Dagur - 22.09.1954, Blaðsíða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 22. sept. 1954
Benedikf Sigfússon átfrædur
Ármann Dalmannsson, sextugur
Þann 30. ágúst varð Benedikt
Sigfússon á Hofi í Hörgáidal
áttræður. Er hann Eyfirðingur að
ætt og voru foreldrar hans Sigfús
Jónsson og Sigurbjörg Jóhanns-
dóttir í Ytra-Dalsgerði. Þar
fæddist Benedikt, en fór korn-
ungur í fóstur til Benedikts Jó-
hannssonar í Hvassafelli, móður-
bróður síns, og konu hans Sigríð-
ar Tómasdóttur, og var þar til
fullorðinsára.
Árið 1906 fluttist Benedikt út
í Möðruvallasókn og bjó þar
fyrst í Stóru-Brekku, en í full 30
ár hefur hann átt heimili á Hofi
og jafnan haft nokkra búsýslu.
Kona Benedikts var Guðfinna
Þorláksdóttir, ættuð úr Köldu-
kinn, en hún er látin fyrir tæpum
10 árum. Einkadótitr þeirra, Sig-
ríður, býr með föður sínum.
Benedikt var annálaður fjör-
og röskleikamaður, og, þrátt fyrir
nokkra vanheilsu hin seinustu
misseri, ber hann ellina vel og
breytir ekki um skaplyndi. Óska
þess allir hans mörgu vinir, að
svo megi haldast, unz yfir lýkur,
og árna honum gæfu og blessunar
á þessum tímamótum ævi hans.
Einn þeirra.
Kveðja frá fornvini.
1 tilefni af áttræðisafmæli forn-
vinar rníns og félaga, Iienedikts
Sigfússonar, langar mig til að varpa
að honum árnaðaróskum og þakk-
læti fyrir gömul og góð kynni.
Við eriun liáðir fædclir á sama
bænum, liann röskum tug ára fyrr
en ég. Báðir liöfum við slitið barns-
skónum á sömu slóðum og stigið á
þeim mörg sporin í fjöllum og af-
clölum Djúpadalsins, svo nú eru
naumast eftir annað en vörpin ein.
Báðir cigum við þaðan bjartar og
ljúfar æskuminningar um athafnir
og leiki, ástardrauma og æskubrek.
Einn þráðurinn í æsku- og ung-
lingsminningum minum er tengdur
við Benedikt Sigfússon. Eg var enn
barn að aldri, þegar hann var orð-
inn fullgildur til ýmissa starfa, scm
öðrum, jafnvel honum elclri, var
ekki trúað til.
A þeim árum var „fært frá“, og
ær hafðar í kvíum í seli og heimá
eftir selstöðuna. Þegar eg man fyrst
eftir Benedikt, var hann orðinn
smali, þá innan við tvítugt. Hann
var allra manna harðskarpastur og
fóthvatur svo að af bar og þótti af-
burða smali. Þó var það ekki þctta
tvennt, scm eg cláðist rnest að í sam-
bandi við smalamennsku hans, held-
ur hvað hann gat hóað liátt og clá-
samlega vel, að mér þótti, og bctur
og öðruvísi en allir aðrir í sveitinni.
Að öðru dáðist eg líka í fari hans,
en það var geigleysi hans við að
klifra í klettum og skjótleki lians til
úrræða. IJeyrði eg oft um það tal-
að, að Bensi í Hvassafelli hefði með
dirfsku og snarræði bjargað kind-
um úr Hömrunum í Hvassafellsdal,
sem komnar voru þar í svelti og
sjálfheldu.
A unglingsárum Benedikts var
honum samtíða um skcið í Hvassa-
fclli Hallgrímur Hallgrímsson, hag-
yrðingur góður og gamansamur.
Var Haligrímur faðir Kristjönu,
konu Þorvalds Hclgasonar, öku-
manns á Akureyri.
