Dagur - 09.02.1955, Blaðsíða 12
12
Daguk
Miðvikudaginn 9. febrúar 1955
Ólafsfirði, Sauðárkrók og Húsa-
vík boðin aðild að fogaraútgerð
Fjórir Akureyringar
fara á skautamót ísl-
lands í Reykjavík
Afgreiðslutregða í Póllandi veld-
ur kolaskorfinum hér á landi
Verður leitað samstarfs við Útgerðar-
félag Akureyringa h. f.?
Um þessar mundir eru að hefj-
ast í Reykjavík viðræður um út-
gerð togara þess, er ríkissjóður
keypti af Vestmannaeyingum
fyrir jólin og hefur legið syðra
síðan.
Ræða fulltrúar frá 3 kaupstöð-
um við ríkisstjórnina og saman
innbyrðis um útgerð togarans, en
þeir eru frá Ólafsfirði, Sauðár-
króki og Húsavík.
Samvinna við Akurcyringa?
Nokkuð mun þess gæta, að
sumum aðilum þyki eríitt að
stofnaðilar séu svo margir, eink-
um þar sem slíkt skip þarf að
eiga aðgang að góðri höfn, sem
ekki er fyrir hendi á þessum
stöðum þremur, og aðstöðu til
viðgerðar o. fl. og því þörf á sam-
staríi við 4. aðilann. Hafði Ólafs-
firðingum komið til hugar, að
reyna að semja svo við Útgerð-
arfélag Akureyringa. að það sæi
um rekstur togarans og töldu
þeir það hagkvæmt með tilliti til
aðstöðunnar, sem hér er búið að
skapa fyrir togaraútgerð, og vegna
reynslu Útgerðarfélagsins, og
ekki sízt vegna þess álits, sem
togaraútgerðin hér nýtur hvar-
vetna fyrir góðan og hagkvæman
rekstur. En óljóst er enn, hvort
slík samvinna væri möguleg, þótt
horfið yrði að því ráði af þeim, er
taka við nýja togaranum, að leita
eftir henni.
Fleiri skip?
Kaupstaðirnir hér nyrðra munu
hafa í hyggju að benda á, að sam-
vinna þriggja kaupstaða um einn
togara sé ýmsum eríiðleikum
háð, og væri því e. t. v. skynsam-
legra að miða samstarfið við
rekstur tveggja togara. En fleiri
sunnlenzkir togarar en togari
Vestmannaeyinga munu taldir
vera falir nú. Hvað sem um það
verður, er ljóst, að atvinnuástand
hér nyrðra og sífelldir fólks-
flutningar til Faxaflóahafna, er
þannig vaxið, að óvenjulegra að-
gerða er þörf til að hamla þar á
móti. Virðist aukin togaraútgerð
hér norðanlands þar líklegt
bjargráð.
Bærinn ekki aðili að landamerkj
um Kílsár og Hesjuvalla
Tapaði hæstaréttarmáli
Síðastl. miðvikudag féli í
Hæstarétti dómur í máli því, er
spannst af landamerkjum Kífsár
og Hcsjuvalla og vatnstöku Ak-
ureyrarbæjar í Hlíðarfjalli.
Hafði Akureyri áfrýjað undir-
réttardómi, því að bærinn taldi
sig ekki geta unað landamerkja-
ákvörðun, er eigendur jarðanna
gerðu sín í milli árið 1952. Tapaði
bærinn því máli í undirrétti og
Margt verzlimarfólk
hefur gengið í F.V.S.A.
Aðalfundur Félags verzlunar-
ig skrifstofnfólks á Akureyri var
haldinn sl. laugardag og bættust
félaginu þá margir liðsmenn.
