Dagur - 09.02.1955, Page 4
4
DAGUR
Miðvikudaginn 9. fcbrúar 1955
Afgreiðsk fjárhagsáætlimariíinar í bæjarstjórn:
Sjálfsfæðismenn gugnuðu á aS taka 500
þúsund kr. úr duldum sjóði Steinsens
Tillaga þeirra um framlag til hrað-
frystihúss af „tekjuafgangi fyrri ára”
kom aldrei til atkvæða - Kommúnist-
ar vildu „sparnað,u en þó ekki á launa-
greiðslu fyrir nefndastörf!
Eins og greint var frá í síðasta
tbl. var fjárhagsáætlun bæjarins
endanlega afgreidd á bæjar-
stjórnarfundi fyrra þriðjudags-
kvöíd og voru ekki gerðar veru-
legar breytingar á áætluninni frá
]jví, sem bæjarráð lagði til, við
2. umræðu.
Flestar tillögur einstakra bæj-
arfulltrúa voru felldar, eða voru
svo augsýnilega óhæfar, að þær
komu aldrei til atkvæða, eins og
sú tillaga Sjálfstæðismanna að
taka 500 þúsund kr. til hrað-
frystihúss „af tekjuafgangi fyrri
. ára“. Má kalla þetta mettillögu
hér í bæjarstjórninni, og hafa
kommúnistar aldrei komist með
tærnar þar sem Helgi Pálsson og
félagar hafa hælana í ábyrgðar-
lausri tillögu-útungun.
Áætlunin var þannig afgreidd,
að ákveðið var að taka 500 þús.
.kr. lán til framkvæmda, en 750
þúsund kr. framlagið til hluta-
bréfakaupa stendur, hækkað var
framlag til almannatrygginga um
.rösk 62 þúsund, gerð var breyt-
ing á áætluðum tekjum og óviss-
um útgjöldum, og alveg út í hött,
hvort tveggja, en að tillögu Sjálf-
stæðismanna. Urðu útsvörin eftir
þessa meðferð endanlega kr.
9.989.050, eða tæplega 700 þús. kr.
iægri en gert var ráð fyrir við 1.
umræðu, enda var lántaka ekki
xekin^upp á áætlunina við fyrstu
gerð.
Sjónarmið flokkanna komu fram
i bæjarráði.
Meðan bæjarráð vann að samn-
'ingu áætlunarinnar, höfðu flokk-
arnir ærin tækifæri til að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri
og gerðu það. Eigi að síður hófst
íapphlaup á bæjarstjórnarfundi
um breytingartillögur, sem flest-
ar voru til að sýnast eingöngu.
Kepptust kommúnistar og Sjálf-
stæðismenn við að flytja tillögur
,til lækkunar", og voru flestar
óraunhæfar. Þjóðvarnarliðinn
íom og með lækkunartillögur,
anda var honum vandi á höndum.
par sem flokksfélag hans hafði
oeimtað 1200 þúsund kr. lækkun
á gjaldaliðum áætlunarinnar án
pess að skerða framlagið til hrað-
x'rystihússins!
En með því að flutningsmenn
öllögunnar um þetta efni gerðu
sér enga grein fyrir því, hvernig
:ramkvæma mætti þetta, bættu
peir þeim fyrirmælum við tillög-
una, að Marteinn bæjarfulltrúi
skyldi leggja til rökin á bæjar-
stjórnarfundinum! Varð þetta allt
Marteini um megn, og er rök-
stuðningurinn fyrir því, hvernig
lækka megi' gjaldahliðina um
1200 'þúsund krónur án þess að
snerta við hraðfrystihússíram-
laginu, ókominn enn.
Spamaður í orði — og á borði.
