Dagur - 13.05.1959, Blaðsíða 2

Dagur - 13.05.1959, Blaðsíða 2
2 D A G U K Miðvikudaginn 13. maí 1959 INGVAR GÍSLASON, LÖGFRÆÐINGUR: Nokkur atriði varáandi kjördæmamálio Ræða flutt á f undi í Stúdentafélagi Akureyrar 30. apríl f. m. Inngangur. Þegar ræða á kjördæmamálið ýtarlega og frá ýmsum hliðum, hlýtur ósjálfrátt svo að fara, að þessu yfirgripsmikla máli verði ekki gerð full skil í stuttri fram- söguræðu. Eg mun því ekki freista þess svo mjög að kryfja hvert einstakt atriði til mergjar eða minnast á allt, sem til greina getur komið í þessu sambandi, heldur ræða nokkur atriði máls- ins, sem mér finnst vert að gefa gaum. Stutt yfirlit. Fyrst vil eg leyfa mér að gefa stutt yfirlit yfir þróunarsögu kjördæmanna. Þegar Alþingi var endurreist árið 1843, var svo fyr- irmælt í konunglegri tilskipun, að kjördæmi fyrir þjóðkjörna þingmenn skyldu vera 20 á land- inu, og miðuðust þau við sýsl- urnar 19 og Reykjavík, sem þá var vaxandi kaupstaður og raun- ar þá þegar orðinn höfuðstaður landsins. Hin fyrstu kjördæmi voru þessi: Reykjavík, Gull- bringu- og Kjós., Borgarfj., Mýrasýsla (með Hnappadalssýslu til 1861, er hún var lögð undir Snæfellsnessýslu), Snæfellsnes- sýsla, Dalasýsla, Barðastrandar- sýsla, ísafjarðarsýsla (náði yfir núv. V.-fs., N.-fs. og ísafjarðar- kaupstað), Strandasýsla, Húna- vatnssýsla (óskipt), Skagafjarð- arsýsla, Eyjafjarðarsýsla, S.- Þing., N.-Þing., N.-Múl., S.-Múl., Skaftafellssýsla (óskipt), Vest- mannaeyjar, Rangárv. og Árnes- sýsla. Skaftafellssýslu var skipt í tvö kjördæmi 1857. Allt voru þetta einmennings kjördæmi. Stjórnarskráin 1874. Með stjórnarskránni 1874 var gerð nokkur breyting á kjör- dæmafyrirkomulaginu, að því leyti, að nú var sýslunum skipt í einmennings- og tvímennings- kjördæmi eftir fólksfjölda. Með kosningalögum frá 1877 var gerð sú breyting á kjördæmaskipan- inni, að því er varðaði Þingeyjar- sýslu og Skaftafellssýslu, að þessum kjördæmum var skipt, en stjórnarskráin gerði ráð fyrir í upphafi, að þessar sýslur væru eitt kjördæmi hvor. ísafjarðar- sýslu var loks skipt í Vestur- og Norður-ísafjarðarsýslur árið 1902, en annars hélzt kosninga- fyrirkomulag stjórnarskrárinnar óbreytt í nær aldarfjórðung. Kau ps taðak j ördæmi. Árið 1903 markar spor í sögu íslenzkra kjördæma. Það ár voru þrjú ný kjördæmi lög- ákveðin, allt kaupstaðir, sem þá voru í uppgangi og settu svip hver á sinn landsfjórðung. Hin nýju kjördæmi voru: Akureyri, ísafjörður og Seyðisfjörður. Bætt var einum þingmanni við fyrir Reykjavík. Kjördæmin urðu 25, og skiptust í einmennings- og tvímenningskjördæmi, þjóð- kjömir þingmenn voru 34 4- 6 konungkjörnir. 1915 voru ákvæðin um kon- ungkjöma þingmenn úr gildi numin, en tekið upp sérstakt landskjör, sem gilti til 1934, er það var afnumið og uppbótarsæti til jöfnunar rnilli þingflokka voru tekin i lög. — Þingmönnum Reykjavíkur fór fjölgandi, urðu 4 1920 og komið á hlutfallskosn- ingum þar, síðan 6 með stjórn- ^kipunarlögum frá 1934 og loks 8 með stjórnskipunarlögum frá 1942. — Hafnarfjörður varð sér- stakt kjördæmi J928 og Siglu- fjörður 1942. Stjórnskipunarlögin frá 1942 fólu í sér þá breytingu aðallega, að tekin var upp hlut- fallskosning í tvímenningskjör- dæmunum. Grundvöllur frá fyrstu tíð. Af því, sem nú hefur verið rakið, er augljóst, að megin- grundvöllur kjördæmaskipunar- innar frá upphafi hefur verið skipting landsins í lögsagnarum- dæmi, sýslur og kaupstaði. Þótt ýmsu hafi verið breytt frá því fyrstu kjördæmaákvæði tóku gildi hér á landi, hefur ekki verið hróflað við þeirri frumtilhögun, að kosnir