Dagur - 09.02.1955, Síða 5
Miðvikudaginn 9. febrúar 1955
DAGCR
5
Ýmis fíðim
„Fujlyrðingar um, að héraðsbann-
bófa eru órök-
ósannar"
segir Vignir Guðmundsson í eftirfarandi grein,
er hann hefir sent hlaðinu í tilefni af hugleið-
inguni Jóns Benediktssonar yfirlögregluþjóns i
síðasta tölublaði Ðags
ið hafi reynzf ti!
Þrír stórir vöruflutn-
ingabílar rjúfa ein-
angrun Svarfaðardals
Úr Svarfaðardal 7. febrúar.
Þrír stórir vöruflutningabílar
[lytja mjólk úr Svarfaðardal
bingað til Akureyrar og þunga-
vöru héðan til kaupfélagsins og
annarra verzlana á Dalvík. Þessir
bílar eru einu samgöngutækin. er
rjúfa einangrun Svarfaðardals og
Dalvíkur. Undanfai-na viku hef-
ur engum öðrum en þessum stóru
trukkum verið fært að komast
milli Akui'eyrar og Dalvíkur. —
Snjór er mikill, sérstaklega frá
Dalvík og inn fyrir Hámundar-
staðaháls. í Svarfaðardal er og
mikill snjór.
Dalvíkurbílarnir hafa brotizt
til Akureyrar þrisvar í viku. En
fyrst sækja þeir mjólkina fram í
Svarfaðardal, að Brekku. Er þar
illt færi, jafnvel þessum sterku
bílum. T. d. voru þeir sl. laugar-
dag 9 klst. á leiðinni fram að
Brekku og aftur til Dalvíkur Er
þetta aðeins 6 km. vegalengd
sleðum.
En Svarfdælingar hafa beltis-
dráttarvél í förum, með stóran
mjólkurflutningasleða í togi og
flytja á honum mjólkina úr
Svarfaðardal annan daginn en úr
Skíðadal hinn dagirtn. Bændur
verða því líka að bjargast „upp á
gamla móðinn" og fiytja á hesta-
sleðum líka.
Uridanfárið hefur verið óstillt
tíð og jafnan rennt í slóðina frá
degi til da.gs.-En bílstjórarnii eru
vanir ýmsu á þessari leið og'
leggja nótt við dag jþfggr.,því. er-
að skipta. Bifreiðarnár eru álítaf
samferðg.pg qr það mikill styrkur
í vondu færi. Er það algeng sjón
á “þéssari leið áð sjá bílana ýta
hver á annan og má þá vera vond
færð, svo að ekki miði áfram.
Ekki hefur þótt tiltækilegt að
skafa veginn nieðan tíðin er jafn
óstillt og verið hefur.
Hangikjötið soðið — en
þcrrablóti frestað.
Svarfdælingar ætluðu að halda
þorrablót fyrir nokkru, en urðu
að fresta því vegna ótíðarinnar.
Búið var að sjóða hangikjötið og
undirbúa samkomuna á ar.nan
hátt. Verður hún haldin strax og
veðri slotar og venjulegum bílum
verður fært um veginn.
Skíðanámskeið stendur yfir á
Daívík, á vegum UMF Svarfdæla.
Hófst það á sunnudaginn var. —
Skíðasnjór er ágætur og góðar
skíðabrekkur ofan við kauptúnið.
Kennari er Jónas Ásgeirsson frá
Siglufirði Þátttaka er mikil.
Hross hafa gengið úti í Svarf-
aðardal framanverðum og víðar.
Voru þau í góðum holdum er þau
voru tekin á hús fyrir nokkrum
dögum.
r
Áíviimuleysi í Olafs-
firði
^ Mjög dauft er yfir atvinnulífi
Ólafsfjarðar um þessar mundir.
Hefur ekki gefið á sjó vikum
sarnan. Mjög margt af yngra fólki
er farið suður til Faxaflóahafna,
á vertíð eða í önnur störf, og
stefnir til aukins brottflutnings
fjölskyldna suður nema rætist úr
atvinnuástandinu. Binda menn
helzt vonir við fyrirhugaða tog-
araútgerð, en allt er þó á huldu
með það mál enn sem komið er.
Snjóar torvelda sam-
göngur við Höfðahverfi
Höfðahverfi 8. febrúar.
