Dagur - 22.06.1977, Qupperneq 7
Ran nsóknarlögreglan
Lögin um rannsóknarlögreglu
ríkisins taka gildi 1. júlí í sum-
ar. Rannsóknarlögreglustjóri er
Hallvarður Einvarðsson. Hann
og Eiríkur Tómasson, fulltrúi
dómsmálaráðherra, skýrðu ný-
lega svo frá:
Þetta er einn síðasti áfang-
inn í þeim breytingum á réttar-
farslögunum sem staðið hafa
yfir mörg undanfarin ár. — Með
þessum lögum væri að miklu
leyti skilið milli dómsvalds og
lögregluvalds hérlendis. Saka-
dómur fer þá ekki lengur með
yfirstjórn rannsóknarlögreglu
og frumkvæði rannsóknar af-
brotamála flyst til rannsóknar-
lögreglu ríkisins. Ríkissaksókn-
ari hefur þó enn sem fyrr rétt
til að krefjast dómsrannsóknar
ef honum þykir ástæða til.
Hins vegar er ætlunin að
rannsóknarlögreglan vinni mál-
ið svo langt að saksóknari geti
strax ákveðið hvort höfðað
Á aðalfundi Búnaðarsambands
Eyjafjarðar 1974 var samþykkt
að láta gera farandgrip, sem
veittur væri eiganda þess hrúts,
sem efstur stæði í röð heiðurs-
verðlaunahrúta á héraðssýn-
ingum hverju sinni. Var Krist-
ján Vigfússon Litla-Árskógi,
Árskógsströnd, fenginn til þess
að gera þennan grip. Lauk hann
því verki nú á sl. vetri.
Er þetta hinn ágætasti grip-
ur, hrútshöfuð, skarið út úr tré,
fest á veggskjöld.
skuli opinbert mál eða ekki.
Þetta þýðir með öðrum orðum
að mál verði unnin allt fram að
ákærustigi.
Ranns.lögreglustjóri sagði, að
við uppbyggingu þessarar nýju
stofnunar hefði meðal annars
verið stuðst við fyrirmyndir og
gögn frá öðrum norðurlöndum.
Hann kvaðst hyggja á heim-
sóknir til þessara landa þegar
tími væri til og kynna sér starf-
semina þar. Þegar hefðu verið
lögð drög að kynnisferðum
starfsmanna rannsóknarlögregl-
unnar til annarra landa og nú
væru menn að kynna sér tölvu-
notkun og ýmisleg tæknileg at-
riði, sem hann kvaðst munu
leggja mikla áherslu á. Einnig
sagði Hallvarður, að lögð hefðu
verið drög að samstarfi við
ákveðinn endurskoðanda þegar
um bókhaldsrannsóknir væri að
ræða.
Meðfylgjandi mynd er tekin
nú fyrir skömmu, þegar Sveinn
Jónsson, formaður B. S. E., af-
henti Friðrik Magnússyni bónda
á Hálsi við Dalvík þennan grip,
en hrútur hans, Bjartur, stóð
efstur í röð heiðursverðlauna-
hrúta á síðustu héraðssýningu.
Viðstaddur afhendinguna var
Árni G. Pétursson sauðfjár-
ræktarráðunautur Búnaðarfé-
lags íslands.
Húsnæðið.
Allmiklar umræður hafa orðið
um húsakaup þessarar stofnun-
ar. Gert var bráðabirgðasam-
komulag við Tryggingar hf. um
leigu á húsi félagsins við Skafta-
hlíð, en fjármálaráðuneytið féllst
ekki á það samkomulag.
Svo fór að lokum, að keypt
var húseignin Auðbrekka 61 í
Kópavogi. Verðið var 115 millj-
ónir króna og voru 40 milljónir
greiddar út. 30 milljónir greið-
ast 25. janúar 1978 og 45 millj-
ónir greiðast með skuldabréfi til
fimm ára sem ber 4% vexti.
Húsið er 1470 fermetrar að
stærð á þremur hæðum, og hafa
verið unnar frumteikningar að
innréttingum í það. Vonir
standa til að hægt verði að taka
húsnæðið í notkun fyrir næstu
áramót. Þangað til verður rann-
sóknarlögreglustjóri með aðset-
ur í Lögreglustöðinni við Hverf-
isgötu, en flestir aðrir úr starfs-
liði hans í Borgartúni 7.