Um Benedikt og smalamennsku
hans orti hann þessar stökur:
„Bensi hóar fast í féð
íjalls af mjóu riði,.
háum spóahljóðum mcð
hjarðar sóar friði.
Klifrar verstu kletta sá,
kannar flesta dali.
Iíættum sést ei hopa frá
/ heimsins mesti smali.“
í glaðværum unglingahópnum
„undir fjöllum" var Bcnedikt jafn-
an hrókur alls fagnaðar, og þó að
liann væri kominn yfir tvítugt, jiá
taldi hann sig ekki upp úr Jiví vax-
inn að taka þátt í leikjum okkar
yngri félaganna: hafnarleik og
pinnaleik. Þótti okkur fengur góð-
ur að fá hann með.
Benedikt var röskleikamaður til
allrar vinnu, þarfur og hollur hús-
bændum sínum. Hann var clýra-
vinur mikill og lét sér annt um þau.
Sérstaklega bar hann mikla um-
hyggju fyrir smalahundum sínum,
og lét þeim líða sem bezt. Eitt sinn
slasaðist einn jreirra á Ijá, svo að
tvísýnt var um bata hans. Þá tók
Benedikt hundinn í fang sitt og hélt
á honum.meðan annar heimamaður
sendi honum banaskotið. Fór hon-
um þá líkt og Gunnari á Hlíðar-
enda forðum, er hann mælti við
Ivolskegg: „Högg þú bestinn, ekki
skal hann lifa við örkuml."
Ekki cr rúm til að rekja hér fleiri
minningar, enda mun hér staðar
numið. Nú eru fráfærur aflagðar og
hætt að smala kvíaám. Smalahóin
hans Bénsa í Ilvassafelli eru hljóðn-
uð. Etjúpidalurinn yrnur ékki leng-
ur af hljóðunum hans. Nú cr hann
orðinn gráhærður öldungur. En
góðlátlega brosið hans-og blik augn-
anna lifir cnn, eins og ilmur minn-
inga liðinna æskudaga.
Eg óska, gamli vinur, að aftan-
skinið verði þér hlýtt og bjart í
örmum umhyggjusamrar dóttur.
Hólmgeir Þorsteinsson.
Lítið lierbergi
óskast til leigu á Syðri-
brekkunni.
Afgr. vísar á.
Stúlkur vantar
í eldhús og á ganga Krist-
neshælis 1. okt. n. k. eða
fyrr. Góð kjör!
Upplýsingar gefur ráðskonan,
yfirhjúkrunarkonan og
skrifstofan.
Símar 1119 og 1292.
Kavíar
er ágætt ofan á brauð.
Fæst í túbum.
Nýlenduvórudeild
STRÁSYKUR
MOLASYKUR
FLÓRSYKUR
PÚÐURSYKUR
KANDÍS
Verðið hvergi lægra.
N ýlevduvönidelidin
og útibúin.
r
- Iþröttir Akureyringa
(Framhald af 12. síðu).
vöru: „Til hvers fjandans höfum
við ríkisstjórn (eða bæjarstjórn),
fyrst hún lætur þetta afskipta-
laust?“ Og sannarlega mætti
bæjarstjórn Ak. ríða á vaðið með
umbætur í þessu efni, — já, það
er nauðsyn, svo framarlega, að
hér eigi að vaxa upp heilbrigður,
þróttmikill lýður til starfa í fram-
takssömu bæjarfélagi og dafnandi
bæ. Að öðrum kosti mun metn-
aður Akureyringa áfram talinn
„sprenghlægilega“ lítill.
