
Þótt margs góðs sé að minnast
úr sögu verkalýðshreyfingarinn-
ar og margt hafi á unnizt, dylst þó
ekki, að nú er, ekki síður en áður,
brýn nauðsyn á því að efla al-
þýðusamtökin og styrkja til
nýrra dáða, og að enn er margt
af þeim kjarabótum, sem þau
hafa unnið félögum sínum, í
bráðri hættu, ef full gát er ekki
á höfð og þau eru ekki reiðubúin
til varnar og sóknar, hvenær sem
þörf gerist.
Atvinnulíf þjóðar vorrar hvílir
nú að verulegu leyti á ótraustari
grunni en oft áður og augljóst er
hverjum heilskyggnum manni, að.
almennt atvinnuleysi, með öllum
sínum hörmungum, getur skollið
yfir hvenær sem er, ef ekki verð-
ur að gert. Þá eru og uppi ráða-
gerðir um, að framkvæma nýja
gengisfellingu í einhverri mynd
og skerða á þann veg hlutdeild
vinnandi fólks í tekjum þjóðar-
innar.
Skammt er nú umliðið síðan
reynd voru ægilegustu morðtól,
er mannkynssagan kann frá að
greina, svo feiknleg að eyðnigar-
mætti, að orð fá ekki lýst. Um
víða veröld mun verkalýðshreyf-
ingin og friðarhreyfing þjóðanna
risa sem veggur gegn framleiðslu
og notkun þessa gereyðingar-
vopns, vítissprengjunnar, og krefj
ast friðar. ísl. þjóðin og verka-
lýðshreyfing hennar hafa ríkar
ástæður til þess að láta sinn hlut
hvergi eftir liggja í þeirri bar-
áttu. f friðarbaráttunni er fólgin
lífsvon íslenzku þjóðarinnar,
möguleikar hennar til sjálfstæðis
og velmegunar.
Hvort sem litið er nær eða
fjær' verður því ljóst, að verka-
lýðshreyfingin hefur ærinn starfa
að vinna, stórbrotin verkefni
blasa hvarvetna við hinni vold-
ugu mannfélashreyfingu alþýðu-
Hljómleikar kirkju-
kórsins á sunnudaginn
Eins og áður hefur verið getið,
hefur Kirkjukór Akureyrar
ákveðið að efna til hljómleika í
Nýja-Bíó sunnudaginn 2. maí
næstk. kl. 3 e. h. undir stjórn
Jakobs Tryggvasonar, söngstjóra
kórsins.
Ágóðinn af hljómleikunum á að
renna í orgelsjóð kirkjunnar. —
Kórinn hefur æft undir þessa
hljómleika sl. vetur. Eru verkefni
kórsins í þetta sinn að mestu leyti
ekki kirjulegs efnis. Sum lögin,
sem kórinn syngur nú, munu
ekki áður hafa verið sungin hér.
Einsöngvarar kórsins eru frú
Björg Baldvinsdóttir, frú Matt-
hildur Sveinsdóttir, Kristinn
Þorsteinsson og Guðm. Karl
Óskarsson. Undirleikari er frú
Margrét Eiríksdóttir.
Bæjarbúar ættu að fjölmenna á
þessa hljómleika og styrkja með
því málefni, sem er til menning-
arauka fyrir bæinn.
stéttanna, hvort sem mælt er á
kvarða fámenns bæjar, borgar,
lands eða allrar veraldar.
Við, sem unnið höfum að und-
irbúningi 1. maí hátíðahaldanna
hér í bæ, höfum leitast við að
haga störfum okkar á þann veg,
að fullkomin eining gæti orðið
um hátíðisdag okkai og að allir
þættir hátíðahaldanna bæru þess
vott. Við heitum á alþýðu bæjar-
ins að sýna samheldni sína 1. maí
og að taka virkan þátt í öllum
dagskrárliðum hátíðahaldanna og
þó fremur öllu í útifundinum og
kröfugöngunni. Við erum þess
fullviss, að mikil þátttaka þar er
einn bezti undirbúningur að ár-
angursríkri sókn í hagsmunabar-
áttunni.
Við væntum þess einnig, að sem
flestir bæjarbúar beri merki al-
þýðusamtakanna á hátíðisdegi
þeirra.
Alþýða Akureyrar! Gerum 1.
maí að sigurdegi í baráttu okkar
fyrir atvinnu, fyrir velmegun,
fyrir sjálfstæði þjóðar vorrar,’
fyrir friði.
1. maínefnd verkalýðsfélganna.