Gengu 47 í félagið á fundinum og
tvöfaldaðist félagsmanntalan. —
Kjörin var ný stjórn í félaginu og
skipa hana þessir menn: Jón
Samúesson, útibússtj. hjá KEA,
formaður, Björn Þórðarson,
skrifstofum. hjá KEA, ritari,
Kolbeinn Helgason ,verzlunai-m.
hjá Kf. Verkamanna, gjaldkeri,
meðstjórnendur þeir Magnús
Björnsson, verzlunarm. hjá Axel
Kristjánssyni h.f., og Sig. Jónas-
son, skrifstofum. hjá Útgerðar-
félagi Akureyringa h.f.
Á fundinum kom fram, að verzl-
unarstéttin hefur áhuga fyrir að
efla félagið. Stjórninni var falið
að vinna að samningagerð um
kaup og kjör með hliðsjón af að-
gerðum félags verzlunar- og
skrifstofufólks í Reykjavík.
áfrýjaði til Hæstaréttar. Urslit
þar urðu þau, að ákvöfðun und-
irréttar um málskostnað var
staðfest og' ber, Akureyri að
greiða bændum málskostn-
að í undirrétti og Hæstarétti,
en að öðru leyti var mál-
inu vísað frá dómi með því að
bærinn var ekki talinn vera aðili
að landamerkjaákvörðuninni og
ekki hafa heimild til að véfengja
hana.
Meiri málaferli.
Þótt þessu máli sé nú lokið, fer
meira á eftir, bar sem málarekst-
ur út af mati á vatnstöku úr landi
jarðanna og hvort greiða eigi fyr-
ir vatnsréttindi. sem talin eru til-
heju-a þessum jörðum. Vaknar sú
spurning, hvort bærinn hefði
ekki sparað sér fé og fyrirhöfn
me ðþví að semja um þessi mál
við bændur án milligöngu dóm-
stólanna.
Bræðslumaður á Jör-
undi brenndist
Það slys varð í síðustu veiðiför
Jörundar, að lok sprakk af suðu-
kari í lýsisbræðslu og brenndist
bræðslumaðurinn, en hann er Óli
Magnússon, Aðalstræti 4 hér í
bæ. Meiðsli hans eru ekki talin
lífshættuleg. Kom hann með
skipinu hingað til bæjarins í
gærmorgun.
Skautafélag Akureyrar hefur
ákveðið að senda fjóra menn til
keppni á skautamót íslands, sem
háð verður í Reykjavík um
næstu helgi.
Skipadeild SÍS hefur sparað Eyfirðingum fé
með lágum farmgjöldum
Verður Björn Baldursson,
skautameistari Akureyrar meðal
keppendanna, en aðrir, sem héð-
Bjöm Baldursson skautameistari
Akureyrar. Myndin er tekin fyrir
nokkrum dögum af Gísla Olafss.
an fara eru: Guðlaugur Baldurs-
son, Ingólfur Ármannsson og
Kristján Árnason. Keppt verður
í 500„ 1500, 3000 og 5000 metra
hlaupi. Skautamennirnir munu í
góðri æfingu nú og má vænta
hins bezta af þeim. 4,
Norðfirðingar taka upp
útgerðarform Akur-
eyringa
Norðfirðingar hyggjast fá nýj-
an togara í stað Egils rauða, og
hafa í hyggju að hverfa frá bæj-
arútgerð, en taka í þess stað upp
form það, sem hér hefur reynzt
vel, sem sé hlutafélag, sem bær,
félög og einstaklingar eiga.
Hinn 18. janúar sl. birti Al-
þýðumaðurinn hér á Akureyri
grein um kolaskortinn hér í bæn-
um og var greinin augsýnilega
birt án þess að blaðið hefði gert
tilraun til þess að kynna sér
áotæðuna fyrir kolaþurrðinni eða
afla sér upplýsinga um farm-
gjöld á kolum.
í tilefni af þessum skrifum hef-
ur Dagur fengið eftirfarandi
upplýsingar hjá SÍS um kolakaup
og kolafarmgjöld:
Afgreiðslutregða í Póllandi.
