Dagur - 08.05.1957, Page 7
Miðvikudaginn 8. maí 1957
D AG U R
7
Vorið kallar á vinnufúsar hendur
(Framhald af 8. síðu.)
Tilbúinn áburður.
Nú er farið að nota mikið
magn tilbúins áburðar. Ohætt er
að segja, að eftir að komin eru
mánaðamót apríl—maí, sé óhætt
að fara að bera hann á. Komið
getur fyrir að köfnunarefnis-
áburður glatist að einhverju leyti
ef mikill snjór og síðan ör leysing
kemur, eftir að honum er dreift á
túnin. En slíkt er mjög sjaldgæft.
Það er algengur misskilningur að
steinefnaáburðinn þurfi að bera
snemma á. Sá steinefnaáburður,
sem nú flytzt til landsins, er ekki
svo torleýátúr,' að þess vegna
þurfi nauðsynlega að bera hann
á miklu fyrr en Kjarna hinn ís-
lenzka. Hagkvæmt virðist vera
að bera allan tilbúinn áburð á
samtímis og verksparnaður að
blanda honum saman.
Þótt tíðarfarið ráði mestu um
sprettuna, fyrst á vorin og tilbú-
inn áburður komi ekki að notum
á meðan vorkuldar ráða, sprettur
venjulega fyrst þar, sem fyrst er
borið á.
Að lengja heyskapartímann.
Sumir aðhyllast þá stefnu, að
bera á suma hluta túnsins mjög
seint til að ráða. betyr við hey-
skapinn. Betra ráð mun það vera
að alfriða þann hluta túnanna,
sem ekki er brýn nauðsyn að
beita á vorin. Þar er hægt að slá
snemma, en síðan aðra hluta
túnsins, sem notaðir hafa verið
til beitar lambfé og síðar e. t. v.
kúnum. Nauðsynlegt er að bú-
fénaður hafi aðgang að óræktuðu
landi með túnbeitinni, meðan
gróður er kraftmestur.
Kartöflurnar.
Það er ekki áríðandi að setja
kartöflurnar mjög snemma niðui'.
En nauðsynlegt er að spírurnar
séu sterkar og vel vajjcnar. Kar-
töflur vaxa ekki í moldinni, fyrr
en klaki er úr jörð og gróður-
moldin farin að hlýna. En úr því
að kominn er 20. maí ættu menn
að setja niður, ef skilyrði eru til
þess. Algengt er að kartöflugras-
ið sé 3—4 vikur að koma upp, en
getur líka koimð upp eftir fáa
daga, ef hlýtt er í veðri.
Það er mitt álit ,að ekki eigi
að setja í hryggi, svo sem margir
gera. Illgresisherfið kemur að
góðum notum þegar slétt er sett
og er hinn hagkvæmasti arfa-
eyðir. Einnig álít eg að hafa beri
kartöflugarðana sem lengst á
sama stað, sé garðstæðið gott á
annað borð, í stað þess að þjóta
með þá í nýtt land á eins eða
tveggja ára fresti. Með því að
hröklast með garðana stað úr
stað, eru bændur að flýja arfann.
En sá flótti á ekkert skylt við
sáðskiptarækt, eins og sumir vilja
vera láta, og er hrein ómenning.
Það kemur aldrei nein festa í
ræktunina með því lagi og upp-
skeran verður ekki eins árviss,
þótt stundum geti vel tekizt.
Um eyðingu illgresis er það að
segja, að árlega koma á markað-
inn mörg Iyf til að eyða með ill-
gresi. En eg þekki ekkert betra
en tröllamjöl. Rannsóknir á slíku
liggja þó ekki ljóst fyrir, og er
því ekki hægt að fullyrða um
notagildi hinna nýju lyfja. En öll
eiga þau það sameiginlegt að
nota þarf þau áður en kartöflu-
grasið kemur upp.
Sinubrennsla er nauðsynleg á
graslendi. Hana þarf að fram-
kvæma snemma á vorin. Afrétt-
arlönd geta eyðilagst ef þau bít-
ast ekki á sumrin eða eru brennd
á vorin. Sér þess víða dæmi og er
óviðunandi.
