Dagur - 31.10.1980, Blaðsíða 13
Núna, þessa dagana er að koma
út ný plata, sem ber nafnið: Hin
ljúfa sönglist. Útgáfu og dreifingu
plötunnar annast fyrirtækið
Mifa-tónbönd. Þama er á ferð-
inni nokkurs konar fjölskyldu-
plata, þ.e.a.s. þau sem syngja á
plötunni eru ein fjölskylda. Það
em þau hjónin Jóhann Konráðs-
son og Fanney Oddgeirsdóttir,
ásamt fjómm af bömum sínum,
þeim Kristjáni, önnu Maríu, Jó-
hanni og Svavari.
Jóhann Konráðsson kannast
allir við, enda maðurinn búinn að
syngja fyrir okkur fslendinga um
áratuga skeið, ýmist einn, með
Kristni Þorsteinssyni, Smára-
kvartettinum eða með kór. Fann-
ey hefur aftur á móti sungið með
söngfélaginu Gýgjunni, og Anna
María hefur víða komið við í
söngnum. Til dæmis hafa eflaust
margir heyrt í henni síðastliðinn
vetur, en þá sungu þau Birgir
Marinósson saman gamanvísur á
skemmtunum. Kristján er ýmist
heima eða úti á Ítalíu. Reyndar er
hann staddur þar núna, og verður
sennilega fram yfir áramót.
Heyrst hefur, að hann sé að fá
stöðu við óperu þar úti, en ekki
tókst að fá nánari upplýsingar um
það. Jóhann Már, sem er bóndi í
Skagafirði, hefur aldeilis gert það
gott á söngskemmtunum í sinni
sveit, enda maðurinn afburða
söngvari. Og sömu sögu má segja
um Svavar Hákon, bóndann úr
Húnavatnssýslunni.
Eigandi Mifa-tónbanda, Snorri
Hansson, sagðist vera mjög bjart-
sýnn með þessa plötu. Upptaka
fór fram í Stúdíó Bimbó í sept-
ember, utan nokkur lög með Jó-
hanni Konráðssyni, sem eru síðan
1964, tekin upp hjá útvarpinu á
vegum Fálkans.
ill skyldi jú vera undir, og ekkert
annað. Þá var brugðið á það ráð,
að taka Kristján upp með undir-
leik píanós. Seinna var svo farið
upp í Gagnfræðaskóla, og flygill-
inn tekinn upp þar. Þá var
píanóið þurrkað út af upptök-
unni, og flygillinn settur í staðinn.
Er það mál manna, að Dýrleif
Bjamadóttir undirleikari hafi
staðið sig með afbrigðum vel við
það verk. Þetta gerðist allt saman
eftir að Kristján var farinn út aft-
ur. Annar undirleikari spilar líka
á plötunni, og heitir sá Kári
Gestsson. I gömlu upptökunum
spilar Guðrún Kristinsdóttir
undir.
Og svo voru það bræðurnir Jó-
hann og Svavar, stórbændur. Þeir
komu í upptöku, stoppuðu í tvo
daga, fóru síðan heim aftur, og
hafa víst legið meira eða minna
veikir síðan. Vonandi hafa þeir
ekki ofreynt sig við upptökurnar.
Segja má með nokkrum sanni,
að á þessari plötu séu þrír stór-
söngvarar, að hinum ólöstuðum.
Það eru þeir feðgar: Jóhann
Konráðsson, Kristján og Jóhann
Már.
1 lokin sagði Snorri, að það
hefði verið gaman að vinna með
þessu fólki. Eða með öðrum orð-
um: „Þetta er eiginlega það besta,
og hlýlegasta fólk, sem ég hef
nokkurn tíma unnið með á æv-
inni“.
Ég er búinn að hlusta á plöt-
una, og finnst hún skila því hlut-
verki, sem hún á að gera með
ágætum. Hún er mjög heilsteypt,
og nokkuð jafngóð. Og það er
ltka eins gott, því mikið hefur
verið spurt um hana, og menn
bíða með óþreyju eftir henni.
S
Söngelska fjölskyldan
Hugmyndin að þessari plötu
varð til í byrjun september, eða
um svipað leyti og Kristján var að
koma heim frá Italíu. Snorri
sagði, að það hefði verið mikið
púsluspil að koma þessari plötu
saman. Til dæmis komst ekki
flygill inn í stúdíóið, þegar átti að
taka upp söng Kristjáns. En flyg-
íÞRórriR
Sigbjörn Gunnarsson
Þankar um
Það er afar ánægjulegt að vera
knattspyrnuunnandi á Akureyri
um þessar mundir. Skammt er
síðan bæði Akureyrarfélögin
unnu sér rétt til að leika í 1. deild
að ári. Þá hafa bæði félögin end-
urráðið sína ágætu þjálfara frá
fyrra ári og stöðugt berast fregnir,
oft þó úr lausu lofti gripnar, um
að von sé á ýmsum snjöllum
knattspymumönnum til liðs við
félögin. Allt er gott um þetta að
segja og þó ekki síst, að af öllu
þessu má sjá að mikið og gott
starf er unnið hér í bæ af forystu-
mönnum knattspyrnumála.