í Verkam. sl. föstudag er lögð
áherzla á það, að kommúnistar
hafi viljað lækka útgjöld bæjar-
ins og koma fram nauðsynlegum
„sparnaði".. Þetta er ætlað kjós-
endum, en þess er ekki getið, að
þegar að því kom að sýna spam-
aðarviljann í verki og minnka
eyðslufé, greiddu báðir full-
trúar kommúnista atkvæði
með því að greiða sjálfum sér
laun úr bæjarsjóSi fyrir setu
á bæjarstjórnarfundum og
nefndum.
Kommúnistar vildu miklu heldur
spara með því að lækka framlag
til sorphreinsunar og snjómokst-
urs um 25 þús., en fella niður
bæjarstjórnarlaun. Þeir vildu
líka heldur lækka framlag til
skipulagningar í bænum um 40
þús. en spara 70 þús. kr. á launa-
greiðslum til bæjarstjómar-
manna og nefnda, og þeir vildu
endilega að bærinn svikist um að
framkvæma fyrri samþykkt um
að rífa og flytja bragga á Gler-
áreyrum, því að framlag til að
byggja áhaldahús fyrir bæinn, í
stað bragga, vildu þeir burt. Til-
lögur kommúnista um lækkun
skiptu litlu máli og sýndu að það
er stundum erfitt að standa við
stóru orðin þegar á hólminn
kemur.
Tillögur Sjálfstæðismanna.
Stærsta hlutverkið í þessum
skrípaleik var þó í höndum
Siálfstæðismanna. í blaði þeirra
er fullyrf sl. miðvikudag að
„bæjarfulltrúar Sjálfstæðisfl.
vildu lækka útsvörin um 1,5
miilj. króna.“ Og fullyrt að allir
séu sammála um að ekki sé hægt
að greiða Útgerðarfélaginu 750
þús. kr. á einu ári, nema helzt
Framsóknarmenn! Er nú gleymd
samþykktin frá því í sumar, sem
Sjálfstæðismenn börðu fram, að
greiða þessa upphæð skilyrðis-
laust, og þá mátti ekki nefna
lántöku í því sambandi. Það var
ljótt athæfi vondra Framsóknar-
manna, sem vildu setja fót fyrir
hraðfrystihússmálið!
En þegar á hólminn kemur,
kikna sjálfstæðishetjurnar góðu.
Þær bera ekki fram neina tillögu
um að lækka framíagið til Út-
gerðarfélagsins! Það stendur því
óbreytt á áætluninni. Á bæjar-
stjórnarfundinum tilkynnti einn
af bæjarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins, að flokkurinn mundi
ekki ,eftir allt saman, flytja til-
lögu um að gefa Steinsen ávísun
á bæjarsjóðinn fyrir 500 þús. kr.
til hraðfrystihússmálsins! Voru
Sjálfstæðismenn þá búnir að
fara tvisvar í kringum sjálfa sig
í þessu máli og setja bæjarmet í
hringlandahætti og flumbru-
skap.
Um aðrar tillögur þeirra, sem
ísl. taldi.hið mesta þjóðráð er
þetta helzt að segja:
Rá'ðizt á þá fátækustu og á
verklegar framkvæmdir.
Tekjur af grjótmulningi vildu
þein-a hækka um 50 þús. Það
þýddi annað tveggja hækkaðverð
á mulningi til þeirra sem byggja,
eða minni atvinnubótavinnu við
þessa vinnslu um háveturinn. —
Þarna var því vegið að þeim fá-
tækustu. Óvissar tekjur vildu
þeir hækka um 100 þúsund, og
var sú tillaga alveg út í bláinn og
aðeins hækkaðar tekjur á papp-
ímum, án vissu um að sú áætlun
haldi í reynd. Fyrir reikningshald
Vatnsveitunnar vildu þeir fá 15
þús. kr. meira í bæjarsjóð. Þetta
er að taka úr öðrum vasanum og
láta í hinn. Vatnsveitan er bæjar-
fyrirtæki. Þá vildu þeir lækka
framlag til vega og ræsa um 100
þús. og er það furðuleg tillaga
miðað við ástand veganna hér í
bænum og þá staðreynd, að um
sl. áramót stækkaði umdæmi
bæjarins og allir vita, að kosta
þarf miklu til vega og ræsa í
Glerárþorpi. Fyrirsjáanlegt er,
að þessi útgjaldaliður hlýtur að
hækka en ekki lækka á næstu
árum.
