Dagur - 29.02.1956, Side 5
Miðvikudaginn 29. febr. 1956
D A G U R
5
Áttræður:
Lárus Bjgrnason, fyrrv. skólastjóri
Lárus Bjarnason, fyrrv skólastjóri
í Flensborg í Hafnarfirði, verður
áttræður á morgun (1. marz). Lárus
var 12 ár kennari við Gagnfræða-
og síðar Menntaskólann á Akureyri,
og munu margir hér í bæ minnast
lians enn frá þcim árum, bæði garnl-
ir nemendur hans og aðrir. Mér
þykir því vel lilýða að senda hon-
um kveðju að norðan á þessum
merku tímamótum ævi hans. Vil
ég byrja á því að tjá honum þökk
og virðingu Menntaskólans á Akur-
eyri fyrir merka þjónustu fyrr á ár-
um og órofa-tryggð æ síðan.
Sága Lárusar er merkileg og fróð-
leg til íhugunar, ekki sizt ungu
fólki, sem nú á auðvelda leið að
menntun og fræðslu. I æsku I.árusar
var öldin önnur. Úr allsleysi liefst
hann af sjálfs sín ramleik og aflar
sér kunnáttu og mennturiár með fá-
gætri elju og alúð. Mun liann
snemma hafa sýnt dugnað og lioll-
ustu í starfi, en þeir kostir liafa
fylgt honum fram á þennan dag.
Lárus er fæddur að Prestbakka á
Síðu og ólst þar upp til 10 ára ald-
urs, en fluttist þá undir Eyjafjöll,
þar sem hann átti heima fram yfir
tvítugt. Ellefu ára lióf hann sjó-
róðra, en tólf ára var hann, þegar
honum var fyrst kennt að skrifa, og
þó átti hann eítir að verða einu
með beztu skrifurum landsins. Eftir
fermingu lilaut Lárus lítils háttar
tilsögn hjá Brynjólfi Jónssyni frá
Minna-Núpi, þeim merka fræði-
manni, en hann hafði námskeið á
Eyrarbakka fyrir vermenn í land-
legum. Með þá fræðslu gerðist Lár-
us barnakennari heima í sveit sinni.
En hann fann til fákunnáttu sinnar,
og 24 ára gamall fer hann í Möðru-
vallaskóla. Þaðan er hann braut
skráður 2 árum síðar (1902) með 1.
einkunn. í kennaradeild Flensborg-
arskóla er liann siðan einn vetur og
fæst eftir það við kennslu um hríð.
En fróðleiksþrá Lárusar er enn ekki
svalað. Hann fer til Kaupmanna-
hafnar og stundar tvö ár nám við
Iíennara-háskóla Dana. Brautin er
mörkuð. Lárus er og verður kenn
ari, fyrst við barnaskólann í Hafnar-
firði, þar sem Lárus var um tíma
skólastjóri, síðan við Flensborgar-
skóla, þá vjð Gagnfræðaskólann á
Akureyri og enn af'tur við Flens-
borgarskóla, þar sem hann var
skólastjóri frá 1931-41, að hann lét
af embætti sakir aldurs. Eftir það
hefir þó Lárus enn fengizt við
kennslu, bæði sem stundakennari
í skólum og sem einkakennari
Þeir eru því orðnir margir, sem
Lárus hefir kennt um dagana, og
reir eru ekki síður margir, sem
minnast hans með hlýju og þakk-
læti fyrir góð og gömul kynni. Mun
Lárus flestum minnisstæður, sem
nutu kennslu hans. Ber þar einkum
til frábær samvizkuscmi hans, góð-
vild og umhyggja fyrir nemöndum.
Gerði liann sér engan mannamun.
Enginn gladdist einlæglegar en
hann yfir glæsilegum sigrum góðra
námsmanna, og liélt liann afrekum
þeirra (>spart á loft. Gerði hann
rað bæði til hvatningar öðrum og
ckki síður af hinu, að lronum var
ljúft að tala vel um aðra menn.
Helðu margir íslendingar getað
numið af lronum hollan lærdóm í
þeim efnum. En Lárus lét sér ekki
síður umhugað um liina, sem tregar
gekk námið. Þolinmæði hans og að-
hlynning við þá, sem þunglegá
sóttist fangabrögðin við skessuna
miklu, stærðfræðina, eru með því
fegurra, sem ég hefi kynnzt um dag-
ana. Þar var hvorki horlt í tíma né
fyrirhöfn. Lárus er höfðingi í lund.
Hann er ör á fé, og hann hefir verið
ör á sitt eigið líf öðrum til góðs.
Erfið kjör í æsku fylltu hann ekki
beiskju og óvild, heldur skírðu
gullið í sálu hans. Slíkt er göfugs
manns aðal.
