Dagur - 19.07.1972, Page 8
SMÁTT & STÓRT
,,Snjóköttur“ Baldurs Sigurðssonar.
(Ljósni.: E. D.)
'3ALDUR Sigurðsson, kunnur
.\kureyringur af stórvirkum
ækjum og fangbrögðum sínum
úð grjót og byggingu sjóvarnar
^arða úr því efni, hefur nú vent
:únu kvæði í kross. Hann eign-
aðist snjóbíl fyrir nokkrum
árum, sem frægur e rorðinn og
: íefndur „Snjókötturinn". Á hon
jm hefur hann farið margar
: erðir suður á jökla og um
öræfin þvert og endilangt. En
:iú er Snjókötturinn kominn
suður á Dyngjuháls, norðan við
'/atnajökul, nálægt Gæsavötn-
irh. Þangað er fært jeppum og
jallabílum og þangað leggja
nargir leið sína á síðari árum.
,'Jú ætlar Baldur, og með hon-
' im Ingólfur Ármannsson, að sel
: lytja fólk á hinu ágæta farar-
tæki sínu frá Dyngjuhálsi og
ipp á jökulinn í áætlunarferð-
um, óg í sambandi við hina
ýmsu ferðamannahópa, sem
fram til þessa hafa þurft að láta
sér nægja að mæna til Vatna-
jökúls, konungs íslenzkra jökla,
án þess að komast þangað upp.
Snjókötturinn er öflugt farar-
tæki og sérlega vel útbúið.
Hann dregur allstóran sendils-
bíl, sem verður á skíðum í stað
hjóla og einnig farangurssleða.
En sjálfur tekur Snjókötturinn
11 farþega.
Ferðafélag Akureyrar mun
fyrsti hópurinn, sem nýtur þess-
arar „Vatnajökuls-rútu“, og fór
það sína jökla- og hálendisferð
nú um helgina.
Dagur sendir þeir félögum,
Baldri Sigurðssyni og Ingólfi
Ármannssyni, árnaðaróskir í til-
efni þessa sérstæða sumarstarfs.
Ákureyringar með 13 stig
ÍBA-LIÐIÐ, sem leikur í 2.
deild, hefur nú lokið öllum
leikjum sínum í fyrri umferð
íslandsmótsins. Liðið er með 13
stig og í efsta sæti í deildinni,
en F.H. kemur á hæla þeim með
12 stig.
Omferðaslysum Ijölgar
kjarsfjórnin sefur
UMFERÐARSLYSUM hefur
jölgað nokkuð í þessum bæ að
undanförnu. Það er e. t. v. ekki
jeðlilegt með auknum umferðar
junga á hinum mjóu og oft á
úðum illa merktu götum okkar.
3n mörg af þessum slysum
nætti forðast með gætilegri
ikstri, betra eftirliti lögreglu á
götunum og betra skipulagi í
umferðinni. Eitt alvarlegt slys
'arð sl. laugardagskvöld á því
slysahorni, Glerárgata—Strand-
gata. Þarna eyðilögðust tveir
áílar að mestu, fett var flutt í
sjúkrahús vegna slysa, sem töld
ust þó ekki alvarleg, og annar
bíllinn hafnaði með framendann
: nn um glugga á næsta húsi.
Ég fullyrði, að þetta slys hefði
ekki orðið þama, hefði þarna
verið komið upp umferðarljós.
!fin þetta tjón, sem þarna varð,
kostar líklega álíka upphæð og
umferðarljós á þennan stað. Það
er sorglegt til þess að vita, að
sú ágæta bæjarstjórn, sem ríkj-
um ræður í þessu bæjarfélagi,
skuli æ ofan í æ daufheyrast
við kröfum umferðarnefndar,
lögreglu, bílstjóra og annarra,
um að gera eitthvað raunhæft
í þessum málum til að forðast
þessa tíðu bifreiðaárekstra. Það
er krafa almennings í þessum
bæ, að nú sé ekki sofið lengur,
heldur pöntuð umferðarljós á
2—3 verstu slysahornin og sett
upp strax og þau koma.
■*. "
Við höfum ekkert bréf upp á
það hvenær verður manntjón í
slysi þarna, hvort það verður
þú eða ég lesandi góður, eða
börnin okkar.
S. B.
Síðustu leikir fóru þannig, að
Akureyilngar sigruðu Ármann
með 5:1, og sl. laugardag sigr-
uðu þeir Hauka 3:1. Ekki er
hægt að segja að ÍBA-liðið hafi
sýnt neina „glans“-leiki undan-
farið, heldur mun það réttara,
að liðið leiki svipaða knatt-
spyrnu og mótherjarnir. Það er
öruggt, að síðari umferðin verð-
ur erfið fyrir ÍBA-liðið, því það
á eftir að leika tvívegis í Hafnar
firði og einu sinni á Selfossi.
