Dagur - 22.09.1954, Qupperneq 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 22. sept. 1954
Úr eríendum blöðum
Eiturlyf frá Kína flæða út um
hciminum.
Frá Washington fréttist fyrir
skömmu, að Bandaríkjamenn
hyggist nú hefja öfluga baráttu
gegn hinu geysilega smygli þjóð-
stjórnarinnar kínversku til
Bandaríkjanna.
Harry J. Anslinger, forstjóri
eiturlyf j a-skrif stof u Bandar ík j -
anna, hefur nýlega skýrt frá, að
hann muni fletta rækilega ofan af
tilraunum hins rauða Kína til að
hella steypiflóði af ólögmætu
heróíni út á heimsmarkaðinn,
þegar eiturlyfjanefnd Sameinuðu
þjóðanna taki næst til starfa.
Fulltrúi eiturlyfja-lögreglu
Bandaríkjanna fullyrti, að geysi-
birgðum af heróníi hefði verið
smyglað inn í Bandaríkin frá
Kína síðastliðið ár. Og talið er
víst, að Anslinger muni leggja
sök þessarar gífurlegu aukningar
heróínsmyglunar á kínversu
þjóðstjórnina.
Heróín er búið til úr ópíum, og
ópíum virðist koma til Banda-
ríkjanna gegnum Hongkong og
Mexicó. Fjöldi kínverskra eitur-
lyfjasala hafa verið handteknir
öðru hvoru. Er talið að þeir
smygli inn eitrinu og selji síðan
heiðarlegum kínverskum verzl-
unum á vesturströnd Ameríku.
— Búist er nú við, sð lögð verði
fram ákveðin kæra á þingi Sam-
einuðu þjóðanna, en áður hefur
aðeins verið bent á þetta.
Þá veit maður það.
1. júní sl. fluttu öll blöð í
Moskva heila runu af greinum
um „Alþjóðadag barnanna“, og
þar m. a. að börn Sovétríkjanna
og alþýðuveldanna nytu fyllstu
umhyggju ríkjanna og verndun á
alla vegu en aftur á móti ættu
börn í auðvaldsríkj unum við hina
mestu eymd og erfiðleika að búa.
Blöðin fullyrtu, að flestöll börn
auðvaldsríkjanna séu ólæs, og að
barnavinna sé þar mjög almenn,
og barnadauði mjög mikill.
1 milliard króna á sjávar-
botni í Staíangurs-höfn.
Þýzkur verzlunarerindreki, sem
nýskeð var á ferð í Noregi, skýrði
frá því í Síafangri, að í þýzka skip-
inu „Roda“, sem sökkt var þar í
höfninni árið 1940, séu kistur með
fölskum peningaseðlum að upphæð
1 milliard norskra króna. Maðttr
þessi var þá cinn framkvæmdastjór-
anna, sem fylgdist með skipinu um
þær mundir. Búizt er við, að skipi
þessu verði náð upp úr höfninni
nú í haust.
Sex metra kolkrabbi.
Miklar háfaveiðar.
Fiskiskip frá Máley og öðrttm
fiskiverum sunnan við Stað í Nor-
egi, er stunda háfaveiðar við Hjalt-
land og Suðureyjar, hafa veitt afar-
vcl nú undanfarið. Um miðjan á-
gúst komu sjö þessara vélháta heim
með 30—47 smálestir af háfi. Eru
taldar allgóðar markaðshorfur um
sölu á ltáfi um þessar mundir, og
flestir hinna stærri báta frá Máley
stunda nú háfaveiðar. Áður fyrr
þótti háfur lítils nýtur í Noregi, að
undanskildri lifrinni. Þó var hann
hertur stöku sinnum. Nú er hann
allverðmæt verzlunarvara til Suður-
landa.
400 kg „mánafiskur".
veiddist nýskeð inni í botni Hjör-
nndf jarðar á Sunnmæri, skammt frá
Álasundi. Var harin 2 m lengur og
2i/2 m breiður. Bræður tveir voru á
túnfiskveiðum, er þeir urðu varir
furðuskepnu mikillar, sem lá graf-
kyrr á 2—3 m dýpi. Þeir skutluðu
skepnuna og tóku að draga, en all-
erfiður reyndist drátturinn, enda
tók skepnan brátt að rumskast og
tók 40—50 m sprett og dró færið úr
höndum þeirra. Eftir hálfrar stund-
ar átök var þó drátturinn undir
borði, og bönuðu piltarnir honum
með byssuskoti. „Tunglfiskurinn“ á
heima í hlýrri höfum, en stundum
flyzt hann með Golfstraumnum til
Noregsstranda. Verður þyngstur um
500 kg. — Tunglfiskurinn telst til
„fastkjálkafiska". Segir Bjarni Sæ-
mundsson, að hans muni hafa orðið
vart hér við land 4—5 sinnum, svo
vitað sé. Einn rak í Fljótum 1845,
og annan í Húnavatni 1900. Einn
náðist lifandi undan Innra-Hólmi
á Akranesi 1902, og sennilega hefir
einn rekið á Landeyjasandi 1904.
