Dagur - 09.02.1955, Side 10

Dagur - 09.02.1955, Side 10
10 DAGUR Miðvikudaginn 9. febrúar 1955 k % í óttans dyrum Saga eitir DIANA BOURBON 14.DAGUR. (Framhald). en hraðaði mér að halda áfram könnunarstarfinu sjálfu. Nægur tími mundi verða á morgun að íhuga árangurinn. Eg flýtti mér því aftur upp á loft, en fór nú út á ganginum og upp aðalstigann í húsinu, því að hann var teppa- lagður og fótatak heyrðist ekki þar. Dyr voru við innganginn á hæðina, og mátti þar loka hæð- inni frá öðrum hlutum hússins, en nú voru þær opnar. Dyrr.ar að svefnherbergjum á hæðinni voru einnig opnar. Þar höfðu augsýni- lega verið svefnstofur þjónustu- liðsins. Hér var líka ryk á öllu og augsýnilegt að enginn notaði þessi herbergi. En þó var gi eini- legur munur hér og á hæðinni fyrir neðan. Hér voru rúður mál- aðar svartar. Þetta var einfalt og 'þó nægilegt ráð til að fylgja regl- um um ljósaútbúnað og loftvarn- ir. Um miðjan þennan gang var hliðgrind, er augsýnilega var ætl- að það hlutverk að varna því að börn færu sér að voða frammi á stigaloftinu. Benti það til þess að barnaherbergi væru á næstu grösum. Hliðið var opið nú, en sagði eig'i að síður til vegai til barnaherbergjanna. Þarna var líka gamalt barna- herbergi eða leikherbergi með ýmsum gamaldags leikföngum og barnahúsgögnum og upp við vegg stóð lítið, hvítmálað rúm. — Það leyndi sér ekki, að hér hafði lítill drengur átt heima. Líklega ver þetta herbergi hershöfðingj- ans, frá þeim dögum, er hann gekk á Eton-skóla. Einhver hafði hengt indverskt teppi fyrir gluggann og þannig hulið svart- málað glerið. Eg steig feti framar, stóð grafkyrr og hélt niðri í mér andanum. Um það var ekki að villast, þetta herbergi var í notk- un, einhver bjó hér! Eg gæti ekki útskýrt, hvernig eg sannfærðist um þetta. Það var eitthvað í andrúmsloftinu, sem sagði þetta fullum stöfum. Auk þess var þetta herbergi hreinlegt, en önnur herbergði voru rykfall- in. Samt var ekki hægt að sjá nein augljós merki þess, að búið væri í herberginu. Ábreiða var yfir svefnstæðinu eins og til að varna ryki sem í öðrum her- bergjum. Ekki sást far í kodda né í púða í hægindastól. En það er alltaf einhver óskýi-anlegur mun- um á herbergi, sem búið er í, og herbergi, sem er autt og yfirgefið. L'ykillinn stóð í skránni að inn- anverðu. Skráin var vel smurð og hreyfðist hljóðlaust að kalla. Ekkert lak var í rúminu, né ver um ábreiðuna, en hún var samt löguð eins og búið hefði verið um rúm, en ekki eins og hún hefði verið lögð þar til geymslu Og hvers vegna voru rúmábreiður í herbergi, sem ekki var notað? Og svo og það, sem eg var að leita að, nær hulið á bak við rúmgaflinn. Það var aukasíminn. En þetta var enginn venjulegur sími og hafði áreiðanlega ekki verið lengi í húsinu. Þetta var færanlegur hersími, þannig gerð- ur, að handlaginn maður gat komið honum í samhand inn á línu ,hvar sem að henni var kom- ið. Nú mundi eg eftir einkasíma- Hnunnn til aðalbækistöðva hers- ins í svefnherbergi húsbóndans. Það fór hrollur um mig. Þetta var vissulega ekkert spaug. Hvernig á því stóð, að eg fór aftur niður þjónustustigann í stað