Margt fleira þarf að gera á
vorin, svo sem hreinsa til um
hús og ræktarlönd og eigi má
gleynia að athuga framræsluna
og hreinsa skurði, þar sem hrun-
ið hefur í þá eða höft orðið eftir í
þeim. Skurðirnir eru orðnir það
miklar og dýrar framkvæmdir,
að miklu máli skiptir að þeir
notist til fulls.
Margt er enn ósagt frá ræðu
Ólafs Jónssonar, en hér verður
staðar numið.
Bændaklúbbsfundirnir eru góð-
ur búnaðarskóli fyrir eyfirzka
bændur, þá er notið geta. Mörg
fróðleg erindi hafa verið flutt og
jafnan miklar umræður á eftir.
Uppörfun í starfi og kynning
haldast þar í hendur og er þáttur
í menntun stéttarinnar.
KVÆÐí
um Freyvang, félagsheimili
Öngulsstaðahrepps.
Frcyvangur er fögur höll
fólkið, sem að gleður.
Bak við stcndur byggðin öll
bjartar vonir meður.
Hér má skoða voldugt verk
vegna saintakanna,
orðin fyrir áhrif sterk
allra svcitarmanna.
Ýmsa snilli eg sé hér
augum fyrir mínum,
mörg, er fögur merki ber
meistaranum sínum.
Vandamál liér verða leyst,
vegna félagamia,
ckki lengur orðum treyst
óstarfhæfra manna.
Ein mér sýnist auðlegð hér
af, sem góðs má vona.
Þetta hópur allstór er
ungra dætra og sona.
Oska eg að yndisstund,
æfinlega finni
þeir, er sitja saman fund
síðar héma inni.
Fólkið hrífi fegurð þín,
félagshyggja bætist.
Eg þess bíð að óskin mín
á Freyvangi rætist.
ÓLAFUR PALSSON
frá Sörlastöðum.
Kaupakonu vantar
á sveitaheimili í Keldu
hveríi.
Afgr. vísar á.
O
Kjólar drottningarinnar
Nú í þessum mánuði kemur
Elísabet Englandsdrottning í op-
inbera heimsókn til Danmerkur
— en fyrir skömmu var hún í
heimsókn í Parísarborg og vakti
mikla hrifningu með framkomu
sinni — og klæðnaði.
Dönsk kona, sem búsett er í
London, skrifar nýlega blaði í
Kaupmannahöfn m. a. á þessa
leið:
„Englendingar eru mjög stoltir
yfir þeim sigrum, sem drottning
þeirra vann í París og með hví-
líkum yndisþokka hún kom fram
fyrir land sitt. Hluta af heiðrin-
um eiga tveir tízkuherrar, sem
gerðu kjólana hennar. Þeir heita
Hartnell og Ames.
Og hér hefur það vakið undr-
un, að drottningin skyldi við
ýmis tækifæri vera í þröngum
kjólum. Áður fyrr hefur hún
ætíð klæðzt víðum kjólum, hvort
sem þeir voru stuttir eða síðir.
Þar hafa áður ráðið hirðsiða-
prótókollarnir, en með þá í kjölt-
unni sitja nokkrar rosknar her-
togaynjur og segja til um klæðn-
að kvennanna í konungsfjölskyld
unni. Talið er, að Margrét prins-
essa, systir drottningar, hafi ár-
um saman barizt gegn þessari
kjólavídd, en litlu fengið áorkað
nema hvað hún hefur einstöku
sinnum fengið að vera í þröngum
kjólum í einkasamkvæmum og í
utanlandsferðum. Nú hafa þær
gömlu eitthvað slakað á reglun-
um, fyrst drottningin fékk leyfi
til þess að klæðast þröngum
kjólum í París, og Englendingar
vona, að hún fái líka að klæðast
slíkum kjólum í heimalandi sínu.
Smekkur Elísabetar drottning-
ar hefur breytzt mikið á undan-
förnum árum og áreiðanlega til
hins betra. Það er áætlað, að
kjólar hennar í París hafi kostað
á þriðju milljón króna, svo að
ekki er undarlegt, þó að hún hafi
virzt vera vel klædd. Þetta er
geysiupphæð, ekki sízt þegar
tekið er 'tillit til þess, að heim-
sóknin tók aðeins 3 daga, og hún
var aðeins einu sinni í hverjum
kjól. Þar að auki kemur það, að
ekki má selja það efni framar, er
drottningin hefur valið sér það í
dragt eða kjól. Englendingum
finnst þetta allt í lagi, ekkert sé
of dýrt eða of gott handa drottn-
ingunni, æðsta sendiherra þjóð-
arinnar.
