Dagur - 30.07.1975, Síða 2
2
BÆNDAFÖR TIL KANADA
Stjórnir Búnaðarfélags íslands
og Stéttarsambands bænda
ákváðu í vetur að efna til
bændafarar til Kanada í tilefni
100 ára afmælis búsetu íslend-
inga þar.
Ferðin hefur verið skipulögð
af Upplýsingaþjónustu landbún
aðarins í samvinnu við aðstoðar
landbúnaðarráðherra í Mani-
toba, Flelga Austman í Winni-
peg. Hann hefur af frábærri vin
semd annast allan undirbúning
að móttöku hópsins í Kanada.
Flogið verður frá Islandi til
Calgary í Alberta þans 5. ágúst.
Strax fyrsta daginn m,un verða
tekið á móti hópnum af íélögum
í Leif Eiríksson félaginu í Cal-
gary. Þaðan verður ekið að
Old’s bændaskólanum en þar
verður gist næstu 6 nætur. Alla
daga verður farið í ferðir um
Alberta, bændur heimsóttir,
skoðuð iðnaðar- og verslunar-
fyrirtæki tengd landbúnaðisum.
Farið verður til Klettafjalla
og annarra fjölsóttra ferða-
mannastaða.
Þann 10. ágúst munu þátttak-
endur vei'ða viðstaddir hátíðar-
höld sem Vestur-íslendingar
halda í Markerville. Þar verður
fjölbreytt dagskrá, sem að
nokki-u verður helguð minn-
ingu Stefáns G. Stefánssosar.
Þar sem jörð er óskemmd, er
sprettan orðin sæmileg í Þistil-
firði og nokkrir bændur hafa
hirt eitthvað af heyjum og allir
eru byrjaðir að slá. Þurrkar
voru daufir í síðustu viku en
sprettutíð góð, sagði fréttaritari
blaðsins á Gunnarsstöðum í
Þistilfirði, Óli Halldórsson, á
sunnudaginn. Og hann sagði:
Lionsmenn voru á sjó í nótt
og öfluðu sæmilega á færi. Ég
var að koma af sjónum rétt í
þessu. Klúbburinn fær aflann
til ráðstöfunar því við kunnum
ekki við að vera að safna fé
hver hjá öðrum í svona fá-
mennu byggðarlagi, en viljum
heidur afla verðmætanna á
þennan hátt. Ætli þeir, sem
mestan afla fengu, hafi ekki
verið með allt upp í tonn, fjórir
á bát. Bátarnir voru fimm og
tveir til fjqrir á hverjum. □
Fyrsti asfiltfarmurinn
í dag kemur til Akureyrar
fyrsti asfaltfarmurinn, sem ekki
er fluttur í tunnum, heldur laus
í lest. Verður honum dælt í
nýja geyminn hjá Slippstöðinni,
sem þá hlýtur sína vígslu, en
hann rúmar 1200 lestir og ný-
uppsettur.
Geta malbikunarframkvæmd-
irnar þá hafist hér á Akureyri
og verður fyrst unnið hjá Vega-
gerð ríkisins við aðal veginn
norður úr bænum, við Hörgár-
braut. Síðán verður hafist
handa um malbikun innan bæj-
arins, bæði á vegum bæjarins
við hina venjulegu gatnagerð
og fyrir ýmis fyrirtæki í bæn-
um, fram á haust, eftir því sem
veður leyfir. □
Dóttir skáldsins, Rósa Bens-
diktsson, mun flytja ávarp. Guð
mundur Ingi Kristjánsson skáld
og bóndi á Kirkjubóli flytur
ljóð, sem hann hefur ort af til-
éfni þessarar hátíðar í minn-
ingu Stefáns G. Jafsframt mun
Guðmundur Ingi afhenda gjöf
Stéttarsambands bænda til
minjasafns Stefáns G., Sem opn-
að verður við þetta tækifæri-
Stéttarsambandið hefur ákveð-
ið að gefa 1,5 millj. lsr. til við-
halds og endurbyggingar á húsi
því sem var heimili Stefáns G.
Fylkisstjórnin í Alberta'hefur
ákveðið að lána hópferðabifreið
ir til afnota fyrir bændaförina,
þessa daga sem ferðast er um
fylkið.
Þann 11. ágúst mun hópurinn
yfirgefa Old’s bændaskóla og
halda til Elfros í Saskatchewan,
þar mun fólk af íslenskum upþ-
runa tak.a á móti þátttakendum,
drulddð Verður kaffi sameigin-
lega, síðan mun hópnum verða
skipt niður á heimili í Elfros,
Wynyard og nágrenni þessara
bæja, á heimilum verður snædd
ur kvöldverður og gist.
Daginn eftir verður haldið til
Winnipeg, þar sem gist verður
á hóteli um nóttina.
Þann 13. ágúst verður farið
um Vatnabyggðir og m. a. verð-
ur Óli Narfason kúabóndi heim-
sóttur.
