Dagur - 13.05.1959, Side 1

Dagur - 13.05.1959, Side 1
Fylgizt með því sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. DAGUR kemur næst út laugardag- inn 16. maí. MÉvSI JTta XLII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 13. maí 1959 25. tbl. Haukur Snorrason. Fjölmennur ársfundur Mjólkursamlags K.E.A. 6. maí Mikið um íþróttir um næstu helgi UM NÆSTU helgi verður mikið að gera í hciini íþróttanna hér í bæmun. Stórir íþróttaflokkar ór Armanni og i. R. úr Reykjavík koma hingað og keppa og sýna íþróttir. Armann kemur með hand- knattleiks- og körfuknattleiksflokka og I. R. kemur með sýningarflokka karla og kvenna í fimleikum, og Minningasjóður um Hauk Snorrason ritstjóra rnunu karlarnir m. a. sýna áhalda- fimleika á tvíslá og svifrá, en langt mun síðan slíkar íþróttir hafa vcrið sýndar hér. Ef veður leyfir munu sýningar fara fram á íþróttavellin- um, en annars í íþróttahúsinu. Flokkar þessir korna hingað á vegum K. A. og munu keppa við lélagið í fjórum flokkum knattleika á íþróttávellinum. A annan í hvítasunnu verður og haldinn dansleikur að Hótel KEA á vegum framangreindra aðila. Nánar verður auglýst um fyrir- komulag keppni og sýninga þessara í götuauglýsingum. Endanlegt mjólkurverð varð kr. 3.48 Ársfundur Mjólkursamlags KEA var haldinn í Nýja-Bíó á Akureyri 6. maí sl. í fundarbyrjun voru mættir yfir 200 full- trúar af 257. Brynjólfur Sveinsson setti fundinn fyrir hönd kaupfélagsstjórnarinnar. Fundarstjóri var Garðar Halldórs- son og Jón Hjálmarsson til vara. Fundarritarar Aðalsteinn Jónsson og Stefán Halldórsson. í kjörbréfanefnd voru til- nefndir jieir Ingimundur Árnason, Ingimar Brynjólfsson og Sverrir Guðmundsson. Skýrsla injólkursamlagsstjóra. Jónas Kristjánsson flutti árs- skýrslu samlagsins. Innvegið mjólkurmagn um 12.849 millj. lítra með 3,597% fitu og var aukning frá fyrra ári mjög lítil, eða innan við 2%. Mjólkurverð til bænda. Framleiðendum voru greiddar í reikninga rúml. kr. 2.34 fyrir lítra mánaðarlega. Rekstursaf- gangur nægði til að greiða kr. 1.14 í uppbót á hvern mjólkur- lítra, eða samtals kr. 3.48,6 á 1. Nckkrir vinir og vandamenn HAUKS SNORRASONAR ritstjóra sem lézt þennan dag fyrir ári síðan, hafa ákveðið að stofna sjóð, er þeri nafn hans. Verði hann til styrktar ísl. blaðamönnum og í nán- um tengslum við Blaðamannafélag tslands. Framlag í sjóðinn mun jafnan þakksamlega þegið, cn það fé sem safnast fram til 15. JÚLf N.K. verður talið stofnfé hans. Eftir þann dag verður gengið fró stofnun' sjóðsins og honum settar reglur og stjórn. í»eim, sem vilja hciðra minningu Hauks Snorrasonar með því að leggja skerf til þessarar sjóðsstofnunar, skal hent á, að fram til 15. JÚLI N.K. vcita framlögum viðtöku, í Reykjavík, ritstjórarnir, SIGURÐUR BJARNASON éMorgunblaðið), og ÞÓRARINN ÞÓR- ARINSSON (Tíminn). En á Akureyri ERLINGUR DAVÍÐSSON ritstjóri og JÚLÍUS JÓNSSON bankastjóri. — (10. maí 1959.) Frá sýslufundi Eyjafjarðarsýslu SÝSLUFUNDUR Eyjafjarðarsýslu var haldinn á Akureyri dragana 4. —. maí sl., og voru nefndarmenn mættir fyrir alla hreppa sýslunnar. Fundinum stjórnaði Signrður M. Helgason, settur sýslurnaður. Afgreidd voru öll