væru fulltrúar hcraða til þess að fara með umboð þjóð- arinnar á Alþingi. Löggjafinn ís- lenzki hefur ekki viljað gera neina róttæka breytingu á þess- um grundvelli, fyrr en Alþingi það, sem nú situr, er í þann veg- inn að afgreiða lög, seín fela í sér gjörbyltingu á hinu gróna kjör- dæmaskipulagi. Það skyldi því engan undra, þótt nokkur átök verði um þetta mál, enda hefur ekki hjá því far- ið. Stjórnmálaumræður, það sem af er þessu ári, hafa nær einvörð- ungu snúizt um málið. Deilurnar hafa þegar risið hátt, og, ef að líkum lætur, mun þeim ekki linna næstu mánuðina. Þótt Al- þingi samþykki breytingu þá, sem fyrir því liggur, öðlast hún ekki lagagildi fyrr en að afstöðn- um kosningum til Alþingis og endurnýjun þinglegrar afgreiðslu. Verði Alþingi á annan veg skip- að eftir næstu kosningar en nú er, kann svo að fara, að breyting- artillögurnar falli, og veltur það því á afstöðu kjósenda að eigi svo litlu leyti, hvaða endi málið fær um það er lýkur. Lýðræði og kjördæma- skipun. Áður en eg sný mér að því að ræða það kjördæmafrumvarp, sem liggur nú fyrir þinginu, langar mig til þess að fara enn nokkrum orðum um kjördæma- málið almennt. Sérstaklega langar mig til þess að víkja að þeirri fullyrð- ingu meðhaldsmanna kjördæma- breytingarinnar, að hin gamla kjördæmaskipun sé ólýðræðisleg. M sú fullyrðing reyndist á rök- um reist, þá er vissulega um al- varlegt mál að tefla, því að vita- skuld er okkur öllum sárt um lýðræðið. Er kjördæmaskipunin ólýðræðisleg? Með því að segja að kjördæma- skipun okkar sé ólýðræðisleg er átt við það, skilst mér, að hún tryggi ekki lýðræðisréttindi þegnanna. Skipulag okkar hlýtur því að brjóta í bága við þær hug- myndir, sem við gerum okkur um lýðræði. En hverjar eru þá þessar hugmyndir? Hvað er lýð- ræði? Hvað felst í hugtakinu? Orðið sjálft gefur það nokkuð til kynna, hvað í því muni felast. Þó er ekki úr vegi að gera nánari grein fyrir hugtakinu. Ollum er ljóst, að orðið sjálft er þýðing á gríska orðinu demokratia, sem táknaði það sérstaka stjórnar- form, sem frægt var í sumum borgríkjum Hellas, og þá sér- staklega í Aþenu. Undir þessu stjórnarfyrirkomulagi höfðu allir frjálsir karlmenn rétt til íhlutun- ar um stjórn borgríkisins og allir voru jafnir til embætta og virð- inga, allir höfðu tillögurétt og at- kvæðisrétt á þjóðfundum og frelsi til máls og áhrifa á gang borgarmálefna. Lýðræði Grikkja var þannig alger andstæða þeirra stjórnarhátta, sem þá giltu í vel- flestum ríkjum, m. a. fullkomin andstæða fámennisstjórnarfyrir- komulagsins, sem sum grísku borgríkjanna bjuggu við. Hvað er lýðræði? Þrátt fyrir þennan fróðleik um uppruna orðsins lýðræði, er sag- an þó varla nema hálfsögð. Lýð- ræði nútímans rekur að sjálf- sögðu ætt sína til hins gríska lýð- ræðis, en það hefur margt breytzt á skemmri leið en frá Gyðinga- landi að Gaulverjabæ, og eins er það með lýðræðið. Eg veit ekki annað en að flestir, ef ekki allir, FYRRI HLLTI séu sammála um að í lýðræðis- hugtakinu felist annað og meira sn réttur kosningabærra manna til þess að kjósa og verða kosnir til þings eða sveitarstjórnar o. s. frv. Lýðræði felur líka í sér ým- iss konar manm-éttindi, sem fvrst og frernst eru einkenni lýðræðis- skipulags, en varla nokkurs ann- ars stjórnarforms. Þar undir kemur sjálf mannhelgin, almennt hugsanafrelsi, ritfrelsi, funda- og félagafrelsi, trúfrelsi og óháðir dómstólar. Þessi atriði verða að teljast jafnmikilvæg fyrir skýr- greiningu hugtaksins og það at- riði, er fyrst var nefnt, nefnilega kosningaréttur og kjörgengi. Lýðræðið er því, að mínu