Dagur - 22.12.1972, Page 9
JÓLABLAÐ DAGS
9
Jólagesturinn
lenzku hrossin upp frá dauðum og eru
að skapa þeim verðugt viðfangsefni á
nýjum vettvangi. Hve óendanlega
miklu meira virði er það ekki, að skapa
því unga fólki á íslandi, sem um þessar
mundir veit ekkert hvað það á af sér
að gera, markmið og leiðir innan
ramma þjóðfélagsins? Þjóðin er svo fá-
menn, að hún má engan utangarðs-
mann eiga, og verum í því sambandi
minnug þess, að þetta unga fólk, þótt
stundum láti það illa, er nákvœmlega
eins og foreldrar þess og ferfeður, að
öllum erfðum og eiginleikum, en hefur
þroskazt á annan veg vegna ytri skil-
yrða. En kréfjandi verkefni og miklar
kröfur sem falla að þörfum þjóðfélags-
ins, leysir orku þess og hæfileika úr
læðingi. Það er allt sem þarf.
Og nú er óumdeildur tími ferðalag-
anna um landið. Við erum taldir van-
þróaðir í vegamálum, og erum það
vissulega, samanborið við önnur og
þéttbýlli lönd. En þótt vegirnir séu
vondir, jafnvel þar sem bezt lætur,
þegar frá eru dregnir smávegarspottar
með varanlegu efni í slitlagi, leggjum
við meira til vegamála, miðað við fólks-
fjölda en flestir aðrir, svo að kalla má
kraftaverk, að eiga þó þjóðvegakerfi,
sem er 8.800 kílómetrar að lengd. Við
eigum líka gnægð bíla, en þeir eru allir
framleiddir fyrir þéttbýlar þjóðir með
steypta vegi, nema jeppar, og hristast
því sundur á skömmum tíma. En
hvorki kippum við vegamálunum í lag
á örskömmum tíma og sízt með orðun-
um einum, né skiptum um bíla. En við
skulum vona að þróunin verði sú, að
ekki líði á löngu þar til vegirnir hæfi
góðum farartækjum. Og öll munum við
undir þær óskir taka, að sem flestir
íslendingar geti sem oftast og bezt not-
ið ferðalaga um land sitt á þessu sumri
á eigin bílum og á vegunum, eins og
þeir eru, og að allir ófúnir menn og
brjóstheilir leggi jafnhliða land undir
fót öðru hverju og reyni að lesa á bók
náttúrunnar, hver eftir sinni getu.
Þökk fyrir áheyrnina.
Við, börnin á Hamri, vorum komin í
hátíðaskap, því að nú var aðfangadag-
ur og jólahátíðin að hefjast. Við vorum
búin að raða jólagjöfunum eins snyrti-
lega um búnum og kostur var á. Svo
var kveikt á jólatrénu og þá var jóla-
hátíðin gengin í garð.
Úti var norðanstrekkingur og kuldi,
inni var hlýtt og bjart. Snjórinn þyrl-
aðist upp mðe rúðunum á litla bað-
stofuglugganum. En okkur þótti meira
gaman að horfa á kertaljósin og baða
okkur í birtu þeirra en að horfa út í
myrkrið. Þá var bankað veikt í glugg-
ann og við litum þangað. Lítill fugl
flögraði á gluggarúðunum, sló hratt
vængjum svo að það var’ eins og ein-
hver væri að banka, ofurveikt. Við
horfðum á þennan litla fugl um stund,
og töluðum um hann í hálfum hljóðum.
Við bræður gengum þá út, fórum
ofur hægt að glugganum og náðum
fuglinum, sem enn var að reyna að
komast til ljóssins en var hálf inni-
króaður á milli gluggans og skaflsins,
í holrúmi sem hafði myndazt af hitan-
um að innan. Og við bárum fuglinn inn
í baðstofuna og slepptum honum þar.
Þetta var undur fögur sólskríkja, sem
syngur öðrum fuglum fegurra um varp-
tímann á vorin uppi á fjöllum og heið-
um. Hún óttaðist okkur ekki, flaug um,
settist á stólbrík, myndaramma, borðs-
hornin og jafnvel á hendur okkar. Hún
gerði líka tilraun til að setjast á jóla-
tréð, en við óttuðumst að kertaljósin
gætu brennt hana og vörnuðum henni
þann stað.
Þetta varð einstakt aðfangadags-
kvöld. Mesti gleðigjafinn þetta kvöld
voru hvorki jólagjafirnar, jólaljósin eða
jólamaturinn, heldur þessi litli jóla-
gestur, sólskríkjan svarta og hvíta, sem
þáði hafragrjón í undirskál.
Kvöldið var liðið áður en maður vissi
af og var það ráð tekið, að búa um gest-
inn í ofurlitlum pappakassa, áður en
gengið var til náða. Næsta morgun,
þegar við lítum í kassann, lá sólskríkj-
an þar dauð og stirðnuð.
Margir áratugir eru liðnir síðan þetta
bar við og ég er nú orðinn gamall, sem
á grönum má sjá. En aldrei hef ég
gleymt litla jólagestinum, sem veitti
okkur meiri unað eitt aðfangadags-
kvöld jóla en nokkuð annað hefur
nokkru sinni gert. Og hver var hann.
(Frásögn T. J.)
JÓN BJARNASON frá Garðsvík:
STÖKUR
Allt er á kreiki, engih grið
ekkert hik né friður.
Einn sig fikrar upp á við
annar að skrika niður.
Trúin er á ringulreið
réttlætið í vanda.
Stöðugt eflir einhver seið
öðrum til að grinda.
Veröld öllu öfugt snýr
eru lögmál brotin.
Enginn veit hvort öfug kýr
eða rétt er skotin.
Menn, sem happa-handarvik
hujidrað þúsund vinna
eiga þó sín asnastrik
inn á milli hinna.