Vil taka lærling
í hárgreiðslu.
Snyrtistojcm FJÓLA.
María J. Sigurðardóttir.
BORÐBUNAÐUR
SKEIÐAR
GAFFLAR
HNÍF AR
o. s. frv.
Vandað danskt silfmplett.
Falleg munstur.
SIGTRYGGUR &
EYJÓLFUR
gullsmiðir.
BARNARUM
Hin margeftirspurðu barna-
rúm, með færanlegri hlið
og dýnum, hef eg nú nokk-
ur stk. srníðuð.
Hús ga gnavinmístofa
HARÁLDAR
Oddeyrargötu 19.
MATBORÐ
eikar-spónlögð, stækkanleg,
kr. 850,00. "
Húsgagnavinnustofa
HARALDAR
Oddeyrargötu 19.
Til sölu
stórt orgel, gamlar bækur
og tímarit. — Sími 1223.
LOKÁÐ
Ilárgreiðslfistofan „Femina“
eerður lokuð um óákveðinn
tíma.
Til sölu:
Margskonar gamalt timbur,
vírar, kaðlar, nótastykki,
notuð og ný. — Síldarsölt-
unaráhöld, síldarnet, dregg,
kútar og margt fleira.
Guðm. Pétursson.
Sími 1093.
Frá Iðnskólanum á Akureyri
Nemendur þeir, sem hafa í hyggju að stunda nám í
4. bekk skólans næsta vetur, mæti til viðtals og skrásetn-
ingar í skólahúsinu miðvikudaginn 29. þ. m., kl. 6 síðd.
Skólagjald er óbreytt frá því, sem verið hefur, og
greiðist við innritun, enda geta nemendur ekki liafið
nám sitt í skólanum, fyrr en það er að fullu greitt.
Gert er ráð fyrir því, að skólinn starfi með svipuðu
fyrirkomulagi og síðastliðinn vétur.
Nemendur þeir, sem sóttu undirbúningsnámskeið
skólans í teiknigreinum nú í vor, en þurfa á lrekari bók-
legri kennslu að halda til þess að geta staðizt próf upp í
3. bekk, mæti til viðtals í skólanum fiximtudaginn 30.
þ. m., kl. 6 síðdegis.
Nánari upplýsingar um skólann veitir Jóliann Frí-
mann, Hamarstig 6, sími 1076. Sími í skólanum 1241.
SKÓLANEFNDIN
Akureyringar! Eyfirðingar!
Gjörið svo vel að líta inn og skoða hinar marg-
breytilegu fatanýjungar, sem vér höfum fyrir-
liggjandi, svo sem:
KVENKÁPUR, margar nýjungar í sniðum, efni og lit.
KARLMANNAFÖT, margar gerðir, efni og litir.
LAUSAR BUXUR, fjölmargar gerðir.
TELPUKÁPUR, HETTUÚLPUR úr ullarefnum.
KARLMANAFRAKKAR og margt fleira.
Gefjunarefnin fara nú sigurför um land allt.
Með hverri viku sem líður, koma fram nýjar
gerðir af efnum, betri og ódýrari en innflutt efni.
Iðnaðurinn er merkur þáttur í bæjarlífi Akur-
eyrar, og stendur því engum nær en oss að
styrkja hann og efla.
Sjón er sögu ríkari! — Komið! Skoðið! Kaupið!
Saumastofa Gefiunar
Húsi K.E.A., III. hæð. — Sími 1347.
Skömmtunarseðlar
fyrir síðasta ársfjórðung 1954 verða aðeins afhentir á
skrifstofu bæjarstjóra dagana 1.—9. október n. k., að
báðum dögum meðtöldum.
Seðlarnir verða afhentir gegn árituðum stofni næsta
tímabils á undan.
BÆJARSTJÓRI
Snemma í ágúst „veiddist" risa-
kolkrabbi í laxanót í Þrándheims-
íiröi í Noregi. Var sjálfur bolurinn
1.30 m og tveir armarnir 6.20 m, en
hinir átta styttri, 1.90 m. Verður aS
telja þetta all-álitlega stærð, þótt
„sjóormstíminn" standi nú einmitt
yfir um þetta leyti, scgir blað það,
er frctt þessa flytur. Krabbi þessi er
annars talinn af risategundinni Ar-
chitutis, sem á aðalheimkynni í út-
hafsdjúpum og getur orðið allt að
því 16 m langur.
Vörubif reið
Chevrolet, model ’46, til sölu. Bifreiðin er á nýlegum
dekkum, góður mótor, nýtt tvískiptidrif, ágætur pall-
ur og gott útlit. Með bifreiðinni fylgir nýupptekinn
mótor. — Söluverð kr. 50.000.00.
Afgreiðslan vísar á.
Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal
starfar í tveimur deildum. Hægt er að taka 2 eða 3
nemendur í hvora deild ennþá. Smíði og bókband
mikið stundað. Skólinn verður settur 15. okt. n. k.
KRSTJÁN KARLSSON, skólastjóri.