Dagur - 27.03.1981, Blaðsíða 4
DÆGURTONLIST
Snorri Guðvarðarson
Af svörtum nótum
og hvítum máfum
á vetuma, og léku þeir mest í
Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík.
Eftir að þetta hringl hafði gengið
nokkur- ár, stofnaði Finnur sína
eigin hljómsveit fyrir sunnan, og
stóð það í tvö ár. Kemur síðan
norður, vorið ’66 og gengur á ný
til liðs við stóra bróður, sem er þá
að spila í Sjálfstæðishúsinu hér.
Og þaðan er ekki blásið til brott-
farar fyrr en að tíu árum liðnum.
Þá er kominn tími til að staldra
við, og hugsa sinn gang.
Eftir að hafa haldið sig heima
og hugsað í eitt ár, varð mannin-
um ljóst, að ekki var hægt að
leggja upp laupana svona á besta
aldri. Þá var stormað í Sjallann að
nýju, og Akureyringum haldið á
dansgólfinu í nokkur ár af
hljómsveit Finns Eydal.
En ekki má gleyma ekta-
kvinnunni Helenu. Eftir ævintýri
Finns með hljómsveit Jónasar
ásamt söngkonunni svörtu, söng
Helena sig inn í hug og hjarta
hans (svo og öllum landslýð), og
hafa þau síðan verið sem eitt. (Af
svörtum nótum í hvíta máfa....).
Auk þess að syngja, hefur frúin
yfir að ráða mikilli tækni og
reynslu i að hrista svokallaðan
„Helenustokk", en hann dregur
nafn sitt að sjálfsögðu af heiti
söngkonunnar. Mun hún vera
álíka fræg fyrir leik sinn á
„stokkinn" og Finnur fyrir sax-
ófónleik.
Jæja, fleiri eru í hljómsveitinni.
Næstur er Þorleifur Jóhannsson
(alias Leibbi), og leikur hann sér
að trommum. Hann byrjaði strax
í barnaskóla að spila í hljómsveit,
og nefndist sú fyrsta Bravó-
bítlarnir. Þóttu þeir skólastrák-
arnir meirháttarfyrirbæri í þá
daga. Svo merkileg var þessi
hljómsveit, að hún var sýnd í
Loksins lftur út fyrir, að
hljómsveitir hér á Akureyri,
séu farnar að biómstra á ný,
eftir fleiri ára deyfð. Ný kyn-
slóð er að skriða úr eggi, og má
þar nefna hljómsveitimar
Tortímingu og Bara-Flokkinn,
en þær em báðar skipaðar
ungum og hressum strákum,
sem eru rétt í startholunum
ennþá. Þessar tvær hljóm-
sveitir héldu hljómleika í Nýja
Bíói fyrir stuttu og þótti sú
uppákoma takast mjög vel.
En þeir eldri em ekki aldeil-
is á því að gefast upp, eða
leggja hljóðfærin á hilluna,
þótt nýir bætist í hópinn. Jafn-
vel þótt einn og einn sé búinn
að spila í 25 ár, eða svo. f síð-
asta mánuði var í Sjálfstæðis-
húsinu hljómsveitin Vaka, og í
þessum mánuði býður húsið
upp á Jamaica, hljómsveit
Steingríms Stefánssonar,
hljómsveit Finns Eydal og
hljómsveit Pálma Stefánsson-
ar. Fjölbreytni í fyrirrúmi þar.
Og á Hótel KEA spilar
Astró-Tríóið (eða öðru nafni
Þrír þroskaðir!) ásamt söng-
konunni Ingu Eydal. Við skul-
um staldra við hljómsveit
Finns, og kynnast henni nánar.
Ég dreif mig á æfingu hjá þeim
eitt kvöldið, og komst að því, að
þetta er ein af þeim hljómsveit-
um, sem dottið hafa niður á ódýrt
og gott húsnæði. Jæja, mér var
boðið inn, og við fengum okkur
sæti. Síðan var serverað kaffi í
jógúrtdollum, og eftir nokkra
símabrandara leiddum við talið
að hljómsveitinni.
Þetta er fimm manna hljóm-
sveit, og eins og flestar hljóm-
sveitir í dag sögðust þau leggja
megináherslu á, að skemmta
fólkinu. Með öðrum orðum, lagið
þarf ekki endilega að vera
nákvæm eftirlíking frumútgáf-
unnar, heldur er ætlast til að það
komi upp stuði hjá mannskapn-
um. Og ef það tekst, þá eru Finn-
ur og félagar hæstánægðir. En
hverjir eru annars meðlimir þess-
arar hljómsveitar?
