Dagur - 15.03.1972, Síða 2
2
OSLÓARBRÉF SICRÚNAR STEFÁNSDÓTTUR:
BJÓRSTRÍD íNOREGI
ÖLHREIFIR Norðmonn
skemmta sér oft með því að
segja drykkjusögur frá öðrum
löndum á meðan þeir súpa stór-
um á bjórnum sínum. Ber þá
Hvannarótarbrennivínið is-
lenzka og Svarti-dauði oft á
góma og þá gjarnan í sambandi
við gróflega ýktar drykkjusög-
ur af fslendingum. „Já, þessir
íslendingar. Það er nú meiri
drykkjuþjóðin. Og svo banna
þeir sölu á bjór! Skál fyrir hin-
um örmu, bjórlausu íslending-
um.“
En á meðan mjöðurinn freyð-
2i í bjórkollunum gerjar athygl
isvert frumvarp í norska þing-
jnu. Það er að segja frumvarp
um stórum aukið eftirlit með
sölu á bjór og breytta sölu-
hætti, sem án efa munu hafa í
för með sér verulega hækkun
á núverandi bjórverði.
í dag þarf maður ekki nnnað
en að hlaupa út í næstu mat-
vörubúð þegar bjórþorstinn
steðjar að og ef útlit hins þyrsta
er ekki þeim mun barnalegra
gengur framhaldið eins og í
sögu. — Þú færð bjórinn og
kaupmaðurinn krónurnar. —
Norskum lögum samkvæmt er
jþó bannað að selja unglingum
innan 18 ára aldurs bjór, en
þeim lögum er slælega fylgt
eftir. Og þó til séu mjög heiðar-
legir kaupmenn, sem krefjast
skilríkja, þá eru til ótal aðferðir
við að fara á bak við þá við að
ná í hinn eftirsótta drykk.
Fyrir nokkrum dögum rakst
ég á frétt í einu Oslóarblaðanna
um könnun sem ungtemplara-
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
Ijón og voru fangarnir þegar
fluttir til Reykjavíkur og dvelja
þar, þar til viðgerð á hælinu
hefur farið fram.
SunnanbÍöð slógu því þegar
föstu, að fangarnir hefðu kveikt
:i Hins vegar Iét sýslumaður
Rangvellinga hafa það eftir sér,
að ekkert benti til þess ennþá,
að fangarnir hefðu verið valdir
að brunanum, og mun málið
eflaust skýrast við framhalds-
rannsókn sýslumanns og rann-
sóknarlögreglumanna, er hann
fékk sér til aðstoðar.
félag eitt hafði gert. Félagið
fékk nokkra unglinga, alla
yngri en 18 ára, til þess að fara
í nokkrar búðir og reyna að
kaupa bjór. Ef ég man rétt tókst
tílraun þessi fullkomlega. Ungl-
ingarnir fengu í öllum tilfellun-
um bjórinn afgreiddan vand-
ræða- og spurningalaust. Þessi
tilraun ungtemplaranna var sem
olía á eld þeirra bindindisfélaga,
sem í dag berjast fyrir breytt-
um og strangari sölureglum á
bjór.
Kröfur bindindisfélaganna
eru að öll sala á bjór fari fram
í víneinkasölum og vilja félögin
meina að með því móti verði
aúðveldara að koma í veg fyrir
að unglingar fáí keyptan bjór.
Bindindisfélögin hafa fengið já-
kvæðar undirtektir hjá félags-
málaráðuneytinu og hefur Odd
Höjdahl, félagsmálaráðherra, lát
ið hafa eftir sér í fjölmiðlum, að
hann geri fastlega ráð fyrir að
kröfur félaganna nái fram að
ganga. Telur ráðherrann að
Norðmenn megi gera ráð fyrir
að í haust verði komið í lög að
öll bjórsala skuli fara fram í
gegnum vínútibúin.
