Dagur - 14.07.1954, Qupperneq 12
12
Baguk
Miðvikudaginn 14. júlí 1954
Landsmót hestamanna aS Nerá fjölsót! og glæsilegt
Noklmð á fimmta þúsund manns sóttu mótið sl.
sunnudag, en þar voru 1000 gæðingar víðsvegar
að og 30 stóðhestar sýndir
Listmunír Litla ÁrskógsbræSra
vokti! mikta athygti við forseta
Landsmót hestamanna á Þver-
áreyrum um síðustu helgi var
geysifjölmennt og fór hið bezta
fram. Duldist engum í vikunni
sem leið, hvað til stóð, því að
stórir hópar hesta og manna
streymdu að hvaðanæfa. Litu
margir Eyfirðingar löngunaraug-
um til þessara glæsilegu hópa,
sem allir streymdu að Þverá, þar
sem landsmótið skyldi háð. Á
^ Þveráreyrum risu upp tjaldbúðir,
skúrar og danspallur auk dóm-
pailsins við skeiðvöllinn. Þar var
byggt tiltölulega vandað hús yfir
30 stóðhesta og þar. var gerður
skeiðvöllur.
Þveráreyrar eru frá náttúrunn
ar hendi hinn ákjósanlegasti
mótsstaður að dómi hestamanna.
Landrými mikið og gott, staður-
inn fagui', og stutt til aðdrátta.
Á fimmta þúsund manns sóttu
mótið á sunnudaginn.
Mikill mannfjöldi sótti mótið á
laugardaginn og sunnudaginn. Á
sunnudag var þar á fimmta þús-
und manns. Hefur aldrei séðst
þar annar eins mannfjöldi saman
kominn. Veðrið var dásamlegt
þennan dag, hlýtt og kyrrt. Nokk
uð hafði rignt kvöldinu áður, svo
að moldryks af umferð hesta og
bíla varð ekki vart. Fjöldi sam-
komugesta hreiðraði um sig í
brekkunni austan við skeiðvöll-
inn og naut þess vel, er fram fór,
þrátt fyrir mannþyrpinguna við
skeiðvöll og dómhring.
Hestamannamótið að Þverá um
síðustu helgi er annað landsmót-
ið, sem haldið hefur verið hér á
landi. Hitt var háð að Þingvöllum
1950. Segja má að Landssamband
hestamannafélaganna sé stofnað
í því skyni að hefja íslenzka hest-
H cyskapartí ðin
hefur verið heldur stirð að
undanförnu og þurrkar daufir
allt frá miðjum júní. En nú hefur
brugðið til sunnanáttar og var
góður heyþurrkur í gær.
inn aftur til þeirrar virðingar,
sem honum ber. Hesturinn og
hestamennskan hefur frá fyrstu
tímum verið sérstæður þáttur í
íslenzku þjóðlífi. Sá þáttur er enn
svo sterkur, að þrátt fyrir vélar
og breytt búskaparlag, þrátt fyrir
bíla og fiugvélar, getum við ekki
hugsað til þess að sá þáttur slitni.
Þá væri horfin sú íþróttin, sem
glæsilegust hefur verið á íslandi.
Það má segja að hesturinn hafi
verið hluti af íslenzkri þjóðarsál
og hann er það enn. Því er ekki
að leyna, að hlutverkaskipti eru
að verða. Hesturinn hefur þokað
sem vinnuhestur, en hann er að
verða meiri sporthestur en áður
var.
Það er vissulega erfitt verlc,
sem framundan er í hrossarækt-
inni. Nú þurfum við að fá reglu-
leg reiðhestakyn til að gegna
hinu nýja hlutverki.
Gunnar Bjarnason ráðunautur
hefur sagt, að íslenzki hesturinn
sé ekki með öllu ókynbættur, þar
sem segja megi að faðir hans sé
íslenzki bóndinn en móðirin
móðir náttúra. Rétt er það, að
hörðum höndum hefur móðir
náttúra tekið á hestastofninum á
umliðnum öldum og dæmt
óvægilega úr leik veikbyggða
einstaklinga. Þetta náttúruúrval
mun eiga sinn þátt í þeim eigin-
leikum stofnsins, sem bezt hafa
dugað þjóðfélaginu allt fram á
okkar daga. En bóndinn hefur,
svo sem sögur herma, alla tíð
unnið að kynbótastarfinu, svo vel
að enn eru til úrvalsgæðingar um
allt land.