Þeir þátttakendur serri ekki
eiga ættingja eða vini í :Mani-
toga, hefur verið boðið að
dvelja hjá Vestur-íslendingum
í nágresni Gimli, Árborg og
Lundar næstu 3 nætur.
Sunnudaginn 17. ágúst verð-
ur farið um Suður-Manitoba,
komið til Morden og Baldeu.
Fararstjórar verða Agnar
Guðnason og Jónas Jónsson. □
ÓLÆTI Á TJALDSTÆÐI
Akureyri, 28/7 ’75.
Heiðruðu Akureyi'ingar og bæj-
arstjórn Akureyrarbæjar. í hug
leiðingum um sumargistingu
hér fyrir norðan, hef ég og tveir
kunningjar mínir orðið fyrir all
verulegum vonbrigðum með
Akureyri gagnvart næði og
friði að kvöld- og næturlagi hér
á tjaldstæðum Akureyrarbæjar.
Við þremenningar komum hér
fimmtudaginn 24/7 til að vera
hér og keppa á íslandsmótinu í
golfi og um leið að skoða okkur
um hér og sjá stærsta bæ Norð-
urlands með eigin augum. En
keppnin og ánægjan, sem ætl-
unin var að njóta hér fyrir norð
an hefur smá saman rokið út í
veður og vind vegna ónæðis af
átroðningi og drykkjusvalls á
svefnstæði bæjarins. Þegar
fyrstu nóttina voru nokkur
læti, en ekki neitt svo teljandi
væri, en aðfaranótt laugardags-
ins fór nú gamanið að kárna,
því við áttum að mæta í keppni
um kl. 6.30 um morguninn, svo
við fórum snemma til svefns og
ætluðum að vera vel útsofnir
um morguninn. Því miður varð
lítið úr svefninum þá nótt því
fólk var að koma og fara alla
nóttina um svæðið, bæði að-
komufólk til að tjalda og bæjar-
unum fjölgað um allan helming
og jafnframt aumingjaskapur-
inn líka, því að því er mér skild
ist á tjaldstæðisverðinum, sem
er þarna á daginn, þá átti eitt-
hvert manngrey að hafa verið
á vakt þá nóttina- Mikið ósköp
fór eitthvað lítið fyrir honum
því hávaðinn og lætin voru
alveg mögnuð, svo við höfðum
alveg fría næturskemmtun og
vöku alla þá nóttina, en sem
betur fór þá áttum við ekki að
mæta fyrr en um kl. 10.30 í
keppnina þann daginn, svo við
gátum söfið um 2—3 tíma,
„merkilegt nokk.“ En sunnu-
dagsnóttina keyrði um þverbak
allan aumingjaskapinn og
drullusokkaháttinn, en einmitt
mánudagsmorguninn kl. 6.30
áttum við að vera mættir í
keppnina. Gekk þannig á alveg
frá um 11 um kvöldið og til um
klukkan 5. Til að byrja með
voru þetta.bara almennar sam-
ræður og. hlátur, sem voru nú
ekki beint alvarlegs eðlis, en
þegar klukkan fór að ganga tvö
fóru ýmis aukahljóð að bætast
inn í og í heldur ófögrum og
óskemmtilegum tón. Héldum
við að þetta myndi lagast og
gerðum ekkert í málinu framan
af, en þegar á þríðju klukku-
stund var liðið fóru bæjar-
búar að heimsækja fólk á tjald-
svæðinu til að stunda drykkju-
svall og að því er mér heyrðist
saurlifnað af grófasta tagi. Leið
þetta þannig mestalla nóttina
og voru hinir heiðvirðu gestir
þar, sem þó voru í meirihluta
orðnir þreyttir og úrillir á
þessu, því almennileg kyrrð
komst ekki á fyrr en um klukk-
an 4. Næsta kvöld hafði tjöld-
af, en þegar á þriðju klukku-
stund var liðið og ástandið fór
versnandi þá sóttum við lög-
regluna til að þagga niður í
ólátabelgjunum. Gekk það rétt
á meðan hún var þar, en í sömu
andrá og hún fór þá hjakkaði í
sama farinu og ve.rð meira að
segja margfallt verr en áður.
Var bæði fólk að koma og fara
í tjöldin útúrdrukkið og illa til
fara, var þarna aðkomufólk í
stærri hlutanum. Gekk nú á
ýmsu og er þetta örugglega fjöl-
breytilegasta samkvæmi, sem
við höfum verið viðstaddir.
Voru sumir gestirnir í það ann-
arlegu ástandi að þeir ultu
þarna um svæðið og duttu á
tjöld, sem sofið var í, milli þess
sem þeir sungu og kjöftuðu
hátt. Kom lögreglan margar
ferðir en gerði ekkert róttækt
í málinu því um leið og hún
birtist datt allt í dúnalogn.
