Dagur - 14.07.1954, Blaðsíða 1
GERIST ÁSKRIFENDUR!
Sími 1166.
XXXVII. árg.
ÁSKRIFTARSÍMI
blaðsins er 1166. Gerizt
áskrifendur!
12 SJÐUR
Akureyri, miðvikudaginn 14. júlí 1954
31. tbl.
Kanada - land hinna miklu framfíðarinöguleika -
er ein sferkasta stoðin undir allri starísemi NATO
Rætt við HÁUK SNORRASON, ritstjóra
Svo sem áður hefur verið getið hér í blaðinu fór Haukur
Snorrason, ritstjóri Dags, vestur um haf um mánaðamótin
maí—júní sl. í boði Atlantshafsbandalagsins og ríkisstjórnar
Kanada. Ferðaðist hann þar um landið þvert og endilangt að
kalla í hópi 20 blaðamanna frá 13 þjóðlöndum. — Haukur
kom heim úr þessu ferðalagi um mánaðamótin síðustu, en
veiktist á heimleiðinni og liggur nú allþungt haldinn í Sjúkra-
húsi Akureyrar, og því miður ekki líklegt, að hann
geti tekið upp full störf fyrst um sinn. — Fréttamaður Dags
koin að máli við Hauk nú um helgina, þar sem hann liggur á
sóttarsæng sinni í sjúkrahúsinu, og spurði frétta úr förinni.
Sunnudaginn 4. júlí sl. var
haldinn fundur Framsóknar-
manna í Norðlendingafjórðungi á
Akureyri. Fundurinn hóíst kl. 3
e. h. Formaður undirhúnings-
nefndar, Ásgrímur Stefánsson,
setti fundinn, en fundarstjóri var
Þorsteirin Mf. Jónsson, skóiaStjóri,
og til vara Kavl Kristjánsson, al-
liingism. Riíarar voru Eiríkur
Brynjólfsson og Eiríkur Sigurðs-
son, Fundurinn var vel sóttur úr
öllum sj'slum og kaupstöðum
á Norðurlandi.
Þeir dr, Kristinn Guðmunds-
son, utanríkisráðherra, og Skúli
Guðmundsson, fjármálaráðhei-ra,
fluttu framsöguræður á fundin-
um. Að máli þeirra loknu hófust
fjörugar umræður um ýmis mál,
sem nú eru efst á baugi í þjóðfé-
laginu. Þessir menn tóku til máls,
auk ráðherranna, Karl Kristjáns-
son, alþingismaður, Bernharð
Stefánsson, alþingismaður, Eiður
Guðmundsson Þúfnavöllum, Jón
Haraldsson, Einarsstöðum, Helgi
Aðaifundur Sambands ísl.
samvinnufélaga, er haldinn var
að Bifröst i Borgarf. í byrjun
þessa mánaðar, fjallaði um
mörg merk mál, sem vakið hafa
athygli almennings í landinu.
Má þar t. d. nefna tilraun þá, er
Sambandið hyggst gera til þess
að lækka byggingarkostnað í
landinu, með því m. a. að efna
til höggsteypugerðar og beita
sér fyrir öðrum nýjungum á því
sviði. Þá lætur almenningur sig
mildu skipta aukningu skipa-
Símonarson, Þverá, Jón Kjart-
ansson bæjarstjóri, Siglufirði,
Ásgrímur Stefánsson Akureyri,
Jón Jónsson, Böggvisstöðum, Jón
Melstað, Hallgilsstöðum, Stefán
Friðrikssón Siglufirði, Jón Jóns-
son, Fremstafelli, Jón Jóhanns-
son, Skarði, og Bjarni Jóhanns-
son, Siglufirði, og sumir oftar en
einu sinni.
Á fundinum kom fram ein-
dreginn áhugi fyrir auknu starfi
flokksfélaganna og stefnumálum
F ramsóknarf lokksins.
Á fundinum voru samþykktar
eftirfarandi tillögur og ályktanir:
1. Fundurinn lýsir ánægju sinni
yfir þeim umbótum, er fengizt
hafa fyrir forgöngu núverandi
utanríkismólaráðherra á samn-
ingum við Bandaríkjastjórn um
varnarliðsmálin og treystir því,
að framkvæmd hins nýja sam-
komulags verði heilsteypt og
röggsamleg að hálfu íslands.
