Dagur - 10.08.1960, Blaðsíða 6
6
- Fréttir úr nágrenninu
Framhald af 8. siðu.
Skip þetta kom til heimahafn-
ar 13. júlí sl. og hélt brátt á tog-
veiðar. Það heitir Pálína. Skip-
stjóri er Valdimar Friðbjörns-
son frá Siglufirði.
Góðhestar þeir, sem áður
sagði frá í fréttum frá Blöndu-
ósi, voru boðnir upp að Álf-
geirsvöýllum á laugardaginn —
8 að tölu.
Eigendurnir hrepptu þá á
uppboðinu fyrir 910—1510 kr.
hvern, því að lítt var boðið á
móti þeim.
Þriggja vikna óþurrk-
ar í Svarfaðardal
Svarfaðardal, 7. ágúst. — Nær
þrjár undanfarnar vikur hafa
verið stöðugir óþurrkar, oft
rignt mikið, og þó að stöku
sinnum hafi birt til og flæsur
komið hluta úr degi, þá hafa
þeirra orðið lítil not vegna mik-
illar bleytu fyrir. Mikið er því
úti af heyjum og þau illa farin
og skemmd. Hefur heyskapur
næstum stöðvast þennan tíma
og horfir ekki vel, nema bregði
til þurrka á næstunni. Bót er að
vísu, að allmikið hirtist inn af
heyjum áður en óþurrkurinn
kom, því að spretta var snemma
góð og gat heyskapur því hafizt
fyir en venjulega.
Engar teljandi byggingafram-
kvæmdir eru hér og jarðrækt
miklu minni en undanfarin ár.
Þáttakendur í meistarafl. voru
9, en í J. fl. 6. I.eiknar voru 72
holur. Eftir fyrstu 18 holurnar
var Magnús Guðmundsson í 1.
sæti, í 77 höggum og í 2.—4. sæti
voru jafnir Gunnar Konráðsson,
Gunnar Sólnes og Sigtryggur Júl-
íusson í 82 höggum. Eftir 36 holur
var Magnús í 155 liögguiu, Gunn-
ar Sólnes í 159 og Sigtryggur í
161. Eftir 54 holur voru Magnús
og Gunnar Sólnes jafnir í 231 h.
og Gunnar Konráðsson í 246
höggum. Er 9 holur voru eftir
mátti segja að Gunnar Sólnes
væri öruggur með titilinn, þar
sem hann var 6 höggum betri en
Magnús og 20 höggum betri en
Gunnar Konráðsson, enda fór svo.
Mótinu lauk um síðustu helgi.
Urslit urðu þessi:
1. Gunnar Sólnes, 302 högg.
2. Magnús Guðmundsson, 310 h.
3. Gunnar Konráðsson, 323 h.
4. Sigtryggur Júlíusson, 335 högg.
5. Árni Ingimundarson, 342 h.
Árangur Gunnars er mjög
glæsilegur. Hann lék seinustu 18
liolurnar í 71 höggi, sem er nýtt
BRAGGI TIL SÖLU
Afgr.-vísar á.
GÓÐ ÍBÚÐ TIL LEIGU
í Brekkugötu 29,
að norðan.
Úppl. í síma 1092.
Veldur því vaxandi dýrtíð og
f j árhagsörðugleikar.
Sigurpáll Sigurðsson Steindyr-
um, varð sjötugur 9. júní sl. og
Jón Gíslason, Hofi, átti sextugs-
afmæli 2. ágúst. Gestkvæmt var
hjá báðum afmælisdaginn, því
að vinsældum eiga þeir að
fagna. Sigurpáll hefur búið á
Steindyrum alllengi, en sonur
hans hefur nú tekið við jörðinni.
Sigurpáll var dugnaðarmaður,
glaður og kátur í sínum hópi,
höfðinglyndur og hjálpfús. Sér-
stakt yndi hefur hann haft af
góðhestum og kunnað að sitja
þá. Honum lætur vel að gleðj-
ast jafnt með ungum sem göml-
um. Sigurpáll er kvæntur Ingi-
björgu Jónsdóttur og eiga þau
nokkur uppkomin börn.