Höfuðástæðan til þess, að kola-
skortur hefur verið hér á Akur-
eyri, eins og víðast hvar um land-
ið, eru erfiðleikar á að fá kol af-
greidd frá Póllandi Hafa miklar
tafir orðið á afgreiðslu kola af
þessum sökum og hefur þetta leítt
til þess, að keypt hafa verið kol
frú Rússlandi og Bandaríkjur.um
til að forðast frekari vandræði
hér á landi. Að þessu geta hvorki
KEA eða SÍS gert.
Farmgjöldin.
Varðandi farmgjöldin fyrir kol
skal það tekið fram, að öll farm-
gjöld fyrir þungavöru stórhækk-
uðu erlendis á seinni hluta ársins
1954 og mavgvíslegur aukinn
kostnaður olli því, að íslenzk skip
urðu að gera hið sama, enda þótt
SÍS hafi ekki hækkað kolafarm-
gjöld sín eins mikið og erlendu
skipin.
í desember flutti Hvassafell kol
til Akureyrar frá Stettin í Pól-
landi og var farmgjald 48 shill-
ingar Stuttu síðar var leigt all-
miklu stærra skip til að flytja
pólsk kol til Reykjavíkur, og ætti
bæði höfnin og stærð skipsins að
lækka farmgjaldið, en samt varð
það 50 shillingar.
Helgafell flutti einnig kol til
Akureyrar í desember, en þau
komu frá borginni Riga í Sovét-
ríkjunum. Er það rúmlega þriðj-
ungi lengri siglingaleið en frá
Stettin og því óhjákvæmilegt, að
farmgjaldið væri allmiklu hærra,
en þó tókst að halda því niðri í 58
shillingum.
Hefur sparað Eyfirðingum fé.
Um svipað leyti og skipadeild
SÍS tók þessi farmgjöld fyrir
flutning með eigin skipum, varð
bæði SÍS og aðrir aðilar að sæta
hinum stórhækkuðu farmgjöldum
á erlendum skiþum Hefur til
dæmis ekki verið annars kostur
en að leigja erlend skip fyrir 90—
100 shillinga, þegar um er -að
ræða hinar erfiðari hafnir og
jafnvel sumar hinna betri.
Af þessu mætti vera Ijóst, að
skipadeild SÍS hefur ekki skatt-
lagt Akureyringa, heldur benda
allar líkur -til, að hún hafi sparað
þeim allmikið fé. Ef erlend skip
hefðu verið leigð til þeirra kola-
flutninga, sem SÍS-skipin hafa
annast, hefðu þau án efa kostað
milli 60 og 100 shillinga fyrir lest-
ina.
íslendingur á vegum
S.þ. í Mexikó
Gunnar Böðvarsson verkfræð-
ingur frá Reykjavík er nýlega
kominn til Mexikó á vegum
Tæknihjálpar Sameinuðu bjóð-
anna. Gunnar mun vinna að jarð-
hitarannsóknum í Mexikó og að-
stoða þarlenda verkfræðinga í
þeim fræðum. Jarðhiti er mikill í
Mexikó og hefur stjórn landsins
fengið áhuga fyrir að nýfa það afl.
Gunnar Böðvarsson er einn af
kunnustu jarðhitasérfræðingum
heimsins og hefur áður verið
fenginn til að rannsaka jarðhita-
möguleika á vegum Sameinuðu
þjóðanna. Búizt er við að hann
dvelji í Mexikó um þriggja mán- •
aða skeið, eða þangað til í marz-
mánuði.
Ungt fólk á skautum á íþróttasvæðinu nýja
Sú nýbreytni er nú upp tekin hér, að sprautað hefur verið vatni ó æfingavöllinn við íþróttasvæðið nýja,
og hefur þar verið beztar skautasvell að undanfömu og margt um manninn á degi hverjum, einkum
sækir imga fólkið fast að stunda skautaíþróttina og er það gott og gagnlegt. Myndin er tekin nýléga
á skautavellinum og er þar þröng á þingi, sem oftast á kvöldum upp á síðkastið. (Ljósm.: G. Olafsson).