Þannig gekk þetta langleiðina
upp undir morgun. í dag fór ég
svo og kvartaði til bæjarstjórn-
arinnar við heldur dræmar
undirtektir. Árangur akkar. hef-
ur því ekki orðið eins góður og
við vonuðumst til. Er nú þannig
komið að við verðum hréinlega
að flýaja staðinn til að fá frið
og eru það nokkuð harðir kost-
ir sem uppá er boðið hýr fyrir
norðan. Skorum við því hér
með á alla bæjarbúa og.bæjar-
yfirvöld að bæta þetta ástand
hið allra fyrsta- Akureyrt, sem
hefur orðið það mikið ferða-
mannaorð á sér gæti áuðveld-
lega gloprað því niður í ékkert
með þessu móti, því þigð var
altalað af ferðafólki að ólíft
væri þarna og gengu sumir svo
langt að þeir hreinlega flúðu í
burtu. Viljum við því ofur
kurteislega benda á þessa hlið
málsins og að þessu vérði kom-
ið á framfæri. Höfum við nú
ákveðið að halda brott til
nálægri staða til að njóta frís-
ins. „Þannig fór nú um sjóferð-
ina þá.“
Magnús II. Skarphéðiiissoiij
Jóhann Sveinsson,
Sæmundur Pálsson. •
Þessi mynd af Jóhannesi R. Snorrasyni flugstjóra, Sigurði Ingólfs-
syni vélamanni, Jóhanni Gíslasyni loftskeytamanni og Magnúsi
Guðmundssyni aðstoðarflugmanni, er 30 ára og hún er af áhöfn
TF ISP í fyrsta fluginu til Kaupmannahafnar.
Nokkur undanfarin ár hafa
Flugfélag íslands og SAS haft
samvinnu um flug milli Skandi-
navíu, íslands og Grænlands.
SAS hefur leigt þotur Flugfé-
lagsins til tveggja ferða í viku
frá Kaupmannaliöfn til Kefla-
víkur og þaðan til Narssars-
suaq. Að auki hefur Flugfélagið
flogið tvær til þrjár ferðir í viku
milli Keflavíkur og Narssars-
suaq.
Á fundi fulltrúa félaganna,
sem nýlega var haldinn í Stokk
hólmi, tilkynnti SAS að félagið
mundi frá og með 1976 sjálft
annast framangreint flug með
eigin þotum. Næsta sumar eru
ráðgerðar fjórar SAS flugferðir
milli Norðurlanda og íslands.
Tyær ferðir verða flognar milli
Kaupmannahafnar, Keflavíkur
og Narssarssuaq fram og aftur
og aðrar tvær milli Kaupmanna
hafnar, Osló og Keflavíkur
fram og aftur.
SAS hóf flug til íslands árið
1968 með DC-8 þotum. Félagið
hætti svo flugi haustið 1970
með eigin þotum, en leigði
næsta sumar Boeing-727 þotur
ENGAR
UNÐANÞÁGUR
Verkalýðsíélagið Vaka á Siglu-
firði hefur samþykkt:
„Fundur í stjórn og trúnaðar-
mannaráði verkalýðsfélagsins
Vöku á Siglufirði, lýsir fyllsta
stuðningi sínum við útfærslu
fiskveiðilögsögu íslands í 200
sjómílur.
Fundurinn varar jafnframt,
enn á ný, við því, að nokkrar
undanþágur til erlendra aðila
verði veittar, til veiða innan
hinnar nýju fiskveiðilögsögu.
Fundurinn leggur áherslu á
það álit sitt, að efnahagslegt
sjálfstæði þjóðarinnar í fram-
tíðinni ákvarðist mjög af því,
hvort það takist á næstu árum,
að bæta þann mikla skaða, sem
orðinn er á fiskistofnum um-
hverfis landið, og telur því, að
enginn tímabundin efnahags-
leg ívilnun geti réttlætt það nú,
að samið verði við erlend ríki
um fiskveiðiheimildir innan
hinnar nýju lögsögu.11 Q
Flugfélags fslands til þessara
flugferða. Nú hefur SAS hins
vegar tekið í notkun Boeing-727
þotur, sem félagið keypti af
Transair í Svíþjóð nýlega, og
hyggst nota þær til íslands- og
Grænlandsferðanna.
Reykjavík, 27. júní 1975. i
(Frá Kynningardeild Flug-
leiða, Reykjavíkurflugvelli)
Fyrir verslunár-
mannalielgina
Rúllukragapeysur,
15 litir.
Dömujakkar.
Dömubolir,
margar gerðir.
Dömublússur
o. fl. o. fl.
VERZLUNiN DRÍFA
SÍMI 2-35-21.
Sl. laugardag tapaðist
grænn tjaldpoki í Vaðla-
heiði ofan við Veiga-
staði.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 2-30-81.
FUNDARLAUN.
Bifreidir
Til sölu Thems traider
70 árgerð 1963.
Uppl. gefur Jens Jóns-
son, Garðsvík.
Til sölu Volkswagen
1302 árg. 1971 ekinn
47 þús. kílómetra.
Uppl. í shna 2-18-89
eftir kl. 20.