Sem stendur er ekki enn ljóst
hvort um verður að ræða al-
gjöra einkasölu í vínútibúunum,
eða hvort vínútibúin koma inn
í myndina sem strangur milli-
liður kaupmanna og veitinga-
húsa annars vegar og brugghús-
anna hins vegar. Milliliður, sem
ber ábyrgð á að kaupmenn og
veitingahús misnoti ekki sölu-
leyfi sín á bjór. — En brugg-
húsaeigendur eru óánægðir með
báðar þessar tillögur. Þeir líta á
þær sem beinar árásir á fyrir-
tæki þeirra, og segja að breyt-
ingar þessar muni stórauka
dreifingarkostnað bjórsins og
þjóni engum skynsamlegum til-
gangi.
Aukinn dreifingarkostnaður
bjórsins snertir veikan punkt á
Norðmönnum því það getur að-
eins þýtt eitt — hækkað verð á
bjórnum. Enn eru þó nokkrir
mánuðir til stefnu til drykkju á
bjór á núverandi verði, keypt-
um hindrunarlaust hjá kaup-
manninum á horninu. Það ætti
að vera Norðmönnum nokkur
huggun. — Já, flestum, en þó
ekki öllum, því einn bær, Molde
FUNDUR í stjórn Félags ís-
ienzkra rithöfunda ályktar að
.lýsa ánægju sinni yfir vaxandi
áhuga og skilningi, sem íslenzk-
am barna- og unglingabók-
menntum hefur verið sýndur að
undanförnu. Öllum greinum
Varar við einhliða mati
bókmennta er brýn þörf á heið-
arlegri gagnrýni, í blöðum og
öðrum fjölmiðlum, og ekki sízt
Nýkomið!
PRJÓNASILKI
einlitt. man;ir litir.
Rósé»tt í miklu úrvali.
á vesturströnd Noregs, hefur
þegar látið til skarar skríða og
bannað alla sölu bjórs nema í
sérstakri bjórsölu. Fram til
þessa hefur ekkert vínútibú ver
ið í bæ þessum og hefur tillaga
um opnun eins slíks verið felld,
oft á stuttum tíma, í almennum
kosningum. En aðeins viku eftir
að bæjarráð í Molde samþykkti
opnun bjóreinkasölunnar gengu
bæjarbúar enn einu sinni til
kosninga um hvort opna ætti
vínsölu á staðnum eða ekki og
brá nú svo við að opnunartil-
lagan var samþykkt með mikl-
um meirihluta. Er bersýnilegt á
úrslitum þessum að bjórunnend
um hefur þótt nærri sér höggv-
ið með bæjarráðssamþykktinni
og verið að hefna sín á yfirvöld-
um staðarins.
Þegar maður sér í hvaða vand
ræðum Norðmenn eru með bjór
inn sinn, vaknar ósjálfrátt sú
spurning af hvaða hvötum
hæðnisfullar athugasemdir
þeirra um bjórleysi íslendinga
eru sprottnar. Og eftir að hafa
lesið langar og ýtarlegar grein-
ar norsku blaðanna um bjór-
vandamálin að undanförnu, þá
á ég auðveldara með að fyrir-
gefa þeim neikvæð og hæðin
skrif um 12 mílna bjórlandhelgi
íslands.
Osló, 10. marz.
Pedro-myndir sigruiu
í firmakeppni
Einmenningsmeistari varð Tómas Sigurjónsson
NÝLEGA lauk firmakeppni
Bridgefélags Akureyrar. Alls
tóku rúm 90 fyrirtæki þátt í
keppninni, og var meðalárangur
90 stig. Röð efstu fyrirtækja var
þessi:
1. Sigurvegari varð Pedro-
myndir, Hafnarstræti 85,
með 119 stig, en spilari var
Hörður Steinbergsson.
2. Bílaleiga Akureyrar, Kaup-
vangsstræti 3, með 115 stig,
spilari Frímann Frímanns-
son.
3. Olafur Ágústsson h.f. með
112 stig, spilari Sveinn Sig-
urgeirsson.
