Dagur - 20.03.1957, Qupperneq 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 20. marz 1957
- ÍÞRÓTTIR
(Framhald af 4. síðu.)
Síðan lagðí Bragi af stað og
hefur hann áreiðanlega haft gott
af dvöl sinni í Svíþjóð í vetur. —
Hann er mjög öruggur, og vaxandi
svigmaður.
Fieiri voru keppendur í A-fl.
ekki, og eru þeir faerri nú, en ver-
ið hefur undanfarna vetur.
Þess vegna verða allir svig-
menn okkar að æfa vel í þennan
eina mánuð, sem eftir er til ís-
landsmótsins, sem fer fram hér um
páskana, því ekki þýðir að senda
minna en 10 menn í slika keppni,
sem svigkeppni Islandsmótsins er
orðin, þar sem ekkert ræður úrslit-
um annað en hraðinn, og þeir
standa bezt að vígi, sem flesta
keppendur senda til leiks.
Það er þvi slæmt að skíðamenn
okkar skuli ekki hafa aðstöðu til
æfinga á kvöldin, í upplýstri
braut, eins og Rej'kvíkingar.
Helztu úrslit mótsins urðu þessi:
A flokkur:
1. Hjálmar Stefánss., KA, 95.3 sek
2. Birgir Sigurðss., Þór, 100.5 sek.
3. Bragi Hjartars., Þór, 100.6 sek.
Braut A-fl. var um 300 m löng,
roeð 52 hliðum.
B flokkur:
1. Kiistinn Steinss., Þór, 96.5 sek.
2. Páll Stefánsson, Þór, 96.7 sek.
3. Reynir Pálmas., KA, 100.0 sek.
Keppni var hörð í B-fl. og sigr-
aði Kristinn á því hve öruggur
hann var. Beztum brautartima náði
Reynir Pálmason (45.2 sek), en
hann fór út úr brautinni í fyrri
ferð, og tapaði við það mörgum
sek. Hann er mjög efnilegur svig-
maður, en vant3r öryggi enn þá.
Eg spái þvi, að hann eigi eftir að
ná langt ef hann æfir vel. — Braut
B-fl. var um 250 m löng með 46
hliðum.
C flokkur:
1. Viðar Garðarss., KA, 77.4 sek.
2. Grétar Ingvarss., GA, 87.8 sek.
3 Hörður Sverriss., KA, 89.9 sek.
Kepþendur voru 10. Viðar Garð
OG ÚTILÍF
arsson er efnilegur svigmaður og
öruggur. Beztum brautartima í
íyrri- ferð (39.S sek.) náði Grétar,
og er þar nýr maður á ferðinni,
sefh vantar enn öryggi. — Brautin
var um 200 m löng, með 41 hliði.
Drertgir (eldri flokkur)
1 ívar Sigmundss., KA, 33.5 sek.
2 Vignir Kárason, KA, 34.5 sek.
3. Guðm. Kristjánss., KA, 35.7 sek
Þarna voru rnargir efnilegir
drengir á ferðinni, sem þurfa að
fá góða tilsögn. Ættu þeir full-
crðnu að taka þá með þegar þeir
æfa sig, þeir hafa gott af að reyna
sig í lengri brautum, og geta þá
líka lært eitthvað af þeim.
Drenéir (yngri flokkur)
1 Magnús Ingólfss., KA, 39.2 sek.
2. Þórarinn Jónss., KA, 45.6 sek.
3. Jóh. Karl Sigurðss., KA, 52.3
4. Sig. Haraldsson, KA, 5S.5 sek.
Fleiri kepptu ekki í þessum
flokki. En áre’ðanlegt er, að marg-
ir drengir sitja heima, sim vel
gætu verið með. Þeir verða von-
ándi með næst.
Eitt vantaði í þetta mót, en það
er kvenfólkið. Nú er svo komið,
að engin stúlka tekur þátt í mót-
um hér, og er það leiðinlegt til
afspurnar.
Iþróttafélagið Þór sá um mótið,
og fór það vel fram. — Mótsstjóri
var Ásgrímur Stefánsson, og lagði
hann einnig brautirnar.
----o-——
Um næstu helgi fer fram stökk-
mót í Miðhúsaklöppum, ef veður
helzt, og ættu menn ekki að láta
það fram hjá sér fara. Það er orð-
ið nokkuð langt síðan Akureyring-
ar hafa séð skíðastökk. — Einnig
verður keppt í svigi, og fer sú
keppni fram fyrir neðan Fálkafell.