Skugga-Sveinn í síðasta
sinn
í kvöld sýnir Leikfélag Akur-
Birt hefur verið skrá um
íþróttamót hér á Akureyri nú í
sumar og er hún á þessa leið:
Maí: 2. Maí-boðhlaupið. — 9.
Hraðkeppni í knattspyrnu. — 15.
—16. Vormót í frjálsum íþróttum.
— 22. Vormót í knattspyrnu, III.
flokkur. — 23. Vormót í knatt-
spymu, IV. flokkur. — 26. Vor-
mót í knattspymu, II. flokkur.
Júní: 8.—13. Afmælismót Þórs.
— 16.—17.17. júní-mótið. — 18.—
19. Norræn unglingakeppni í
frjálsum íþróttum. — 19.—20.
Akureyrarmót í handknattleik.
— 26.—27. Drengjamót Akureyr-
ar í frjálsum íþróttum.
Júlí: 8. Júlí-mót í knattspyrnu,
meistaraflokkur. — 14. Júlí-mót í
knattspyunr, II. flokkur. — 24.—
25. Júlímót í frjálsum íþróttum.
Ágúst: 7.—8. Akureyrarmót í
frjálsum íþróttum. — 14. Knatt-
spyrnumót Akureyrar, meistara-
flokkur. — 15. Sama, III. flokkur.
— 21. Sama, II. flokkur. — 22.
Sama, IV. flokkur. — 28.—29.
Málverkasýningu
Garðars lýkur í kvöld
Málverkasýningu Garðars Lofts
sonar, í Rotary-sal Hótel KEA,
lýkur kl. 11 í kvöld. — Sýningin
hefur verið fjölsótt og hafa
margar myndir selzt.
Guðrún Á. Símonar
syngur hér 6. maí
Hin kunna söpgkona Guðrún
Á. Símonar er væntanleg til bæj-
arins, og mun hún halda hér
söngskemmtun 6. maí n.k. í Nýja
Bíó á vegum Tónlistarfélags Ak-
ureyrar. Fritz Weisshappel að-
hefur stundað söngnám í Bret-
landi undanfarin ár og er nýlega
heim komin, að námi loknu. Hef-
ur hún haldið hljómleika í
Reykjavík og hlotið ágæta dóma.
Er hún og löngu þjóðkunn sem
ágæt lyrisk sopransöngkona með
miklar músikalskar gáfur og
Norðurlandsmót í frjálsum
íþróttum. — Sundmót Akureyr-
ar.
September: 3.—7. Knatt-
spyrnumót Norðurlands. — 11.
Knattspyrnumót Akureyrar, I.
flokkur.
Október: 2.—3. Haustmót K. A.
— Hraðkeppni í knattspyrnu.
Eyfirðingar sigruðu
(Framhald af 1. síðu).
Þessir keppendur eru Eyfirðing-
um góðkunnir frá hinum árlegu
Héraðsmótum og Kristján er
löngu landskunnur fyrir afrek
sín í langhlaupum. Var hann m.
a. kosinn bezti íþróttamaður árs-
ins 1952. Hann er methafi í 3000,
5000 og 10000 m. hlaupi og 3000
m. hindrunarhlaupi; hefur keppt
í landsliði íslendinga, keppt fyrir
íslands hönd í Noregi, Danmörku, i
Svíþjóð, og í Finnlandi keppi
hann á síðustu Olympíuleikum.
Kristján er íþróttakennari að
menntun og var ráðinn hjá
U.M.SE. um síðustu áramót sem
íþróttakennari og framkvæmda-
stjóri sambandsins. Auk þess að
vera ágætur íþróttamaður er
Kristján duglegur íþróttakennari
og með áhuga hans og keppnis-
reynslu ætti íþróttalíf Eyfirðinga
að blómgast og Eyfirðingar að
mæta fjölmennir og sterkir til
leiks á næsta landsmóti U.M.F.Í.,
sem háð verður hér í Eyjafirði
sumarið 1955.
Að tilhlutn áfengismálaráðu-
nauts ríkisins var haldinn fundur
um áfengisvarnir í Skjaldborg
14. apríl sl. Á fundinum mættu
formenn áfengisvamanefnda í
Eyjafjarðarsýslu og austan Eyja-
fjarðar, svo og menn úr áfengis-
vamanefnd Akureyrar. Fundar-
stjóri var Þorsteinn M. Jónsson,
skólastjóri.
Brynleifur Tobiasson, áfengis-
málaráðunautur ríkisins, flutti
framsöguerindi um að efna til
samtaka í héraðinu um betra eft-
irlit á samkomum og fá til þess
sérstaka löggæzlumenn. Minntist
Samþykkt sýslunefndar.
Sigurður M. Helgason, settur
sýslumaður, skýrði frá tilhögun
á eftirliti með samkomum í sýsl-
unni og mælti með auknu eftirliti.
