Dagur - 22.06.1977, Síða 8
DAGUR
Akureyn, miðvikudaginn 22. júní 1977
WILLY5 VARAHLUTIR
Féð rekið á snjónum
Þegar blaðið hitti Valtý Krist-
jánsson, bónda í Nesi í Fnjóska
dal, fyrir helgina og spurði
frétta, sagði hann meðal annars:
Þessa dagana er verið að reka
fé til Flateyjardals. Nú er ágæt-
ur sauðgróður kominn. En þar
er snjór á heiðum og féð víða
rekið á snjó. Ennfremur er féð
flutt fram Fnjóskadal á bílum
og vögnum, t. d. fram í Tungu
og fram fyrir Sörlastaði. í haust
var byggð brú á Bakkaá, sem
auðveldar flutninga búfjár, þó
ekki sé um bílfæra brú að ræða.
Hinn 5. júní fór fram prests-
kosning í Hálsprestakalli. Um-
sækjandi var einn, séra Pétur
Þórarinsson frá Akureyri, og
var hann settur prestur hjá okk
ur síðan í haust. Fólkið vill hafa
hann áfram, því hann var kos-
inn með meira en 80% atkvæða
í prestakallinu. Kona hans er
Ingibjörg Siglaugsdóttir og er
hún hjúkrunarkona að mennt-
un. Engar kosningar í Fnjóska-
dal hafa verið eins ótvíræðar
og vel sóttar. Presturinn hefur
mikið starfað að æskulýðsmál-
um, svo sem við sumarbúðirnar
við Vestmannsvatn.
Skólanum á Stórutjörnum
var slitið viku fyrr en ætlað var,
því jafn margir frídagar voru
notaðir til kennslu og börnin
voru hamingjusöm yfir því að
komast heim til að hjálpa til
við sauðburðinn og foreldram-
ir munu líka hafa glaðst yfir
því, að fá þá aðstoð á miklum
annatíma. Skólastjóri er Viktor
Valtýr Kristjánsson,
bóndi í Nesi.
Guðlaugsson. Skólanum var slit
ið 7. maí.
Ráðgert er að bora eftir heitu
vatni í sumar, því heita vatnið
þyrfti að auka ef þess er kostur.
Nú hefur verið ákveðið að
leigja skólahúsnæðið fyrir Eddu
hótel þrjú næstu sumur og verð
ur það hótel opnað eftir fáa
daga. Þá má geta þess, að
fimmtán manna hópur rúss-
neskra vísindamanna hefur sótt
um að mega dvelja í Stóru-
tjamaskóla í sumar eða hluta
úr sumrinu og hefur maður frá
Orkustofnun beðið um þá fyr-
irgreiðslu. En rússarnir hafa
óskað eftir húsnæðinu einu en
munu vilja elda sjálfir handa
sér.
Um veiðiskap er það að
segja, að smábleikja er alltaf í
Ljósavatni og ennfremur urriði.
Ekki hef ég frétt um að lax
hafi gengið upp í vatnið, en nú
getur hann gengið £ Djúpá og
hefur veiðst dálitið af honum
neðan til í ánni.
Þá er þess að geta, að á síð-
asta hausti var gerður laxaveg-
ur í Laufáslandi og Litlagerðis.
En fossar þar eða strangar flúð
ir, þær einu í Fnjóská, hafa
lengi verið veruleg hindrun
bæði laxi og silungi. Mun verk-
ið hafa kostað um þrjár milljón
ir króna og greitt af landeigend
um. En áin er sumar hvert
leigð veiðifélagi á Akureyri.
Þess má geta, að karlakórinn
Goði hélt ellefu söngskemmt-
anir í vor og var aðsókn ein-
dæma góð. Söngstjóri var Ro-
bert Bezdek, en hann og kona
hans hafa dvalið hjá okkur í
vetur.
Blaðið þakkar fréttirnar.
Fundir þingmanna Fram-
sóknarfl. í Norðurl. eystra
Alþingismennimir Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og Ingi
halda almenna landsmálafundi sem hér segir:
Miðvikudaginn
Fimmtudaginn
Laugardaginn
Sunnudaginn
Þriðjudaginn
Miðvikudaginn
22. júní kl. 21 á Breiðumýri
23. júní kl. 21 í Ljósvetningabúð.