venjuleg sýslu- fundarmál auk ýniissa nýmæla. Helztu málefni sýslufundarins, eins og jafnan, voru vegamálin. A- ætlað fé til sýsluveganna á þessu ári er rösklega 377 þús. kr. Hclztu liðir á gjaldaáætlun sýslusjóðs eru stjórn sýslumála 36 jnis., til menntamála um 24 þús., þar af 10 þús. til byggða safns, til búnaðarmála 122 þús., til heiibrigðismála um 83 þús., og 45 þús. í ýmis gjöld, þar af 10 Jiús. tii kaupa á nýrri ilugvéi til sjúkra- flutninga. Fundurinn sendi Friðjóni Skarp- héðinssyni, dómsmálaráðherra, og Þórarni Eldjárn, sýslunefndar- manni, sem ekki gat mætt sökuin sjúkleika, kveðjur sínar. í landhelgismálinu samþykkti fundurinn svohljóðandi ályktun: „Aðalluiidur Sýslunefndar Eyja- íjarðarsýslu, haldinn á Akurcyri í maí 1959 lýsir einhuga fylgi sínp við stækkuir lahdhelginnar í 12 mílur og þakkar landhelgisgæzlumii Alþingiskosningar 28. júní Samkvæmt forsetabréfi frá 11. þ. m. fara almennar kosn- ingar til Alþingis fram hinn 28. júní næstk. En þar sem núver- andi þing hefur samþykkt breytingu á stjórnskipunarlög- um, ber að rjúfa Alþingi cg stofna til nýrra kosninga. drengileg og vel unnin störf í erf- iðri og áhættusamri baráttu sinni á hafinu undanfarna mánuði, við hina hrezku ofbeldismenn. Jafnframt skorar fundurinn á rík- isstjórnina að slíta nú þegar stjórn- málásambandi við Breta og taka til alvarlegrar íhugunar, að íslcnding- ar segi sig úr Atlantshafsbandalag- inu, meðan cin voldugasta þjóð þess lætur sér sæma að beita smæsta aðildarríkið svo skefjalausu hernað- arlegu ofbeldi." Á föstudaginn var lögreglunni á Akureyri tilkynnt, að þá um nóttina hefði verið framið inn- brot í Hressingarskálanum. Málið var þegar tekið fyrir og var lögreglan komin á sporið um hádegi sarna dag. Leiddi rann- sóknin til þess, að tveir piltar 21 árs voru handteknir, og játuðu þeir á sig verknaðinn. Og í sam- bandi við yfirheyrslurnar varð það upplýst,. að þessir menn höfðu áður brotist inn í Hress- ingarskálann, Efnag. Flóru, Gós- drykkjagerð KEA, Mat ög kaffi og til viðbótar framið þrju inn- brot á Siglufirði í vetur. Voru þeir stundum saman að verki. Yfirheyrðir á Siglufirði. Piltar þessir stálu peningum, sælgæti og tóbaki þar sem þeir brutist inn og auk þess er annar Bj'örn Jónsson í kjöri Björn Jónsson verður í kjöri hér á Akureyri fyrir Alþýðu- bandarlagið. Var sú ákvörðun tekin fyrra sunnudag. Þá segir Alþýðumaðurinn frá því í gær að Friðjón Skarphéð- insson verði frambjóðandi Al- þýðuflokksins á Akureyri. „Keisaraskurður44 Svo bar við á Syðri-Bægisá, að ær gat ekki borið og var Ágúst Þorleifsson dýralæknir sóttur til hjálpar. Kom þá í ljós að fæðing með venjulegum hætti var úti- lokuð. Læknirinn greip þá til sinna ráða, skar til lambsins, sem var dautt og vanskapað og bjarg- aði ánni. Nokkrum dögum síðar gerðu dýralæknarnir sams konar aðgerð hér á Akureyri og björg- uðu tveim lömbum og móður og leið bæði ánni og lömbunum vel þegar síðast fréttist. Aðgerðir, sem þessar, munu sennilega alger nýlunda hér um slóðir. þeirra valdur að peningaþjófnaði í M. A. Oknyttamenn þessir, sem setið hafa í varðhaldi undaníarnh daga, fóru til Siglufjarðar í gærmorgun og verða væntanlega