viti, það stjórnarform, sem veitir þegipuin þjóðfélagsins rétt til þess að láta til sín taka í opinbcrum málum, þar sem' hver karl eða kona, sem náð hefur nægum þroska, hefur rétt til áhrifa á stjórn héraðs eða ríkis með atkvæði sínu í kosningum, eins og lög mæla fyrir, og nýtur auk þess kjör- gengis til þjóðþings og sveitar- stjórnar eða annarra ahnennra kosninga. Lýðræði felur í sér, að hverjum manni er tryggð helgi lífs og lima og jafn réttur gagnvart lögum á við aðra menn, og liver maður nýtur al- menns hugsana- og tjáninga- frelsis. Þetta eru megin einkenni lýð- ræðisins. Vanti eitthvert þeirra, getur tæpast verið um lýðræði að tala. Erfitt er að fullyiða, hver þessara einkenna myndi kjarna lýðræðishugtaksins, en þó eru margir þeirrar skoðunar, að hin almennu mannréttindaákvæði séu í raun og veru mikilvægari fyrir borgarana en jafnvel ákvæðin um kosningarétt og kjörgengi, þótt þarna megi að sjálfsögðu varla á milli sjá, enda styður hvað annað. Lýðræðisréttindin tryggð. Sé þessi skýring hugtaksins borin saman við aðstæður í hinu íslenzka þjóðfélagi, held eg, að engum blandist hugur um, að skýrgreiningin og þjóðfélagsað- stæður okkar fallast í faðma. Það getur ekki verið neitt álitamál, að þegnum hins íslenzka þjóðfé- lags er tryggður réttur til þess að láta til sín taka í opinberum málum, kosningaréttur og kjör- gengi er tryggt með réttum lands lögum og hver maður nýtur hér hugsana- og tjáningarfrelsis í víðtækustu merkingu. Einn af fyrirsvarsmönnum kjördæma- breytingarinnar, Benedikt Grön- dal alþm., sagði í ræðu nýlega, að hvergi á byggðu bóli væri frjáls- ara fólk en á íslandi. Sé þetta rétt, þá hlýtur það að vera rangt, sem sagt hefur verið af öðrum fyrirsvarsmönnum títt nefndrar breytingar, að hér ríki að ein- hverju leyti ólýðræðislegt stjórn- arfyrirkomulag. Olýði’æðislegt stjórnarfyrirkomulag getur ekki tryggt lýðræðisréttindi þegnanna, það leiðir af sjálfu sér, hvað þá að það beinlínis geri fólkið, sem við það býr, frjálsara en alla aðra menn á jarðríki. Alvarleg veila er,í þessum málflutningi, enda er hann borinn uppi af stundaræs- ingu og hugsunarlitlu ofstæki en ekkirökurn. Sannleikurinn er sá, að deilan, sem við nú heyjum um skipulag kjördæmanna, er ekki deila um það, hvort lýðræði skuli ríkja í landinu eða eitthvað annað. Vit- anlega eru fyrirsvarsmenn beggja deiluhópanna lýðræðis- sinnar, þó að þá greini á um form og aðferðir vissrar lýðræðisstarf- semi, sem er kosningatilhögun. Tvö sjónarmið. í kjördæmamálinu skiptast menn í tvo hópa aðallega. Ann- ars vegar eru þeir, sem vilja, að Alþingi sé skipað kjörnum full- trúum landshluta, héraða, en hins vegar eru þeir, sem vilja, að Al- þingi sé eins konar smækkuð mynd af heildarfylgi stjórnmála- flokka.Það eru með öðrumorðum héraðasjónarmið og flokkasjón- armið sem vegast á. Eg ber engar brigður á, að hip .gí'^arp^f-nd^ Ifullkomle^a' ''lýðræðislegt ’ ‘og' '’e£ 'get'meira að segja fallizt á, að mjög væri æskilegt að geta full- nægt þessu sjónarmiði, en margt er þar þó í vegi fyrir, sem ekki þarf síður að taka tillit til en flokkasjónarmiða, og eg álít þar að auki, að það sé ekki hollt fyrir lýðræðið, að flokkssjónarmiðið verði algerlega ofan á. Og á það felst eg alls ekki, að þetta flokks- sjónarmið, sem eg leyfi mér svo að kalla, sé hið eina „rétta“ lýð- ræði. Hin aðferðin, sem eg gat um, sú að kjósa fulltrúa til þings eftir sýslu- eða bæjarfélögum, þ. e. héruðum, er fullkomlega lýð- ræðisleg, jafnvel þótt hún geti ekki tryggt tímanlegum stjórn- málaflokkum, sem eru svo óheppnir að eiga