Dagur - 29.02.1956, Qupperneq 8
8
Miðvikudaginn 29. febr. 1956
Bagur
Eitf og anna§ írá Bónaðarþingi
Siðustu daga hafa nokkur mál
verið afgreidd frá þinginu, eru
þessi helzt:
1. Búnaðarþing ályktar að skora
á ríkisstjórnina að skipa 5 manna
nefnd, samkvæmt tillögum undir-
búningsnefndar um bygginga-
rannsóknir, er landbúnaðarráðu-
neytið skipaði á síðasta sumri, og
veita Teiknistofu landbúnaðarins
nauðsynlegt fjármagn til starf-
seminnar.
2. Um lánastarfsemi landbúnað-
arins. Ræktunarsjóður og Bygg-
ingasjóður hafa undanfarið full-
nægt eítirspurn og var því aö
þessu sinni lögð áherzla á eflingu
veðdeildar Búnaðarbankans, enda
er starfssvið veðdeildarinnar svo
víðtækt, að úr henni má lána
gegn fasteignaveði til jarðakaupa,
vélakaupa, bústofnskaupa o. fl.
Var skorað á ríkisstjórn og Al-
þingi að veita veðdeildinni fram-
lag eða hagkvæmt lán, að upphæð
kr. 8 miilj. á ári í næstu 10 ár. —
Ennfremur að sjá um að framlag
úr Mótvirðissjóði og annars staðar
frá, til Byggingarstjóðs og Rækt-
unarsjóðs, kæmi það snemma á
ári hverju til Búnaðarbankans, að
bændur geti fengið lán úr þeim
sjóðum út á framkvæmdir hvers
árs, fyrir áramót.
3. Um fasteignamat. Búnaðar-
þing telur að ráðgerð hækkun á
verði fasteigna í sveitum sé of
mikil saman borið við hækkun á
verði fasteigna í Reykjavík
og öðrum kaupstöðum við
Faxaflóa, og skoraði þvi á
Landsnefnd fasteignamatsins að
lækka prósenthækkunina í sveit-
um, þar sem hækkunin í Reykja-
vík er lögbundin hámarki 400%.
Þá var skorið á Landsnefndina
að lækka verð framræsluskurða
enn meir. (Nefndin hefur þegar
lækkað verð þeirra úr kr. 0.50 í
kr. 0.25 m:!). Taki íillit til breyt-
ingartillagna skattanefnda, sem
miða að samræmingu innan hvers
sveitarfélags og að loknum leið-
réttingum verði matið sent á nýj-
an leik heim í sveitirnar til athug-
unar.
4. Búnaðarþing ályktar að skora
á Alþingi að samþykkja frumvarp
það, er nú liggur fyrir Alþingi um
breytingu á lögum nr. 94 5. júní
1947 um Framleiðsluráð landbún-
aðarins, verðskráningu, verðmiðl-
un og sölu á landbúnaðarvörum o.
fl. (Þ. e. verzlun með garðávexti.)
5. Búnaðarþing felur stjórn
Búnaðarfélags íslands að hlutast
til um að ráðnir verði eriendir
landbúnaðarverkamenn í vor og
sumar til að fullnægja þörfum
bænda.
6. Búnaðarsamband Austurlands
vill að komið verði upp sauðfjár-
kynbótabúi í Austfirðingrfjórð-
ungi. Mælti Búnaðarþing með að
B.s. Austuriands verði veitt aðstoð
til þess samkv. 17. gr. laga um bú-
fjárrækt.
26. febrúar 1956.
Þær fregnir berist frá Aberdeen
í Skotlandi, að uppi séu ráðagerðir
miklar um útflutning á ánamöðk-
um. Svo er mál með vexti, að í
Skotlandi er ánamaðkakyn eitt af-
bragðsgott, má segja, að það sé
holdakyn af beztu tegund, en í
Vesturheimi eru maðkarnir
smærri og heldur óyndislegir, svo
að þeir fá stundum að vera ó-
snertir á önglinum daglangt.
I Bandaríkjunum eru taldir vera
um 5 millj. stangveiðimanna, og
þótt ekki veiði þeir allir á maðk,
þá þurfa þeir þó nokkuð til sín.
Hefur komið bænakvak að vestan
til verzlunarráðs Aberdeenborgar,
og hafa tveir skozkir maðkatínslu-
menn tekið að sér málið og sent
nokkra maðka vestur til reynslu.
Hafa þeir hug á því að selja árlega
10 millj. maðka, en þegar hefur
verið beðið um 2 milljónir. Búast
þeir við að hafa um 100 manns við
starf á hverri nóttu, þegar veiði-
legt er, og á hver maður að geta
tint upp undir 1000 á nóttu, þegar
bezt gengur og fá hálft annað
sterlingspund fyrir erfiðið.