yfirheyrðiv þar í dag eða á morgun. Þeir eru utanbæjarmenn. Framleiðsla ársins. Framleiðslan skiptist þannig: Nýmjólk 2,7 millj. kg., rjómi 78 þús. 1., skyr 269 þús. kg., smjör 355 þús. kg., mjólkurostur 194 þús. kg., mysuostur 8100 kg. og mysingur 31.700 kg., ennfremur nokkurt magn af kaseini. Salan. Sala nýmjólkur jókst um 91 þús. 1., en sala rjóma og skyrs drógst nokkuð saman vegna minni markaðs í Rvík. En aukn- ing varð í framleiðslu smjörs og osta. Birgðir. Birgðir smjörs voru litlar um sl. áramót og mun minni en við næstu áramót á undan. Höfðu minnkað úr 62 tonnum niður í 25 tonn. Birgðir mjólkuiosts böfðu aukizt úr 37 tonnum í 54 tonn. Frá síðustu ái-amótum hafa smjörbirgðir enn gengið saman. Yfirleitt seldist framleiðslan vel á árinu. Nýjung. Til nýjunga má telja, að síð- astliðinn vetur var allt framleitt skyr blandað með D-bætiefni, og mun hvert kg. skyrs innihalda um 4 þús. alþjóðaeiningar af D- vítamíni. Reksturskostnaður. Reksturskostnaður hækkaði um 8 aura á lítra, eða 15% frá fyrra ári. Útistandandi skuldir höfðu minnkað verulega. Útflutningurinn. Þá gerði samlagsstjóri útflutn- ing mjólkurafurða að umtalsefni. Fyrir mjólkurost útfluttan fengist aðéins kr. 7.57 pr. kg. og taldi þá þróun mjög óheppilega, ef byggja þyrfti lapdbúnaðinn á útflutningi af þessu tagi. Hann gat þess enn- fremur, að um 44% af því verði, sem bændur fengju fyrir mjólk- ina, kæmi frá Útflutningssjóði. í ræðulok vék svo Jónas Krist- jánsson að Osta- og smiörsöl- unni, skýrði tildrög að stofnun hennar og hlutverki og taldi mikla nauðsyn á stofnun hennar til að samræma framleiðslu og sölu. Tíu aurar í stofnsjóð. Fundurinn samþykkti þá til— lögu stjórnar KEA, að 10 aurar af hverjum mjólkurlítra gengju í Samlagsstofnsjóð, en 104 aurar í reikninga, sem uppbót, og af- gangurinn verði yfirfærður til næsta árs. Felld var sú tillaga að greiða aðeins 1 aura í stofnsjóð í stað 10 aura. Ryggingamál. Samlagsstjóri sagði frá þeim undirbúningi, sem fram hefði farið viðvíkjandi byggingu nýrr- ar mjólkurvinnslustöðvar. Hefði hann rri. a. sjálfur farið utan í þeim erindum að kynna sér nýj- ungar í byggingu og rekstri slíkra stöðva og á leiðinni væru tillögur frá sænskum sérfræðingi um byggingu. Erindi um nautgriparækt. Ólafur Jónsson flutti fróðlegt erindi um nautgriparækt, lýsti ítarfsemi Búfjárræktarstöðvar- innar að Lundi og árangri í kyn- bótastarfinu yfirleitt og afurða- aukningu mjólkurkúnna. Erindi hans var mjög vel tekið, enda var það hið fróðlegasta. Tillaga um jöfnun flutningskostnaðar. Miklar umræður urðu um til- lcgur svonefndrar 14 manna Framhald á 5. siðu. Skrifsfofa Framsóknarflokksins í Hafnarsfræfi 95 minnir fólk á að athuga, hvort það sé á kjörskrá. Afrit af kjörskrá fyrir Akureyri og Eyjafjarðarsýslu liggur framnii á skrifstofunni. — Vinsamlegast gerið viðvart, ef þið hafið upplýsingar, sem að gagni mega verða fyrir kosningaundirbúninginn. Látið skrifstofunni í té vitneskju um fólk, sem líklegt er að verði fjarverandi á kjördegi. SÍMINN ER 1443. Heimasími Ingvars Gíslasonar er 1746. Ungir menn jáfa á sig mörg innbrot

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.