Á mánudaginn var unnið að
því að ryðja snjó af þjóðveginum
frá Garðsvík til Höfðahverfis og
rjúfa þannig einangrun byggðar-
innar. Er þess vænst, að bændur
úr Höfðahverfi komi nú mjólk
sinni á markað hindrunarlaust.
Skapar samgönguleysið marg-
víslega erfiðleika. Reynt er að
strokka þegar ekki er fært með
mjólkina, en á fámennum bæjum
er smjörgerðin erfið, því að störf-
in eru ærin fyrir. Mikið af ungu
fólki úr byggðinni er farið suður
á land í atvinnúleit
Samgöngur greiðar um
Skagafjörð - lítill afli
og slærnar gæftir
Sauðárkróki 8. febrúar.
í janúarmánuði og það sem af
er þessum mánuði hefur verið
kvillasamt hér í bæ ,kvefpest,
rauðir hundar og fleiri umferða-
sjúkdómar. Hafa verið veruleg
vanhöld í skólum ,en raknað úr
síðustu daga. Snjór er ekki \eru-
lega til tafa innanhéraðssam-
göngum. Litlar gæftir hafa verið
frá áramótum og afli jafnan
fremur tregur, þá sjaldan gefur á
sjó. Um sl. helgi hafði Gagn-
fræðaskólinn myndarlega sam-
komu, er var fjölsótt og vel
heppnuð. Sá Eyþór Stefánsson
tónskáld um dagskráratriði, en
þau voru sjónleikurinn Kven-
fólkiÖ' -heftir okkur eftir Kr. S.
Sigurðsson, kórsöngur, - undir
stjórn Eyþórs, o .fl.
Endurbygging bryggj-
unnar í Hrísey undir-
búin
Hríscy 8. febrúar.
Hafinn er undirbúningur að
endurbyggingu hafskipabryggju í
Hrísey, sem trjámaðkur hefur
grafið sundur og eyðilagt að
verulegu leyti. Efnið er pantað
og er þess vænst, að bryggju-
smíðinni ljúki í sumar. Ekki hef-
ur gefið á sjó nú lengi og er dauft
yfir atvinnulífi.
í haust fóru tveir ungir menn
héðan til búnaðarnáms í Noregi,
í boði fylkisstjórnarinnai í
Hörðalandi. Fór annar þeirra
Kjartan Helgason, frá Hvammi í
Hrunamannahreppi, í skólann að
Steini, en hinn, Gunnar Olafsson,
úr Reykjavík, í skólann á Vors.
Boð um skólavist þessa barst um
hendur félagsins Norsk-Islaudsk
Samband í Osló til félagsins ís-
land—Noregur.
Tveir norðlenzkir bændasynir.
Nýlega barst nýtt boð um
skólavist í Noregi á sama hátt.
Að þessu sinni frá fylkinu Róms-
dal og Mæri.
Tveir ungiv bændasynir fóru á
sunnudaginn til Noregs í þessu
boði. Fóru þeir með flugvél Loft-
leiða til Osló og þaðan með járn-
braut, sem leið liggur norður í
Snjóbílar halda uppi
f erðum um Suður-
Þingeyjarsýslu
Fosshóli 8. febrúar.
Snjóbíll bræðranna Garðars og
Þorsteins Svanlaugssona frá
Akureyri hefur reynzt Þingey-
ingum hið mesta þarfaþing í ó-
færðinni að undanförnu. Hefur
bíllinn að staðaldri verið í flutn-
ingum frá Akureyri til
Húsavíkur og innanhéraðs. Eru
flestir vegir innanhéraðs ófærir
venjulegum bílum. Reynt mun
verða að ryðja Kinnarbraut og
Aðaldal nú næstu daga. Snjóbíll
K. Þ. hefur verið í förumaðsækja
rjóma á bæi og flytja til mjólkur-
stöðvarinnar og er að því gagn.
Á laugardagsskvöld kom snjó-
bíllinn frá Akureyri til Húsavík-
ur og var þá fenginu til að sækja
sjúkling til Mývatnssveitar. og
gekk sú ferð vel og varð bíllinn
þar að mikhi liði.
Jarðbönn eru yfir allt og fén-
aður allur á gjöf. Fulltrúi Suður-
Þingeyinga á Búnaðarþingi,
Baldur oddviti Baldvinsson á
Ofeigsstöðum, tók sér far suður
með flugvél frá Akureyri síðastl.
mánudag.