Þá vildu þeir lækka framlag til
fegrunar bæjarins, garðræktar o.
fl. um 50 þús., og þar með stöðva
þá þróun til fegrunar, sem orðið
hefur hér í bæ á liðnum árum.
Þeir vildu fella niður 40 þús. kr.
framlag til að greiða halla á
vinnuskóla bæjarins á sl. ári og
afnema 16 þús. kr. gjald til
bjargráðasjóðs, sem er lögbundið.
Er hvort tveggja tillagan ekkert
nema sjálfsblekking.
Á að hætta að styðja byggingu
íbúðarhúsa?
Þá vildu þeir að bærinn hætti
að greiða í byggingalánasjóð
sinn ,en sjóður þessi hefur orðið
mjög mörgum efnalitlum bæjar-
mönnum að liði við að koma upp
sæmilegu húsnæði. Væri það
hrein uppgjöf, að leggja árar í
bát nú, því að mikil þörf er að að-
stoða fólk til að koma upp íbúð-
um; má minna á braggabúa, en
áður var búið að samþykkja, að
tillögu Framsóknarmanna, að
•braggabúar hefðu forgangsrétt að
þessum lánum næstu tvö ár. Þá
vildu Sjálfstæðismenn lækkað
framlag til óvissra útgjalda, og er
það nú röskar 100 þús. kr., og
lægra en nokkru sinni fyrr á
seinni árum, og mun ekki stand-
ast ef að líkum lætur.
Þetta voru stóru bjargráðin,
sem stóðu undir stóru fyrirsögn-
inni í fslendingi. Tillögur þessar
eru ýmist óraunhæfar eða til að
sýnast, og stóra tilagan um 500
þús. kr. úr leyndarsjóðum Stein-
sens, var svo fáránleg að fuiltrú-
arnir þorðu aldrei að bera hana
fram!
. .. >
Lítið svigrúm bæjarstjómar.
Ef menn kynna sér fjárhags-
áætlun bæjarins til hlýtar, hljóta
allir sanngjarnir menn að viður-
kenna, að svigrúm bæjarstjórnar
til breytinga ár frá ári, er mjög
lítið. Mestur hluti — og vaxandi
— af útgjöldum bæjarins, er lög-
bundinn eða algerlega óumflýj-
anlegur. Það sem skortir hér, er
fleiri tekjustofnar bæjarfélagsins
en útsvör og fasteignaskattur. Er
þá enn komið að skiptingu tekna
milli ríkissjóðs og bæjarsjóða. —
Þar er þörf endurskoðunar. Það
er raunhæft mál að tala um. En
tillögur um að • greiða ekki lög-
boðin gjöld eða umsamdar
greiðslur af lánum, eða leggja
ekki fram fé til sorphreinsunar
og vegabóta, eru skrum eitt.
Ný smásagnakeppni
„Samvinnunnar44
Tímaritið Samvinnan hcfur
ákveðið að efna til smásagnasam-
keppni og verða fyrstu verðlaun-
in ferð til meginlandsins og 2000
krónur í vasapeningum að auki.
Onnur verðlaun verða eitt þús-
und krónur og hin þriðju fimm
hundruð. Þurfa sögur í sem-
keppni þessa að berast ritstjóra
Samvinnunnar fyrir 15. apríl n.k.
Þetta er annað sinn, sem Sam-
vinnan efnir til slíkrar smásagna-
keppni, en í fyrra sinn bárust um
200 sögur frá 170 höfundum, þar
af 45 frá konum, víðs vegar af
landinu. Þá hlaut Indriði Þor-
steinsson fyrstu verðlaun fyrir
hina umdeildu sögu sína „Blá-
stör“.