Landsmót hestamanna að
Þverá ætti að vera góður skóli
fyrir hestamenn og hestaunnend-
ur. Sumum mun hafa fundizt
dæmt óvægilega. Svo hefur það
jafnan verið óg verður vafalaust
á meffan áhugi fyrir hrossarækt
er fyrir hendi.
Heildarsvipur þessa móts var
ánægjulegur cg má vsenta' þéss
að með því hafi enn giæðst áhugi
og skilningur fyrir hiimi fögru
og foínfrægu, íþrótt.
Helztu úrslit mótsins fara hér
á eftir:
Stóðhestar.
1. Hreinn frá Þverá, eigandi
HroSsakynbótabúið á Hólum í
Hjaltadal, hlaut Sleipnisbikar-
inn, 400.05 stig. — 2. Sörli, eig-
andi Pétur Sigurðsson, Hjalta-
stöðum og Gunnlaugur Þórarins-
son, Ríp, Skagaf., 390.8 stig. — 3.
Randver, eigandi Hrossakynbóta-
búið Kirkjubæ, Rangárv., 380.2
stig. — 4. Ljúfur, eigandi sami,
379.65 stig. — 5. Goði, eigandi
Sveinn Guðmundsson, Sauðár-
króki, 378.353 stig.
Tamdar hryssur.
1. Ljónslöpp, eigandi Björn
Jónsson, Akureyri, 320.5 stig. —
2. Brúnka, eigandi Ragnar Páls-
son, Sauðárkróki, 318 stig. — 3.
Perla, eigandi Jón Bjarnason,
Selfossi, 316 stig. — Næstu 3
hryssur allar frá Akureyri:
Sjarna Bjarna Kristinssonar,
314.5 stig, Drottning Tómasar
Jónssonar, 311.25 stig, Fjöður
Helga Hálfdánarsonar, 311 stig.
Góðhestar.
1. Stjarni, eigandi Bogi Egg-
ertssoon, Rvík, Sýningarfél. Fák-
ur, 322.5 stig. — 2. Blesi eigandi
Ari Guðmundsson, Sauðárkróki,
Sýningarfél. Léttfeti, Sauðárkr.,
320.5 stig. — 3. Goði eigandi Ól.
R. Björnsson, Rvík, Sýningarfél.
Fákur, 317.9 stig. — 4. Svanur,
eigandi Gísli Gottskálksson, Sól-
heimagerði, Skagafirði, Sýning-
arfél. Stígandi, 313 stig. — 5.
Nubbur, eigandi Steingrímur
Antonsson, Akureyri, Sýningar-
fél. Léttir, 311.4 stig.
350 m. stökk.
1. Gnýfari, Gufunesi, 26.6 sek.,
sjónarmunur. — 2. Blesi, Sauð-
árkróki, 26.6 sek. — 3. Léttir,
Giljahlíð, Borgarfirði, 26.7 sek.
300 m. stökk.
1. Láttfeti, Stóradal, Eyjafirði,
23.8 sek. — 2. Perla, Árgerði,
Eyjafirði, 24 sek. —3. Fálki, Ak-
ureyri, 24.3 sek.
Happdrætti.
1. vinningur, grár hestur, nr.
4456. — 2. Sótrauður hestur, nr.
4467. — 3. Rauðskjóttur hestur,
nr. 4050.
Árskógsströndungar hafa lengi
vitað um hagleik þeirra Litla-
Árskógsbræðra. Varla er hægt að
segja, að sú vitneskja hafi fram
að þessu náð lengra, því að bræð-
ur þessir eru hlédrægir menn og
er fátt fjær skapi en að halda á
lofti verkum sínum. Heita þeir
Kristján, Hannes og Jón Vigfús-
synir.