Eftir góðan — reyndar sval-
andi — sprett í sundlauginni,
skrapp eg inn í íþróttahúsið. Þar
var Axel Andrésson í kuldanum
(af bví að þetta var sunnudagur)
með 14 smástráka í aukatíma. —
Axel er landskunnur knatt-
spyrnuþjálfari, nýbyrjaður 3ja
vikna námssk. hér á vegum ÍBA
fyrir drengi 4—16 ára — í þrem
aldursflokkum. Hann kom hingað
frá Húsavík — þar voru þát-ttak.
um 170 alls. Hér þótti ekki fært
að sinna öðru en knattspyrnu f.
drengi (geyma handknattleik
kvenna), en hér virðist deyfðin
ríkja öllum öðrum stöðum frem-
ur, segir kennarinn mér. Aðeins
70 drengir hafa enn mætt í þess-
um stóra bæ, þyrftnu að vera
meira en tvöföld sú tala. Mér
flýgur í hug, að hér sé slælegar
auglýst en við kvikmyndasýning-
arnar, ella er hér um fáheyrt
siimuleysi að ræða. Kostnaður er
enginn að kalla, aðeins kr. 10 f.
allan tímann. Enn er þetta í byrj-
un aðeins, og alltaf hægt að kom-
ast með-í hópinn, þótt ekki sé frá
upphafi. Æfingar eru í íþrótta-
húsinu enn — síðar úti á velli,
yngsti fl. — til 8 ára — kl. 1.30 e.
h„ hinir síðar. Vissulega mun
drengjunum vera mikil gleði og
hvatning til dáða á þessu sviði að
era þarna með. ekki sízt, er þeir
heyra, að Axel hefur kennt á
Akranesi og meira en á nokkrum
öðrum stað, m. a. löngum verið
með þessum þekktu knattspyrnu-
köppum þeirra Akurnesinga, sem
jafnvel við Akureyringar erum
stundum hreyknir af. Og viðþessa
íþrótt er mest um vert "?lð byrja
ungur, segir Axel Anrésson. —
Foreldrar! Athugið hvort þið
gerið ekki rétt í því að beina
drengjum ykkar nokkuð frá
kvikmyndahúsunum, út á völl,
upp í sundlaug og iþróttahús —
og þá er nú tækifærið gefið hjá
Axel Andréssyni.
Uiiglingsstíilku
vantar mig hálfan eða allan dag-
inn, til áramóta.
Guðrún Isberg,
Hárgreiðslust. Bylgju
Til leigu:
Stórt herbergi í miðbænum,
fyrir reglusaman karlmann.
Afgr. vísar á.
Afgreiðslustúlka
óskast strax.
LITLI BARINN
Hafnárstræti 105.
Þann 12. þ. m. varð Ármann
Dalmannsson sextugur. Hér á
Akureyri, þarf enginn að spyrja
hver Ármann sé, við hann kann-
ast allir og þá ekki sízt allt
íþróttafólk, svo mikið hefur hann
komið við sögu í allri íþrótta-
starfsemi hér á Akureyri undan-
farna áratugi.
Eg ætla ekki að rekja hér neitt
æfiágrip eða starfssögu Ár-
manns, það hefur þegar verið
gert af öðrum, sem eru mikið
kunnugri því. Aðeins vildi eg
minnast á þjónustu hans í þágu
íþróttamálanna hér. — Akureyri
hafði lengi búið við mjög erfið
skilyrði til allrar íjiróttaþjálfunar
og vegna húsnæðisleysis var ekki
hægt að æfa neinar íþróttagreinar
að vetrinum. Úr þessu var loks
bætt með byggingu íþróttahúss-
ins. Árum saman var svo unnið
að því að fáákveðiðíþróttasvæðiá
hagkvæmum stað í bænum, loks-
ins tókst þetta og nú hefur Akur-
eyri eignast mjög fagran og
vandaðan leikvang til íþrótta-
keppni í öllum frjálsum íþróttum
og knattspyrnu. Er hann stað-
settur svo vel að vart verður á
betra kosið.
Við undirbúning að þessum
miklu mannvirkjum hefur Ár-
mann unnið allra manna mest og
sýnt þar mikla ósérplægni og
elju. Hann hefur verið í stjórn
íþróttahússins síðan það tók til
starfa, og haft umsjón með því.