Elísabet drottning er miklu
fallegri en myndir af henni gefa
til kynna, hörundið er mjög fall-
egt, augun blágrá, skýr og róleg,
og dökkbrúna hárið hennar lið-
ast ætíð í eðlilegum bylgjum.“
Og danska blaðið segir svo að
lokum, að danskar konur muni
áreiðanlega gefa því auga, hvort
drottningin klæðist víðum eða
þröngum kjólum í heimsókn
sinni til Friðriks konungs 9., en
á meðan á heimsókninni stendur
munu Danir ciga þess kost að sjá
hina tignu gesti í sjónvarpi.
9 ára stúlka
óskar eftir sumardvöl á
góðu sveitaheimili, liefur
* verið tvö sumur í sveit.
Uppl. í síma 1948, eltir
kl. 17 daglega.
I. O. O. F. Rb. 2 106588Vz
I. O. O. F. 1395108Ý2 — O
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju á sunnud. kemur. Minnzt
bindindismálanna og aldarminn-
ingu Sigurðar Eiríkssonar reglu-
boða. — P. S.
Hjálpræðisherinn. Miðvikudag
kl. 20.30: Kvöldvaka. Veitingar
— happdrætti. — Fimmtudag kl.
20.30: Kveðjusamkoma fyrir Of-
ursta Sannes. — Sunnudag kl.
10.30: Samkoma. Kl. 14: Sunnu-
dagaskóli. Kl. 20.30: Hjálpræðis-
samkoma. — Velkomin!
Náttúrulækningafélag
Akureyrar
Náttúrulækningafélag Akureyrar
hélt aðallund sinn 2. maí síðastl. að
Hótel KliA. l'ormaðúr skýrði lrá
störfum lélagsins sl. starfsár. Gjald-
keri las ujjp endurskoðaða reikn-
inga fyrir sl. ár.
Félagið gekkst fyrir kynningar-
kvöldi í nóv. sl., þar sein félags-
niönnuin og gestuni var veitt te og
ýniiss konar kalfibrauð úr nýniöl-
uðuni korntégunduin, og vakti
jietta óblandna ánægju allra, seni
þátt tóku í hóli þessu.
Félagið hefur nú starfrækt korn-
myllu í sl. 5 ár, j)ar sem malað hcf-
ur verið hvcitikorn, rúgur og bvgg,
og fer ney/la þessara mjöltegunda
stöðugt vaxandi. — Vöruhúsið h.f.
hefur séð um dreifingu á vörum
fyrir lélagsmenn. Brauðgerð Krist-
jáns Jónssonar fc Go. bakar nú
brauð og skonrok úr mjölinu ný-
möluðu, og hafa jjau líkað ljóm-
andi vel og eru seld hverjum, sem
liafa vill.
F’élagsmenn Náttúrulækningafé-
lagins eru nú 117. — Jón Kristjáns-
son, Spítalaveg 17, sími 1374, ann-
ast sölu á Heikuvernd, riti NLFÍ.
Páll Sigurgeirsson, Vöruhúsinu h.l'.,
sér um siilu á skuldabréjutn íyrir
Heilsuhælið í Hveragerði.
Stjórn félagsins skipa nú: Jón
Kristjánsson, formaður, Ragnh. O.
Björnsson, ritari, Páll Sigurgeirsson,
gjaldkeri. Meðstjórnendur: Margrét
Antonsdóttir og Jónína Steinjjórs-
dóttir.
- ínnlcndur flugfloti
(Framhald af 1. bls.).
þess hefur byggzt upp dálítið
fjármagn, sem nú kemur að liði
við uppbyggingu flugflotans.
Þetta sýnir, að jjannig verður
að búa að þessum málum, að
verulegt fjármagn geti safnast
fyrir hjá þeim aðilum, sem sjá
um þessa starfrækslu, og það er
full ástæða til þess að segja það
hér í leiðinni, að það sama verð-
ur að eiga sér stað um skipin,
enda gildir nú sama regla um af-
skriftir af skipum og flugvélum."
Hrímfaxi geystist í hlað hér
norður á Akureyri sl. sunnudag.
