Dagur - 22.12.1972, Síða 11

Dagur - 22.12.1972, Síða 11
JÓLABLAÐ DAGS 11 um. Af þessu má draga þá ályktun, að þetta sé nokkuð langt. En þetta er auðvitað ekki stytzta leiðin milli fyrrverandi og núverandi heimila minna, eins og menn geta séð á landakorti. Lena er ein af hinum miklu fljútum í Síberíu, sem falla til norðurs og eru skipgengar langt inn í land. Hún er 12 km. á breidd, þar sem ln'tn er breiðust og stór og smá skip eru þar stöðugt á ferðinni á sunrrin. Hún rennur um Jakútíu, sem er land feðra minna. En minn fæðingarbær er Bjutejdjak, og búa þar 4—5 þús. manns. Þú munt þurfa að breyta klukk- unni verulega, þegar þú ferðast á milli? Ekki er nú jaust við það. Stund- um á kvöldin, þegar við erum rétt búin að snæða kvöldverðinn lrérna í Þingvallastræti 12, þar sem við eigum heimili, eru frændur mínir og vinir í mínu ganrla heimkynni, þeir árrisulustu, rétt komnir á fæt- ur, til að hefja störf sín. En þótt þetta sé nú svona ólíkt, vegna hnatt stöðunnar, er ýmislegt líkt hér og heima, til dæmis skammdegið, sem á báðum stöðum er langt, og svo hin dásamlega birta á sumrin. En þegar ég hugsa um vini mína eystra, í sambandi við 10 klukku- stunda tímamun, get ég stundum ekki vaíistjhlátri.i i ! i: Hvar ert þú uppiunnin? L norðaustur Síberíu, þar sem stórfljótið Lenaj rennur. Landið okkar heitir Jakutia og er á stærð við nokkur Evrópulönd, en þjóð- flokkurinn, sem heitir Saha, telur 350 þúsund manns. Talið er, að forfeður mínir hafi komið frá Tyrklandi á fjórtándu öld, og þeir ferðuðust þar til þeir fundu sitt fyrirheitna land. Þeir blönduðust mikið ýmsum ættflokkum, einkum mongólskum, svo sem við bertiin.;.";sýn, sem við mér blasti. Norðurlj(')S- með okkur, en tungunni héldum við og gerum ennþá. Hún er skyld tyrknesku. Þarna mun kalt á vetrum? Já, landið liggur svo norðarlega, að þar er mjög kalt á vetrum, eða upp í 61 stig kaldast á celsíus. Hins vegar er hitinn mjög notalegur yfir sumarmánuðina, svona 15—25 stig löngum. Á vetrum er víða mikið fannfergi, svo að lítil hús fara í kaf, eins og mér er sagt að eigi sér stað hér á landi. En sá er meginmunur, að árstíðirnar eru reglulegar. Síðast í september fara skógarnir að fella lauf sitt á skömmum tíma. Þá eru skógarnir ef til vill fegurstir, enda eru þeir þá í flestum regnbogans litum. En svo heldur veturinn inn- reið sína og sleppir ekki tökum fyrr en í maí. Þá kemur vorið og snemma í júní er allur gróður í blóma. Síðan kemur hið dásamlega þriggja mánaða sumar. En sá er munurinn mestur á veðráttunni þar og hér, að árstíðaskiptin eru gleggri og meiri. Haustið er stutt og vorið er einnig stutt, veturinn kaldur og sumarið hlýtt. Er langi veturinn leiðigjarn? Hann er langur, en ég man ekki til að fólk talaði um það á mínum uppvaxtai'árum. Þetta er svo sjálf- sagður hlutur. Og veturinn á sína töfra, þótt langur sé og dimmur, eins og hérna. Til dæmis eru norð- urljósin alveg dásamleg. Þau sjást einnig hér, en eru allt öðruvísi. Heima eru þau oft svo neðarlega og skínandi björt. Ég man alltaf eftir því að vetri til þegar ég var átta ára, að þá vaknaði ég um nótt og var jrá svo sterk birtan, að ég lrélt að kominn væri dagur. En birtan var þó allt önnur og miklu skærari. Þegar ég leit út varð ég bæði hrædd og undrandi á þeirri in vóru alveg niður við jörð, lit- fögur og ákaflega sterk, titrandi og yfirnáttúrleg. En jress ber að geta, að þegar ég sá þessi dásamlegu norðurljós, sem ég naumast gleymi, átti ég heima miklu norðar í land- inu, en jrar dvaldi fjölskylda mín um tveggja ára skeið. Á vetrum fara margir á skíði og sjálf var ég vön á skíðum og þótti skíðaíþróttin flestum íþróttum skemmtilegri. Ekki var hikað við að fara á skíði í 40 stiga frosti, Jrví að við vorum svo vel búin. Hvernig er byggðin í landinu? í gamla daga var hún ekki ósvip- uð og hún er hér á Tándi í sveitun- um, ]>. e. bæirnir stóðu dreifðir. Nú er byggðin færð saman í jrorp og samyrkjubú. Gömlu bæirnir standa flestir auðir, en margir nota Jrá fyr- ir sumarbústaði. Þar er víða ein- staklega friðsælt og sérlega fagurt. Er það rétt að jörð sé frosin árið um kring? Já, sá er munurinn Jrar og hér, að hér á íslandi höfum við jöklana uppi yfir okkur, en heima höftim við Jrá undir fótunum, ef svo mætti segja. Þess vegna er okkur ekki mikil Jrörf á kæliskápum. Jarðhús eru gerð niður í frosna jörðina og þar helzt frostið árið um kring. Þcssi aðferð á auðvitað ekki við í fjölbýlishúsúm kaupstaðanna, en héntar mæta vel í sveitaþorpunum ög á samyrkjubúunum. Húsdýrin? Á samyrkjubúunum er mikið af nautgripum. Bæði eru Jrar mjólk- urkyn og holdakyn, sem bæði eru ólík að stærð og vaxtarlagi. En þær mjólkurkýr, sem elztar eru og kenndar við okkar land, eru frern- ur smávaxnar. Þá er svínarækt og alifuglarækt, einnig er víða margt hrossa. Hestarnir okkar eru litlir

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.