Af þessu tilefni langar mig að
láta hugann reika nokkur ár aftur
í tímann, eða til 1974, þegar
ákveðið var að skipta upp okkar
gamla ÍBA-liði og senda fram
knattspymulið í nafni félaganna
beggja. Aðdragandann að þessu
máli er óþarft að rekja í smá-
atriðum, flestum mun hann
kunnur. En vegna þeirra sem ekki
þekkja til er rétt að stikla örlítið
þar á.
Þetta sumar gengu kærumál á
víxl, einkum vegna leikmanns,
sem hafði um skeið leikið með
erlendum liðum, og við heim-
komuna vöknuðu margar spurn-
ingar um hvort viðkomandi væri
löglegur í leik með sínu félagi.
Hvomtveggja var, að reglur í
þessu sambandi voru nokkuð á
reiki og svo hitt að deilur risu um
hvort forráðamenn KSI hefðu
veitt félagi viðkomandi leik-
manns munnlegt leyfi o.s.frv.
Þegar upp var staðið frá Is-
landsmótinu voru tvö lið jöfn og
neðst, Víkingur og IBA. Sam-
kvæmt reglum áttu viðkomandi
félög að leika um fallið, en á þeim
tíma féll aðeins eitt lið í 2. deild.
Félögin vildu ekki una því að
leika aukaleik, þar sem klögu-
málin höfðu ekki verið úrskurð-
uð. Þó var sætst á að leika þegar
forráðamenn KSI höfðu gefið
grænt ljós á fjölgun í deildinni að
ári og í raun mundi hvorugt liðið
falla. IBA tapaði þessum leik með
þremur mörkum gegn einu og
þegar að KSl-þingi kom þá tókst
stjóm KSI ekki að afla fjölgunar-
tillögunni nægra atkvæða og ÍBA
lenti sem sé í 2. deild.
Allt þetta umstang og þessi
óvissa olli knattspymuunnendum
og ekki síst okkur knattspyrnu-
mönnunum miklum áhyggjum.
Skjótt voru á lofti raddir um að
æskilegt væri að félögin tefldu
fram liðum sitt í hvoru lagi og
voru þar mörg og góð rök að baki.
Ég hygg ég geti með réttu sagt að
allir leikmenn IBA-liðsins frá ár-
inu áður hafi verið mótfallnir
skiptingunni á sínum tíma. Það
sem fyrst og fremst lá að baki i
okkar hugum var að okkur þótti
afar illt að splundra þessum
ágæta hópi. Splundra honum
þannig að allt í einu voru sam-
herjar orðnir andstæðingar á
vellinum. Hópur manna, þar sem
margir hverjir höfðu unnið sam-
an til margra ára, farið saman í
keppnisferðir innan lands og
utan, átt saman ævintýr, stundir
gleði og sorga. Þetta var þannig
tilfinningalegs eðlis. Svona ef til
vill eins og skilja við sína nánustu.
En hvað um það, vilji okkar var
ofurliði borinn, og einhvern veg-
f.B.A. liðiö eins og þaö var skipaö laust eftir 1960.
LB.A.
inn fannst mér á þessum tíma, að
það væru ansi langt að komnar
raddir sem undir réru. Málið var í
höfn, KA og Þór skyldu leika sitt í
hvoru lagi.
Nú sex árum seinna, þegar litið
er til baka, er ljóst að skiptingin
hefirorðið til góðs. Unglingastarf
félaganna er mun betra en var, og
er það að skila sér nú í dag að
nokkru leyti. Mun fleiri eru
reiðubúnir að starfa knattspyrn-
til góðs, þó svo hún hafi skilið
eftir sig spor í hugum þeirra sem
þá voru í eldlínunni.
Knattspymumenn og knatt-
spymuunnendur á Akureyri geta
litið björtum augum til framtíð-
arinnar. Það leynast geysimörg
góð knattspyrnuefni meðal ungra
drengja í bænum. Ég bið menn þó
vera ekki of bjartsýna á gang
mála næsta sumar. Þetta verður
erfitt sumar hjá KA og Þór, en
með hverju árinu sem líður eign-
umst við sterkari knattspyrnu-
menn og sterkari lið og því geta
hinir mörgu unnendur knatt-
spymu á Akureyri, litið björtum
augum til framtíðarinnar.
unni til framdráttar fyrir sín eigin
félög, fremur en einhvers konar
sambræðing. Og þá er ekki síst að
gæta að helmingi fleiri knatt-
spymumenn komast að í meist-
araflokkum félaganna, þangað
sem hugur flestra knattspyrnu-
manna stefnir í æsku. Þannig
hygg ég að skiptingin hafi orðið
4^
DAGUR.13