25. júní kl. 21 á Hafralæk (skóla).
26. júní kl. 14 í Bárðardal.
28. júní kl. 21 á Grenivík.
29. júní kl. 21 á Svalbarðsströnd.
Aðrir fundir verða auglýstir síðar.
Netahringir og trollkúlur
framleiddar á Akureyri
tækjanna mun PANCO ekki
framleiða þessa vöru næstu ár-
in, einnig mun norska fyrir-
tækið sjá um sölu á netahringj-
um og trollkúlum fyrir Plast-
einangrun hf. í Noregi.
Miklar vonir eru við það
bundnar að um frekari útflutn-
ing, geti orðið að ræða. Sjávar-
afurðadeild SÍS, sem hingað til
hefur haft umboð fyrir þessar
vörur hér á landi, mun áfram
sjá um dreifingu og sölu þeirra.
Netahringir þessir, svo og
trollkúlur, eru framleiddir með
svokallaðri þrýstisprautuaðferð
og þykir sú tækni gefa góð raun
við eins vandasama framleiðslu
og hér um ræðir.
Til gamans má geta þess, að
fyrirhugað er að hefja fram-
leiðslu á trollkúlum sem eiga
að þola allt að 1110 metra dýpi,
eða sem samsvarar 110 loft-
þyngda þrýstingi. Auk þess
þurfa slíkir hlutir að þola vel
allt hnjask og veðrun.
Reiknað er með því að fram-
leiðsla geti hafist í byrjun ágúst
n. k. Jón Sigurðsson verkfræð-
ingur hefur annast undirbún-
ing þessarar nýju framleiðslu.
(Fréttatilkynning).
Fyrirtækið Plasteinangrun hf. á
Akureyri hefur hingað til fram-
leitt plastpoka og einangrunar-
plast en hyggst nú að hefja
framleiðslu á netahringjum og
trollkúlum úr plasti.
Flasteinangrun hefur keypt
bæði vélbúnað og tækniþekk-
ingu frá norska fyrirtækinu
PANCO og mun yfirtaka fram-
leiðslu þeirra á þessum vörum
sem hafa um árabil notið mik-
illa vinsælda hjá íslenskum sjó-
mönnum.
íslenskir tæknimenn hafa
undanfarið verið í þjálfun hjá
norska fyrirtækinu og er miklu
til kostað að tryggja sömu gæði
framleiðslunnar og áður.
Samkvæmt samningi fyrir-
Hér sjást Ola Pedersen forstjóri frá Noregi og Jón Sigurðsson með
netahringi, líka þeim sem fyrirhugað er að framleiða á Akureyri.
t.... * ...... ■ ......... ......................................................... "S ....... ...........1
fslendingar hafa löngum ver
ið áhugamenn um tilbúning
öls og víns og um eitt skeið
gekk bruggöld yfir landið,
sem frægt var að endemum.
Af því heimabruggi veiktust
margir, sumir neyttu í hófi
en urðu ofdrykkjumenn og
til var það, að þessi iðja gæfi
mikla peninga í aðra hönd,
þeim sem brugguðu og
seldu, en gættu þess að
neyta ekki framleiðslunnar
sjálfir. Þetta gerðist t. d. á
árunum eftir 1930. En allar
götur síðan hefur þó verið
bruggað á ýmsum stöðum,
þótt minna sé en áður og
fari ekki hátt
heimabrugg
Nú er ný bryggöld hafin hér
á landi og landsfeður hafa
verið svo „tillitssamir“, að
leyfa innflutning á hráefni
til heimilisnota og dagblöð-
in í Reykjavík hiupu undir
bagga með brugg-áhugafólki
og prentuðu myndir og not-
kunarreglur. Þessu var vel
fagnað. Um 190—200 tonna
hráefni til bruggs, sem inn
hefur verið flutt, lætur sig
ekki án vitnisburðar. Þetta
bruggefni, sem úr átti að búa
til létt öl og „saklaust“, get-
ur orðið með 8% styrkleika
eða meira í höndum þeirra,
sem þess óska, og það er
víða gert. Þessi ófögnuður
er orðinn mjög algengur, að
því er fróðir menn hafa tjáð
blaðinu, og er hér auðvitað
um lögbrot að ræða, sem á
að hljóta meðferð sem slíkt.