Að sjálfsögðu byrjum við á
sjálfum höfuðpaurnum, Finni
Éydal. Hann spilar á saxófón og
klarinett, og á líka til að tosa í
bassa annað slagið. Finnur
Hljómsveit Finns Eydals.
byrjaði sinn tóniistarferil í
hljómsveit Jónasar Dagbjarts-
sonar í Reykjavík árið 1956, og
höfðu þeir svarta söngkonu sér til
fulltingis. Ári síðar hætti hann hjá
Jónasi, og gerðist árstíðabundinn.
Þ.e.a.s. spilaði í tveim hljóm-
sveitum til skiptis: Atlantic,
ásamt stóra bróður sínum Ingim-
ar o. fl. á sumrin, en stundaði
blástur í hljómsveit Svavars Gests
/
á
nýr SKODA
nverju
strai
fallegur, þægilegur og
sparneytinn fjölskyldubíll
á ótrúlega lágu verdi
SKÁLAFELL sf
Vió Kaldbaksgötu - Simi 22255
. 1
sjónvarpi út um öll Norðurlönd.
Síðan áttu hljómsveitimar, sem
hann lamdist i, eftir að verða
margar. Svo margar, að enginn í
H. F. Eydal getur státað af öðru
eins. A.m.k. 10. Lengi vel vann
hann með Ingimar í Sjallanum,
en síðast var hann í Upplyftingu.
Næstur er Alli Almars. (Alfreð
Almarsson Chaplin.) Hann er
gítarleikarinn í bandinu, og
syngur einnig á móti Helenu. Alli
kemur langt að, alla leið frá
Hellissandi. Hann hefur verið að
þvælast í ýmsum hljómsveitum,
eins og t.d.: Diamonds, Interm-
ezzo og Upp úr hálfþrjú, eða
korter í eitthvað, ég man nafnið
ekki lengur.....
Og þá er aðeins einn meðlimur
eftir. Ér það Jóhannes Ásbjöms-
son (einu sinni leigubílstjóri í R-
vík.) Jói er hljómborðsleikari hjá
þessu harkaliði. Hann spilar á
fimbulorgan (synthesizer), orgel
og hljómborðsbassa. Síðastliðinn
föstudag fékk hann Hammond-
orgel eitt mikið og fjölhæft í
safnið. Og síðast, en ekki síst er
maðurinn„spes“ í gömlu döns-
unum, þ.e.a.s. harmonikkuleik-
ari. (hálfgerður Keith Emerson,
með hljómborð upp um alla
veggi.....). Jói byrjaði eins og
fleiri góðir menn sinn feril, í
hljómsveit sem hét Gústafus, í
höfuðið á gamalli sjónvarpshetju.
Eftir það gerði hann út tvær 4ra
manna hljómsveitir og fimm tríó
undir sínu nafni, áður en hann
komst á mála hjá meistara Finni
Eydal.
Eftir þessa upptalningu væri
ekki úr vegi, að upplýsa fólk um
það, að H. F. Eydal tók til starfa
um áramótin (rétt eftir kaffi), og
hafa meðlimir ekki hugsað sér, að
láta þetta lognast útaf, eins og
norðlenskra hljómsveita er siður.
Að vísu ætlar Þorleifur að „Lyfta
sér upp“ í sumar, en ef til vill
kemur hann aftur með haustinu.
Vafalaust fæst annar „bamingur“
í vor.
Liðsmenn H. F. Eydal hafa
spilað út um sveitir í vetur, en
með misjöfnum árangri! Þennan
misjafna árangur mætti nú mis-
skilja, en hann er þannig til kom-
inn, að veðurguðirnir hafa ekki
alltaf verið að spá í það, hvort
Finnur væri að fara til Þórshafnar
með saxófóninn sinn, eða bara 1
Sjallann! Böllin, sem náðst hefur
að leika á, hafa verið mjög góð,
að sögn. Og ef einhver er ekki al-
veg klár á því, hvernig gott ball á
að vera, þá getur hann komist að
því í Sjálfstæðishúsinu núna um
helgina, því Finnur verður þar!
Auðvitað finnst mér gott að fá
launaumslagið þitt, en ég vildi nú
heldur peningana.
4•DAGUR