Almælt er, að maðkar þeir, sem
tindir eru hér i Lystgarðinum og
á öðrum góðum stöðum, séu af
skozku kyni, og hafi brezkir veiði-
menn sleppt þeim hér í fyrstu.
Námskeið á Árskógs-
strönc!
Árskógsströnd 25. febr.
Unglingaskóla lauk á Arskógs-
strörfH um helgina var. Kennt var
í Arskógsskóla og voru nemendur
14. Handavinnunámskeiði lauk þar
í gær. Kennari var Ingólfur Bene-
diktsson frá Grenivik og Þórey
Jónsdóttir. Nemendur voru 22 og
allir úr eldri deild barnaskólans.
Kvenfélagið í Hrisey sýnir sjón-
leikinn Tengdamömmu, eftir
Kristinu Sigfúsdóttur i Arskógi í
kvöld. Hefur leikurinn verið sýnd-
ur tvisvar i Hrisey og aðsókn ver-
ið ágæt i bæði skiptin.
Byrjað er að afla rauðmaga.
Niels frá Hauganesi fór sinn fyrsta
róður í fyrrinótt. Samkvæmt laus-
legum fregnum, mun afli hafa ver-
ið sæmilegur, en langt sóttur.
Ekki hefur frétzt hér um þúsund
maðka veiði á einni nóttu, en
hundruðum saman hafa þeir verið
togaðir upp úr holum sínum á til-
tölulega skömmum tima. Hér eru
þúsund maðkar 500 kr. virði, svo
að þessi atvinnu er miklu arðbær-
ari hér en í. Skotlandi.
- Héraðsþing UMSE
(Framhald af 1. síðu).
A þinginu færði Jón Stefánsson
á Dalvík UMSE að gjöf forkunnar
fagurt taflborð, sem vera skal
keppnisgripur í skákkeppnum inn-
an sambandsins.
Fyrrverandi stjórn lét öll af
störfum og skipa nú stjórn:
Jóhann Helgason, form.
Hreinn Ketilsson, ritari.
Hjalti Finnsson, gjaldkeri.
Árni Magnússon, meðstjórn.
Sveinbjörn Halldórsson, meðstj.
Varastjórn:
Jón Hjálmarsson, form.
Ottar Karlsson og Þóroddur Jó-
hannsson.
Að þingstörfum loknum bauð
UMF Þorst. Svörfuður þingfull-
trúum til kaffisamsætis og síðan á
samkomu að Grund. en þar sýndi
Edvard Sigurgeirsson kvikmynd-
ina frá landsmótinu á Akureyri
síðastliðið sumar.
Fjölmennur fundur
F ramsóknarmanna
Blönduósi 27. fehrúar.
Á fimmtudaginn var héldu
Framsóknarmenn fund á Blöndu-
ósi. Var hann fjölsóttur og um-
ræður miklar. Guttormur Sigur-
björnsson mætti á fundinum og
hafði framsögu um stjórnmálavið-
horfið.
Stóð fundurinn til miðnættis. 1
fundarlok voru kosnir fulltrúar á
flokksþingið, sem hefst í Reykja-
vik 8. marz.
Nýlega hafa fundizt 5 kindur,
sem ekki komu af fjalli i haust.
Tvílembd ær frá Ásum i Svína-
vatnshreppi kom sjálf heim
og tvö lömb frá Grímstungu í Ása-
hreppi. Fundust þau fram á afrétt.
Voru þau vel á sig komin, en ærin
var farin að leggja af, sem von
var, þar sem tveir dilkar gengu
undir henni.
Þar sem landgott er, hafa sumir
látið féð liggja úti, nú að undan-
förnu. Sums staðar sést nýgræð-
ingur skjóta upp kollinum og víðir
er að lifna.
Safnað til hljóðfæra-
kaupa
Saurbæ 26. fehrúar.
í gærkvöldi var dansleikur að Sól
garði, er til var stofnað af nokkr-
um konum, sem tókust á hendur
að útvega hljóðfæri í hið nýja fé-
lagsheimili, og er þetta í annað
skipti, sem haldin er samkoma til
að afla fjár i því skyni. Hljóðfær-
ið er væntanlegt í næsta mánuði
og hafði verið safnað til þess 11
þús. kr. áður en þessi samkoma
var haldin, og mun drjúgum hafa
bætzt við þann sjóð á þessari sam-
komu, en hljóðfærið mun kosta
um 20 þús. kr., og væri vel þegið
ef einhverjir hefðu áhuga á að
leggja þessu máli lið. Eigendui fé-
lagsheimilisins hafa lofað tillagi
til kaupa á hljóðfærinu, og er máli
þessu vel á veg komið og þar með
horfur á að möguleikar verði til
tónlistarstarfsemi í félagsheimil-
inu framvegis.