2. Fundurinn væntir þess, að
(Framhald á 4. síðu).
stóls Sambandsins og ráðagerð-
ir um frekari sókn á þeim vett-
vangi, þar sem stefnt er m. a.
að því marki, að íslendingar
geti sjálfir tekið olíuflutninga
íil landsins að fullu í sínar
hendur. — Hcildarumsetning
SÍS varð meiri á sl. ári en
nokkru sinni fyrr, og nam 500
millj. kr. Þar af 184,5 millj. lijá
Utflutningsdeild, og hafði sú
deild ein aukið veltu sína um
43 millj. króiia, og 179 millj. hjá
Innflutningsdeild, sem jók
Gestir Norðurleiða hófu
samskot til fólksins
á Fremri-Kotum
Hópferðir vestur næstu
kvöldin
í fyrrakvöld bauð Norður-
leið li.f. starísfólki símstöðvar-
innar hér og nokkrum fleiri
gesturn í bílferð vestur á flóða-
svæðin í Norðurárdal. í bíln-
uin söfnuðust kr. 2500, er af-
hentar voru fjölskyldunni á
Fremri-Kotum, er orðið heíur
fyrir svo þungum búsifjum af
völdum skriðufallanna, svo
sem alkunnugt er. Reið for-
stjóri Norðurleiða, Lúðvík Jó-
hannesson, á vaðið með kr.
1000.00 gjöf í þessu skyni.
í ráði er, að Ferðaskrifstofan
hér efni til hópferða héðan, nú
næstu kvöldin, vestur á
skriðusvæðin. Eklti er að furða,
þótt fólk fýsi að sjá ummerki
hinna ægilegu náttúruhamfara,
sem þar hafa átt sér stað að
undanförnu. En vel ’mættu
væntanlegir þátttakendur og
aðrir, sem leið eiga um þessar
slóðir nú fyrsta sprcttinn, taka
sér fordæmi fyrsta ferðahóps-
ins til fyrirmyndar og eftir-
breytni, þannig, að erindið
þangað verði ekki aðeins til
fróðleiks og skennntunar, held-
ur verði um leið skerfur lagður
til hjálpar þeim, sem harðast
hafa orðið úti af þessum sök-
um, og um leið til liðsinnis því
erfiða uppbyggingarstarfi, sem
þarna verður hafið, til þess að
þetta heiðarbýli við þjóðbraut-
ina leggist ekki í fulla auðn.
veltu sína um 11 millj. kr. Aðr-
ar stærstu deildir Sambands-
ins eru Véladeild, sem hafði 36
millj. kr. vcltu, Iðnaðardeild
með 29 millj. og Skipadeild með
29 millj. kr. veltu. Stendur
hagur Sambandsins æ traustari
fótum íjárhagslcga á sama tíma
og það tekur stöðugt upp ný
verkefni á fjölmörgum sviðum,
og leysir þau af miklum dugn-
aði og framsýni í anda sam-
vinnusíefnunnar.
Ferðalagið?
Eg flaug með Gullfaxa beina
leið til Parísar, en þar beið sér-
stök flugvél okkar blaðamann-
anna og flutti okkur vestur um
haf, með stuttri viðstöðu á Azor-
eyjum, til Ottawa, höfuðborgar
þeirra Kanadamanna. Eigi var þó
staðið lengi við þar í það sinn,
heldur flugum við vestur ó bóg-
inn, með skammri viðdvöld í fá-
einum helztu borgunum, svo sem
leið liggur yfir hinar geysivíð-
lendu sléttur í Ontario, Mani-
toba og Saskatchewanfylkjum,
yfir Klettafjöll í Alberta og
British Columbia og allt til Van-
couverborgar á Kyrrahafsströnd.