Þessi fáu orð verða að nægja að
sinni. Tími minn bannar mér að
hafa þau fleiri. Eg leyfi mér aðeins
að bæta við persónulegri þökk til
Lárusar fyrir langa vináttu og
tryggð, sem mér hefir verið mikils
virði. Megi æska íslands á ókomn-
um árum njóta mafgra slíkra, sem
af jafn-heilum hug og fölskvalausu
geði fórnar lienni því bezta í sjálf-
um sér.
Þórarinn Björnsson.
1.2oo.ooo læknar í
Iieiminum - 54.ooo nýir
læknar útskriftast
árlega
í heiminum eru nú 1,200,000
starfandi læknar. Árlega útskrifast
54,000 nýir læknar frá 595 lækna-
skólum í 85 löndum. Starfsmaður
A1 þjóðaheilbrigðisst ofnunarinnar
(WHO), dr. James L. Traupin,
hefur gert skrá yfir lækna. Hann
er forstöðumaður þeirrar deildar
WHO, sem aðstoðar menntastofn-
anir.
Skýrslur dr. Traupins sýna, að
læknum er misjafnlega skipt milli Björn Jóhannsson og Camilla Jónsdóttir í hlutverkum
íbúa jarðarinnar. I 14 löndum er t.
einn læknir fyrir hverja 1000
íbúa (eða færri), en í 22 löndum
eru 20,000 manns (eða fleiri) um
hvern lækni. Dr. Traupin getur.
aess, að allmargir læknisfróðir
menn stundi ekki lækningar að
jafnaði. Sumir læknar stunda
kennslu, vísindastörf, eða fram-
kvæmdastörf. Yfirleitt er það
regla, að í sveitum eru færri lækn-
ar í hlutfalli við fólksf jölda en í |
borgum og bæjum. Þá kemur fram var Norðmaður að uppruna en
skýrslum WHO, að í 9 löndum er varð síðar prófessor i háspeki,
læknaskóli fyrir hverja eina millj. latinu og mælskulist við Kaup
íbúa, eða færri, en í 13 löndum er marinahafnarháskóla og er talinn
aðeins einn læknaskóli fyrir 9—17 faðir danskrar leikrituriár. Hann
milljónir íbúa. Dr. Traupin bendir samdi yfir 30 leikrit og morg
, að þegar menn meti þessar töl- þeirra mjög sérkennileg. Þó var
ur verði að taka ýmislegt með í leikritagerð hans áðeins Brot af
reikninginn, t. d. efnahagslega og verkum hans. Og enn í dag á hann
félagslega þróun í viðkomandi | erindi til leikhússgesta.
landi, skiptingu lækna milli sveita
og bæja og fjölda hjúkrunarfólks
og anriarra, sem starfa að heil-
brigðismálum.
ÞEGAR SKIPIN SIGLA.
Það fór hér úr höfn eitt fley um daginn,
með fisk, út að Grikklandsströnd,
ég hefði fús viljað fara líka
og fræðast um suðræn lönd.
En einn situr heima með útþrána sína,
annar nauðugur fer.
Það sýnir að meira er en sjónarmunur
á söltuðum þorski og mér.
Hámenning Grikkja, sem hnigna var tekið,
hefst nú til vegs á ný,
og víst mun átið á íslenzkum fiski
eiga sinn hlut að því.
En fákænn, íslenzkur alþýðumaður
skipar annað og lægra stig.
Þessvegna flytja þeir þangað suður
þorskinn — en ekki mig.
Frá koti mínu til salkynna Sólons
er sjóferðin löng og dýr,
og lítt hef ég séð mér leik á borði
að lifa slík ævintýr.
Og loks má segja, er ég lúinn af elli
lagt hefi árar í bát,
að þar hafi einn í ævinnar tafli
orðið heimaskítsmát.
DVERGUR.
Æðikollsins og Pernillu.
ólaleikurinn 1956
Æðikollurinn eftir Ludvig Holberg
Leikstjóri: Jónas Jónasson
Ludvig Holberg hefur hvílt í
gröf sinni rúmar tvær aldir. Hann
Flestir læknar i Evrópu og
Norður-Ameríku.
Nemendur Menntaskólans á
Akureyri völdu eitt af verkum
hans til meðferðar, er þeir ákváðu
skólaleikinn í ár. Var það Æði-
kollurinn í þýðingu Jakobs Bene-
diktssonar magisters. En sjónleik-
Læknaskýrslur dr. Traupins I uf þesgi m þekktur héf
um slóð-
sýna ennfremur: jr> Hann var fyrst leikinn hér á
27,000 af þeim 54,000 læknum, landi fyrir röskum 100 árum og
sem bætast við árlega, útskrifast af Latinuskólapiltum syðra og
frá læknaskólum í Evrópu. Þar gekk þá undir nafninu ,,Hinn önn-
næst kemur Asía með 11,500 nýja um kafni“. í Æðikollinum eru 19
lækna á ári, þá Norður- og Mið- leikendur. Leikstjori var Jónas
Ameríka með 9000, Suður-Amer-1 Jónasson.
