Dagur - 30.07.1975, Qupperneq 8
Bagub
AHLVSiSASÍMI
DAGUB
Akureyri, miðvikudaginn 30. júlí 1975
FULL BÚÐ
AF NÝJUM
VÖRUM
I
I
i
Líklega verður það síðar talinn tímamótaleikur í knattspyrnu þegar kvennaflokkur Þórs keppti við
kvennalið frá Keflavík og vann 1—0. En kvennaknattspyrna hefur Iítt verið stunduð hér fram að
þessu. Sést hér kvennaílokkur Þórs ásamt þjálfara sínum, Steingrími Bjömssyni- (Ljósm.st. Páls)
Sauðárkrókur, 28. júlí. Nú er
mikil sprettutíð og óslegin tún
með kafgrasi, en þurrkar eru
engir, heyin liggja undir
skemmdum og bændur hika við
að slá meira á meðan svona
viðrar..
Sæmilegur afli er hjá bátun-
um og einnig hjá togskipunum
og mikill fiskur berst til frysti-
húsanna hér á Sauðárkróki og
einnig á Hofsósi. í morgun gat
frystihús kaupfélagsins t. d.
ekki tekið á móti meiri fiski, en
þá kom Hegranesið með góðan
afla-
Um helgina verður mikið
mót hestamanna tveggja félaga,
Léttfeta á Sauðárkróki og Stíg-
anda í sveitinni. Þar verða kapp
reiðar og fleira og hefst það
klukkan 5 á laugardaginn. Þar
verður án efa mikið líf og fjör
og dansleikur á eftir.
Þessi tími nú, um hásumarið,
er hinn gamli og góði bjargræð-
istími og sem betur fer er at-
vinna næg og fólkið vinnur
mikið, skapar mikil útflutnings-
L jót aðkoma á Eiðsvelli
Um síðustu helgi gerðu cin-
hverjir sér það til skammar á
Eiðsvellinum á Akureyri, að
slíta upp mikið af blómum og
troða önnur niður í blómabeð-
unum, svo þetta leit hroðalega
út og er hreint skemmdarverk.
Er þetta því sárara, sem blóma-
beðin á þessum fagj'a velli stóðu
loks öll í blóma.
Taka ber hart á þessum
ósóma og þurfa bæjarbúar að
standa vörð um sína fögru staði.
verðmæti og byggir ört upp
staðinn. Það er vinna og aftur
vintta, sem mestan svip setur á
mannlífið og það er gott mann-
líf á þessum árstíma, annasamt
menningarlíf með ívafi skemmt
ana og þeirrar tilbreytni, sem
fólkið getur veitt sér til að njóta
. sumarsins.
Látlaust er unnið við nýja
flugvöllinn í sumar og ennfrem
ur við hafnargarðinn og er þar
verið að setja stálþil að innan-
verðu.
í Ilúseyjarkvísl og Svartá
hefur laxinn verið tregur það
sem af er og Staðaráin gefur
heldur ekki mikið ennþá, en
þeir moka honum upp í Blöndu
og það ei' nú önnur saga. G. O.
AGILA GJALDÞROTA
Skiptafundur í þrotabúi Skó-
verksmiðjunnar Agila h.f. lief-
ur farið fram hjá sýslumanns-
embættinu á Eskifirði. En skó-
verksmiðja þessi var rekin um
nokkurra ára skeið á Egilsstöð-
um. Ákveðið var að bjóða eign-
irnar upp.
HVASSAFELLIÐ
Viðgerð á Hvassafellinu, fann-
skipi Sambands ísl. samvinnu-
félaga, sem strandaði í vetur við
Flatey á Skjálfanda, mun um
það bil að Ijúka í skipasmíða-
stöð í Kiel í Þýskalandi. Talið
er, að viðgerðin muni kosta um
109 milljónir króna, en auk þess
varð mikill kostnaður við björg
un skipsins á strandstað og er
þá ótalið það mikla tap, sem
stafar af því hve skipið hefur
lengi tafist frá siglingum.
BROTLEGIR VEIÐIMENN
Nýlega hafa samtök landeig-
enda, sem laxveiðisvæðum ráða
og ennfremur samtök veiði-
félaga gefið út yfirlýsingar um
þau vandkvæði að láta veiði-
menn fylgja settum reglum við
veiðiskapmn. Kemur það fram
lijá báðum aðilum, aö algeng-
ustu brotin við veiðiárnar eru
þau, að veiðimaður, sem hefur
eitt veiðilevfi, hefur með sér
annan veiðimann og veiða svo
báðir þar scm lítið ber á. Þessi
ósiður hefur víða tíðkast og
hafa veiðimenn komist upp með
þetta vegna slælegs eftirlits við
árnar og sloppið með aðvörunar
orðin ein þegar upp kemst. Nú
Fyrirtækið Sportver h.f. er nú
að senda til Danmerkur þúsund
sett af karlmannafötum og er
þetta í fyrsta sinn, sem karl-
mannaföt eru flutt út frá ís-
landi. Fötin eru framleidd fyrir
danska fyrirtækið G. Falbe
Hansen í Randers í Danmörku.
Þau eru að mestu leyti úr ullar-
efnum og eru í rúmlega meðal
verðflokki á dönskum markaði.
Fötin eru flutt á herðatrjám
í plastpokum, með flugvél Is-
cargo- Þetta hefur í för með sér
margvíslegt hagræði. Mikill
kostnaður sparast í umbúðum,
nokkrar vikur sparast í flutn-
ingum og kaupandi þarf ekki að
pressa fötin við móttöku.