Við stóðum nokkuð við á Van-
couvereyju, — Skoðuðum þar m.
a. hina miklu flotastöð við Vic-
toria, en þar hitti eg t. d. all-
marga háttsetta sjóliðsforingja,
sem verið höfðu hér á íslandi á
heimsstyrjaldarárunum síðari og
báru íslandi og íslendingum vel
söguna. — Og ekki má gleyma
hinum aldna og ágæta íslendingi,
Soffaniasi Thorkelssyni, sem
þarna er búsettur og ber með
miklum sóma sinn háa aldur, 78
ár.
Frá Vancouver var síðan flogið
norður á bóginn, og nú um gull-
grafalandið mikla og fræga úr
sögum, Yukon, strjálbýlt land, en
fullt hvers konar náttúruauðæfa,
í jörðu og á, þótt nú séu málm-
leitarmenn atomaldarinnar, með
Geigermælinn í höndum, komnir
í stað gullgrafaranna með skol-
pönnur sínar á þessum slóðum. —
Frá Yukon héldum við svo í
austurátt um norðvestur-land-
svæðin allt til Hudsonflóa, sem
enn var ísi lagður, þótt þetta
langt væri komið fram á sumar.
íbúarnir í Churchill, hinni fornu
bækistöð Iiudsonflóafélagsins
fræga, sögðu okkur t. d., að sigl-
ingar þangað væri naumast að
vænta fyrr en um 20. júlí í fyrsta
lagi, vegna ísalaga á flóanum, ef
að vanda lætur. — Frá Churchill
flugum við svo til Toronto og
dvöldumst þar um hríð, héldum
svo til austurstrandarinnar, en
Kanadamenn skiluðu okkur síðan
flugleiðis til Parísar, þar sem
hópurinn dreifðist, eftir að hafa
verið samflota 26180 km. leið. En
það mun láta nærri, að eg hafi
ferðast 30000 km. alls í þessum
leiðangri, þegar heim var komið
frá París flugleiðis með stuttri
viðdvöl í Kaupmannahöfn og
Reykjavík.
Hvað um íslendinga vestan hafs?
Eg rakst furðulega víða á landa
mína í Kanada. Ekki aðeins í
helztu íslendingabyggðunum, svo
sem í Winnipeg og þar í grennd,
Alberta og á Kyrrahafsströnd-
inni, heldur einnig á hinum af-
skekktustu og ólíklegustu stöð-
um, svo sem í Churchill við Hud-
sonflóann, þar sem þrír menn af
íslenzku bergi brotnir eru búsett-
ir. Mér þótti séi'lega fróðlegt og
gaman að sjá mig um í Alberta,
þar sem Klettafjallaskáldið okkar
mikla, Stephan G. Stephansson,
ól svo lengi aldur sinn og bar
beinin í fögru og svipmiklu um-
hvei’fi, með hátinda Klettafjalla
gnæfandi við himin í vesturátt. —
Það ei’ alkunnugt og skrumlaust
mál, að Kanadamenn telja, að ís-
lenzku landnámsmennirnir og af-
komendur þeirrá hafi gefizt alveg
sérstaklega vel. Alþekktir ráða-
(Framhald á 9. síðu).
SÍLDVEIÐARNAR:
Snæíellið hæsta skipið
í f lotanum með 1900 mál
og tunnur
Á miðnætti á laugardag var
Snæfellið búið að fá 1900 mál og
tunnur, en Jörundur 1000 mál og
tunnur. Allur síldarflotinn var á
sama tíma búinn að fá 20 þús. mál
og að auki ca. 3 þús. tunnur í
frost. — Um hádegi í gær hafði
síldarverksmiðjan í Krossanesi
fengið 4110 mál síldar til vinnslu.
— Síldveiðin hefur verið fremur
dræm fram að þessu, enda gæftir
stopular. — Eitt skip a. m. k. —
Björg frá Norðfirði — mun þó
hafa fengið ágæta veiði, 800 mál,
á Þistilfirði í gær, og nokkur skip
munu ennfremur hafa fengið
veiði austur undir Sléttu í gær.
Álafaér SIS fjsllai um sitörg merk framfíðar-
mál, sem vakið hafa afhygli alþjóðar
Heildarumsetningin meiri en nokkru sinni fyrr