Ennfremur hefur hann vcrið í
vallarráði (þ. e. a. s. í stjórn hins
nýja íþróttavallar). Árið 1944 var
íþróttabanalag Akureyrar stofn-
að af 7 íþróttafélögum. Þá kom
til að velja því formann, sem allir
Höfinn mjög fjölbreytt
iirval af
fata- og dragtarefnum.
Föt frá kr. 1040.00. Dragtir
frá kr. 970.00.
SAUMASTOFA
Björgvins Friðrikssovar s. f.
Landsbankahúsinu, s'nni 1596
Til sölu - ódýrt:
ÞVOTTAVINDA
ÞVOTTABALI (stór)
SKÍÐASKÓR nr. 40
SKÍÐABUXUR
GÍTARPOKI (stór).
Afgr. vísar á.
gætu sameinast um, var það mik-
ill vandi, því að tvö stærstu fé-
lögin höfðu oft eldað grátt silfur
saman. Það þurfti því að fá mann
sem gæti borið klæði á vopnin og
hann fékkst, það var Ármann
Dalmannsson. Hann var einróma
kosinn af öllum hlutaðeigendum.
Á hverju ári síðan hefur hann
verið endurkosinn, og sýnir það
betur en nokkuð annað, hvers
trausts hann nýtur hjá öllum
bandalagsfélögunum. Enda mun
óhætt að fullyrða að vandfundinn
hefði sá maður verið, sem hefði
tekizt betur en Ármanni að leysa
þetta starf af höndum.
Ármann er mikill starfsmaður,
mjög samvinnuþýður og um-
gengnisgóður. Hann er ágætur
félagsmaður, sívökull og fórnfús,
svo að af ber. Hann er laginn við
að semja um ágreiningsmál og
mikill mannasættir.
Fyrir hönd allra íþróttamanna
og kvenna á Akureyri óska eg Ár
manni innilega til hamingju, í til—
efni af þessum tímamótum í æfi
hans, og vil um leið nota tæki-
fæi'ið til að þakka hoonum öll
hans störf í þágu íþróttamálanna.
B. H.
- Ný verkfæri
4/
(Framhald af 1. síðu).
að taka framförum til bóta, svo
sem algengast er um nýupp-
fundna hluti.
Skærpeplógurinn.
Hitt verkfærið, sem Búnaðar-
samband Eyjafjarðar festi kaup
á, er Skærpeplógurinn. Honum
hefur lauslega verið lýst áður hér
í blaðinu. Þarf engu við það að
bæta, nema því, sem fagnaðar-
efni er öllum bændum, að dag
hvern bætast við stórar,plægðar
spildur á uppþurrkuðum mýrum.
Bera þær ljóst vitni um þá verk-
menningu er þessi afkastamikli
plógur skapar bændum í barátt-
unni við óræktarlöndin.
Lciðbeinir um val líflamba.
Sú nýung verður upp tekin hjá
Búnaðarsambandinu að í'óðu-
nautur þess, Ingi Garðar Sig-
urosson, mun í haust annast leið-
beiningar við val líflamba, hjá
þeim er þess óska. Er þetta hin
athyglisverðasta nýjung og munu
mai'gir bændur hugsa gott til
samstarfs við ráðunautinn á
þessum vettvangi. Hann mun og
leiðbeina við stofnun sauðfjár-
í'æktarfélaga.
Ráðunauturinn vinnur nú að
jarðabótamælingum í héraðinu og
geta bændur leitað til hans vax'ð-
andi útlánum á jarðyrkjuvei’k-
færum Búnaðai’sambandsins.
Stóx’virkar vélar eru enn í
gangi í héraðinu. Má þar til nefna
6 skurðgröfur.
Ármann Dalmannsson er for-
maður Búnaðai’sambands Eyja-
fjarðar.
Barnakerra
til sölu, nýleg, með skýli.
Afgr. vísar á.