4. Sameinuðu verkstæðin Marz
með 112 stig, sþilari Tómas
Sigurjónsson.
5. Flugfélag íslands með 109
stig, spilari Jóhann Helga-
son.
6. Frystihús KEA með 106 stig,
spilari Alfreð Pálsson.
7. Alþýðumaðurinn með 106
stig, spilari Alfreð Pálsson.
8. K. Jónsson & Co. með 105
stig, spilari Mikael Jónsson.
9. Byggingavöruverzl. Tómas-
ar Björnssonar með 105 stig,
spilari Gissur Jónasson.
10. Útibú KEA, Hauganesi með
104 stig, spilari Gissur Jónas
son.
Bridgefélag Akureyrar þakk-
ar öllum er þátt tóku í firma-
keppninni veittan stuðning.
Einmenningskeppni lokið.
Einnig er nýlega lokið ein-
menningskeppni Bridgefélags
Akureyrar. Spilaðar voru 3 um-
ferðir. Einmenningsmeistari fé-
lagsins varð Tómas Sigurjóns-
son, sem hlaut 320 stig. Annars
er röð 10 efstu manna þessi:
stig
2. Hörður Steinbergsson 316
3. Gissur Jónasson 306
4. Alfreð Pálsson 303
5. Soffía Guðmundsdóttir 291
6. Friðrik Steingrímsson 289
7. Sveinn Sigurgeirsson 285
8. Einar Sigurbjörnsson 284
9. Þórunn Bergsdóttir 277
10. Finnur Marinósson 274
Meðalárangur var 270 stig.
Nú stendur yfir hjá Bridge-
félaginu sveitahraðkeppni, en
keppni þessi er 4 umferðir. Að-
eins einni umferð er lokið. Efst
er sveit Mikaels Jónssonar. Spil
að er á þriðjudagskvöldum í
Landsbankasalnum.
□
Aukin sala Osla- og smjörsölunnar
VERZLUNIN RUN
þeim bókum, sem ritaðar eru
fyrir uppvaxandi kynslóð.
Hins vegar verður ekki hjá
því komizt að benda á þá stað-
reynd, að efnismat það, er hinar
svonefndu „Úur“ framkvæmdu
fyrir síðastliðin jól á nýútkomn-
um barna- og unglingabókum,
er bæði handahófskennt og fljót
færnislega framkvæmt af fá-
mennum hópi, annars kynsins í
sama starfi með svipuð viðhorf
til bókmennta. Það liggur því
ljóst fyrir, að slík aðferð er ekki
líkleg til hlutlausrar leiðbeining
ar, lesendum barna- og unglinga
bóka.
íslenzkír rithöfundar vilja
vara við slíkum vinnubrögðum.
(Samþykkt á stjómarfundi
Félags íslenzkra rithöfunda 25.
febrúar 1972).
Stjórn Félags íslenzkra
rithöfunda.
ÁRSFUNDUR Osta- og smjör-
sölunnar s.f. var haldinn í dag,
föstudaginn 10. marz, í fundar-
sal Mjólkursamsölunnar í
Reykjavik.
Formaður stjórnarinnar, Stef-
án Björnsson, forstjóri, stjórn-
aði fundi og flutti skýrslu
stjórnar.
Framkvæmdastjórinn, Óskar
H. Gunnarsson, flutti skýrslu
um starfsemi fyrirtækisins á
liðnu ári og lagði fram og skýrði
endurskoðaða reksturs- og efna
hagsreikninga fyrir árið 1971.
Heildarframleiðsla mjólkur-
samlaganna á árinu 1971 var:
•
Smjör......... 1430 lestir
Ostur......... 1956 —
Nýmjólkurduft 709 —
Undanrennuduft 679 —
Kasein ......... 219 —
Smjörframleiðslan dróst sam-
an um 80 lestir miðað við árið
áður, en framleiðsluaukning
varð á ostum og mjólkurdufti.