Veðurblíða er nú mikil á hv.erj-
um degi, alautt á láglendi og má
víða sjá nýgræðing í dældum og
lautum, enda er þar klakalaus
jörð. Nota menn nú tímann til að
flytja mykju á tún og stinga út úr
fjárhúsum. Sumir hafa tekið til
við byggingar, þar sem frá var
horfið í haust.
22. febrúar var í Sólgarði spiluð
í annað sinn framsóknarvist. —
Mættu um 130 manns og spilað
var á 30 borðum af miklu fjöri. —
Þorleifur Þorleifsson frá Akureyri
stjórnaði. — Að vistinni lokinni
voru verðlaun veitt, kaffi drukkið
og dansað. — Nokkrir spiluðu
bridge, enda hefur það mikið ver-
ið spilað hér í vetur.
Framsóknarvístiii í
sýslunni
Á laugardagskvöidið var fyrsta
umferð spiluð að Melum í Hörg-
árdal. Var aðsókn góð og tók um
100 manns þátt í spilunum. —
Stjórnandi var Einar Sigfússon í
Staðartungu. Á eftir var dansað
fram undir morgun.
Tvær umferðir eru búnar á
Svalbarðseyri. Þar spila rúmlega
70 manns. Stjórnandi er Valdimar
Kristjánsson, oddviti Að vistinni
lokinni hefur verið dansað fram
eftir nóttu.
í Hrísey var spilað á sunnudag-
inn við allgóða aðsókn. Stjórnandi
var Sig. Brynjólfssom.
Engin löndun á
þessu ári
Ólafsfirði 28. febrúar.
Tíðin er einmunagóð og snjólít-
ið í byggð. Beitarjörð er góð. í
nótt gránaði i fjöll. Þrir til fjórir
trillubátar hafa róið af og til en
aflað fremur lítið, mest 3 þúsund
pund.
Enginn togari hefur landað hér
á þessu ári, en von um að Norð-
lendingur komi bráðlega með fisk.
Atvinna er lítil.
Samtímaskákir í
Húsavík
Húsavík 28. febrúar.
Samtímaskák fór fram á föstu-
daginn. Friðrik Olafsson skák-
meistari tefldi á 57 borðum. Vann
hann 50 skákir, gerði 4 jafntefli
og tapaði 3. Þeir, sem skákirnar
unnu voru: Njáll Friðbjarnarson,
Sandi, Albert Jóhannesson, verk-
stjóri, Húsavík, og Sigurður Hall-
marsson, kennari, Húsavík. Taflið
fór fram í samkomuhúsinu og var
þar fjölmenni saman komið og
ánægjulegt að vera.
Á laugardaginn tefldi Friðrik
við drengi á 40 borðum. Vann
hann allar skákirnar, nema eina
er varð jafntefli. Var það Jón
Árnason, 8 ára piltur, er náði þess-
um árangri.
Veiðir silung í heiða-
vatni
Fosshóll 28. febrúar.
Sigurður á Fosshóli skrapp í
veiðiferð suður á heiði fyrir helg-
ina. Færi var gott fyrir jeppa og
tók ferðin aðeins klukkustund suð-
ur að Kálfborgarárvatni, og er þó
25 km. vegalengd.
Veiðin var ekki mikil, en þó
veiddust 17 silungar.
Fljótsheiðin er auðfarin utan
vegar, svo sem sjá má af því, að
Bárðdælingar fóru þvert yfir
heiðina, nokkuð framarlega, er
þeir brugðu sér til Mývatnssveitar
á dögunum, til að sjá sjónleikinn
Upp við fossa, sem leikinn var að
Skjólbrekku.
Ungmennafélagið Gaman og al-
vara í Kinn lék á konudaginn
sjónleikinn Hver er faðirinn, og
þótti vel til fundið.
I haust var óvenjulega vænni
kind slátrað að Svartárkoti í Bárð-
ardal. Var það geld ær, eign Harð-
ar Tryggvasonar bónda þar.
Vigtaði kroppurinn 94 pund,
mörinn 23 pund og gæran 20
pund. Kjötið var reykt, .og er talið
að þessi ær hafi „lagt sig“ á 1500
krónur, eða þvi sem næst.
Rætt um skjólbelti
Á síðasta bændaklúbbsfundi,
sem haldinn var að Hótel KEA á
rnánudaginn, var rætt um ræktun
skjólbelta. Framsögu höfðu, Gunn-
ar Kristjánsson á Dagverðareyri
og Ármann Dalmannsson, Akur-
eyri.
Ræður fluttu, auk frummæl-
enda: Olafur Jónsson, Jónas Krist-
jánsson, Guðmundur Sigurgeirs-
son, Kristinn Sigmundsson, Björn
Jóhannsson og Stefán Stefánsson.
Ur þriðja þætti
Eún»ngarnir, sem voru fornir og skrautlegir, settu sérstakan svip á Menntaskólaleikinn. —
G. H.
Ánamaðkar verðmæt útflutnings\ ara!