Dagur - 22.12.1962, Page 13

Dagur - 22.12.1962, Page 13
JÓLABLAÐ D AGS 13 Landiá pá og nú ENDUR fyrir löngu, aftur í grárri forn- eskju var loftslag á íslandi miklu hlýrra en nú. Þá uxu hér skógar suð- rœnna trjáa. Enginn maður hefur aug- um litið hina fornu skógardýrð, en jarð- fræðingar hafa fundið leyfaj', þ. e. blöð og steinrunna stofna af skógartrjám, sem vaxið hafa á Fróni fyrir milljónum ára. Þá hefur víða verið blómlegt um að litast. Eikur, beykitegundir, stór- INGÓLFUR DAVÍÐSSON, GRASAFRÆÐINGUR: vaxnir barrviðir o. fl. trjátegundir hafa myndað hér mikla skóga. Svona liðu milljónir ára. Þá tók að kólna í veðri. Veturnir gerðust helkald- ir og sumarhitinn lítill. Jöklar settust að á fjöllum og teygðu sig æ lengra og lengra niður hlíðarnar. ísinn sótti óstöðvandi fram, fyllti dalbotnana og mjakaðist síðan niður á láglendið, hvar- vetna eyðandi öllum gróðri, sem fyrir var. Loks varð meginhluti landsins hulinn jökli. Margir tindar hafa samt staðið upp úr hjarnbreiðunni, líkt og „núna- takkarnir“ á Grænlandsjökli nú. Jökultíminn var ekki samfelldur, heldur komu hlýindaskeið oftar en einu sinni. Talið er, að á síðasta ísald- arskeiði hafi allstór landsvæði verið ís- laus, einkum efri hluti fjalla, þótt lág- lendið væri hulið ís. Eitt hið stærsta íslausa svæði á þess- um tíma mun hafa verið fjallabálkur- inn milli Skagafjarðar og Skjálfanda, oft kallaður Eyjafjarðarsvæðið. Lofts- lag hefur, að öllum líkindum, verið mun þurrara þar en sunnanlands, e. t. v. svipað og nú er norðarlega á Gi-æn- landi. Onnur íslítil svæði eru talin hafa verið á Austfjörðum, Vestfjörðum og við Hvalfjörð. Á þessum svæðum hafa harðgerar plöntur getað lifað af síðasta ísaldarskeiðið, og dreifzt út um landið þegar hlýnaði á ný. Menn geta hugsað sér til samanburð- ar, Esjufjöll, sem standa upp úr sunn- anverðum Vatnajökli, umkrýnd ís. Þar vaxa nokkrar tegundir blómjurta þótt kalt sé og næðingssamt. Jökullinn end- urvarpar mikilli sólarbirtu og mun það koma gróðrinum að miklu gagni. En víðast hvar hefur landið verið heldur eyðilegt yfir að líta í lok jökul- tímans, sandur, leir, ísnúnar klappir. Svipur landsins var stórskorinn og harður, þegar ísöldinni létti fyrir um 10 þúsund árum. Aldirnar liðu. Gróðurlitur tók smám saman að færast yfir landið á ný. Mosi og skófir breiddust fljótlega út, gras- toppar harðgerðra jurta tóku að sjást milli steina. Gróðurinn breiddist út frá íslausu svæðunum fyrrnefndu. Gró og fræ hafa einnig borizt frá öðrum lönd- um með vindi, hafstraumum, fuglum, og með jarðvegstorfum á ís. Margt er ennþá á huldu í þeim efnum og mikið um það deilt, meðal annars á „ísaldar- ráðstefnu“ náttúrufræðinga í Reykja- vík í sumar sem leið. Geta víðtækar frjógreiningar líklega stuðlað mest að lausn þessa forvitnilega deiluefnis. Frjókorn varðveitast oft undarlega vel í jörðu, jafnvel þúsundir ára, t. d. í svarðarmýrum. Er hægt að ákvarða fjölmörg þeirra til tegunda með smá- sjárrannsókn. Hefur Þorleifur Einars- son jarðfræðingur unnið að því mikla verkefni mest íslendinga, Deilt er um, hve víðtæk síðasta ís- öld hafi verið, og hvaða jurtategundir og hvað margar hafi lifað hana af á íslandi, í Noregi o. fl. löndum. Hefur t. d. Steindór Steindórsson grasafræð- ingur nýlega skrifað ó ensku bók um aldur og innflutning íslenzkra blóm- jurta (og áður útdrátt í Ársriti Rækt- unarfélags Norðurlands). Þegar landnámsmenn komu hingað fyrir nær 11 öldum, var landið mun bet- ur gróið en nú. Gróðurlcndið var stærra og samfelldara og náði lengra til hlíða og heiða. Flestir núverandi láglendis- melar og ásar, holt, mýrarjaðrar og neð- anverðar hlíðar, hafa þá verið vaxin birkiskógi og kjarri. Um það höfum við fjöldamargar sagnir, örnefni og á síðari tímum beinar sannanir frjórann- t

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.