Dagur - 22.09.1954, Page 10
10
D A G U R
Miðvikudaginn 22. sept. 1954
Frá Barnaskóla Akureyrar
Skólinn verður setmr föstudaginn 1. okt., kl. 5 síðd.,
í Akureyrarkirkju. Börnin xnætí við skólann 15 mín.
fyrir 5.
Allir foreldrar eru velkomnir meðan húsrúm Jeyfir.
Skólaskyld börn, scin flutt hafa til bæjarins í sumar,
og ekki hafa þegar verið skráð, mæti til slcránnigar
fimmtudaginn 30. sept., kl. 1 síðd„ og hafi með sér
einkunnir frá síðasta vorprófi.
Börnin mæti til læknisskoðunar eins og hér segir:
Þriðjudaginn 28. sept allur 4. bekkur.
Miðvikudaginn 29. sept. allur 5. bekkur.
Fimmtudaginn 30. sept. allur 6. bekkur.
Drengir mæti alla dagana kl. 1, en stúlkur alla dagana
kl. 3.
HANNES J. MAGNÚSSON.
Geymið þessa augiýsingu.
Til leigu
Hárgreiðslustoafan Femina, Hafnarstræti 100, er til
leigu með öllu tilheyrandi. — „Femina“ hcfir undanfarið
verið stærsta hárgreiðslustofa bæjarins.
Sala gæti einnig komið til greina.
Scnxja ber við undirritaðan.
ÁSGEIR KRISTJÁNSSON,
Hlíðargötu 7, Akureyri. Sími 1630.
- fc
GRAFIKJUR
mjúkar og góðar.
RÚSÍNUR Californiskar
í pökkum.
Mjög ódýrar.
Kaupfélag Eyfirðinga
NýJenduvörudeiJdin og útibúin.
TILKYNNING
frá Verkamannafél. Ákureyrarkaupstaðar
Fi'amboðsfrestur til fulltrúakjörs í Verkamannafélagi
Akureyraikaupstaðar á 24. þing Alþýðusambands ís-
lands er ákveðinn til kl. 12 á hádegi föstudaginn 24.
september 1954.
Skulu kjörlistar hafa borizt kjörstjórn félagsins innan
þess tíma. Til þess að bera fram kjörlista þarf skrifleg
meðmæli 45 fullgildra félagsmanna.
Stjóm Vcrkamarmafclags Akureyrarkaufjstaðar.
OLÍUKYNDITÆKI
Sjálfvirk, handstillt, ætíð fyrirliggjandi, eða útveguð
með stuttum fyrirvara. — Leitið upplýsinga.
JÓN GUÐMUNDSSON.
Símar 1246 og 1336.
Eftir JÓN JÓNSSON á Skjaldarstöðum
(Framhald).
Fyrsti túnauki, mér vitanlega, hér í sýslu er á Steinsstöðum.
Þar hagai þannig til, að stór lækur rennur gegnmn túnið
skammt frá bænum. Hefur hann gert nokkur gil niður túnið.
Rennur hann beint niður í Öxnadalsá. Norðan lækjarins var
lítið eitt hallandi flöt, sem myndazt hafði af framburði lækj-
arins um aldaröð. Var flötin mjög fallegt túnstæði. Mun það
hafa verið rétt um 1890 að farið var að lilaða vörzlugarð norð-
an lækjarins. Það var Sigurður Jónasson stórbóndi þar, sem
verkið hóf. Garðurinn var Iiið fecursta veik, hlaðinn úr
snyddum og sneri grasrótin út. Var svo fyllt upp með mold
milli snyddanna. Síðan þakið yfir með grasþökum, svo að
hvergi sást í mold. — Garður þessi náði niður að þjóðvegin-
um, sem þá lá meðfram ánni. Hann var hlaðinn nokkuð út
með veginum, og mun hugmyndin hafa verið, að liarin kæmi
upp í norðurhorn gamla túngarðsins. Ekki komst garður sá
nema dálítið norður með veginum, því að þegar Sigurður
flutti að Bakka, 1896, var hætt við framhald hans. Mér er
dálítið minnisstætt, að eg kom eitt sinn til piltanna, þá er þeir
voru að hlaða garðinn, og annar stráktyrðill á sama aldri. sem
eg. Tókum við að klifia upp á garðinn. Settumst þar klofvega,
börðum fótum og höfðum garðimr fyrir hest. Hlógu piltar þá
dátt, og sögðu okkur að slá í klárinn og hleypa á sprett.
Sökum þess, að Steinsstaðir eru frá náttúrunnar hálfu feg-
ui'sta jörðin í dalnum, langar mig að geta nokkurra manna, er
þar bjuggu síðastliðna öld og gerðu gai'ðinn frægan.