Dómsmálaráðherra hefur
gert að tillögu sinni, að starfslið
verði tæplega 40, en síðan fjölg-
að smátt og smátt á næstu árum
eftir því sem fjárhagur leyfir.
Auk Hallvarðs Einarssonar
verða helstu yfirmenn Þórir
Oddsson deildarstjóri og stað-
gengill rannsóknarlögreglu-
stjóra, Erla Jónsdóttir og Örn
Höskuldsson deildarstjórar,
Njörður Snæhólm yfirlögreglu-
þjónn, Gísli Guðmundsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn og
Ragnar Vignir sömuleiðis sem
einnig verður yfirmaður tækni-
deildar. Eftir er að ráða í stöðu
skrifstofustjóra, stöðu 29 rann-
aóknarlögreglumanrua og boð-
unarmanna og stöður þriggja
aðstoðarmanna. Alls hafa um
60 sótt um stöður rannsóknar-
lögreglumanna. Félag rann-
sóknarlögreglumanna hefur lýst
óánægju sinni með það að ráðið
var í stöður aðstoðaryfirlög-
regluþjóna án þess að þær væru
auglýstar sérstaklega.
Bjartur er bestur hrúta
Úr fréttabréfi KEA
f nýútkomnu fréttabréfi Kaup-
félags Eyfirðinga, KEA-fregn-
um, segir meðal annars:
Hótel KEA.
Segja má, að Hótel KÉA hafi
lengi framan af valdið forráða-
mönnum félagsins talsverðum
áhyggjum og var það árum
saman rekið með tapi. Á síð-
ustu árum hefur þetta breyst
og verið að snúast við. Her-
bergjanýting hefur farið batn-
andi og er nú með því besta,
sem þekkist hér á landi, eða
72,16%. Hagnaður hótelsins á
síðasta ári varð tæplega 9,5
milljónir og hefur afkoma þess
aldrei verið jafn góð.
Matstofan.
Skömmu eftir áramótin var haf-
ist handa u mstækkun Matstof-
unnar. Verkið hefur gengið
hægar en ætlað var í upphafi
og stafar það aðallega af yfir-
vinnubanninu. Vonir standa til,
að hægt verði að opna nýja hlut
ann áður en langt líður (verður
sennilega búið að opna þegar
þetta blað kemur út) og þegar
það er búið, verður tekið til
við endurnýjun á núverandi
húsnæði Matstofunnar, sem
ætti að taka miklu skemmri
tíma.
Snæfell EA 740.
Fyrsta heila úthaldsári Snæ-
fells er nú lokið. Skipið hefur
reynst vel og allt gengið áfalla-
laust. Heildaraflinn varð 2586
tonn og er það nokkuð yfir
meðallag á Norðurlandi. Aflinn
fór svo til allur til frystingar í
Hrísey, lítið eitt til frystihús-
anna á Dalvík og ein söluferð
var farin til Klakksvíkur í Fær-
eyjum. Aflaverðmæti alls varð
151 milljón og 370 þúsund krón-
ur og hásetahlutur um 2 millj-
ónir og 590 þúsund krónur.
Nýtt frá verksmiðjunum.
Efnaverksmiðjan Sjöfn hefur ný
lega komið með tvær nýjar
framleiðsluvörur á markaðinn:
Alfa-Beta lágfreyðandi þvotta
efni til notkunar fyrir mjalta-
ikerfi, mjólkurtanka, mjólkur-
vinnsluvélar, vinnsluvélar fyrir
frystihús, kjötvinnslur og ann-
an matvælaiðnað, auk upp-
þvottavéla á matsölustöðum. —
Alfa-Beta inniheldur m. a. lág-
freyðandi yfirborðsvirkt efni,
sem leysir vel upp hvers konar
fitu, en brotnar þó auðveldlega
niður í náttúrunni. Þá inniheld-
ur Alfa-Beta klórsambönd til
sótthreinsunar, fosföt, sem
hindra myndun á mjólkursteini
og kalksteini, og silikat, sem
kemur í veg fyrir tæringu vissra
málmtegunda.