íka með 3,700. Löndin við botn
Miðjarðarhafs 860, Afríka 855 og|GamaU kunningi.
750 á Kyrrahafssvæöinu.
Eg fagnaði því að sjá Æðikoll-
inn hér á Ákureyri; — Það rifjaði
upp 20 ára gamlan atburð. Þá sátu
tveir nemendur í Laugaskóla með
sveitta skalla og voru að þýða
þennan leik. Var ég annar þeirra
og reyndi eftir beztu getu að færa
setningár til þess máls, er færi vel
í munni, en félagi; minn, gáfaður
málamaður, bar hita og þunga
Læknafjöldi heimsins, 1,2 millj.,
skiptist þannig milli landa, að
rúmlega helmingur, eða 643,000,
eru í Evrópulöndum, 247,000 í
Norður- og Mið-Ameríku, 201,000
í Asíu, 48,000 í Suður-Ameríku.
23,000 í Afríku, 16,000 í löndun-
um við botn Miðjarðarhafs og
12,000 á Kyrrahafssvæðinu.
Nær 20 leikendur.
Æðikollurinn er töluvert erfið-
ur sjónleikur í meðförum. Hann
er ósvikinn gamanleikur og verður
því að ganga hratt og jafnt, svo
að bláþræðir verði ekki á. En þar
sem 19 óvanir leikendur koma
fram, er bláþráðahætt og frá hendi
höfundar eru kaflar, sem eru
vandmeðfarnir og samrýmast ekki
fullkomlega íslenzkum staðháttum.
En vert er að veita því athyglij
hve höfundurinn ræðst miskunnt
arlaust á hraðann og æðið í
mannfólkinu og vitfirringslegt
kapphlaup manna við tímann.
Á heimilinu, þar sem leikurinn
er látinn fara fram, er húsbóndinn,
Æðikollurinn, einn af þessum
hálf-vitstola mönnum, sem á svo
annríkt að hann neytir hvorki
svefns eða matar. Hann hefur 4
skrifara, sem ekkert hafa að gera,
nema látast, til að fullnægja hé-
gómagirnd húsbóndans. Þeir eru
sannkallaðir augnaþjónar og
hlæja, þegar húsbóndinn snýr
baki að. Sama má segja um að-
stoðarstúlkuna hans, sem er önn-
ur höfuðpersóna leiksins.
Auðvitað fer ekki hjá því, að á
þessu heimili gerist spaugilegir
hlutir og verður efnið ekki frekar
rakið hér.
1 1
Ef litið er á hlutfallið milli I verksins. Sums staðar var víst
lækna og íbúa kemur í ljós, að frjálslega þýtt og við styttum leik-
hlutfallið er svipað í Norður-, Mið- ritið að mun. En á leiksviðið
Ameríku og Evrópulöndum, þar I komst það og við skemmtum okk-
sem einn læknir er fyrir hverja946 ur konunglega. Sama þýðingin var
og 956 íbúa. Á Kyrrahafssvæðinu svo notuð suður í Borgarfirði
er einn læknir fyrir hverja 1150 I uokk' u síðar og Ælðikollurinn var
íbúa. í Suður-Ameríku er talan|sýndur á árshátíð Hvanneyrar-
skóla.
En þrátt fyrir ófullkomna þýð-
ingu, fór þó ekki hjá því að í Sam-
hverja 4900 manns, 6800 manns I komuhúsinu kæmu brandararnir,
eru um hvern lækni í Asíu og 9100 niargir orðréttir, eins og gamlir
í Afríku. 1 kunningjar.
2505, í löndunum við botn Mið-
jarðarhafs er einn læknir fyrir I
Leikendur.
Björn Jóhannesson leikur Æði-
kollinn, vandamikið og erfitt hlut-
verk. Það hlutverk má taka á
margan hátt. Gerfi Björns og leik-
ur allur er heill og ósvikinn. Er
það reyndar furðulegt, hve vel
honum tekst, alveg óvönum, að
valda þessu gerfi snurðulaust, leik-
inn á enda. Það er vel af sér vikið.
Camilla Jónsdóttir leikur Pern-
illu, annað stærsta hlutverkið. Ef
hún hefur aldrei ifyrr komið á
leiksvið, var sannarlega tími til
kominn. Hún sýndi víða góðan
leik, og annars staðar svo framúr-
skarandi, að æfðar leikkonur
hefðu verið fullsæmdar af. Er hún
(Framhald á 7. síðu). ,j