þess að fara til baka sömu leið og eg kom, get eg aldrei skýrt. Og þannig bar það að . . . En nú er eg að hlaupa úr einu í annað. Annað leikhlið var við stiga- innganginn, en það var lokað og eg sá ekki til að opna það. Eg steig því yfir það og staulaðist niður stigann án þess að kveikja á vasaljósinu, og svo þegar eg kom að stigapallinum á næstu hæð fyrir neðan, snarstanzaði eg af einhverju innra hugboði og greip aftur í hurðina að herberg- inu, þar sem hafið skömmu áður verið læst. En nú voru dyrnar ólæstar. Eg greip hægt um handfangið og sneri því, en í sama bili var hurð- inni kippt opinni og gegnt mér stóð Anna Romney. Herbergið að baki hennar var autt, nema hvað stór kista hafði verið dregin að eldstæðinu. Eng- ar hlífar voru fyrir gluggunum eins og mig hafði áður grunað og eg gat því ekki brugðið upp ljósi. Allt þetta sá eg á andartaki, um leið og eg leit framan í hana og sá þar skráð furðu og heift. „Hvað eruð þér að gera hér?“ spurði hún, nærrri hás af reiði. Þetta var hennar heimili, hugs- aði eg, og enda þótt auðsýnt væri að í þessu herbergi var tilvalið að standa á hlerí og fylgjast með því, sem sagt var í svefnherberginu fyrir neðan, svaraði eg strax því. sem var skynsamlegast eins og á stóð. „Faðir þinn sagði mér að bessi hæð væri ónotuð með öllu, og begar eg heyrði umgang hér, fór eg að gá. hvað um væri að vera.“ ,.Þú heyrðir engan umgang hér,“ svaraði hún illhryssings- lega. „Ekki bað?“ spurði eg og horfði hvasst á hana. .Nei, bú heyrðir ekki neitt.“ Eg sá að ekki tióaði að nota blíðuorð og sneri blaðinu við. (Framhald). Vélaþéffingar Járn og glervörudeild Hreinsifögur Járn og glervörudeild Rauðmaganetaslöngur Netagarn - Netateinn Járn og glervörudeild Snjóbirtugier- augu (óbrothætt) Skíðagieraugu fyrir börn og fullorðna Járn og glervörudeild Gcrmvogir 12, 25 og 50 kg. Járn og glervörudeild Kneissel-skíði Skíðabindingar Skíðasfafir Skíðaáburður <þþ> Járn og glervörudeild Sformlugtir 2 stærðir Sformlugtarglös og kveikir Olíuvélar 2 hólfa Prímusar Járn og glei'vörudeild Skíðasleðar Flafsleðar Járn og glervörudeild Saumavél handsnúin, í góðu lagi, til sölu, mjög ódýtr Handavinnu- föskur Járn og glervörudeild Málningarúllur (með bakka.) Málningakústar Járn og glervörudeild Hestamannafélagið Léttir heldur aðalfund sinn að Hótel K.E.A. (Rotarysal) föstudag- inn 11. þ. m. kl. 8 e. h. Stjórnin. Húnvetningafélagið heldur aðalfund sinn að Hótel K.E.A. (Rotarysal, n.k. sunnu dag kl. 4 e. h. — Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagsmál rædd. MÆTIÐ VEL. A. v. á. Stjórnin. NOTIÐ SÁFUSPÆN1 í allan viðkvæman þvott. Sápiispœnir eru svar vísindanna við þeim vanda, hvernig þvo megi viðkvcemar flíkur án þess að skemma þær. Fyrsta flokks sápa er spænd niður, og reynsla hús- mæðra t mörgum löndum er sú, að þannig leysist sápan betur upp ag þvær betur allan viðkvæman þvott. — Sápuspænir eru einnig mjög hentugir í þvottavélar. Farið vel með viðkvæmar flík- ur. Þvoið ávallt með sápu- spónum. Það borgar sig. Reynið SÓLAR sápuspæni Sápuverksmiðjan SJÖFN

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.