Rex 33, vatnshelt trélím, með
herði til líminga á hlutum, sem
þurfa að þola langvarandi veru
í raka eða vatni. Rex 33 er því
kjörið til líminga á gluggum,
útihurðum, garðhúsgögnum, í
baðherbergjum, svo og í skipa-
iðnaði og víðar. Rex 33 má nota
án herðis og er þá rakaþétt, en
ekki vatnshelt. Búðarverð á
eins líters dós án herðis er kr.
510,00 og kr. 591,00 með herði.
Kjötiðnaðarstöð KEA hóf 'ný-
lega vinnslu á vörum úr hrossa-
kjöti og samkvæmt óskum frá
félagsmönnum og öðrum við-
skiptavinum var fyrst hafin
framleiðsla á hrossabjúgum. —
Bjúgu eru framleidd á mismun-
andi hátt, oftast er notað nokk-
uð fínhakkað kjöt, en í hin nýju
hrossabjúgu er kjötið mjög gróf
hakkað. Hrossabjúgun eru ríf-
lega 20% ódýrari en kinda-
bjúgu. — Þá hefur einnig ný-
lega verið hafin framleiðsla á
saltkjötsfarsi, sem hlotið hefur
ágætar móttökur og vinsældir
hjá viðskiptavinum. Saltkjöts-
farsið er selt frosið í plastgörn-
um, í um það bil 700 gr. ein-
ingum. — Á sl, ári tók Kjötiðn-
aðarstöðin alls á móti 704 tonn-
um af kjöti auk 130 tonna af
ýmis konar grænmeti. Söluaukn
ing Kjötiðnaðarstöðvarinnar ár-
ið 1976 nam 53,6%, eða árssalan
alls kr. 472.517.873,00.
Gott að dvelja á Bifröst
Sumarheimilið á Bifröst í Borg-
arfirði er tekið til starfa. Þang-
að var ritstjóra Dags boðið og
var það boð þegið í síðustu
viku. Það var gott að vera í
Bifröst, þar sem Samvinnuskól-
inn hefur lengi verið, er á sér-
kennilegum og fögrum stað. —
Hraunið með öllum sínum lit-
brigðum, talsvert skógarkjarr,
hið sérkennilega Hreðavatn
með sumarbústaðina í skógi-
vöxnum hlíðum skammt frá og
hin laxauðuga Norðurár, er
þarna allt saman komið á einn
stað að heita má. Umhverfis eru
svo sveitabýlin í Norðurárdal
og stuttar leiðir til hinna mörgu
sveita og dala í Borgarfjarðar-
héraði, fullum af sögustöðum
og mikilli náttúrufegurð. Bifröst
er sem kjörinn staður til að
dvelja á og fara þaðan í lengri
eða skemmri ferðir.
Það er nokkuð útbreiddur
misskiningur, að sumarheimilið
sé eingöngu fyrir samvinnu-
menn. Heimilið er öllum opið,
jafnt hópum sem einstaklingum
á meðan húsrúm leyfir. Þar er
fæði selt gestum, einnig þeim,
sem búa í sumarbústöðunum og
óska að nota sér þau þægindi.
Þetta er þriðja árið, sem sum-
arstarfið í Bifröst er með þess-
um hætti og hefur það áður
byrjað með húsmæðraviku sam-
vinnumanna eftir aðalfund
Sambandsins, þótt ekki væri það
að þessu sinni.
Verði er í hóf stillt og mjög
margir kjósa að panta vikudvöl
á staðnum með fjölskyldur sín-
ar. EJifröst hefur auk síns eigin
húsnæðis Varmalandsskólann,
sem er skammt frá og er þar
veitt gisting og morgunverður.
Þrettán starfsmenn voru í
Bifröst þegar mig bar að garði.
Mjög vel geðjaðist mér þetta
fólk allt og veitti það ánægju-
lega fyrirgreiðslu, hvert á sínu
sviði, jafnt í borðsal sem við
aðra afgreiðslu á staðnum.
Að nokkru afgreiða dvalar-
gestir sig sjálfir í borðsal og á
herbergjum og er það lítil fyrir-
höfn en sparar kostnaðinn. For-
stöðu sumarheimilisins veitir
Guðmundur Arnaldsson frá Ak-
ureyri.