Jón á Hofi er atorkusamur
bóndi. Er Hofsbúið eitt allra
stærsta bú hér í sveit. Jón hef-
ur verið kvaddur til margvís-
legra starfa fyrir almenning og
leyst þau af hendi samvizku-
samlega. Hann er afburða góð-
ur og skemmtilegur félagi, oft
hrókur alls fagnaðar í fámenn-
um hópi, enda á hann talsverða
kímnigáfu og kann frá ýmsu að
segja. Einkum eru smellnar og
gamansamar vísur uppáhald
hans.
Jón missti konu sína, Ai-nfríði
Sigurhjartardóttur, fyrir fáum
árum. Sonur þeirra er Gísli
kennari við Menntaskólann á
Akureyri. — H. S.
vallarmet. Áður liafði Hafliði
Guðmundsson leikið 18 holur í
72 höggum. Þessi árangur Gunn-
ars, 302 hiigg, er þriðji bezti ár-
angur liér . á landi, í 72 holu
keppni. Einnig lék Gunnar 9
holur í 33 höggúm, sem er jafnt
vallarmeti, en það átti Magnús
Guðmundsson áður einn.
1 I. fl. sigraði Bragi Iljartarson
í 359 höggum, 2. varð Sigurbjörn
Bjarnason í 368 höggum og í 3.
sæti varð Jón Guðmundsson í
382 höggum.
margar tegundir.
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILD
ÓDÝRU
Matar og kaffistellin
komin aftur.
Pantanir óskast sóttar
sem fyrst
BLÓMABÚÐ
ORGELVELTAN
Aðalbjörg PáLsdóttir skorar
á: Ebbu Eggertsdóttur, Byggða-
vegi 143, Sigurbjörgu Hlöðvers-
dóttur, Þingvallastræti 34.
Guðmundur Magnússon skor-
ar á: Níels Hansson, Norðurgötu
38, Níels Jakob Nicklasen,
Strandg. 27, Guðmund Steins-
son, Lækjargötu 22.
Halla Pálsdóttir skorar á: Ól-
öfu Jenný Eyland, Víðimýri 8,
Kristbjörgu Kjartansdóttur,
Víðimýri 3, Auði Sigvaldadótt-
ur, Víðimýri 2.
Kristín Guðmundsdóttir skor-
ar á: Guðnýju Steindórsdóttur,
Skipagötu 4, Kristrúnu Kon-
ráðsdóttur, Glerárgötu 8.
Jón Samúelsson skorar á:
Kristján Ólafsson, Munkaþver-
árstræti 16, Víking Björnsson,
Munkaþverárstræti 4, Halldór
Bóas Jónsson, Eiðsvallagötu 22.
- Rændadagm iiin
Framhald af 4. síðu.
sem regla gildir það ekki. Eg
þekki vel og játa, að bændur
eru neyddir til að vera meiri
vinnuþrælar en nokkur önnur
stétt þessa lands, og það svo, að
hamingjan má vita hvort- ekki
stefnir til ófarnaðar, ef svo
heldur fram sem horfir. En svo
er þó ekki komið enn, að bænd-
ur geti ekki veitt sjálfum sér
frelsi einn dag til að mæta á
skemmtistað bændadaginn.
Viljið þið nú ekki, góðir, ey-
firzkir bændur, athuga þetta?
Nú skal þessu rabbi lokið. Eg
skal játa, að eg hef alla mína
bóndatíð verið lítill sem slíkur,
en tvennt hef eg þó átt og á. Ást
til bændastéttarinnar og skiln-
ing á því mikilvæga hlutverki
er bændur leysa af hendi í ís-
lenzku þjóðlífi.
Þessar línur, er eg hef skrif-
að, eru sprottnar af þessu. Eg
tel að bændastéttin nú í dag sé
í nokkurri hættu stödd, ef henni
öðlast ekki betri skilningur á
rækilegri samstöðu um sín
stéttarmál, en hún heíur til
þessa haft til að bera.
Eg vil mega trúa því að þeir
erfiðleikar, sem bændur óhjá-
kvæmilega fá við að glíma og
þegar eru á dottnir, verði til
þess að þjappa þeim betur sam-
an. Og verði svo, þarf naumast
um leikslok að spyrja. Þeir
hljóta að sigra .og öðlast sinn
sangjarna rétt. Það er lögmál
allra góðra hluta.
Þór. Kr. Eldjárn.
