Dagur - 20.03.1957, Síða 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 20. marz 1857
„Kiðrnorkð og kvenhyiSi" sýnd
é Kúsavik við góða aðsókn
4SÖ marais háfá lokið Landsgöngramf
Fréttaritari Dags í Húsavík'
skýrði blaðinu frá því á mánu-
daginn, að leikrit Agnars Þórðar-
sonar, Kjarnorka og kvenhyili,
hefði verið frumsýnt þar á þriðju
daginn var undir leikstjórn Sig-
urðar Hailmarssonar kennara. —
Hefur ieikurinn verið sýndur
þrisvar sinnum við góða aðsókn
og ágætar undirtektir. Með aðal-
hlutverkin fara Páll Þór Krist-
insson bæjarstjóri, ungfrú Stein-
unn Valdimarsdóttir, frú Kolbrún
Kristjánsdóttir, Njáll Bjarnason
kennari og Bjarni Sigurjónsson.
Ingvar Þorvaidsson málaði leik-
tjöldin.
Leikur Njáis Bjarnasonar í
gerfi Sigmundar bónda vekur
sérstaka athygli leikhúsgesta,
einkum þeirra ,er sáu leik þenn-
an í Reykjavík hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Á Leikfélag Húsa-
víkur þakkir skyldar fyrir góða
skemmtun á viðburðasnauðasta
árstímanum.
Sökum ófærðar hefur leikurinn
ekki verið sóttur úr sveitunum.
—o—
Fréttaritarinn sagði ennfremur
að fannfergi væri nú mikið eystra
og snjóbílar einir væru á íerð-
inni, stundum 3 og væru þeir í
stöðugum flutriingum dag og nótt
en hefðu þó engan veginn undan.
Um 480 manns hafa lokið
Landsgöngunni. Elztur þeirra er
gengið hafa, er Valdimar Jónsson,
smiður, 81 árs. En yngstur er
Sigurgeir Aðalgeirsson, 3 ára.
Hrognkelsaveiði er hafin og er
aflinn frystur fyrir Reykjavíkur-
markað.
Námskeið fyrir
bifreiðarstjóra
Námskeið fyrir bifreiðastjóra
til undirbúnings meira prófs,
stendur nú yfir á Akureyri. Hófst
það í síðastliðinni viku og mun
standa fram undir páska.
Nemendur eru 50 og víðs vegar
að af Norðurlandi. Snæbjörn
Þorleifsson bifreiðaeftirlitsmaður
stjórnar námskeiðinu og kenna
auk hans: Gísli Ólafsson, vakt-
stjóri í lögreglu Akureyrar og
Vilhjálmur Jónsson, vélaeftirlits-
maður. Auk þess verða fluttir
fyrirlestrar og sýndar fræðslu-
myndir.
AUGLÝSIÐ í DEGI
Samkvæmt upplýsingum Skíða-
sambandsins í gær, hafa 2400
manns lokið landsgöngunni á
Akureyri. Elztur göngumanna er
Páll Jónatansson, Sólvöllum 8.
Hann er 84 ára. Þrír þriggja ára
snáðar hafa einnig lokið göngunni
cg gekk þeirra fyrsur Ólafur Búi
Gunnlaugsson. Elzta konan, sem
enn hefur þreytt gönguna hér á
Akureyri, er Jónasína Helgadótt-
ir írá Hrcarsstöðum, og er hún 72
ára.
Þrjár göngubrautia eru nú hér
í bænum, en elzta brautin er
Jang skemmtilegust og vilja flest-
ir ganga hana.
Skólafóikið á Akureyri er mjcg
áhugasamt og hafa nokkrir ein-
stakir bekkir lokið göngunni með
100% þátttöku.
íslenzkur skiðamaður
Valdimar Örnóifsson er nýorð-
inn tvíkeppnismeistari stúdenta í
Frakklandi í svigi og bruni. Segir
í frönskum blöðum, að Valdimar
hafi alla góða kosti skíðamanns,
hörku hugrekki og öryggi.
Frá miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins. (Ljósmynd: Sveinn Sæmundsson.)
Prófasutr og hreppstj. hefja gönguna við Iljalteyri. (Ljósm.: T. H.).
Aðalfundi miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins er nýlega lokið í
Reykjavík. Hermann Jónasson
forsætisráðherra, formaður fiokks
ins, og Eysteinn Jónsson fjár-
málaráðherra, ritari, fluttu yfir-
litsræður um stjórnmálaviðhorfið.
Sigurjón Guðmundsson gjaldkeri
las upp og skýrði reikninga og
Óiafur Jóhanness. framkvæmda-
stjóri skipulagsnefndar flokksins
flutíi skýrslu um störf og skipu-
lag. Miklar og fróðlegar umræður
urðu á fundinum og stjórnmála-
yfirlýsing samþykkt. Verður hún!
síðar birt í meginatriðum. Stjórn
í'ramsóknarflokksins var öll end-
urkjörin. En hana skipa: Her-
mann Jónasson formaður, Ey-
steinn Jónsson ritari og Sigurjcn
Guðmundsson gjaldkeri.
Varamenn í sömu ráð: Stein-
grímur Steinþórsson, Guðbrand-
ur Magnússon og Guðm. Kr.