Veruleg söluaukning varð hjá
fyrirtækinu á árinu, sala á
smjöri varð 1063 lestir og jókst
um 44% miðað við árið á undan
og af ostum seldust 802 lestir,
sem er um 13.5% aukning frá
fyrra ári.
Útflutningur mjólkurvara
Ný góðtemplarastúka
NÝ góðtemplarastúka var stofn
uð á Dalvík síðastliðinn sunnu-
dag að tilhlutun Umdæmísstúk-
unnar nr. 5 á Akureyri.
Stúkan hlaut nafnið Norður-
stjarnan og stofnendur voru 17,
en von síðar á fleiri. Æðsti
templar stúkunnar var kosinn
Snorri Árnason bóndi á Völlum,
en mælt var með Jóni Jónssyni
kennara sem umboðsmanni stór
templars.
Starfandi er fyrir á Dalvík
barnastúkan Leiðarstjarnan og
er Sæmundur Andersen kenn-
ari gæzlumaður hennar. □
jókst einnig nokkuð á árinu og
varð sem hér segir:
Ostur .......... 937 lestir
Kasein ......... 230 —
Nýmjólkurduft . 643 —
Undanrennuduft 75 —
Súrmjólk....... 34 —
Smjör .. ....... 308 —
Heildarsala fyrirtækisins á
árinu 1971 nam 854.2 milljónum
króna og jókst um 342.5 milljón-
ir króna á árinu.
Endurgreidd umboðslaun til
mjólkursamlaganna námu rösk-
um 17 milljónum króna.
Framkvæmdastjóri upplýsti á
fundinum að búið væri að
greiða mjólkursamlögum allt
andvirði seldra vara á árinu
1971.
í stjórn Osta- og smjörsölunn-
ar s.f. eru: Stefán Björnsson, for
stjóri, formaður, Erlendur Ein-
arsson, forstjóri, Einar Olafsson,
bóndi, Grétar Símonarson,
mjólkurbússtjóri, Hjalti Páls-
son, framkvæmdastjóri, Jónas
Kristjánsson, fyrrv. mjólkur-
samlagsstjóri.
Framkvæmdastjóri er Óskar
H. Gunnarsson.
(Fréttatilkynning)
TÖNLISTARKYNNING
TONLIST ARKYNNIN GUM á
vegum Tónlistarfélags Akureyr
ar verður fram haldið um næstu
helgi, í húsakynnum Tónlistar-
skólans á Akureyri, og eru
nokkrir miðar til sölu við inn-
ganginn.
Philip Penkins leikur píanó-
sónötu eftir Mozart. Athylgi
skal vakin á breyttum tíma, en
kynning sú, sem vera átti á
laugardag, færist til sunnudags-
ins og hefst kl. 3 síðdegis. En
píanóleikarinn hefur verið kall-
aður suður til að leika á hinni
miklu hátíð blaðamanna
„Pressuballinu11 á föstudaginn.
Síðari kynningin verður kl. 5
síðdegis á sunnudaginrt' ! □
SPA DAGS
SPÁMAÐUR okkar
í 11. leikviku er Páll
Þorgeirsson verzl-
unarmaður. Honum
hefur vegnað vel að
undanförnu í get-
raununum. Hann
fékk vinning á 11
rétta núna fyrir
stuttu og er það í
annað sinn, en alls
hefur hann haft 8
sinnum 11 leiki
rétta og 50 sinnum
10 leiki rétta.
Rétt getraunaröð
úr síðustu leikviku:
x-2-1 — 1-1-1 —
2-2-x — 2-x-l.
Leiktr 18. marz 1972 1 X 2
Birmlngham — Huddersf.1 / ' i
Leads — Tottenham1 7 <
Manch. Utd. — Stoka1 /
Ipswich Southampton!l /
Llverpool — Newcastie* /
Manch. City — Chelsea* /
Sheff. Utd. — Everton* /
West Ham — Nott’m For.* /
Blackpool — Millwall* /
Luton — Burnley* £
Portsmouth — Norwlch* X
Q.P.R. — Mlddlesboro* /