Dagur - 15.03.1972, Qupperneq 1
Dagur
LV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 15. marz 1972 — 14. tölublað
Afli að glæðast á Raufarhöfn
Raufarhöfn 14. marz. Samgöng-
ur á landi hafa verið góðar í
allan vetur, enda snjólaust löng-
um og veðurblíða einstök. Nú er
þó aðeins snjómugga en milt
veður.
Margt fólk fór héðan í vetur
í atvinnuleit, einkum yngra
fólkið. Vinna er ekki nægileg.
Jökull kom fyrir helgina með
75 tonn, svo að nú er unnið við
aflann dag hvern þar til lokið
er. Bátarnir Kristinn og Þor-
steinn, minni báturinn með því
nafni, eru byrjaðir með net. í
fyrradag var sæmilegur afli og
gæti það bent til þess, að von sé
um betri aflabrögð og meiri
vinnu, ef tíðarfar verður sæmi-
legt.
Grásleppunetin bíða og' verða
þau eflaust notuð nú í vor.
Tveir stunda rauðmagaveiðina,
en markaður er enginn.
Framkvæmdir eru litlar eða
nær engar og því byggist atvinn
an og afkoman á aflabrögðun-
um. H. H.
Pólarprjcn sfofnað á Blönduósi
Blönduósi 14. marz. Hingað
vantar fólk til starfa, bæði kon-
ur og karla, því að nóg er að
gera.
Komin er á laggirnar prjóna-
stofan Pólarprjón, sem er hluta-
félag A.-Húnvetninga. Þar
vinna um 30 manns að stórum
meirihluta konur. En fram-
kvæmdastjóri er Baldur Val-
geirsson. Framleiðslan er prjóna
kápur og er hún þegar hafin.
Oðru hverju er nokkur skel-
fiskvinnsla hér á Blönduósi.
Þá má nefna nýja framleiðslu
úr mjúku plasti, sem hér hófst
á síðasta ári. Ur því eru búnar
til rafmagnsdósir og ýmsir aðrir
smáhlutir, ennfremur eru gerðir
ýmsir munir úr gúmmísteypu.
f fyrra var talsvert um bygg-
ingaframkvæmdir, og í vetur er
unnið áfram við þær byggingar.
Hafa því allir haft nóg að gera
og eins og fyrr segir, vantar
fólk.
Nokkrar jarðir hafa verið aug
lýstar til sölu í A.-Húnavatns-
sýslu, jafnvel miklar hlunninda-
jarðir. En ástæðan er sú, að
roskið fólk hlýtur að hætta bú-
skap og yngra fólk að taka við.
Eftirspurn eftir jörðum virðist
einnig nokkur, en jarðir með
vélum og bústofni eru orðnar
dýrar og erfitt af þeim sökum
að hefja búskap í sveitum.
Húnavakan hefst hér 19. apríl
og búa menn sig undir hana.
A. J.
Guðmundur Jónsson tók þcssa mynd af bátnum og briminu.
FÁRVIÐRI I GRÍMSEY
FIMM TONNA TRILLA BROTNAÐI
FRÉTTARITARI Dags í Gríms-
ey, Steinupn Sigurbjarnardótt-
ir, sagði blaðinu eftirfarandi í
gær:
Aðfararnótt laugardagsins
gerði stórbrim og vestan fár-
viðri. Mun þetta mesta hafrót
um fjölda ára og gekk særokið
yfir eyna.
Sex trillubátar lágu á leg-
unni, og sá sem fremstur lá, rak
upp í fjöru og brotnaði mikið.
Báturinn heitir Ársæll, eigandi
Valdimar Traustason. Sýndist
báturinn með öllu ónýtur, en nú
er verið að athuga möguleika á
að flytja hann til viðgerðar á
Akureyri. Trillan er fimm tonn
Er Skeiðarárhlaup í aðsigi?
Sala Happdrættislána ríkissjóðs vegna vega- og brúargerðar á Skeiðarársandi nú hafin
ÁKVEÐIÐ hefur verið að leggja
veg og byggja brýr um Skeiðar-
ársand og eru framkvæmdir að
hefjast. En þeim á að vera lokið
1974 og verður þá kominn hring
vegur um landið, lengi þráður.
En fram að þessu hafa jökul-
hlaupa úr Grímsvötnum og
Grænalóni ógnað allri vega-
gerð á sandinum.
Með trú á nýrri tækni verður
þessi vegagerð hafin. Og í dag,
miðvikudag, hefst sala happ-
drættisskuldabréfa ríkisins,
vegna nefndra vega- og bríia-
gerða milli Lómagnúps og
Skaftafells, 34 km. vegalengd.
Síðustu mánuði hefur þess
verið beðið með óþreyju að
Skeiðará hlypi, svo að hagnýta
mætti rannsóknir við það hlaup
við þær framkvæmdir, sem fyrir
dyrum Itanda. Og nú virðist
hlaup árinnar á næstu grösum,
að sögn Ragnars Stefánssonar
bónda á Skaftafelli, sem fylgist
vel með ánni.
Síðasta Skeiðarárhlaup var
1965. Hámarksvatnsmagn síð-
ustu áratugina í Skeiðarárhlaup
um hefur verið 10—11 þúsund
rúmmetrar á sek. Má af því sjá
hve erfitt það muni vera, að
gera vegasamband tryggt á
þessu svæði. □
Myndin er af Skeiðarársandi
og nágrenni hans. □
að stærð og illa farin. Það hefði
komið sér vel að hafa hafnar-
garðinn sáluga.
Grásleppuveiðin er ekki haf-
in ennþá. Gæftir eru litlar þótt
Veðráttan sé góð að öðru leyti.
En þegar gefur á sjó aflast sæmi
lega og er bæði róið með línu
og þó mest með handfæri.
Mikil sjóselta gekk upp á
eyna og er það ekki gott fyrir
gróðurinn. En, sem betur fór,
kom úrfelli á eftir og mun það
hafa hreinsað verulega. Jörð
var farin að grænka og er það
óvenjulegt. S. S.
FRÁ LÖGREGLUNNI
TVEIM bílum var stolið um síð-
ustu helgi á Akureyri. Fundust
þeir báðir skömmu síðar og
voru þeir óskemmdir að kalla.
Þriðja bílnum var stolið fyrir
skömmu og sagði áður frá því.
Allir þessir stolnu bílar voru
ólæstir og lyklar í kveikjulásn-
um. Samkvæmt umferðarlögun-
um ber mönnum að læsa bílum
sínum. Og jafnvel hér, í þess-
um rólega bæ, sýnist þessa nú
full þörf. Er það einnig illa gert
að freista manna til gripdeilda
með því að loka ekki bílum.
Þá eru mál fjögurra öku-
manna í rannsókn, en þeir eru
grunaðir um ölvun við akstur
og voru teknir um helgina. Þar
af ein kona, sem hafa til þessa
lítt verið orðaðar við ölvun við
akstur. En þær sækja stöðugt
fram til jafnréttis við karlmenn.
Skemmdarverk voru framin í
miðbænum á mánudaginn.
Gluggar í verzlun urðu fyrir
grjótkasti barna.
Þá er lögreglan að rannsaka
nokkur þjófnaðarmál, þar sem
stolið var í íbúðarhúsum. □
GULLSKIPIÐ
GULLS hefur verið leitað í
mörg ár á Skeiðarársandi. En
þar fórst á 16. öld skip hlaðið
gulli og gersemum, og er til
mikils að vinna að finna skipið
og fjársjóði þá, er í því áttu að
vera.
Skipsins verður í sumar leit-
að með nýjum tækjum. □