Guðmundsson.
Endurskoðendur reikninga voru
kosnir Vigfús Guðmundsson og
Plannes Pálsson.
t blaðstjórn eru: Hermann Jón-
asson, Eysteinn Jónsson, Hilmar
Stefánsson, Erlendur Einarsson,
Guðbrandur Magnússon, Ólafur
Jóhannesson, Sigurjón Guð-
mundsson, Vilhjáimur Þór og
Rannveig Þorsteinsdóttir.
Fjörutíu ára afmæli Tímans var
minnst með veglegu hófi að Hótel
Borg á mánudagskvöldið. Her-
mann Jónasson forsætisráðherra
stjórnaði því.
Þar fluttu ræður: Ráðherrar
flokksins, allir núlifandi ritstjórar
blaðsins og Steingrímur Stein-
þórsson.
Jón Arnþórsson flutti
heillaóskir ungra Framsóknar-
manna. Þorsteinn Hannesson
óperusöngvari skemmti með
söng og Hjálmar Gíslason með
gamanvísum. Fjöldi heillaskeyta
bárust frá einstaklingum og fé-
Íagasamtökum. Hófið sátu nokk-
uð á þriðja hundrað manns og
var hið ánægjulegasta.
Kjjörbáð KEA opin á
simraidögum
Sú nýbreytni er upp tekin í
Kjörbúð KEA að seija mjólk,
rjóma, skyr og brauð á sunnu-
dögum kl. 10—12 f. h. Er þetta
gert vegna þrengsla í aðalmjólk-
urbúðinni. Afgreiðir fólk sig
sjálft eins og aðra daga, en aðrar
vörur eru að sjáifsögðu ekki
seldar.
Þessi aukna þjónusta er til
þæginda fyrir mjög marga bæj-
arbúa.
Aðild verkalýðsíélagaraia til að aoðveláa
framkvæmdina
Um húsbyggingar
Húsnæðismálastjórn hefur
ákveðið að beita sér fyrir þarfri
fræðslu um byggingamál. Hefur
útvarpið failist á fiutning
fræðsluerinda um tæknileg og al-
menn efni sem þátt í þessari
fræðslustarfsemi. Verður þessi
þáttur fiuttur hvern þriðjudag
kl. 18.30 í vor og sumar.
Fyrirspurnum hlustenda verð-
ur svarað í fjórða hverjum tíma.
Er ekki að efa að þáttum þessum
verði veitt verðug athygii af
hinum fjöimörgu er eiga eftir að
eignast þak yfir höfuðiið eða eru
þegar í þeirri eldsskírn að
fcyggja.
Nýlega óskaði Alþýðusamband
ísiands eftir því við verkalýðsíé-
lögin um land allt, að þau til-
nefndu fulltrúa af sinni hálíu til
að starfa að verðlagseftirliti í
samvinnu við hið opinbera verð-
lagseftirlit ,en í Icgum frá 22. des.
sl., er svo ákveðið, að verðlags-
eftrlit ríkisins leiti samvinnu við
verklýðsfélög og önnur hsgs-
munasamtök neytenda.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna
á Akureyri ræddi mál þetta á
fundi 6. þ. m. og samþykkti að
fela starfsmanni félaganna ásamt
tveimur konum, sem stjóm Full-
trúaráðsins fengi til staría með
honum að þessum málum, að
koma fram sem íulltrúar alha
verkalýðsfélagarma S bsenum á
þessum vettvangi.
Eftirlitsnefnd þessi, eða sam-
starfsnefnd verðlagseftirlitsins, er
nú fullskipuð, og eiga sæti í
henni:
Jón Ingimarsson, Byggðaveg
154. Sími 1544.
Guðlaug Jónsdóttir, Glerárgötu
18. Sími 2077.
Margrét Magnúsdóttir, Hrís-
eyjargötu 8. Sími 1794.
Gert er ráð íyrir, að fulltrúar
þessir verði m. a. eins konar
tengiliður milli meðlima verka-
lýðsfélaganna cg verðlagseftir-
litsins, komi umkvörtunum á
framfæri og gefi upplýsingar, ef-
tir því sem unnt er á hverjum
tíma.
(Fréttatilkynning írá Fulltrúa-
ráði verkalýðsíélaganna.)
íslendingar á Ferguson-namskeiði
Fararstjóri er Hjörtur Eldjárn
Dráttarvélar hi. gengust fyrir
því að 25 bændum cg búvéla-
fræðingum var gei'inn kostur á
véianámskeiöi, þar sem sérstak-
lega er kennd meðferð Ferguson-
dráttarvéla, viðhald og viðgerðir.
Námskelðið verður haldið við
Coventry í Englandi á fornfræg-
um. sögustað, Stonleigh Abbey.
Er þetta full nauðsyn, þar sem
þessi dráttarválategund er mjög
útbreidd hér á landi og í miklu
áliti.
Hjörtur Eldjárn, bóndi að Tjörn
í Svarfaðardal, er íararstjóri ís-
lendinganna, en þátttakendur eru
hvaðanæfa af landinu. Er þetta
stærsti hópur, sem farið hefur
slíkra erinda til útlanda og vænta
menn mikils árangurs af för
þessari.