Völsungar á Húsavík hafa
staðið sig vel, þó þeir töpuðu
fyrir F.H. syðra með miklum
mun.
Á sunnudaginn kemur mæta
Akureyringar ísfirðingum hér á
íþróttavellinum, en ísfirðingar
eru neðstir í 2. deild og hafa
ekkert stig hlotið enn.
í kvöld, miðvikudag, fer fram
leikur í Bikarkeppni KSÍ hér á
íþróttavellinum og leika þar
ÍBA og Völsungar. Leikurinn
hefst kl. 20.00. □
EKKI í SAURBÆJARHREPPI
Gildir bændur í Saurbæjar-
hreppi létu þess nýlega getið
við blaðið, í tilefni af frétt um
fjóshrun, að Dagur hefði rang-
lega talið slysið í þeirra hreppi.
Það hefði hent norðan lireppa-
niarka, í Hrafnagilshreppi.
Tjáðu þeir blaðinu, að í Saur-
bæjarhreppi væru fjós traust-
byggð mjög, væri þeim ekki
hætt við hruni og báðu að færa
atburð þennan út fyrir hreppa-
mörkin, þar sem liann ætti
heima.
HUGMYNDASAMKEPPNI?
Um leið og fagnað er nýjum
hraðbrautarspotta í innanverð-
um Akureyrarbæ, verður mörg-
um hugsað til tjarnarinnar, sem
myndazt hefur vestan þeirrar
brautar. Þarna er eflaust tæki-
færi til að gera einn fegursta
stað í bænum. Bæjaryfirvöld
munu ekki liafa tekið neina
ákvörðun um notkun lands við
tjörn þessa eða hana sjálfa.
Mörgum sýnist, að fágætu tæki-
færi til að prýða bæinn, megi
ekki glata, að lítt hugsuðu máli.
Hvernig væri að efna til hug-
myndasamkeppni um þennan
stað?
HVER A SÍNUM STAÐ
Hinir pólitísku flokkar í land-
inu, eru nú búnir að sauma
svo að þingmönnum sínum, að
það eru talin undur og stór-
merki að þingmenn virði ekki
að fullu ákvörðun flokks síns í
atkvæðagreiðslum. Og jafnhliða
þessu hefur hinum pólitísku
flokkum tekizt að hóa landsfólk
inu saman í pólitíska dilka og
halda því þar. Mikið af starfi
stjórnmálaflokkanna er við það
miðað, að enginn sleppi út. Til
þess er notaður áróður af öllu
tagi, jafnt blíðmæli sem liótanir.
LÍKA ÞARF AÐ SKEMMTA
Almennir kjósendur höfðu gam
an af því hér á árunuin að fara
á pólitíska fundi og sjá og heyra
andstæðinga leiða saman hesta
sína. Mælska, persónutöfrar, ef
einhverjir voru, og svo auðvitað
rökvísin, voru hinir sígildu
þættir þessara funda, eftir því
sem efni stóðu til. En svo nennti
fólk þessu ekki lengur og hætti
að sækja fundina. Þá fundu
stjórnmálaflokkarnir upp
skennntanir, árshátíðir, sumar-
mót o. s. frv.
Siórkostlegasfa bingó á ísSandi
Verðmæti vinninga samtals 327 þúsund krónur
Gefið sjíikimi blóð
BÍLAUMFERÐ vex, versnar og
verður sífellt hættulegri. Bygg-
ingaframkvæmdir miklar og
fjöldi fólks vinnur í verksmiðj-
um hér í bæ. Þessu fylgir aukin
slysahætta, enda verða alvarleg
slys sífellt algengari. Við vitum,
að þegar alvarleg slys ber að
höndum, getur það haft úrslita-
þýðingu fyrir líf viðkomanda,
að skjótt sé hægt að útvega
blóð. Sama gildir að sjálfsögðu
við skyndilegar blæðingar af
öðrum uppruna, svo sem blæð-
ingar frá þörmum og í sam-
bandi við fæðingar. Slíkt gerir
ekki boð á undan sér.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur
eyri hefir að undanförnu notið
þess að hafa fjölda velviljaðra
og fórnfúsra bæjarbúa á spjald-
skrá sém blóðgjafa, en betur má
ef duga skal — fleiri vantar og
verða aldrei of margir. Veitið
því athygli auglýsingu á öðrum
stað hér í blaðinu.
Á morgun, í kvöld, já jafnvel
á næstu mínútu getur það orðið
þú eða einhver þér nákominn,
sem lífsnauðsynlega þarf á blóð
gjöf að halda.
