Dagur - 22.12.1972, Side 29
J ó LA B L A iÐ DAGS
29
Reykjakirkja i Tungusveit. Ein 9 kirkna í hinu fyrirhugaða Miklabtejarpreslakalli.
prestakalli í öðrum landsfjórðungi. Því
hefst frumvarpið einfaldlega við hjarta-
stað Alþingis hins nýja.
Kjalamesþing skulu ná yfir alla
Gullbringu- og Kjósarsýslu með þar í
liggjandi kaupstöðum. 5 prestar áttu að
þjóna í Kjalarnesþingum, þar af 21 í
Reykjavík sjálfri.
Þá koma Staðaþing frá Hvalfjarðar-
botni og um Borgarfjörð, Mýrar,
Hnappadalssýslu og Snæfellsnes. Prest-
ar í Staðaþingum skyldu vera 6. á
þessu svæði eru nú 11 prestaköll, voru
13 1970. Nafnið Staðaþing gegnir furðu,
enda eru fáir kirkjustaðir á þessum
slóðum, miðað við aðra landshluta, sem
bera staða heiti, nema Staður á Oldu-
hrygg (Staðarstaður).
Næstu þing eru þó furðulegust af
öllu í þessu frumvarpi. Innfjarðaþing
nái um Dalasýslu, Barðastrandarsýslu
út að Stálfjalli og eyjar þær á Breiða-
firði, sem heyra þessum sýslum,
Strandasýslu allt norður á Geirólfs-
gnúp og Vestur-Húnavatnssýslu. 1 Inn-
fjarðaþingum skyldi vera 7 prestar,
vestast á Brjánslæk, en austast í
Kirkjuhvammi í Miðfirði, en sá prestur
þjóni einn allri Vestur-Húnavatnssýslu,
nema Stað í Hrútafirði. Þegar þetta var
gert, voru 13 prestaköll á sundurleitu
svæði Innfjarðaþinga. 1970 var þeim
fækkað um 4 (Staðarhóll í Saurbæ,
Flatey á Breiðafirði, Brjánslækur og
Tjörn á Vatnsnesi). Dala- og Stranda-
prófastsdæmi voru og bæði niður lögð
1970. I |
Vestfjarðaþing tók yfir ísafjarðar-
sýslur og Barðastrandarsýslu vestan
Kleifaheiðar. Voru þau ólíkt samstæð-
ari eining en Innfjarðaþingin. 4 prestar
skulu þar þjóna og 2 á ísafirði, sem
gegni öllu Djúpinu. Síðan þetta var
áformað hafa eftirtalin brauð verið
lögð niður á svæðinu: Hrafnseyri, Núp-
ur, Ögurþing, Staður í Grunnavík,
Staður í Aðalvik.
Hin fimmtu þing voru Skagaþing,
Austur-Húnavatns- og Skagafjarðar-
sýslur. Voru þar ætluð þessi 5 brauð:
Steinnes (Undirfells-, Auðkúlu-, Svína-
vatns-, Þingeyra- og Blönduóssóknir).
Höskuldsstaðir (Bergstaða-, Bólstaðar-
hlíðar-, Holtastaða-, Höskuldsstaða-,
Hofs- og Spákonufellssóknir). Er þetta
prestakall í lengra lagi, frá Fossum í
Svartárdal og út að Höfnum á Skaga,
a. m. k. 100 km. 1952 var Auðkúlu-
prestakall sameinað Bergsstöðum, en
prestsetrið þá á Æsustöðum í Langa-
dal. Nú er prestsetrið í Bólstaðarhlíð,
en prestlaust — og þjónustan svo sett
sem frumvarpið 1935 gerir ráð fyrir.
Hin 3 brauðin í Skagaþingum er Sauð-
árkrókur (Ketu-, Hvamms-, Sauðár-
króks-, Reynistaðar-, Glaumbæjar- og
Rípursóknir). Þá er að telja Miklabæ
(Víðimýrar-, Reykja-, Mælifells-, Goð-
dala-, Ábæjar-, Silfrastaða-, Miklabæj-
ar-, Flugumýrar- og Hofstaðasóknir).
Viðvík (Hóla-, Viðvíkur-, Hofs-, Fells-,
Barðs- og Knappstaðasóknir). Árið
1880 höfðu verið lögð niður prestaköll-
in í Óslandshlíð og Sléttuhlíð, 1907
voru Goðdalir sameinaðir Mælifelli og
1970 Hvammsprestakall lagt til Sauðár-
króks, en Barðsbrauð til Hofsóss, sem
nú er kirkjustaður (frá 1959) og prest-
setur um alllangt skeið í stað hinna
tveggja, er af lögðust 1880. — 1 Austur-
Húnavatnssýslu og Skagafirði gerði
frumvarpið 1935 ráð fyrir fækkun
presta úr 12 í 5. Þeim hefur fækkað í 9,
en þó er enn sagt með nokkrum sanni,
að fá héruð muni svo þétt setin prest-
um sem Skagafjörður. Þar eru nú 7
prestar í 6 köllum, en Hvammspresta-
kalli hefur þjónað frá 1946 síra Finn-
bogi Kristjánsson, og heldur hann öll-
um réttindum til embættisins meðan
nýta vill og heilsu hefur og nær ekki
sjötugsaldri. Þess má geta, að síra Finn-
bogi var síðasti presturinn á Stað í
Aðalvík (1941—1945). Þegar síra Finn-
bogi hættir prestskap í Hvammi legst
prestakallið sjálfkrafa til Sauðárkróks.
Frá Almenningsnöf og austur á Sand-
víkurheiði í Norður-Múlasýslu áttu að
kallast Eyjaþing. Vestasta brauðið var
Siglufjörður, en Ólafsfjörður skyldi
sameinast Völlum í Svarfaðardal. í
Grímsey voru þá 125 manns og átti eyj-
an að vera sérstakt brauð áfram.
Stærri-Árskógur leggist til Möðruvalla-
klausturs, en um Hrísey allt á huldu
sem þegar segir. Þá var áætlað, að Háls