Dagur - 31.10.1980, Page 12

Dagur - 31.10.1980, Page 12
Hermann Sveinbjörnsson Hópurinn er ákaflega sundur- Ieitur. Þeir yngstu rétt ná því að vera orðnir fuliorðnir samkvæmt kerfinu sem fullorðið fólk hefur búið til og þetta er jú námskeið fyrir fullorðna. Sá elsti er um sjötugt, að því er virðist, og hann hefur tekið þátt í nám- skeiðum Myndlistaskólans frá því þau hófust. Aðal leirhnoðarinn, kennari hópsins, er ung kona sem heitir Það er grafarþögn. í miðri stofunni situr ungur piltur á tveimur misháum kössum, kviknakinn. Hópur fólks situr við borð, sem raðað hefur verið í hálfhring utan um kassana og allir stara stórum augum á nakinn líkamann. Konur og karlar, ungir og gamlir, vega og meta hverja bugðu og hverja fellingu, hvem einasta blett á líkama unga mannsins. Hann lætur sér þetta í léttu rúmi liggja að því er virðist. Virðist ekki taka eftir þessu nístandi gagnrýnisaugnaráði. „Það er þó alltaf bót í máli að maður fær borgað fyrir þetta,“ gæti hann verið að hugsa. Fólkið sem glápir á piltinn lít- ur af honum, starir á brúna klessu sem það er með milli handanna og fer síðan að hnoða hana og móta, breyta úr kúlulaga kekki i mannsmynd. Mynd af unga bera manninum. Það er á námskeiði í Mynd- listaskólanum á Akureyri. Pilturinn er f Menntaskólan- um á Akureyri og situr fyrir til að drýgja sumartekjurnar. hindrun og eru farnar að líta á strákinn berrassaða sem hvern annan hlut. Það fer ekki hjá því að leirinn mótist mjög misjafnlega í hönd- um nemendanna. „Hann er nú alveg ofsalega afslappaður hjá þér, en horfðu betur á módelið og sjáðu hvernig hann hvílir armana á lærunum og hvernig bakið sveigist," segir Sigurborg við einn nemandann. Sá gerir eins og fyrir er lagt og styttan hans hættir að hlæja og skella sér á lær. Ein stúlkan rekur upp mikil hljóð, þegar hún áttar sig á því að það sem átti að líkjast ungum, þétt- vöxnum manni er orðið eins og Ausvitz-fangi í lok stríðsins í höndum hennar. Fólk á létt með að grínast yfir eigin mistökum. Fari eitthvað úrskeiðis er gott að geta tekið því létt og hlægja svolítið. Það er gert hlé og skólastjórinn býður upp á kaffi. Sjálfur drekkur hann ekkert nema kók úr minnstu flöskunum, sem er orðið eins konar einkenni fyrir hann. Kaffi- hléið er stutt, allir eru ólmir að halda áfram sköpunarstarfinu. Fanginn sem áður var hefur nú fengið á sig fitulag fyrir tilstilli skapara síns. Annar sem var óvenju mikill um herðarnar fær að kenna á sköfunni. „Maður er svo vanafastur," segir sú sem rýrir herðar leirtröllsins með sköfunni. Hún á líklega herðabreiðan mann. „Hvenær fáum við að mála,“ spyr einnn nemandinn. „Fyrst verðið þið að ná góðum tökum á þessu, svarar Sigurborg ákveðin. Hvað um það. Sjálfsagt er hægt að fara margar leiðir að markinu. Markmið sumra er háleitt en aðrir gera þe'c'ta mest til að læra að hafa eitthvað fyrir stafni. En allir skemmta sér konunglega. Sigurborg Ragnarsdóttir. Hún er frá Norðfirði, þar sem roðinn í austri er hvað mikilfenglegastur að sögn. Hún hvarf úr faðmi austfirsku fjallanna suður til Reykjavíkur. Þar verða menn gjaman áttavilltir því þar er landið ekki í eins einföldu og góðu skipulagi og á Norðfirði og við Eyjafjörð. Norðfjörður snýr í austur og Eyjafjörður í norður og allir geta í fljótu bragði áttað sig á því. En það getur verið dæma- erfitt að henda reiður á átt- unum i Reykjavík. Ætli menn að fara í siglingu suður fyrir land byrja þeir á að sigla í norður, í átt til Esjunnar, sem Reykvíkingar eru svo fádæma hrifnir af. En þrátt fyrir að villugjarnt sé í Reykjavík náði Sigurborg áttum, nam í Handíða- og Myndlista- skólanum og hóf að kenna börn- um í Glerárskóla og fullorðnum í Myndlistaskólanum. Helgi Vil- berg, skólastjóri Myndlistaskól- ans hlakkar yfir því að hafa feng- ið hana norður: „Við erum alltaf að ná til okkar góðu fólki.