57,8 milljónir flugfar-
þega s. 1. ár
Farþegarflugvélar í heiminum
fluttu samtals 57.8 milljónir far-
þega sl. ár. Eru það 5.8 milljónir
fleiri farþegar en fluttir voru ár-
ið 1953. Að meðaltali flaug hver
farþegi 891 kílómetra leið. (Flug-
farþegar í Sovétríkjunum og
meginlandi Kína eru ekki með-
taldir í þessum tölum.)
Þessar upplýsingar eru frá Al-
þjóðaflugmálastofnuninni, sem
hefur aðsetur í Montreal í Kan-
ada, en þau samtök eru sérstofn-
un innan Sameinuðu þjóðanna.
Vöruflutningar með flugvélum
hafa að sama skapi aukizt hin síð-
ari ár. Frá því 1947 hefur flugfar-
þegatalan aukizt um 175%, segir
í skýrslu Flugmálastofnunarinn-
ar.
Rómsdal, en þar eiga þeir að
stunda búnaðarnám árlangt í
bændaskólanum í Geirmundar-
nesi. Skólavist öll, svo sem fæði,
húsnæði og kennsla, er nemend-
um þessum að kostnaðarlausu, og
auk þess er greiddur ferðakostn-
aður-þeirra innan Noregs, bæði
er þeir koma í skóla og hverfa
heim aftur.
Piltarnir, sem fara að Geir-
mundarnesi, eru Guðmundur
Arason, bónda á Grýtubakka í
Höfðahverfi við Eyjafjörð, og
Einar Ingvarsson frá Syðra-Lóni
á Langanesi, dóttursonur Guð-
mundar Vilhjálmssonar bónda
þar og alinn upp hjá honum, því
að föður sinn missti hann ungur.
Með boðum þessum er íslenzk-
um bændum og búskap sýnd
mikil velvild frá hendi þeirra að-
ila er fara með stjórn bændaskóla
og búnaðarkennslu í Noregi.
Nú nýiega reit Jón Benedik.ts-
son yfirlögregluþjónn á Akur-
eyri, langa grein í blaðið
„Dag“ um héraðsbannið hér á
Akureyri og þá reynzlu er af því
hefur hlotizt í eitt ár. Bendir
hann þar á, að hann sem lög-
reglumaður sé manna dómbær-
astur um hverja raun það hafi
gefið Eg neita því ekki að aðstaða
hans er sæmileg, og þess vegna
vonaðist eg til þess að finna ofur-
lítinn snefil af rökum og sönn-
unum í grein hans. En svo var
ekki í greininni er ekkert nema
mikið málskrúð og órökstuddar
fullyrðingar, algerlega haldlaus-
ar. Greinin er aðeins umbúðir um
þetta eina inntak: „Trúið mér,
góðir hálsar ,eg veit hvað eg
segi“.
Lögreglumenn ósammála.
Það er fyrst til að taka, þar sem
yfirlögregluþjónninn ræðir um
„— reikular skoðanir margra
mætra borgara bæjarins. sem
sjaldan eiga leið um miðbæinn og
lítið þekkja til skemmtanalífsins
og teljá síg ’ hafa' orðíð lítilla
breytinga varir.“
Eg vil í þessu sambandi benda
á, að eg hef aflað mér upplýsinga
um að aðalstarfstími yfirlög-
regluþjónsins er að deginum til,
þótt hann sé stundum kallaður til
endranær, þegar um sérstök
vandamál er að ræða Mér er því
nær að halda, að hann eigi sjald-
an leið um miðbæinn, a. m. k. að
nóttu til, og þekki því lítið til
skemmtanalífsins, nerna af af-
spurn. Vit sitt um þetta hefur
hann því frá öðrum. og þá scnni-
lega fyrst og fremst frá lögreglu-
þjónunum, samstarfsmönnum
sínum. í því sambandi vil eg
benda á að eftir því, sem eg hef
komizt næst, eru þeir ekki sam-
mála um að ástandið í áfengis-
málunum hafi batnað á síðast-
liðnu ári.
Aukin ásókn um borð í skip.
Næst kemur yfirfögregluþjónn-
inn að því að ,.— ekkert bendi til
þess að smygl, leynivínsala eða
önnur ólögleg meðferð áfengra
drykkja hafi á liðna árinu látið
meira á sér bera en áður, nema
síður sé —“.