Allir íslenzkir borgarar mega
taka þátt í keppninni, ungir og
gamlir, hvort sem þeir hafa áður
birt eftir sig sögur eða ekki. —
Sögurnar þurfa aðeins að vera
frumsamdar, 1000—4000 orð að
lengd Höfundar þurfa að láta
nöfn sín fylgja sögunum í lokuðu
umslagi, sem sé auðkennt á sama
hátt og sagan. Nánar verður
greint frá tilhögun samkeppninn-
ar í því hefti Samvinnunr.ar. sem
út kemur seinni hluta þessa mán-
aðar.
Skemmtun
fyrir sveitafólk að Þinghúsi
Hrafnagilshrepps laugard.
12. þ. m. kl. 9,30 e. h.
Til skemmtunar:
Gamanvísur
Leikþcettir
Botnaðir vtsupartar
Dans
Haukur og Kalli spila. Að-
göngumiðar seldir fyrirfram
og fást hjá mjólkurbílstjór-
unum.
Umf. Framtið.
Landbúnaðardeild Atvinnu-
deildar Háskólans hefur fyrir
nokkru sent frá sér 8. vis-
inda- og fræðslurit sitt. Heitir það
Rannsókn á hnúðormum, og er
eftir þá Ingólf Davíðsson og Geir
Gígju.
Er í ritinu nákvæm lýsing á
þessum hnúðormum, xitbreiðslu
þeirra hér á landi og erlendis og
leiðbeiningar um varnir og fyrir-
mæli. Einnig er þar grein um
tómathnúðorma í heitum görðum.
Margar myndir eru í ritinu.
Freyr, LI. árg., nr. 2
er nýútkominn. Flytur blaðið
m. a. grein eftir Pál Agnar Páls-
son um hníslasótt í sáuðfé, Sláttu-
vélin 60 ára á íslandi, eftir Björn
Þorláksson, Héraðssýning á sauð-
fé, eftir Sigfús Þorsteinsson,
Sjálfvirk hlöðuþurrkun, eftir
Hróbjart Jónasson og fleira.
—o—
Tímaritið Morgunn, siðasta
hefti fyrra árg , hefur nýlega bor-
izt blaðinu. Ritstjóri er séra Jón
Auðuns. Efni þessa heftis: Úr
ýmsum áttum, þættir eftir ritstj.,
„Hverjir urðu fyrir valinu“?
ræða efir próf. Harald Níelsson,
flutt árið 1907, og er ræða þessi
fyrsta spíritistaprédikunin, sem
séra Haraldur flutti. Þá er minn-
ingagrein um Einar Loftsson,
kennara, en hann var kunnur
spíritisti og áhugamaður um dul-
vísindi, grein eftir dönsku skáld-
konuna nafntoguðu Thit Jonsen,
og nefnist greinin „Spíritisminn
— Guðsgjöf“. Þá eru greinar um
sálræna reynslu, fróðleg grein
um kirkjudeiluna í Noregi, þar
sem áttust við fylgismenn Halles-
bys og andstæðingar út af tilvist
helvítis Þá eru þýddar greinar og
fróðleiksmolar af ýmsu tagi. —
Morgunn hefur nú lokið 35 ár-
gangi og hefur tímaritið alla tíð
verið vel úr garði gert.
—o—
Tímariíið Ökuþór, er gefið út
af Félagi ísl. bifreiðaeigenda. ÞaS
ræðir áhugamál bifreiðaeigenda,
umferðamál og umferðaraenn-
ingu, flytur fréttir af bílamark-
aðinum og af nýjungum í fram-
leiðslu bílategunda og margt
fleira skylt efni. Síðasta hefti
blaðsins, 1.—2. tbl. 4. árg., ér
vandað að frágangi og hið læsi-
legasta fyrir þá mörgu, sem hafa
áhuga á bílum og umferð