Dagur - 30.05.1956, Síða 6
6
D A G U R
Miðvikudaginn 30. maí 1956
17. júní - 1956 - 17. júní
ÞJ ÓÐHÁTÍÐARNEFND AKUREYRAR biður
borgara bæjarins og félög að athuga eftirfarandi atriði
og leysa úr þeim eftir beztu getu:
1. Taka þátt í skrúðgöngunni almennt með félags-
fánum og þjóðfánanum og eru börn cinnig beðin
að fjölmenna með litlu fánana sína.
2. Hreinsa lóðir og prýða hús sín eftir beztu getu,
og hafa fánastengur og þjóðfána í lagi.
3. Veita þjóðhátíðarnefndinni þá hjálp, sem æskt
kynni að verða eftir.
Að gefnu tilefni óskar nefndin eftir að eigi verði
seld hér í bænum neins konar merki þennan dag, þar
sem öll hátíðahöldin verða ókeypis, eins og vant er.
Hjálpumst öll að, að gera hátíðahöldin sem allra
virðulegust.
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND AKUREYRAR.
BÆNDUR!
Grasfræið er komið. Pantana sé vitjað fyrir
10. júní, annars selt öðrum.
Kaupfélag Eyfirðinga
Söngmót
Þriðja söngmót kirkjukóranna í Suður-Þingeyjarsýslu
verður að Skjólbrekku í Mývatnssveit sunnudaginn 10.
júní. Sjö kirkjukórar syngja og um 200 manna bland-
aður kór. — Söngmótið hefst kl. 15,30 (3,30 e. h.).
STJÓRN K.S.S.Þ.
Hefi opnað
fatahreinsun og gufupressun
í Geislagötu 3 (yfir BSA). — Legg áherzlu á vandaða
vinnu og fljóta afgreiðslu.
EFNALAUGIN, sími 1843.
Guðm. H. Arnórsson.
Ny sending!
SUMARKÁPUR
POPLINKÁPUR
DRAGTIR
KJÓLAR
Tekið upp í dag.
MARKAÐURINN
Akureyri. — Sími 1261.
N. L. F. A.
HEILHVEITI
fínt og gróft
BANKABYGG
Sax. HAFRAR
HRÍSGRJÓN, ófægð
FJLLAGRÖS
HUNANG
ÞURRGER
EPLASYRÓP
SANA SÓL
LAUKTÖFLUR
LAUIvBELGIR
O. M. M. FL.
VÖRUHÚSIÐ H.F.
KAFFISTELL
12 manna, frá kr. 310.00
Hraðsuðukatlar
verð kr. 170.00 og
kr. 215.00.
VÖRUHÚSH) H.F.
Cöngustafir 3 teg.
Pípuhreinsarar 3 teg.
Ferðatöskur 3 teg.
VÖRUHÚSIÐ H.F.
KARLMENN!
ódýrustu rakblöðin
fást í
VÖRUHÚSINU H.F.
Gullhringur
fundinn, framan við Hótel
KEA.
Uppl. á afgr. Dags.
Til sölu
50 lítra rafþvottapottur,
ódýr í Munkaþverárstræti
38, neðri hæð.
ATVINNA!
Vanur flatningmaður ósk-
ast til Grímseyjar í ákvæðis-
vinnu við fiskaðgerð í sum-
ar. — Upplýsingar gefur
Björn Magnússon,
Grímsey.
Önnumst viðgerðir á
alls konar raftækjum.
ÞÓRSHAMAR H.F.
Verkstæðissími 1353.
íbúð til sölu
3ja herbergja íbúð með
eldhúsi, baði, veranda, 2
steinskúrum og kjallara, er
til sölu. — Upplýsingar í
Brekkugötu 19, kl. 5—1.
„VOTTADUFTIÐ
geysir
gefur beztu raun!
Reynið nýja Geyst!
UTANKJÖRSTAÐAR-
atkvæðagreiðsla
vegna alþingiskosninga 24. júní næstkomandi hófst á
skrifstofu minni þriðjudaginn 29. þ. m. Kosning fer
fram jafnan á skrifstofutíma og auk þess á virkum dög-
um öll kvöld kl. 20.30—22.00, nema á laugardögum kl.
17—19.00,og á sunnudögum kl. 13.00—15.00.:
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar,
27. maí 1956.
Hafið þér nokkurn líma reynt að enda góða máltið
með nokkrum ostbitum? Ostur er ekki aðeins cvo
Ijúffengur, að matmenn taka hann fram fyrir aðra
tyflirétti, heldur er hollusta hans mjög mikil Seensku
heilbrigðisyfirvöldin hafa t.d gefið bau ráð i barátf*
unni gegn tannsjúkdómum, að gott sé að ..cnda
máltið með osti. sykuriausu brauði og smjöri
• tdfíð ostinn atdrei vanta á matborðiðf -
AFURÐASALAN
Aðalf undur
Byggingameistarafélag Akurevrar
heldur aðalfund sinn að Hótel KEA (Rotarysal) föstud.
1. júní kl. 8.30 e. h.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.