Á iðnsýningunni í Reykjavík
voru þó tveir munir þeirra og
hlutu þeir viðurkenningu fyrir.
Var það hilla útskorin, sögulegs
efnis, haglega gjörð, og mikið
völundarsmíð, og spegill stór. Er
ramminn listaverk.
Árskógsströndungar vildu hafa
muni þessa til sýnis í sambandi
við forsetakomuna nú fyrir
Benedikt Baldvinsson
í Garði 70 ára
Mánudaginn 5. júlí átti Bene-
dikt Baldvinsson, bóndi í Garði í
Aðaldal, 70 ára afmæli. Þann dag
var gestkvæmt í Gai'ði. Fjöldi
manns úr Aðaldal og nærliggj-
andi sveitum heimsótti þennan
ágæta bónda og mæta mann og
dvöldu hjá honum og konu hans,
Matthildi Halldórsdóttur, við
fagnað og veizluföng langt fram
á nótt.
60 ára afmæli
Ásu Stefánsdóttur
Miðvikudaginn 7. júlí átti frú
Ása Stefánsdóttir, Auðbrekku,
Húsavík, 60 ára afmæli. Ása rak
um aldarfjórðungsskeið, ásamt
manni sínum, Hjalta Illugasyni,
Hótel Húsavík. Á því tímabili
eignaðist Ása fjölda af kunningj-
um víðs vegar um land. Á afmæl-
isdaginn kom það í ljós, að margir
muna vinsælu frúna á Hótel
Húsavík ennþá. Fjöldi af skeyt-
um og heillaóskum barst henni,
og mannfjöldi fyllti hennar
myndarlegu og rúmgóðu húsa-
kynni.
skemmstu. Tóku þeir bræður því
fjarri, en er það spurðist, að þeir
áttu heima skammt frá Árskógs-
skóla, þar sein móttaka forseta-
hjónanna fór fram, mun forsetinn -
hafa ætlað að heimsækja þá og
sjá með eigin augum hagleik
þeirra. Létu þeir þá tilleiðast að
lofa nokkrum verkum sínum að
vera til sýnis í einu herbergi
skólans. Þar eru þau enn, nær 30
talsins, og eru málverk, gips-
steypur og tréskurður. Eru grip-
irnir hinir athyglisverðustu og
fagurlega gjörðir. Bera þeir vott
um næman fegurðarsmekk og
listrænt handbragð.
Þegar miðað er við aðstæður
allar má segja að þessir munir
og málverk séu einstakir í sinni
röð og er ólíklegt að þau séu
mörg sveitaheimili á landi hér, er
sýnt geti svo fjölbreytta list. —
Hafa margir lagt leið sína að Ár-
skógsskóla undanfarna daga til
að sjá með eigin augum tóm-
stundavinnu bræðranna frá
Litla-Árskógi og lokið lofsorði á.
Bændur á Hólsfjöllum
gáfu fé sínu aðeins
18 daga í vetur
í stuttu viðtali við Þorstein Sig-
urðsson í Víðidal á Hólsfjöllum,
skýrði hann svo frá, að í vetur
hefði hann aðeins gefið sauðfé í
18 daga. Tíðin va reinmuna góð í
allan vetur, sagði hann, og vorið
eftir því. Heyfyrningar eru því
miklar ,og búast bændur þar ekki
við að taka kaupafólk á þessu
sumri.
Garnaveikin hefur gert nokk-
urn usla á Hólsfjöllum, en búizt
er við, að með hinu nýja bóluefni
verði sigur unninn á þessari fjár-
pest.
Sigurður bóndi átti 2 gæðinga
á landsmóti hestamannafélaga nú
um helgina cg mun hafa viljað
fylgjast með þeim á mótinu. —•
Sláttur er nú að hefjast austur
þar.
Nubbur Steingríms Antonssonar, Ak. — Svanur Gísla Gottskálks«onar, Skagafirði. — Goði Ólafs R.
Björnssonai', Rvík. — Blesi Árna Guðmundssonar, Sauðárkróki. — Stjarni Boga Eggertssoonar, Rvík.
Gnýfari Þorgeirs í Gufunesi.