“ Eftir því sem líður á tímann og leirhraukarnir taka á sig mynd, sem sífellt líkist meir mannslík- ama, verður léttara yfir hópnum. Hafi einhver roði verið í kinnum fyrirsátanna í upphafi, þá er hann alveg horfinn. Yngstu kon- uraar í hópnum, sem voru kannski svolítið feimnar við að nálgast módelið í upphafi til að kanna líkamsbygginguna nánar, hafa nú alveg komist yfir þá Lambakjöt er ljúfmeti Uppskrift á tveim réttum úr dilkakjöti Hryggjarsteik með lauk og kartöflum 1 lambshryggur. Kryddblanda: 2Vi tsk. salt V) tsk. pipar 'A tsk. hvítlaukssalt Vi tsk. rósmarín 500-700 g kartöflur 2-3 laukar salt 1 dl vatn 1. Sagið hrygginn að endilöngu. Sagið grunna skurði á milli hryggjaliðanna frá beinhliðinni, en kjötið á að hanga saman eins og hryggurinn sé heill að ofan. 2. Ristið skurð inn úr bandvefs- himnunni með um 2 sm milli- bili. 3. Nuddið kjötið með krydd- blöndunni og leggið það í ofn- skúffu. 12 -DAGUR 4. Flysjið kartöflurnar, skerið þær í tvennt og látið í skúffuna ásamt laukbátum. 5. Stráið örlitlu salti yfir kartöfl- uraar. 6. Hellið 1 dl af vatni í skúffuna og steikið í miðjum ofni við 175° C hita í um l!ó klst. 7. Skerið kjötið svo að hryggjar- liður og rif fylgi hverjum bita. Berið grænmetissalat með ásamt kraftinum úrskúffunni. írskur kjötréttur 500glamb@kjöt m/beini (um 3 sm bitar) 2 laukar í sneiðum 300 g kartöflur, flysjaðar í sneiðum 250 g gulrætur í sneiðum 1 hvítlauksgeiri í litlum bitum 1 tsk. salt Steinselja 5 piparkorn 1 lárviðarlauf 4 steinseljugeirar 1- 2 blöð skessujurt 2- 3 dl vatn 1. Látið í lögum í pott kartöflur og gulrætur; kjöt og lauk; salt, piparkorn, hvítlauksbita, lár- viðarlauf, steinseljugeirar og skessujurt, síðan aftur kartöflur og gulrætur; kjöt o.s.frv. Hafið kartöflur efst og þrýstið þessu vel í pottinum. 2. Hellið vatninu yfir og sjóðið við vægan hita í þétt lokuðum potti um 1V} klts. Þá á alit að vera mauksoðið og kartöflurnar búnar að jafna soðið. Dreifið ríflega yfir af klipptri steinselju og berið gróft brauð með rétt- inum. * Tveir menn voru á anda- skytteríi. Annar skaut önd og hún féll nánast við fætur hon- um. „Þú hefðir nú getað sparað skotið," sagði hinn, „hún hefði hvort sem er drepist í fallinu." Maður nokkur kom til sálfræð- ings og fékk að spyrja hann tveggja spurninga. „Er hugsan- legt að ég geti verið ástfanginn af fíl?“ „Auðvitað ekki, næsta spurning." „Veistu um nokkurn sem vill kaupa ofsalega stóran trúlofunarhring?" „Halló, er þetta 23559?“ „Nei, þetta er 23599.“ „Fyrirgefðu að ég skuli ónáða þig svona um miðja nótt.“ „Allt í lagi, ég þurfti hvort sem er að svara símanum, hann var að hringja." • „Ég þarf að láta dragá úr tönn,“ sagði konan við tann- lækninn, „og enga deyfingu vegna þess að ég er að flýta mér svo mikið.“ Tannlæknirinn dáðist að hugrekki konunnar og spurði hvaða tönn þetta væri. „Andrés," sagði konan og snéri sér að eiginmanni sínum, „sýndu honum tönnina." • Áttatíu og sex ára gamall maður ráðgaðist við lækninn sinn og spurði hvort honum væri óhætt að giftast tuttugu og eins árs gamalli stúlku, sem hann hafði augastað á. „Gerðu það ef þér finnst þú mega til,“ sagði lækn- irinn fullur efasemda, „en hafðu hemil á þer því ofreynsla getur verið beinlínis banvæn." Gamli maðurinn yppti öxlum og sagði heimspekilega: „Já, það er nú svo. Jæja, ef hún deyr, þá deyr hún.“

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.