Þar var Jónas skákl uppalinn, sem kunnugt er, og umhverfi
Steinsstaða mun hann kveða um í hinu fagra kvæði: Fífil-
brekka, gróin grund, — því að í Steinsstaðaf jalli er „góða skarð
með grasahnoss og gl júfiabúi-, hvítur foss“.
Nú er búið að girða nokkrar dagsláttur úr landi jarðarinn-
ar, þar sem fellur „bakkafögur á í hvammi“. Búið er að gróð-
ursetja nokkuð rnikið af trjáplöntum í reit þenna til minning-
ar um skáldið, og í í'áði er að reisa þar minnisvarða. Er það
áhugamál Eyfirðinga, að varðinn verði afhjúpaður á 150 ára
afmæli skáldsins. Foi'eldiar Jónasar voru Hallgrímur prestur
Þorsteinsson og Rannveig Jónasdóttir, bónda og skálds í
Hvassafelli. Þau fluttu að Steinsstöðum 1808 frá Hrauni. Var
Jónas þá fárra mánaða gamall. Þau hjón bjuggu á Steinsstöð-
um 8 ár, og munu hafa verið í sæmilegum efnum, því að bú-
jörðin er hin bezta hér í sveit. Mun gestum og gangandi hafa
verið ánægja að koma þar og ræða við prest, er var bæði
skemmtinn og gáfaður, og húsfreyjan skörungur mikill. —
En síðla sumars 1816 kom það slys, er sr. Hallgrímur fór að
lokiirni embættisgjörð að Bakka til silungsveiða í Hrauns-
vatni, að lrann drukknaði í þeirri ferð. — Þar eð gott vinfengi
mun hafa verið milli heimilanna, síðan Hallgrímur átti heima
í Hrauni, fóru 2 ungir menn þaðan með honum í þetta sinn.
— Mun prestur oft hafa starfað að veiði í vatninu, þegar hann
var búsettur á Hrauni, því að veiði var mjög stunduð í vatn-
inu á þeim árum og lengi síðan. — Þeir prestur og annar pilt-
urinn reru fram með togið, munu hafa ætlað að di'aga fyrir í
árósnum. En fyrir einhver mistök, líkt er þeir sireru kænunni
við, hvolfdi, svo að þeir féllu í vatnið, báðir ósyndir. Piltur-
inn komst þó á kjölinn. En það hefur tekið nokkurn tírna að
ná til prests, og var hann drukknaðui', er þeir komust í land,
enda sjálfsagt engar lífgunartilraunir reyndar. Var svo prest-
ur fluttur heim að Hi'auni, og mun hafa staðið þar uppi, unz
jarðarförin fór fram. Er það auðfundið á kvæði Jónasar Hall-
grímssonar, að hann hefur saknað föður síns mjög:
Þá var eg ungur,
er unnir luku
föðui'augum
fyrir mér saman.
Þó man eg missi
minn í heirni,
fyrstan og sárastan,
er mér faðir hvarf.
Man eg og minnar
móður tár,
er hún aldrei sá
aftur heim snúa
leiðtoga ljúfan,
ljós á jörðu
sín og sinna.
Það var sorgin þyngst.
Rannveig, ekkjan, hélt búskap áfram, enda voru þá eldri
börn hennar komin um fermingu, og hefur það verið rnikill
styrkur fyrir hana.
(Framhald).
Tirtst on*
Bifreiðavörur
í miklu úi'vali.
Lágt verð.
BÍLASALAN hi.
Geislagötu 5.
Aluminium
Kostir þess eru margir.
Það er ódýrt.
Þakplötur fyrirliggjandi.
6, 7 og 8 feta.
Kr. 5.75 fetið.
EINNIG SAUMUR.
BÍLASALAN hi.
Geislagötu 5.
Hjólbarðar
og slöngur
500-16
550-16
600-16
670-15 ........
710-15
750-20
825-20
Aðrar stærðir
væntanlegar
með næstu skipum.
BÍLASALAN li.f.
Geislagötu 5.
Bremsuborðar
i fóllisbiia:
Ford, Mercui'y, Chevrolet,
Dodge, Playmouth,
Chi'ysler, Oldsmobile,
Pontiac, Kaisei', Hudson,
Jeþpa.
1 vörubíla:
Ford og Chevrolet.
Einnig
bremsuborðar i rúllum,
114x3/16,
Iy4x3/16,
2i4x3/16,
5xi4,
6x14 tommu
ásarnt hnoðum.
BÍLASALAN hi.
Geislagötu 5.