Gauti Arnþórsson,
Jón Aðalsteinsson,
KNATTSPYRNUFÉLAG Akur
eyrar ætlar að gera tilraun til
fjáröflunar laugardaginn 29.
júlí og er tilraunin ævintýraleg.
Ákveðið er að efna til bingó-
spils á íþróttaleikvangi Akur-
eyrar og eru vinningar að verð-
mæti 327 þús. kr., en þeir eru:
Fiat-bifreið, tvær Mallorcaferð-
ir, 14 daga frítt uppihald, tvær
Kaupmannahafnarferðir, sjö
daga frítt uppihald.
Eins og sjá má, er það ekkert
smáræði, sem spilað verður um.
Spiluð verða fimm bingó og
allir vinningar verða dregnir út.
KA-félagar vænta þess, að
Norðlendingar taki þessari ný-
breytni vel og fjölmenni á völl-
inn um leið og þeir freista gœ-f
unnar. Aðgangseyrir að vellin-
um verður enginn. Fólk er
hvatt til að hafa með sér kross-
viðarspjöld til að hafa á hnján-
um, svo að hægt sé að spila á
meira en eitt spjald. Svavar
Gests stjórnar bingóinu. Verði
veður slæmt, verður því frestað
um einn dag eða lengur ef nauð
syn krefur. Þetta verður nánar
auglýst síðar. □
MIKIÐ ALVORULEYSI
Nú fara flokkarnir einskonar
yfirreið um landið á hverju
sumri og endist naumast árs-
tíðin, til að ná sambandi við
fólkið, háttvirta kjósendur.
Skemmtikraftar eru ekki spar-
aöir, og koma menn til að sjá
og heyra skemmtiatriðin, en
reyna að koma sér undan því að
lilusta á ræðurnar. Svo mjög
hafa þessi mál snúizt við á síð-
ustu tímum, að fólk vill lieldur
hlusta á eftirhermur en sjálfa
höfuðpaura stjórnmálanna. Hlýt
ur þetta að teljast mikið alvöru-
leysi hjá almenningi, eða þá að
stjórnmálamönnum hefur dapr-
azt flugið. Það voru Sjálfstæðis-
menn, sem innleiddu hin stjórn-
málalegu liátíðahöld og aðrir
öpuðu þau eftir.
HÆTTULEGUR STAÐUR
Menn hafa beðið blaðið að vekja
athygli á hinum mörgu og alvar
legu slysum á mótum Strand-
götu og Glerárgötu, segja, að í
fyrra hafi orðið þar fimm bif-
reiðaslys og nú séu þau orðin
átta. Muíiu þar utanbæjarmenn
löngum hafa komið við sögu.
Hér mun þurfa að gera ein-
hverjar þær breytingar, sem
fækka mega slysum á þessum
stað, og til þess er ábendingu
þessari koniið á framfæri.
Dagur
kemur næst út miðvikudaginn
26. júlí.
Holdanautin
verða í Hrísey
NÚ MUN vera nokkurn veginn
ákveðið, að flytja hina frægu og
langþráðu, erlendu holdanauta-
bola til Hríseyjar. En þar þykja
skilyrði hagstæð vegna þess, að
þar er ekki annar búpeningur
fyrir en -nokkrir tugir sauð-
kinda, sem þá verða af velli
lagðir. En þau atriði, er semja
þarf um við Hríseyinga eru auð-
vitað fleiri og standa samningar
yfir. Og enn vantar endanlega
undirskrift landbúnaðarráð-
herra. ,t
Hríseyingar hyggja gott til
þessa innflutnings þótt þeim
hafi ekki verið nautgripir kærir
um alllangt árabil, enda eiga
þessir að . þjóna annarri grein
framleiðslu og jafnvel enn mik-
ilvægari en mjólkurinnar, þótt
holl sé. Þarna á sem sagt að
framleiða sæði til notkunar
handa íslenzkum kúm og til
framleiðslu holdanautakjöts.
Sæðisbankinn, sem upp verður
settur með ,djúpfrystitækjum, á
að miðla stórum landshlutum
verðandi holdanautum. En
vegna sjúkdómshættu er eyja
valin til dvalar kynbótanaut-
anna. □
MEÐFYLGJANDI mynd er af
einbúa á Fljótsheiði, Aðalheiði
Helgadóttur, sem hefur búið ein
í Laugaseli síðustu tvö árin og
hefur ekki við orð að flytja. En
að Laugaseli frá Stafni í Reykja
dal, sem er næsti byggður bær
þar nú, er nær klukkustundar
gangur. Mun sú kona ekki myrk
fælin eða mjög veil á taugum,
sem þar þreyir þorrann og
góuna, alein í heiðarbýlinu, sem
faðir hennar og afi bjuggu á, á
undan henni. □