Dagur - 18.02.1956, Blaðsíða 6
6
D A G U R
Laugardaginn 18. febr. 1956
Allir, sem eignazt hafa
MAJORINN, eru sam-
míla um ágæti hans.
SPARNEYTINN
KRAFTMIKILL
ÓDÝRASTUR allra
DIESEL-TRAKTORA
6 gangstillingar áfram
2 gangstillingar
afturábak.
ÁMOKSTURSTÆKIÐ lyftir 711 kg. í 3.35 metra hæð eða, með lengingu
356 kg. í 6 metra hæð.
■
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR í SKRIFSTOFU OIvKAR.
Geislagötu 5, Ak. — Sími 1649,
RÆNDUR!
Getum útvegað eftirtaldar teg. dráttarvéla:
FARMALL CUB (amerískar).
FARAIALL DIFSEL (ýmsar stærðir, þýzkar)
FFRGUSON, berizín og diesel-vélar (enskar)
Myndir og upplýsingar um þýzku vélarnar
væntanlegar næstu daga.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Véla- og húsáhaldadeild.
MATARSALT
í plast pokwn.
Kr. 2.20 pokinn.
Kjötbúð KEA
ROYAL
APPELSÍNUR
Solaris kr. 9.00 kg.
Jaffa kr. 12.00 kg.
BANANAR
kr. 26.00 kg.
ávaxtahlaup með
JARÐARBERJA
HINDBERJA
KIRSUBERJA
ANANAS
APPELSÍNU
SÍTRÓNU bragði.
Kjötbúð KEA.
SÍTRÓNUR
á kr. 13.00 kg.
Kjötbúð KEA.
Pressað kjöt
súrsað.
Bringukollar
súrsaðir.
Er ómissandi á kvöldhorðið.
Vorannir og vökunætur
(Framhald.)
Timburflutningurinn.
Eftir nær þriggja sólarhringa vökur og erfiði við réttir og
lúning, var svefninn vel þeginn. Á Möðruvöllum var vel
tekið á móti lúnum og svefndrukknum vinnumönnum, er
þeir loksins komu lreim úr smalamennsku á Hörgárdalsheiði.
Nægur og góður matur beið þeirra og uppbúin rúmin. Hús-
bændurnir kunnu vel að meta dugnað og trúmennsku og létu
það í Ijósi þegar það átti við. Vinnumennirnir hreiðruðu um
sig í rúmunum, með þeirri vellíðan í öllum líkama, sem
þreyttir rnenn einir njóta og með góðri samvizku og gleði
yfir vel unnu verki, sem eru hin hálfu laun vinnandi manns.
Svo stóð á eitt sinn, er vinnumen komu af Hörgárdalsheiði,
að það var 1 augardagSkvöId. Sváfu þeir áf um nóttima og fram
á sunnudag. í byggingu voru, um þesar mundir, hlaða og
eitthvað fleira og vantaði timbrið. Hafði samist svo um, að
timbrið skyldi flutt á bát frá Akureyri til Gæseyrar á sunnu-
dagskvöldið. Þurfti þá að taka á móti því og forða undan sjó
og vindi.
Vinnumennirnir, Sigtryggur og Stefán Sigurðsson, voru
valdir til þessa verks. Riðu þeir svo út eftir á sunnudaginn.
En timbrið kom ekki um kvöldið. Leiddist þeim félögum
biðin og varð það úr að Stefán færi heim með hestana, en Sig-
tryggur biði bátsins. Skúr var þarna við sjóinn og var hann
notaður vegna flutninga frá Akureyri tiL Möðruvalla. Þá var
enginn bílvegur og enginn bíl'l. Allar vörur þurfti að flytja á
hestum, en stundum var sú leið stytt með því að fara sjóveg
til Gæseyrar með vörurnar, en flytja þær síðan á hestum.
Sigtryggur bjó nú um sig í skúrnum, en varð ekki svefn-
samt, þótt svefnþurfi væri og „eftir sig“ af fyrra vosi. Bátur-
inn sást hvergi og leiddist Sigtryggi biðin. Um morguninn
kom Stefán aftur með hestana og átti að sækja Sigtrygg og
hjálpa honum við timbrið, ef með þyrfti. Ekki vildu vinnu-
mennirnir fara við svo búið heim að Möðruvöllum, heldur
riðu þeir sem ákjótast til Akureyrar, 'að vita hver ástæðan
væri í. Er þangað kom, varð upplýst að „timburmaður-
inn“, sá er flutninginn átd að annast, hafði ekki getað það af
einhverjum ástæðum. Það vissu Möðruvallapiltar, ia timbrið
var pantað hjá Snorra Jónssyni. Þangað fóru iþeir. Útvegaði
Snorri þeim nótabát einn mikinn til flutninganna og mann
til hjálpar. Var það Guðmundur Seyðfjörð, faðir þeirra
bræðra, Ingólfs og Steingríms Seyðf jörð. Þá bættist þeim ann-
ar liðsmaður. Það var Guðmundur Ólafsson frá Eyrarlandi.
Tók hann af þeim hestana og kom í geymslu. Vinnumenn
urðu allshugar fegnir, því að báðir þessir menn voru duglegir
og ráðagóðir.
En dagurinn var fljótur að líða. Undir kvöldið var þó hald-
ið af stað. Stafalogn var og gekk róðurinn seint. Var bátur-
inn þungur og fullfermdur. Ekki var þó linnt róðrinum fyrr
en á Gæseyri. Var báturinn affermdur í skyndi, en þar með
var þó ekki allt búið. Bátnum varð að skila til Akureyrar, og
var þegar fagt af stað inn eftir. Var nú kominn morgun og
allir orðnir þreyttir.
Kviðu menn róðrinum, en þá fór að gola af austri. Seglin
voru sett upp og sat einn við stýri en hinir sváfu. En þegar
komið var mó.ts við Skjaldarvík, gerði blæjalogn og brenn-
andi sólskin skein á hin syfjulegu andlit sjómannanna í
prammanum.
Snemma dags náðu þeir til Akureyrar og voru harla fegnir.
Flýttu þeir sér til Ólafs verts, fengu að þvo sér og keyptu sér
máltíð. Urðu þeir þá þegar sem aðrir menn og fundu tæp-
ast til þreytu.
ITestarnir voru á vísum stað og heimfúsir út Kræklinga-
hlíðina, þar sem tveir vinnumenn Stefáns á Möðruvöllum
skiptust á gamanyrðum og fundu með sjálfum sér að sæmi-
lega hafði verið að verki unnið
A Moldhaugahálsi var dýrðlegt yfir að líta, þar sem sólin
gyllti sæ norður Eyjafjörð, a!11 til hafs og roða sló á fjöllin
beggja megin fjarðar. í hinu litfagra aftanskini runnu sarnan
haf og land, með margvíslegum litbrigðum. Jafnvel bænda-
býlin, svo kunn og samgróin sveitinni, urðu annaríeg, sem
óþekktir bæir í ókunnri sveít. (Framhald.)
Kjötbúð KEA.
FARROW’S
er merkið á grænu baununum
í pökkum, sem allar húsrnæð-
ur vilja. Baunirnar soðnar á
20. mín. — Aðeins kr. 3.70 pk.
Kjötbúð KEA.
Súrsætar
RAUÐRÓFUR
í laitsri vigt.
Komið með glös.
Kjötbúð KEA.
Brytjuð freðýsa í
sellofanpokum.
Barinn HARÐFISKUR
í pökkum.
Kjötbúð KEA.