Málningarúllur
Málningapenslar
Málningabakkar
Spartlspaðar
amerískir.
GRÁNA H. F.
POLLABUXUR
REGNKÁPUR
fyrir böm.
SJÓHATTAR
fyrir böm.
GRÁNA H.F.
- Tvennir fímar
Framhald af 2. siðu.
ustu — til að benda þjóð minni á
erfiðleikana og hælturnar, scm
ráðamenn hennar og hún sjálf
hafa verið að skapa á undanförn-
um góðviðriskafla og uppgripa-
tíma í sl. 20 ár. Eg geri það ekki
sjálfs mín vegna. Gamalmenni,
eins og ég, hátt á níræðisaldri,
eiga engar framtíðarvonir fyrir
sjálfa sig. En eg ann landi mínit
og þjóð og finnst svo sárt að
hugsa til þess, að á sama tíma og
þjóðin lieíur safnað miklum
skuldum við útlönd, skuli hún
hafa eytt miklu meira fé fyrir fá-
nýta muni eða annað verra.
Þessar fáu hræður — 170 þús-
undir — sem landið byggja, hljóta
að geta lifað vcl mannsæmandi
lífi og unað glaðar við sitt, cf
meira hófs væri gætt í útgjöldum
landsins og þjóðin vildi breyta um
lífsvenjur, spara meira og vinna
meira að framleiðslunni en hún
hefur gert. Skuldirnar við útlönd
geta orðið þungur baggi á þjóð-
inni, einkum ef þær halda áfrarn
að aukast, þegar veðurguðirnir
snúa baki að landinu og tíð breyt-
ist til hins verra, sem hætt er við
að geti orðið bráðlega, eftir langt
góðæri, eða aðrir erfiðleikar steðja
að. Þess vegna hef ég hér að ftanr-
an lýst hinu ólíka tíðarfari og
aðStöðu þjóðarinnar fyrr á tím-
um og nú, unga fólkinu, sem á að
erfa landið, til athugunar. Það á
mest á hættu, ef óskynsamlega er
starfað og lifað í landinu. Það
jiarf að vakna og taka í taumana.
Um aðeins tvær lciðir er nú að
velja fyrir þjóðina. Önnur er sú,
að foringjar lýðræðisflokkanna
semji tafarlaust frið og vinni sam-
an í einlægni að því að bjarga
þjóðinni úr því fjármálaöng-
þveiti, sem skapazt hefur hér. Ef
vel er unnið og þjóðin vill styrkja
þá í því, mun það vel takast. —
Sé hins vegar sú leið ekki farin,
ber fóringjum lýðræðisflokkanna
að játa getuleysi sitt. Þá er aðeins
st’i leið fyrir hendi, að þjóðin af-
liendi kommúnistum völdin, af-
sali sér frelsi sínu og gerist citt af
lcppríkjum Rússa.
Hvora leiðina kýs hún
i Á sunnudaginn vann Vil- i
= hjálmur Einarsson það afrek =
i á íslandsméli í frjálsum i
1 íþróttum í Rvík að síökkva =
= 16,70 m. í þrístökki, og er það \
i jaínt gildandi heimsmeti. i
= En á föstudagínn stökk |
i Pólverjinn Smith 17,03 m. i
1 og bíður það aírek staðfest- |
i ingar. i
*laIIMIIIIII.IIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIII|Jp
- Byggingakostnaður
Framhald af 5. siðu.
hefur ekki efni á því að verja
óhóflegum hluta tekna sinna í
kostnað við húsnæði, þegar
sýnilegt er, samkvæmt reynslu
annarra, að hægt er að lækka
þann kostnað.
ALUMILASTIC
Hið heimsfræga Aluminium kítti hefur nú þegar
áunnið sér verðskuldaða viðurkenningu á Islandi eins
og annars staðar í heiminum, sem öruggasta þéttiefn-
ið við rúðuísetningu á tvöföldu og einföldu gleri svo
og við bifreiðayfirbyggingar, skipa- og bátasmíði, o. fl.
VÉLA- OG BÚSÁHALDADEILD
„Elna Supermatlc”
saumavélar
Pantanir óskast sóttar nú þegar,
annars seldar öðrum.
VÉLA- OG BÚSÁHALDADEILD
Golfmeistaramót Akureyrar 1960