• Stúlkan
í f jörunni
í síðasta tölublaði var ofur-
lítil frásögn af stúlkunni í
fjörunni, svip konu, sem
sami maður sá oftar en einu
sinni á Álftanesinu og er
sá maður þó ekki dulrænn.
Nú hefur roskin kona, sem
þarna þekkir til, haft sam-
band við blaðið.. Söguna
þekkir hún og einnig þekkti
hún, sem bam, konu þá, cr
hér um ræðir, og var hin
mesta myndarkona en varð
skammlíf. En saga konunnar
verður ekki birt að sinni.
Margir hafa séð svip hennar.
• Innlánsdeild
og stofnsjóðir
Félagsmenn KEA áttu í Inn-
lánsdeild í ársiok um 490
milljónir króna og höfðu
aukið innstæður sínar um
123,4 milljónir króna, eða
um 33,5%. Innstæður félags-
manna í stofnsjóðum námu
í árslok u. þ. b. 330 milljónir
króna og höfðu aukist um
nálega 77,5 milljónir króna
eða rúmlega 31%. Það er
kaupfélaginu ávallt mikill
styrkur að félagsmenn ávaxti
sparifé sitt í Innlánsdeild-
inni, en þó miklu fremur nú
á tímum rekstrarfjárskorts,
jafnframt því sem félagið
stendur í dýrum fjárfesting-
arframkvæmdum vegna fé-
iagsheildarinnar. Viðhorf fé-
lagsmanna gagnvart Innláns.
deiidinni sýnir vel þá félags-
hyggju, sem jafnan hefir
einkennt eyfirska samvinnu
menn.
• Ný einkasím-
Núverandi einkasímstöð fé-
lagsins, sem tekin var í
notkun í maí 1953 er fyrir
Iöngu orðin of lítii og getur
engan veginn lengur veitt þá
góðu símaþjónustu, sem fé-
laginu og viðskiptamönnum
þess er nauðsynleg. Nú hef-
ur félagið keypt nýja sím-
stöð, sem nýlega er komin
tii landsins. Er verið að út-
búa herbergi fyrir vélbúnað
stöðvarinnar og að því loknu
vcrður hafist handa um að
setja hana upp, sem vænt-
anlega verður lokið um mitt
sumar. Stöð þessi er svo stór,
að fyrirhugað er að tengja
inn á hana alla síma félags-
ins, hvar sem er í bænum,
en það gerir öll símavið-
skipti við félagið cinfaldari.
Er það von félagsins, að hin
stórbætta símaþjónusta, sem
á að fást með hinni nýju stöð,
verði félagsmönnum og öðr-
um viðskiptamönnum til
verulegs hagræðis.
Ráðstefna um iðnþróun á
Norðurlandi á Húsavík
Ráðstefna um iðnþróun á Norð-
urlandi, sem Fjórðungssam-
band Norðlendngaidnga, ís-
lensk iðnkynning og iðnaðar-
ráðuneytið stendur að, hefst á
Húsavík föstudaginn og stend-
ur í tvo daga. Ráðstefna þessi
verður í þrem meginþáttum. í
fyrsta lagi um iðnþróun á Norð-
urlandi, í öðru lagi um stöðu
iðnaðar í þessum landshluta og
í þriðja lagi fjallar ráðstefnan
um nýiðnað og orkubúskapinn.
Framsöguerindi um þessi mál
flytja í sömu röð: Sigurður
Guðmundsson, Þórir Hilmars-
son og Jón Illugason. Ennfrem-
ur Hjörtur Eiríksson, Davíð S.
Thorsteinsson og Sigurður
Kristinsson, og í þriðja þeir Vil-
hjáhnur Lúðvíksson, Bjarni
Einarsson og Kristján Jónsson
um orkubúskap og nýiðnað.
Á þinginu verður unnið í
starfshópUm. Húsvíkingar munu
kynna atvinnulíf og mannlíf og
menningu staðarins, og farin
verður kynnisför til Mývatns-
sveitar.
é