Dagur - 31.10.1980, Qupperneq 2
Bréfaskólinn
Fjörutíu ár liðin síðan
skólinn tók til starfa
Hinn 1. október voru liðin rétt
40 ár frá þvi að Bréfaskólinn tók
til starfa. Hann var stofnaður
árið 1940 af Sambandi ísl. sam-
vinnufélaga og hét þá Bréfaskóii
SÍS. Var tilgangurinn með
stofnun skólans að mæta þörf-
um þess fólks sem ekki átti kost
á að afia sér á annan hátt þeirrar
menntunar sem það óskaði, og
þegar fyrsta árið innrituðust 280
nemendur í fyrstu fjórar náms-
greinarnar.
Árið 1965 gerðist Alþýðusam-
band íslands meðeigandi Sam-
bandsins að skólanum og starfaði
hann næstu tíu árin undir nafninu
Bréfaskóli SlS & ASÍ. Árið 1975
var nafninu síðan breytt í Bréfa-
skólinn, þegar eigendum fjölgaði
og Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja, Kvenfélagasamband íslands,
Farmanna- og fiskimannasamband
íslands og Stéttarsamband bænda
bættust í hópinn. Ári síðar gerðist
Ungmennafélag íslands einnig
aðili að skólanum. Núna á Sam-
bandið 30% eignaraðild að skólan-
um, aðrir eigendur 10% hver, en
10% eignarhluta er óráðstafað.
Bréfaskólinn er rekinn af sam-
eignaraðilum hans og stjórnað af
tíu manna skólastjórn og skóla-
stjóra. Auk þess er árlega boðað til
30 manna fultrúaráðsfundar, sem
m.a. tekur til samþykktar fjárhags-
og rekstraráætlun skólans. Á síð-
asta ári innrituðust um 930 nýir
nemendur til náms við skólann, og
mun heildarnemendafjöldi frá
upphafi vera um 28.000. Kennslu
við skólann annast um 30 kennarar,
og sjá þeir um kennslu í 45 bréfa-
flokkum. Meðal nýjunga, sem
skólinn hefur komið með á síðustu
árum, er að nefna hin svo nefndu
Assimil-tungumálanámskeið, en
þau eru sniðin við þarfir þeirra,
sem vilja stunda sjálfsnám i tungu-
málum, og njóta þau stöðugrar eft-
irspurnar.
Skólastjórar Bréfaskólans hafa
verið Ragnar Ólafsson hrl. 1940-41,
Jón Magnússon fil. kand. 1942-45,
Vilhjálmur Árnason hrl. 1946-60,
Guðmundur Sveinsson skólastjóri
1960-74, Sigurður A. Magnússon
rithöfundur 1974-77, Esther Guð-
mundsdóttir þjóðfélagsfræðingur
1977-78 og Birna Bjarnadóttir, sem
gegnt hefur starfinu frá 1978. Um-
sjón skrifstofu annast Haraldur
Þorvarðarson. Formaður skóla-
stjómar er Kjartan P. Kjartansson
frkvstj.
Og svo minnum við vitaskuld á
það að allar upplýsingar um náms-
greinar skólans má fá í kynningar-
riti hans sem fæst frá skrifstofu
hans að Suðurlandsbraut 32, sími
91-81255.
— rr nrftin lcift á þessu... ei þú hefur ekki taugar til aft svikja
umlan skatti. skaltu haúta þti.
Veriövelkomiii
fhæinn
Gisting á Hótel Esju er til reiðu.
Viö bjóðum þér þægilega gistingu á
góöu hóteli. Herbergin eru vistleg og
rúmgóö, — leigð á vildarkjörum aö vetri
til. Héðan liggja greiöar leiðir til allra
átta. Stutt 1 stórt verslunarhverfi.
Laugardalslaugin og Laugardalsvöllur í
næsta nágrenni.Strætisvagninn
stoppar viö hóteldymar,meö honum
ertu örfáar mínútur í miöbæinn.
Á Esjubergi bjóöum viö þér f jölbreyttar
veitingar á vægu verði.
Á Skálafelli, veitingastaönum á 9. hæö
læturðu þér líöa vel, — nýtur lífsins og
2■DAGUR
- Er það þetta, sem er kallað
olíumálverk?
— Segðu mér, hefurðu alls ekki
tekið eftir, að ég er í nýjum kjól.