Fyrirtækið G. Falbe Hansen
framleiðir föt og verslar einnig
með þau í heildsölu frá öðrum
framleiðendum. íslensku fötin
verða seld að mestu í verslun-
um á Norðurlöndum. Sportver
h.f. hefur haft samvinnu við
þetta fvrirtæki síðan 19G8 og
hafa fyrirtækin meðal annars
gert sameiginleg innkaup á fata
efnum.
Fötin í þessari fyrstu send-
ingu eru af mörgum stærðum,
allt frá númer 96 til 128, sem er
óvenjulega stórt. Sportver h.f.
lítur á þennan útflutning sem
tilraun.
Sportver h.f. framleiddi í
fyrstu sportfatnað, en árið 1964
keyptu núverandi eigendur fyr-
irtækið og hófu framleiðslu á
karlmannafötum, undir nafninu
Kóróna. Fyrirtækið hefur vaxið
mjög ört og er nú einn stærsti
framleiðandi á karlmannafötum
á landinu.
Á Akureyri selur Herradeild
KEA föt frá Sportver og á Siglu
firði Verslunin Túngata 1.
Starfsfólk er um 35 manns í
vei'ksmiðju, auk um 15 starfs-
manna í verslunum fyrirtækis-
ins.
(Fréttatilkynning)
Dalvík, 29- júlí. Síðdegis í gær
varð hér hörmulegt dauðaslys,
er 16 ára piltur, Jónas Antons-
son, beið bana í bæjarvinnu.
í dag verður tekið fyrir
grunni á stjórnsýslumiðstöð á
Dalvík og verður byggingin
röskir tvö þúsund fermetrar að
gólffleti. Bygging þessi á að rísa
sunnanvert við verslunarhús
Útibús KEA hér á staðnum.
Þá er búið að bjóða út bygg-
ingu heilsugæslustöðvar og
verður hún norðanvert við Hóla
veg. Væntanlega getur vinnan
hafist áður en langt líður. V. O.
Bjöm Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sportvers h..f., og Guð-
geir Þórarinsson, sölustjóri, við hluta af fyrstu fatascndingunni,
sem fer til Danmerkur.
mun eiga að taka þetta fastari
tökum og er mál til komið.
f BETRI ÁTT
Sem betur fer fjölgar þeim
veiðimönnum þó, sem hvar-
vetna vilja koma vel fram við
veiðiárnar, sem margir telja
næstum helgan stað. Þeim fækk
ar, sem skilja eftir flöskubrot
og bjórdósir á árbökkunum, og
þeim fækkar einnig, sem skilja
eftir nælonlínur, sem orðið geta
sauðfé að fjörtjóni, og þeim
fækkar áreiðanlega einnig, sem
svíkja tímann við ána, vanvirða
afmörkuð veiðisvæði eða nota
þau veiðarfæri, sem bönnuð eru
Undantekningamar eru þó enn
of margar og er æskilcgt fyrir
alla aðila, einkum þó fyrir vciði
mennina sjálfa, að eftirlit sé
aukið til muna við árnar og
refsingar liggi við brotum á
settum reglum.
23 STÓRLAXAR
Þingeyingar tóku 23 stórlaxa í
Laxárgljúfrum í síðustu viku
og fluttu þá upp fyrir virkjanir,
upp í Laxárdal, en þeir.höfðu
króast í litlum polli undir Brú-
arfossum, en þessi gildra er til
orðin vegna breytinga á rennsli
árinnar af völdum Laxárvirkj-
unar. Með þessu er lagður
grundvöllur að náttúrulegu
klaki laxins á hinu víðlendaí
svæði ofan virkjunar, sem sam-
tals er um 70 km langt, þegar
Kráká er með talin. í viðtali við
eitt Reykjavíkurblaðanna niinn
ir Hermóður bóndi í Árnesi á,
að bændur hafi á undanförnum
árum sleppt miklu af laxaseið-
um á þetta stóra svæði. Er
það í samræmi við sátta-
samninginn í Laxárdeilunni, en
samkvæmt þeim samningi tók
ríkið að sér að byggja laxastiga
framlijá virkjunarsvæðinu við
Brúar, en laxastiginn liefur
ekki verið byggður.
FORSPÁR MAÐUR
Roskinn Þingeyingur og dulur,
sá fyrir náttúruhamfarir þær,
sem urðu á Norðfirði í vctur, er
snjóflóðin miklu féllu þar og
sagði frá jiví á sínum tíma.
Þessi forspái maður hefur oft
séð óorðna atburði. Svo vildi til,
að blaðið átti Jiess kost að fá
staðfesta forspána um náttúru-
hamfarirnar á Norðfirði og leit-
aði sérstaklega cftir liví vegna
sögusagna liér á Akureyri um
það, að sami maður liefði spáð
eldgosi á Húsavík. En sú spá er
ekki frá lionum komin, lieldur
spáðu konur þessum ótíðindum
í kaífibolla.
BÖRNIN OG EITRIÐ
Aldrei er það of oft brýnt fyrir
fólki, að geyma eiturefni svo
vel, að börn nái ekki til þeirra.
Á síðasta ári cr vitað uin á
áttunda hundrað eitranir hjá
börnum af þeim sökum, að þau
komust í ýmiskonar efni, þeim
skaðleg og ncyttu þeirra, og er
þessi háa tala um citrunarslysin
úr Reykjavík einni og frá yfir-
lækni slysadeildar Borgarspítal
ans komin. Ný reglugerð um
merkingu liættulegra lyfja,
„Geymið þar sem börn ná ekki
til“, virðist ekki hafa komið í
veg fyrir gáleysislega meðferð
hinna „kemisku1 efna, sem eiga
að vera vandlega geymd á
heimilum.
SMÁTT
&■ STÓRT