Meðal keppenda verður Eysteinn
Þórðarson frá Reykjavík og senni-
lega koma fleiri keppendur utan
af landi. — Sjá nánar á öðrum
stað í blaðinu. — S. O.
Svigkeppni í brekkunum neðaii við Fáikafell
Eysteinn Þórðarson, skíðakappi, meðal keppenda
Um næstu helgi fer fram skíða-
stökkkeppni í stökkbrautinni við
Miðhúsaklappir. Kcp]>cndur verða
frá Akureyri, Reykjavík og senni-
lega frá Siglufirði, Ólafsfirði og
Dalvík.
Skíðastökkið hcfst á laugardag-
inn kl. 3 e. h., og mun Islandsmeist-
arinn í þeirri grein, Eysteinn Þórð-
arson, Rvík, verða meðal keppenda.
Keppt verður í eldri og yngri ílokk-
um.
Á sunnudag fer fram kepjroi í
stiikki kl. 2 við Miðhúsaklappir, og
kl. 4 verður keppt í svigi sunnan
og ofan við Miðhúsaklappir, neðan
við Fálkafell. Þar verður einnig Is-
landsmeistarinn, Eysteinn Þórðar-
son, meðal kcppcnda, en hann er
nú viðurkenndur sem fyrstu deild-
ar svigmaður á heimsmælikvarða.
Eysteinn hefur undanfarnar vikttr
ferðazt suður um Evrópu ásamt
Hjálmari Stefánssyni, Akureyri, sem
einnig cr meðal keppenda, og hafa
þeir kep]H á mörgum stórmótum í
Þýzkalandi, Sviss, Italíu og svo síð-
ast á Holmenkollenmótinu í Nor-
egi. Á þessu móti mætast einhverjir
beztu svigmenn landsins.
Ferðir verða írá Ferðaskrifstof-
unni, og komast bílar mjiig nálægt
stökkbrautinni með því að fara
veginn norðan við Eund og suður
með Lundartúninu að vestan (en
þessum vcgi er haldið opnum vegna
keyrslu á öskuhaugana).
Fólk er hvatt til að nota tækifæri
þetta til að sjá skemmtilega keppni
og nota skíðasnjóinn meðan færi
gefst, og í leiðinni er hægt að ganga
hina tilskildu 4 km í lándsgöng-
unni.
Lítil íhúð
til leigú í miðbænum. —
Upplýsingar í síma 1423.
Sauma\éi til sölu
Fótstigin saumavél er til
SÖlll.
Afgr. vísar á.
ösníæour *
FLÓRU GERIÐ
11.50 kílóið
Fæst í 1 kg. og \'2 kg.
pokum.
Sparið peuingana.
Nýlenduvörudelidin
o<i útibúin.
Til
fermingargjafa:
Gjafakassar,
Delavell,
Krossar,
gylltir og silfraðir.
Armbönd
íálsfestar
Eyrnalokkar
Hringar
Töskur og veski
margar gerðir og
margir litir.
Slæður
Hanzkar
Náttföt
Náttkjólar
Undirföt
Ilmvötn
Steinkvötn
Vasaklutar,
hvítir.
r
Verzlunin Ásbyrgi
Skipagötu 2 — Sími 1555
r
Eigum enn }iá flestar stærðir af gólfteppuni
með garnla, lága verðinu.
Kuldðúlpur
barna, unglinga, kven- og
karlmanna.
Yfribyrði
frá Vinnufatagerð, Skjólfatagerð
og Fram.
VEFNAÐARVÖRUDEILD
Drengjapeysur nýjar gerðir nr. 0—16. Verzlunin DRÍFA Shni 1521.
Nú fara allar dönuir í skíðagönguna. Skíðapeysur og hettupeysur í fjölbreyttu úrvali. Verzlunin DRÍFA Sími 1521.
Norðau stu r-Crænlan d
VERÐOL
Nýlenduvörudelidin
og útibúin
IÐJU-klúbburinn
verður u. k. sunnudagskvöld
kl. 8.30 í Alþýðuhúsinu.
Spiluð verður félagsvisl.
Góð verðlaun.
Dans á eftir.
Ungfrú Laufey Pálmadótlir
syngur með hljómsveitinni.
STJÓRNIN.
Bráðlega kemur út hjá sviss-
nesku forlagi vönduð bók um
Norðaustur-Grænland. Myndir
eru teknar af Ernst Hofer, en
textinn, sem verður á ensku,
þýzku og frönsku, er skrifaður af
dr. Lauge Koch og dr. Bútler. —
Bókin á að heita: Arctic Riviera.
N ýlenduvörudeildin
og útibúin.