Samvinnuskólinn í Bifröst
starfar á vetrum. Skólastjóri er
Haukur Ingibergsson, en fastir
kennarar eru fimm talsins. —
Mikil aðsókn hefur verið að
skólanum. í skólanum var í vet-
ur 81 nemandi og auk þess tveir
bekkir í Reykjavík með 24 nem-
endum.
Seinþreyttir...
Framhald af 1. síðu.
skiptið, sem þeir framkvæma
þetta, og er það lofsvert og
mættu aðrir taka sér það til
fyrirmyndar.
Grasspretta er miklu seinni á
ferðinni en undanfarin ár. Vet-
urinn, sem mátti telja snjólétt-
an og mildan, endaði raunar
ekki fyrr en um miðjan maí. Þá
snögghlýnaði og fór að grænka.
En 4. júní gerði kuldakast í
eina viku með frosti flestar næt-
ur og neyðarkulda alla daga.
Síðan hefur tíð verið góð og oft
mikill hiti, en grassprettan er
hæg vegna stöðugra þurrka, því
úrkoma hefur engin verið að
gagni síðan hætti að snjóa. J. H.
Mikil velta
Aðalfundur Kaupfélags Skag-
firðinga var haldinn á Sauðár-
króki 7. og 8. júní. Rétt til
funcjarsetu með atkvæðisrétti
áttu 75 menn, þar af 52 full-
trúar, 13 deildarstjórar og svo
stjórn og framkvæmdastjóri og
endurskoðendur. Formaður fé-
lagsins, Gísli Magnússon, setti
fundinn og flutti skýrslu stjórn-
arinnar, en Helgi Rafn Trausta-
son, kaupfélagsstjóri, las og
skýrði reikninga. í ræðum
þeirra kom meðal annars þetta
fram:
Félagsmenn voru um sl. ára-
mót 1400 með 3200 manns á
framfæri sínu, en íbúar í Skaga-
firði eru um 4200. Fastráðið
starfsfólk er 197 og launagreiðsl-
ur og launatengd gjöld hjá fé-
laginu og fyrirtækjum þess
urðu á síðasta ári 341,6 millj.
kr. og höfðu þessar greiðslur
hækkað um 98 milljónir frá
fyrra ári.
Sala vöru og þjónustu varð
1649 milljónir og sala á innlend-
um afurðum varð 1275 milljón-
ir. Heildarvelta kaupfélagsins
og fyrirtækja þess, Fiskiðjan
þar með talin, varð 3 milljarð-
ar og 265 milljónir króna. Hafði
veltan aukist um 884 milljónir
frá árinu 1975. Heildar fjárfest-
ingar námu 103 milljónum. —
Kaupfélag Skagfirðinga greiddi
í opinber gjöld 183 millj. kr. Á
sl. ári var lógað 63 þús. kindum
á vegum félagsins og var kjöt-
innleggið 950 tonn. Auk þess
var lógað um 1700 nautgripum
og hrossim.
Mjólkursamlagið tók á móti
liðlega 9 millj. kílóum af mjólk
og framleidd voru úr henni 228
tonn af smjöri, 66 tonn af kas-
eini og 374 tonn af osti. Kaup-
félagið greiddi til bænda 1
milljarð og 56 milljónir króna
fyrir afurðir 1976.
Hinn 1. maí sl. hófust flutn-
ingar á mjólk með tankbílum
frá bændum. Þegar afskrifað
hafði verið eins og lög gera ráð
fyrir, var rekstrarhagnaður,
tæpar 14 milljónir. Aðalfund-
urinn samþykkti að 9,5 millj-
ónir færu í stofnsjóð félags-
manna, í hlutfalli við viðskipti
þeirra.
Að þessu sinni áttu þeir
Gunnar Oddsson og Jónas Har-
aldsson að ganga úr stjórn, en
voru báðir endurkjörnir. Aðrir
í stjórn eru: Gísli Magnússon,
Jóhann Salberg Guðmundsson,
Marinó Sigurðsson, Þorsteinn
Hjálmarsson og Stefán Gests
son. G. Ó.
DAGUR•7