Um þetta verður ekkert full-
yrt. Lögreglu og tollgæzlu hefur
hvorki tekizt að^sanna þetta eða
afsanna. Það er álit tollvarða að
ásókn manna í skip í leit að víni,
hafi aldrei verið meiri en á þessu
ári, og þess vegna hefur eftirlit
með skipum, sem hér liggja, ver-
ið hert. Lögreglan mun einnig
hafa leitað ólöglegs áfengis í bif-
reiðum og e. t. v. víðar. Hins má
geta sér til, að þeir, sem vilja
kaupa og selja áfengi á ólöglegan
hátt, hafi haft við það enn meiri
varúð, þegar vitað var að eftirlit
með áfengi myndi aukið eftir að
héraðsbannið komst á. En kunn-
ingjasögur um þetta geta ekki
leitt til heimildaf til neinna full-
yrðinga, hvort sern þær berast
Jóni Benediktssyni eða einhverj-
um öðrum öndverðrar skoðunar.
Ölvun á almannafæri og sektir.
Þá segir yfirlögregluþjónninn í
grein sinni: „— mun minna bar é
ofurölvun síðastliðið ár en óður
og sjaldan leiddi hún til stærri
vandræða —“, og ennfremui: .,—
voru innan við 50 bæjarbúar
sektaðir á síðastliðnu ári fyrir
ölvun á almannafæri."
Þess skal hér getið að það er
algerlega í hendi lögreglunnar hve
margir eru sektaðir fyrir ölv un á
almannafæri. Það gefur auga leift
að „statistik“ og fullyrðingar eru
vandmeftfarin í þessu sambandi,
enda hefur bæjarfógtaembættift
ekki séft sér fært að birta neinar
tölur í þessu sambandi, né aðrar
fullyrftingar um þetta mál. Lög-
reglan hefur á að skipa 3—4
mönnum, þegar bezt lætur, til
þess að senda út um það bil er
skemmtistöðum er lokað. Þeir
verða að halda saman að minrista
kosti 2 eöa fleiri í bifreið sinni, ef
til handtöku og fangaflutnings
kemur. Hér hætta dansleikir oft á
þrernur stöðum í einu. Og oftast
nær kemur fólk meira og minna
drukkið út af þeim. Það sanna
fyrst og fremst tómar áfengis-
flöskur, sem finnast úndir bofð-
um skemmtistaðanna að loknum
dansleikjunum. Margt er fólk
þetta ofurölvi, þótt það ekki
stofni til neinna óspekta eða ill-
inda, enda hverfur það fljótt af
götum bæjarins, en það er
drukkið' eigi að síður. Lögreglan
getur eigi haft neina yfirsýn yfir
hve margir eru ofurölvi, þegar
svona stendur á, enda mun hún
ekki hafa nein fyrirmæli um að
kast.a tölu á þá. Hún handtekur
óróaseggina og þá, sem ósjálf-
bjarga eru, og ýmist setur þá í
fangahúsið eða flytur þá heim.
Ástandið á skemmtistöftum.
Eg vil hér geta þess, að ég heí:
leitað mér upplýsinga um ástand-
ið á einum skemmtistað hér I
bænum í þessum efnum. For-
stjóri þess hefir nú starfað þar
um þessar mundir í tvö ár. Hann.
segir, að héraðsbannsárið hafi alls
ekki verift betra hvaft snertir
áfengisneyzlu á dansleikjum f
liúsinu. Hann bætir því við, aft
eftir eina hclgi í sumar sem leift
hafi yfirlögregluþjónninn talift
þær tómu áfengisflöskur, sem íí
húsinu fundust og hann fullyrð-
ir, aft aldrci frá því að hann koiti
að húsinu hafi þær verift eins
margar og að þessu sinni. Tals-
vert er nú þessi framburður ó-
samhljóða framburði yfirlög-
regluþjónsins, enda segir forstióri.
þessa húss (þ. e. Alþýðuhússins
að hann minnist þess ekki, að yt-
irlögregluþjónninn hafi látið sjt
sig þar innan veggja nema í þetti.
eina skipti er hann taldi flösk-
urnar.
Varðandi sektir fyrir ölvui.
á almannafæri má benda á, að :
ekki stærri bæ en Akureyri ei.
þekkir lögreglan allmarga menn
sem hafa það n.ærfellt fyrir vana,
að drekka sig ofurölvi af og til,
Hún veit líka, að margir em
(Framhald á 11. síðu).
Tveir norðlenzkir bændasynir farnir
til bímaðarnáms í Noregi