fylgi í einu hér- aði eða mjög fáum, en ekki í öðr- um, fulla tölu þingsæta miðað við heildaratkvæðamagn á landinu öllu. Lýðræðisreglum er full- nægt með slíku fyrirkomulagi, enda viðtekin regla í mörgum fremstu lýðræðisríkjum og það beim lýðræðisríkium, sem lengsta lýðræðissögu eiga að baki. Eg hika ekki við að halda því fram að hvort tveggja sjónar- miðið sé lýðræðislegt og skora á andstæðinga mína að mæta mér á miðri leið um það atriði, þótt þeir verði mér kannske ekki sammála um, hvoru sjónarmiðinu þeir telja æskilegra að fylgja. Um það getum við skipzt í ilokka, en annað ekki. Eg get ekki lesið það út úr lýðræðishugmyndum okkar íslendinga, að lýðræðishugtakið feli það endilega í sér, að flokk- uni séu fremur tryggð þingsæti en héruðum. Og það er kjarninn í öllum okkar skoðanaágreiningi um lýðræði og kjördæmaskipu- lag. Þegar eg hér að framan skipti mönnum í tvær meginfylkingar um skoðanir á kjördæmamálinu eftir því hvaða sjónarmiðum þeir fylgja, þá vil eg þó fyrir sann- girnissakir minna á það, að segja má að þriðja fylkingin sé raunar til líka, og sýnist mér að sjónar- mið hennar hafi ráðið nokkru á ytra borði um þá kjördæmalausn, sem nú á mest þingfylgi og hall- azt er að, a. m. k. í bili. Er látið í veðri vaka, að þrætt sé bil beggja þeirra sjónarmiða, sem eg gat um áður, þó að því fari fjarri, að eg telji að það leiði til æskilegrar niðurstöðu, og mun eg víkja nán- ar aðjrví síðar, er eg ræði breyt- ingarnar sérstaklega. Breytinga er þörf. Allir stjórnmálaflokkar í land- inu eru sammála um, að nauð- synlegt sé að lagfæra kjördæma- skipunina. Þeir viðurkenna, að hún sé um margt úrelt orðin og úr því þurfi að bæta. Eitt af því, sem menn finna kjördæmaskip- uninni til foráttu.er sá mikli íhis’k munur sem er á fólksfjölda fíjör^ dæmanna, þannig að í sumum kjördæmum éi-u að»ins fá hundr- uð kjósenday-en jr öðrum mörg þúsund, samanber hið klassiska dæmi af Seyðisfirði og Gullbr,- og Kjósarsýslu.. Með einhliða samanburði þessSra tveggja kjör- dæma verður þo ekki með réttu hægt að krefjast algerrar grurid- vallarstefnubreytingar í kjör- dæmaskipuninhi, því að vissulega er hægt að jafna skekkjuna með öðru en því, að önnur héruð, sem alls ekki raska skynsamlegu hlutfalli í íhlutun héraða í þjóð- þinginu, séu svipt rétti sínum til sjálfstæðra þingfulltrúa. Slíkar *a§gerð|ij: mipriar jþ&ð þegar hengja á bakara fyrir smið, eða refsa fyrir engar sakir. Það getur vel verið, að Seyðisfjörður hafi unnið sér allt til óhelgi og eigi ekki annað skilið en að leggjast ■niður sem kjördæmi, en þó að þessi forni uppgangs- og menn- ingarstaður liafi sett niður á síð- ustu árum, svo mjög, að hann á ekkert gott skilið, þá get eg ekki séð, að nokkurt réttlæti sé í því að svipta Akureyri sínum sér- staka þingfulltrúa og voninni um þingmannafjölgun. Eins get eg ekki séð, að héruð landsins í heild sinni hafi á nokkui’n hátt minnkað svo að mikilvægi á und- anförnum árum, þrátt fyrir litla fólksfjölgun miðað við Faxaflóa- svæðið, t. d. Reykjavík, að rétt- mætt sé að svipta þau sérstökum þingfulltrúa. Mikilvægi héraðanna sem framleiðsluheilda óbreytt. Ekki bólar á því, sem betur fer, að ein einasta sýsla eða hérað landsins sé að eyðast að byggð og fólki. Þvert á móti stækkar landnám hérað- anna, ræktunarsvæðin víkka, út- gerð og vinnsla sjávarafurða vex og getur enn aukizt að miklum mun, ef stjórnendur landsins hafa trú og vilja á því að auka fram leiðsluskilyrðin. Ótrúlcga fáa hendur með aðstoð góðra véla, Framhald ú 5. sid'u.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.