Hvergi var frá þessu sagt, en þó
var fjöldi manns viðstaddur. Nær
200 bílar þöktu vegi og bílastæði,
og má af þessu sjá áhuga borg-
aranpa fyrir flugmálum. Yfir-
menn flugmála komu með vélinni
að sunnan og hefði verið vel til
falljð að nota tækifærið til við-
hafnar í höfuðstað Norðurlands.
Varð þetta þegjandi samkoma, en
faknaðarstund þó vegna hins
mikla áfanga í sögu flugmálanna
á íslandi.
Fermingarböm í Glæsibæ
sunnudaginn 12. maí kl. 2 e. h.:
Guðlaug Björg Sigfúsdóttir, Ein-
arsstöðum, Oddur Gunnarsson,
Dagverðareyri, Sæmundur Frið-
finnsson, Ytri-Brennihóli.
Æskulýðssamkoma n.k. sunnu-
dag kl. 8.30 að Sjónarhæð. Allt
ungt fólk velkomið. — Sæmund-
ur G. Jóhannesson
Hjónacfni. Opinberað hafa trú-
lofun sína ungfrú Alda Guð-
mundsdóttir, verzlunarmær, og
Sigtryggur Sigtryggsson, starfs-
maður í Smjörlíkisgerð KEA.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Val-
borg Svavarsdóttir, Kaupvangs-
stræti 23, Akureyri, og Haukur
Valtýsson, húsasmiður, Munka-
þverárstræti 1, Akureyri.
Hjúskapur. Þann 25. apríl voru
gefin saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju. brúðhjónin ungfrú
Gerður Kristjánsdóttir, Fellshlíð,
Eyjafirði, og Jón Sigurðsson frá
Arnarvatni, Skútustaðahreppi. —
Heimili þeirra verður fyrst um
sinn að Arnarvatni.
GuIIna hliðið. Næstu sýningar
á fimmtudagskvöld og um næstu
helgi. — Búið er að sýna þetta
leikrit 11 sinnum við húsfylli og
ágætar viðtökur. Ovénjumargt
aðkomufólk hefur sótt sýning-
arnar. Gera má ráð fyrir að sýn-
ingum fari að ljúka. — Aðgöngu-
miðasími 1639.
Frá Kvenfélaginu Hlíf. Ósóttir
eru tveir vinningar í happdrætti
félagsins, sem dregið var í á
sumardaginn fyrsta, númer 353
og 124. Munanna má vitja til
Matthildar Stefánsd., Brekku-
götu 2, kl. 6—8 e. h.
K. A.-félagar'. Frjálsíþróttaæf-
ingar eru á hverju kvöldi kl. 7.39
á íjjróttavellinum. Innanfélags-
mót í kvöld, miðvikud., kl. 8. —
Keppt verður í 100 m. og 400 m.
hlaupi og langstökki.
Amlsbókasafnið. Allir, sem
haldið hafa bókum lengur en til-
skilinn útlánstíma (Víj mánuð),
skili þeim nú þegar, ella verða
þær sóttar á kostnað lántaka,
bókamóttaka alla virka daga kl.
4—7 til 14. maí.
Suiullaugin er opin almenningi
allan daginn.
Aðalfuntlur Róðrarkl. ÆFAK
verður haldinn miðvikudaginn 8.
maí kl. 8 í kapellunni. Venjuleg
aðalfundarstörf. Félagar, fjöl-
menni og mæti stundvíslega. —
Stjórnin.
Guðspekistúkan „Systkina-
bandið“. — Lokafundur verður
haldinn í kvöld (miðvikud.) kl.
8.30 á venjulegum stað.
Óskilamunir frá Skíðalands-
mótinu eru geymdir á Lögreglu-
varðstofunni.
Litla stúlkan. Ur Þingvalla-
stræti 44 kr. 300.00. — Kvennad.
Slysavarnafél. Ak kr. 2000.00.
Til Fjórðungssjúkrahússins. —
Gjöf frá S. V. og I. E. kr. 200.00.
— Gjöf frá N. N. kr. 200.00. —
Með þökkum móttekið. G. Karl
Pétursson.
Gjafir til Páhnholts. Frá A. J.
S. kr. 100.00. — Frá Sigríði
Árnad. kr. 100.00. — Beztu þakk-
ir. — Stjórnin.
Barnavagn til sölu
Vel með farinn bamavagn
til sölu. F.innig stór dúkku-
vagn í Gilsbakkavegi 15.