Vitnaði hann í eftirfarandi tillögu
um málið, sem samþykkt var á
síðasta sýslufundi, svohljóðandi:
„Aðalfundur sýslunefndar
Eyjarfjarðarsýslu beinir þeirri
málaleitan til dómsmálaráðu-
neytisins, að það láti fram fara
í héraðinu námsskeið til lög-
reglueftirlits með opinberum
skemmtisainkomum.
Hreppar sýslunnar sjái fyrir
ir kennslukostnaði og uppi-
haldi nemenda, en ríkið kosti
kennara og nauðsynleg tæki.
Að loknu námsskeiði verði
menn þessir, ef hæfir þykja
löggiltir til starfans, og fái bún-
inga eða örmur ytri merki, sem
nauðsynleg kunna að teljast."
í sambandi við framkvæmd
héraðsbannsins á Akureyri taldi
hann að ölvun hefði minnkað í
bænum síðan héraðsbannið gekk
í gildi og gaf fundinum eftirfar-
andi skýrslu um afbrot vegna
ölvunar fyrstu þrjá mánuði árs-
ins undanfarandi fjögur ár.
Frá 9/1 til 9/4 1951: 51 afbrot
Frá 9/1 til 9/4 1952: 44 afbrot
Frá 9/1 til 9/4 1953: 48 afbrot
Frá 9/1 til 9/4 1954: 32 afbrot
Flestir fundarmenn tóku til
máls og voru sammála um ,að
nauðsyn bæri til að fá betra eftir-
lit á samkomum en verið hefur,
svo að ölóðir menn spilli þar ekki
friði.
Áskorun til dómsmálaráðu-
neytisins.
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt:
„Fundur formanna áfengis-
varnanefnda í Eyjafj.s. og við
austanverðan Eyjafjörð, svo og
áfengisvarnanefndarmanna á
Akureyri, haldinn á Akureyri
miðvikudaginn 14. apríl, lætur
í ljósi ánægju sína yfir sam-
þykkt síðasta sýslufundar
EyjafjarðarsýSlu, varðandi
námsskeið fyTÍr tögreglueftir-
litsmenn á samkomum í sveit-
imi. Beinir fundurinn ein-
dregnum tillögum til dóms-
málaráðuneytisins, að það verði
við þessari ósk sýslunefndar-
innar. Felur fundurinn áfengis-
varnaráði ríkisins að vinna að
framgangi þessarar fram-
kvæmdar. Jafnframt beinir
fundurinn þeirr ósk til sýslu-
nefnda Eyjafjarðarsýslu. og
Suður-Þingeyjarsýslu, að þær
setji reglugerð varðandi þessi
mál eftir nánara samráði við
áfengisvarnaráð, ,í líkingu við
þá, sem sett var í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu og gekk í
gildi 9. júní 1953.“
Réttarsókn vegna greinar í
Morgunblaðinu.
í sambandi við grein í Morgun-
blaðinu 11/4 þ. á. var samþykkt
eftirfarandi tillaga:
„Fundurinn samþykkir að
fela Áfengisvarnanefnd Akur-
eyrar að skora á dómsmála-
stjórnina að láta fara fram rétt-
nrrannsókn út af fullyrðingu
Vignis tollþjóns Guðmunds-
sonar, í grein í Morgunblaðinú
11/4 þ. á. um Ieynivínsölu, toll-
smygl o. fl. á Akureyri.“
Að síðustu flutti Brynleifur
Tobiasson erindi um áfengislög-
gjöfina nýju og hlutverk áfengis-
varnanefnda.
Tamningastöðin á Akureyri
Frá tamningastöð Hcstamannafélagsins Léttis á Akureyri. Þorsteinn
Jónsson tamningamaður, ásamt nokkrum ncmendum sínum, sem
allir cru ungir að árum, en hafa þó þegar sýnt, að enn eru til góð-
hestar í héraðinu.
eyrar Skugga-Svein í síðasta sinn
og er það 18. sýning leiksins. —
Hefur jafnan verið mikil aðsókn
að sýningunum og meiri en áður
hefur þekkzt hér á leiksýningum.
hæfileika. Á tónleikunum hér
verða 13 lög. Þar á meðal óperu-
aríur, kunn klassisk sönglög og
verk þriggja íslenzkra tónskálda.
íþróftamól á Akureyri á sumrinu
stoðar með pianóundirleik.
Ungfrú Guðrún Á.
hann á í því sambandi samtök í
þessu efni á Austurlandi og
Símonar; Mýra- og Borgarfjarðarsýslu,
sem gefið hafa góða raun.